Morgunblaðið - 14.09.2016, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2016
SMYRJA
SÍMJÚK Á BRAUÐIÐ
Oddný Harðar-
dóttir, fyrrverandi
fjármálaráðherra og
núverandi formaður
Samfylkingarinnar,
fer ekki fögrum orð-
um um kvótakerfið.
Hún segir það til
marks um spill-
inguna sem fylgi
kvótakerfinu að
útgerðarmenn haldi
úti dagblaði sem tal-
ar þeirra máli. Ef enginn talaði máli
útgerðarinnar væri það þá líklega til
marks um hið gagnstæða! Getur ver-
ið að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
fyrrverandi formaður Samfylking-
arinnar, hafi rétt fyrir sér; Oddnýju
sé ekki treystandi til forystu sökum
dómgreindarbrests?
Kvótinn og landsbyggðin
Oddný segir réttilega að framsal
kvóta sé heimilað af efnahagslegum
ástæðum og hafi leitt til gríðarlegrar
hagræðingar í greininni. Sú aðgerð
hafi hins vegar haft neikvæð sam-
félagsleg áhrif. Með sölu kvóta sé
mögulegt að kippa í einni svipan
stórum stoðum undan heilu byggð-
arlögunum eins og nýlegt dæmi úr
Þorlákshöfn sýni. Lausnin sé upp-
boð á kvóta. Sem betur fer fyrir
Oddnýju fer hún ekki út í að rök-
styðja hvernig uppboð á kvóta hefði
leyst vanda Þorlákshafnar. En ekki
verður það tekið af Oddnýju að hún
hefur hugarflug!
Ríkið fær 10% hlut að sögn fyrr-
verandi fjármálaráðherra
Mér satt að segja brá þegar fjár-
málaráðherrann fyrrverandi fór að
fara með tölur máli sínu til stuðn-
ings. Tölurnar líta satt best að segja
ekki vel út eins og henni segist frá
þeim. Orðrétt segir hún
„þjóðin sjálf fær aðeins
um 10% af arðinum en
útgerðarmönnum er leyft
að ráðstafa 90% hlut“.
Nú er ég ekki með því
sem hér verður rakið að
gera því skóna að hún
fari vísvitandi með rangt
mál. Ekki er hægt að ætl-
ast til að kennarinn geti
greint afkomutölur án
aðstoðar. Mér býður í
grun að prófessorinn sem
spáði Íslandi stöðu Kúbu
norðursins og hélt stöðu
sinni sem óháður álitsgjafi á RÚV,
m.a. í sjávarútvegsmálum, hafi e.t.v.
unnið greiningarvinnuna. Þegar
Samfylkingin hrapar að ályktunum á
hann gjarna hlut að máli.
Réttar tölur
Ég aflaði mér upplýsinga frá
starfsbræðrum til að sannreyna
þessar ógnvænlegu tölur. Hagstofan
gaf út skýrslu sem nefnist „Hagur
veiða og vinnslu 2014“. Ég hef dregið
saman tölulegar upplýsingar úr
skýrslunni. Þeir sem óska geta haft
samband við mig og fengið afrit af
skjalinu. Í stuttu máli er það svo að
eftir að allur kostnaður annar en
skattar til ríkisins hefur verið dreg-
inn frá tekjum stóðu eftir um 55,5
milljarðar króna árið 2014. Þetta má
nefna hagnað til ráðstöfunar til eig-
enda og ríkisins. Af þeim renna rúm-
ir 28 milljarðar til ríkisins í formi
skatta og rúmir 23 milljarðar til eig-
endanna. Sá reikningsglöggi maður
sem gaf ráðherranum fyrrverandi
upp töluna 10% hefur eitthvað
skriplað á skötunni. Ef mér skjátlast
ekki þeim mun verr er hlutur eig-
enda aðeins 45%. Excel-skjöl eru
vandmeðfarin; líklega hefur prófess-
orinn eða hver sá sem skoðaði af-
komutölurnar óvart margfaldað hlut
eigendanna með tveimur. (Ég var
t.d. næstum búinn að skrifa marg-
falsað í stað margfaldað.) Þetta sam-
svarar 13% ávöxtun eigin fjár í
greininni sem þykir víst ekki mikið í
öðrum áhætturekstri eða hvað?
Uppboð á kvóta
Nú á allra vanda að leysa með
þessum 23 milljörðum eða stórum
hluta þeirra. Það væri líklega til-
raunarinnar virði að setja t.d. 5%
kvótans á markað í stað þess að ríkið
úthluti byggðakvótum (ef marka má
álit Oddnýjar). Ef spákaupmennska
með lánsfé væri bönnuð og bjóð-
endum gert að staðgreiða kvótann
með eigin fé kæmi hið sanna í ljós.
Ríkið myndi að sjálfsögðu ekkert
hagnast og stórfyrirtækin ein hefðu
burði til að kaupa kvótann. Þetta sér
hver maður, jafnvel þeir í nýja
stjórnmálaflokknum sem hafa gert
óheiðarlegan málflutning að að-
alsmerki sínu. – Yrði kannski bara
að banna stórfyrirtækjum sem geta
borgað fyrir kvótann að bjóða? Til
hvers yrði þá af stað farið ef þeir
sem best tekst upp við útgerð yrðu
útlokaðir?
Uppboð fyrir aðrar
atvinnugreinar
Hvernig væri nú að útvíkka upp-
boðsleiðina? Bjóða út 5% af raf-
magni til stóriðju árlega? Bjóða út
ferðaheimildir um Gullna hringinn?
Þegar allt kemur til alls eru túrist-
arnir bara að borga fyrir að sjá þjóð-
areignirnar Gullfoss og Geysi. Bjóða
út lendingarleyfin í Keflavík, eru þau
ekki takmörkuð gæði? Sannið þið til;
vinirnir í Pírötum, nýja flokknum
sem hefur samtvinnaða löngutöng
og vísifingur að flokksmerki og aðrir
vinstrimenn geta áfram veginn í
uppboðsvagninum ekið, allt greitt
með gjaldmiðli hins nýja Stór-
Þýskalands.
Höfundur vinnur ekki fyrir neitt
fyrirtæki í sjávarútvegi, á engan hlut
í tengdum rekstri og hefur einungis
sömu hagsmuni og aðrir Íslendingar
af hagkvæmri útgerð. Höfundur er á
hinn bóginn svo heppinn að hafa
sloppið við öfundargenið alkunna
sem núorðið fer svo mikið fyrir á Ís-
landi.
Um Oddnýju Harðardóttur og
ávinning af útboði veiðiheimilda
Eftir Einar S.
Hálfdánarson
» Í stuttu máli er það
svo að eftir að allur
kostnaður annar en
skattar til ríkisins hefur
verið dreginn frá
tekjum stóðu eftir um
55,5 milljarðar króna ár-
ið 2014
Einar S.
Hálfdánarson
Höfundur er löggiltur endurskoðandi
og hæstaréttarlögmaður.
Fyrir nokkrum dög-
um barst fimm síðna
bréf til flokksmanna í
NA-kjördæmi frá
Höskuldi Þórhallssyni,
2. þingmanni Fram-
sóknarflokksins þar.
Innihaldi bréfsins
má að mestu skipta í
tvennt, annars vegar
óhóflega sjálfsánægju
með lítið og lýsingar á
hans ágæti í störfum Alþingis og
nokkrum nefndum, sem að ein-
hverju leyti eru bara sjálfshól og
helber ósannindi í bland.
Hins vegar ræðst hann að for-
manni Framsóknarflokksins, Sig-
mundi Davíð, og hans ágætu eig-
inkonu, Önnu Sigurlaugu, með
skítkasti. Sem formaður umhverfis-
og samgöngunefndar telur hann
upp í bréfinu t.d. að hann sé búinn
að tryggja fé til endurbóta á Egils-
staða-, Húsavíkur- og Norðfjarð-
arflugvelli, sem er ekki rétt því
innan skamms verður hafist handa
við lagfæringar á Norðfjarðar-
flugvelli eingöngu vegna þess að
heimamenn fengu ríkið til fram-
kvæmdanna með því að leggja tugi
milljóna á móti. Ég veit ekki til að
Höskuldur hafi komið þar nálægt
og svo er e.t.v. um hina flugvellina
líka. Þá þakkar hann sér að styttist
í að slegið verði í gegn í göngunum
undir Vaðlaheiði, sem eru algjör
ósannindi og flughlaðið á Akureyr-
arvelli er auðvitað hans stóra
skömm að það skuli ekki vera fyrir
löngu búið og gert og komið í notk-
un.
Ferðaþjónustan er verulega ugg-
andi yfir því að erlend flugfélög fá-
ist ekki til að lenda á Akureyri fyrr
en flughlaðið er tilbúið til notk-
unar.
Verst er að allt efni til notkunar
er tilbúið í örfárra km fjarlægð. Yf-
ir hverju er eiginlega verið að
hreykja sér? Þá er tilbúið frum-
varp hjá Höskuldi, sem hann segir
að allur þingflokkurinn hafi sam-
þykkt og séu flutningsmenn að, en
eins og venjulega ræðst hann á
Sigmund Davíð og segir hann hafa
verið fyrirstöðu fyrir því að frum-
varpið yrði lagt fram í forsætisráð-
herratíð hans, sem er ein lygin
enn.
Því skyldi frumvarpið ekki vera
komið fram núna með nýjan for-
sætisráðherra í brúnni? Sannleik-
urinn er sá að Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur staðið í veginum.
Höskuldur grætir
frú Önnu Sig-
urlaugu
Frú Anna Sig-
urlaug, eiginkona Sig-
mundar Davíðs, brast
í grát við lestur bréfs-
ins þar sem Hösk-
uldur í óþverraskap
sínum fer að tala um
Panamaskjalamálið,
sem afhjúpaði stór-
fellda spillingu auð-
manna og forrétt-
indahópa, eins og Höskuldur segir
í umræddu bréfi. Þó svo að í tilviki
þeirra hjóna hafi bæði núverandi
og fyrrverandi ríkiskattstjórar og
núverandi skattrannsóknarstjóri
lýst því yfir að þarna sé ekkert
ólöglegt á ferðinni og fólk megi
eiga peninga erlendis svo lengi sem
borgaðir séu af þeim skattar og
skyldur, sem í tilfelli þeirra hjóna
er gert. Þau hafa borgað um 300
milljónir á skatta. Þessi áburður er
bara hefnd, hatur í fari Höskuldar
í garð þeirra hjóna auk alls annars
í framkomu hans. Frú Anna Sig-
urlaug taldi sig vera búna að fá
nóg þó að Höskuldur færi ekki að
blanda sér af einskærri illkvittni í
málið, sem er upplogið frá rótum.
Nokkrar umsagnir
um Höskuld
Höskuldur hefur eignað sér
Framsóknarfélag Akureyrar og ná-
grennis og hefur margt að segja
um skipanir í stjórn og trúnaðar-
stöður og nýverið var auglýst eftir
þátttöku fólks á kjördæmaþinginu í
Mývatnssveit 17. september nk. og
var búið að fylla þátttakendalist-
ana, bæði aðal- og varamenn, um
150 manns, nokkrum klukkustund-
um eftir að auglýst var. Listann er
svo ekki hægt að fá til yfirlestrar
þegar þetta er skrifað. Allt voða
lýðræðislegt. Þessar aðferðir Hösk-
uldar í framboðspoti hans geta alls
ekki verið honum til framdráttar
en hann um það. Ef framsókn-
armenn ætla á 100 ára afmæli
flokksins að gefa honum í afmæl-
isgjöf – þessum aldna höfðingja –
stórfelldan klofning sem á rætur að
rekja til manns sem allavega eins
og er virðist ekki vera til stórræð-
anna bið ég í lengstu lög framsókn-
arfólk að hugsa verulega sinn
gang. Að endingu vil ég nefna að
þó að stóryrt fréttakona RÚV hafi
flutt undarlegar fréttir af mið-
stjórnarfundinum sl. laugardag,
sem hún svo varð ekki vitni að
nema að hluta, og segi að annars
ágætur Sigurður Ingi hafi fengið
áskoranir um að gefa kost á sér til
formennsku í Framsóknarflokkn-
um, þá var yfirgnæfandi stuðn-
ingur fundargesta við núverandi
formann, Sigmund Davíð. Þetta
gleymdi hin unga fréttakona að
minnast á, enda eftir öðrum frétta-
flutningi hjá RÚV og ekki kannski
hvað síst vegna þess að sú sama
fréttakona var tíður gestur í ótrú-
lega rætnum sjónvarpsþætti á
Hringbraut hjá Sigmundi Erni
Rúnarssyni. Í umræddum þætti
var í hávegum haft skítkast á Sig-
mund Davíð að ósekju þar sem
tvær fréttakonur, sem báðar eiga
ættir að rekja til Akureyrar, voru
leiddar í kjánaskap sínum í
óþverraþætti Sigmundar Ernis.
Höskuldur kastar
stríðshanskanum
Eftir Hjörleif
Hallgríms
» Bið framsóknarfólk í
NA-kjördæmi að
hugsa sig vel um hvaða
afmælisgjöf það ætlar
hinum aldna höfðingja,
Framsóknarflokknum, á
100 ára afmælinu.
Hjörleifur Hallgríms
Höfundur er eldri borgari
á Akureyri og kjósandi
í NA-kjördæmi.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Halldór og Magnús unnu
lokamót Sumarbrids
Lokamót sumarbrids var haldið
þann 9. september. 35 pör mættu til
leiks og voru spiluð 36 spil.
Verðlaun voru veitt fyrir 6 efstu
sætin en röð efstu para varð þessi:
Halldór Þorvaldss. - Magnús Sverriss. 61,9
Stefán Stefánss. - Skúli Skúlason 59,3
Hermann Friðrikss. - Daníel Sigurðss. 56,3
Soffía Daníelsd. - Þóranna Pálsd. 56,0
Erla Sigurjónsd. - Ólöf Þorsteinsd. 55,7
Jórunn Kristinsd. - Kristín Andrewsd.54,9
Það fjölgar
í Gullsmáranum
Mánudaginn 12. september var spilað á
12 borðum í Gullsmára.
Úrslit í N/S:
Ragnar Jónsson - Lúðvík Ólafsson 206
Pétur Antonsson - Guðlaugur Nielsen 201
Margrét Guðmundsd. - Ágúst Helgason
193
A/V
Vigdís Sigurjónsd. - Björn Árnason 210
Sigurður Njálsson - Óskar Karlsson 200
Gunnar Alexanderss. - Elís Helgason 179