Morgunblaðið - 28.09.2016, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 8. S E P T E M B E R 2 0 1 6
Stofnað 1913 227. tölublað 104. árgangur
GLÍMUKAPPI
Í FANGELSI
FYRIR MÖK
NÝ PLATA
SÉRSTÆÐ OG
ÁHRIFARÍK
FRUMFLYTUR
VERK FYRIR PÍ-
ANÓ OG STRENGI
NICK CAVE EINLÆGUR 33 SUNNA GUNNLAUGS 30FYRIRLESTUR 12
Kjöt Íslenska lambið fer á netið.
Bændur geta nú selt vörur sínar
beint til neytenda og verðlagt vör-
una eftir eðli og gæðum með nýju
markaðstorgi fyrir íslenskar land-
búnaðarvörur, sem verður opnað á
morgun á síðunni kjotbordid.is.
„Hér gefst mér tækifæri á að
selja skrokka af sérstöku forystufé
sem annars er ekki aðgreint eða
mögulegt að koma á markað á
hærra verði,“ segir Gunnar Ein-
arsson, bóndi á Daðastöðum í
Núpasveit í Öxarfirði.
„Kjöt af forystufé er öðruvísi,
það er líkara villibráð enda minni
fita á því. Við fáum hins vegar
minni styrki af þessu kjöti því það
fellur ekki að almennum stöðlum.“
Á Kjötborðinu komast bændur í
bein tengsl við neytendur. »16
Lambakjötið selt
beint frá bónda í
gegnum netið
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Áætlað er að stofnkostnaður við að
færa vegakerfið að stöðlum og öllum
settum framkvæmdamarkmiðum
Vegagerðarinnar nemi nærri 400
milljörðum króna. Samkvæmt þings-
ályktunartillögu um samgönguáætl-
un 2015-2026 er gert ráð fyrir um
100 milljörðum til framkvæmda, eða
um fjórðungi af heildarþörfinni.
Hreinn Haraldsson vegamála-
stjóri sagði að Vegagerðin hefði met-
ið kostnaðinn við að koma vegakerfi
Íslands í svipað horf og er í ná-
grannalöndum okkar. Þessi upphæð,
400 milljarðar, hefði verið niðurstað-
an. Auk þess kostaði sitt að halda
vegakerfinu við á meðan verið væri
að endurbæta vegina. Hann sagði að
það væri að koma þjóðinni í koll hve
seint hefði verið byrjað á að byggja
upp vegakerfið.
Þörfin á endurbótum veganna og
betri vegaþjónustu, ekki síst á vetr-
um, væri orðin mjög brýn vegna auk-
ins ferðamannastraums og lengri
ferðamannatíma.
Álag vegna landflutninga
„Það sem við höfum mestar
áhyggjur af núna er umferðar-
öryggið,“ sagði Hreinn. Hann sagði
að stór hluti ökumanna sem notuðu
vegakerfið í dag væri vanur annarri
umferðarmenningu og vegum en Ís-
lendingar hefðu átt að venjast. Að-
skilja þyrfti t.d. akstursstefnur á
umferðarmestu vegunum, fækka
einbreiðum brúm og laga gatnamót
víða um land. Auknir landflutningar
valda miklu álagi á þjóðvegina og er
orðið brýnt að styrkja vegi sem mest
eru farnir að þreytast, að sögn
Hreins.
Brýnt að bæta vegakerfið
Aukið umferðaröryggi þarf að hafa forgang Aukinn ferðamannastraumur og
lengri ferðamannatími kalla á betri vegi og betri vegaþjónustu, ekki síst á vetrum
MSamgönguáætlun »14
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Kröfluvirkjun Mikla orku þarf til að
knýja vélar virkjunarinnar.
Fyrsta verkefni Íslenska djúp-
borunarverkefnisins (IDDP) lauk
síðastliðinn vetur með því að steypt
var í kvikuholuna við Kröflu og henni
lokað varanlega. Landsvirkjun hug-
ar að því að nýta í framtíðinni þá
miklu orku sem er í jarðlögunum
með því að bora aðra holu niður á
svipað dýpi, að sögn Bjarna Páls-
sonar, forstöðumanns jarðvarma-
deildar Landsvirkjunar.
Ætlunin var að bora niður í 4.500
metra en borinn stöðvaðist í 2.100
metrum í júní 2009 þegar hann lenti í
kviku. Borholan gaf mikla orku enda
heitasta borhola heims á háhita-
svæðum. Ekki reyndist unnt að nýta
orkuna til raforkuframleiðslu vegna
hita og tæringar vegna óhagstæðrar
efnasamsetningar í gufunni. Ekki
reyndist unnt að gera við skemmdir
og var því ákveðið að loka holunni.
„Við hugsum okkur að bora í fram-
tíðinni aðra holu á svipuðum stað.
Það eru orkumikil jarðlög rétt ofan
við 2.100 metra sem við viljum nýta.
Búið er að safna miklum upplýsing-
um um þessa holu og við erum líka
aðilar að IDDP 2 á Reykjanesi og
lærum á því,“ segir Bjarni. »6
Kvikuholu varanlega lokað
Landsvirkjun stefnir að borun nýrrar djúpholu við Kröflu
Starfsmenn Arnarlax eru langt komnir með
útsetningu laxaseiða í sjókvíar á þessu hausti.
Alls fara um 3,2 milljónir seiða í eldi, í sjó-
kvíastöð í Tálknafirði sem hefur verið í hvíld
þetta árið og í nýja stöð við Hringsdal í
Arnarfirði. Seiðin koma úr seiðaeldisstöð
Arnarlax á Gileyri í Tálknafirði og frá stöð
Ísþórs í Þorlákshöfn. Myndin var tekin þegar
seiðum var fleytt úr stöðinni á Gileyri út í
brunnbátinn Gunnar Þórðarson, sem skilaði
þeim í stöðina í firðinum. Víkingur Gunnars-
son framkvæmdastjóri segir að verið sé að
undirbúa stækkun stöðvarinnar á Gileyri,
samhliða leyfum sem fyrirtækið aflar sér til
að auka framleiðsluna.
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Arnarlax að ljúka útsetningu seiða í sjókvíastöðvar sínar í Tálknafirði og Arnarfirði
Ráðstöfunartekjur heimilanna
jukust árið 2015 um 10,8% frá fyrra
ári. Ráðstöfunartekjur á mann juk-
ust um 9,6% milli
ára og kaup-
máttur
ráðstöfunar-
tekna á mann
jókst um 7,9%.
Ráðstöfunar-
tekjur á mann
námu 3,3 milljónum
króna á síðasta ári, eða um 275 þús-
und krónum á mánuði, borið saman
við um 3 milljónir árið 2014. Þessar
tölur Hagstofunnar sýna að lands-
menn hafa meira á milli handanna
þegar búið er að greiða öll hefð-
bundin útgjöld. »10
Með meira á
milli handanna
Eftir aðeins einn leik og 67 daga í
starfi hefur Sam Allardyce verið
sagt upp störfum sem landsliðsþjálf-
ara Englands í knattspyrnu. Ástæða
brottrekstrarins er sú að hann sam-
þykkti að þiggja 400 þúsund punda
greiðslu, um 60 milljónir króna, fyr-
ir að aðstoða meinta austurlenska
viðskiptajöfra við að fara á svig við
reglur enska knattspyrnusambands-
ins. Auk þess að samþykkja að taka
við greiðslu fyrir að leiðbeina meint-
um kaupsýslumönnum, sem í raun
voru blaðamenn The Telegraph, fór
Allardyce m.a. háðulegum orðum
um forvera sinn og þótti lítið til
nokkurra meðlima konungsfjöl-
skyldunnar koma. » Íþróttir
Hættur eftir einn
leik og 67 daga
Fleyta laxaseiðum í brunnbátinn