Morgunblaðið - 28.09.2016, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2016
Láttu okkur ráða
Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is
Þarftu að ráða
lagerstarfsmann?
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Yfirskattanefnd hefur hafnað kröfu
dánarbús eldri konu um ívilnun í
sköttum vegna dvalarkostnaðar.
Nefndin telur hafið yfir allan vafa að
ívilnun verði ekki veitt dánarbúi lát-
ins manns vegna veikinda hins látna í
lifanda lífi. Vísar nefndin þar til til-
gangs heimildar um skattaívilnun.
Konan andaðist í desember árið
2014 en átti enga erfingja. Í skatt-
framtali dánarbúsins fyrir það ár var
óskað eftir lækkun tekjuskattsstofns
vegna veikinda konunnar, en hún
hafði verið vistuð á hjúkrunarheimili
árið 2014 vegna varanlegs heilsu-
brests og hafði haft verulegan kostn-
að af dvölinni.
Ríkisskattstjóri hafnaði umsókn
um lækkun tekjuskatts. Vísaði hann
þar m.a. til heimildar í lögum um
tekjuskatt að ívilnun vegna andláts
væri bundin við það ef hinn látni léti
eftir sig maka eða „skylduómaga“
sem hefði framfærslu af tekjum eða
eignum dánarbús. Heimild ríkis-
skattstjóra til að veita ívilnun væri
bundin við menn, eins og það er orð-
að í úrskurðinum, og kæmi ekki til
álita hjá dánarbúum eða öðrum lög-
aðilum. Þá taldi ríkisskattstjóri að
fjárhagsleg staða dánarbúsins hefði
heldur ekki gefið tilefni til ívilnunar.
Yfirskattanefnd tekur undir með
ríkisskattstjóra og hafnar kröfu
dánarbúsins.
Nefndin hafnaði einnig kröfu
dánarbúsins um að einn starfsmaður
ríkisskattstjóra hefði verið vanhæfur
við meðferð málsins. Tengdist það
eldra máli konunnar, þar sem álagn-
ing var kærð árið 2013 og skattaíviln-
un samþykkt í það skiptið. Sami
starfsmaður embættisins kom síðan
að meðferð á kæru dánarbúsins en í
kæru til yfirskattanefndar segir m.a.
að málatilbúnaður ríkisskattstjóra í
því máli hafi verið óvenjulegur og
ómálefnalegur og draga megi óhlut-
drægni viðkomandi starfsmanns í
efa. Niðurstaða ríkisskattstjóra í hin-
um kærða úrskurði hafi verið „algjör-
lega ósamrýmanleg ákvörðunum
embættisins vegna fyrri gjaldára,“
eins og það er orðað. bjb@mbl.is
Heimild til skattaívilnunar
bundin við lifandi fólk
Yfirskattanefnd hafnar kröfum dánarbús eldri konu
Þorsteinn Friðrik Halldórsson
tfh@mbl.is
Mikil mildi þykir að ekki hafi orðið
alvarlegt slys þegar gaskútur
sprakk í húsbíl á bensínstöð N1 í
Ártúnsbrekku um tvöleytið í gær.
Dælubílar frá slökkviliðinu á höfuð-
borgarsvæðinu hreinsuðu vettvang-
inn og var stöðinni lokað í rúman
klukkutíma eftir slysið.
Orsök slyssins má rekja til þess
að spænskur ferðamaður dældi
metangasi á própangaskút húsbíls-
ins. Própangaskútar eru hannaðir
til að þola þrýsting upp á um 20-30
bör en metangaskútar þurfa að þola
tífalt meiri þrýsting. Kúturinn
sprakk og sendi málmtætlur í allar
áttir. Að sögn sjónarvottar heyrðist
hávær hvellur og allt í bílnum „fór á
hvolf og út um allt“. Upp gaus
megn metanlykt og var svæðinu
strax lokað.
Engin eldhætta
Þrír slösuðust minniháttar við
sprenginguna samkvæmt upplýs-
ingum frá slökkviliðinu. Sá sem
dældi gasinu fékk skurð á kálfa og
sagði Eggert Þór Kristófersson,
forstjóri N1, í samtalið við Morgun-
blaðið að ótrúlegt væri að viðkom-
andi hefði sloppið jafn vel.
„Þetta var uppskrift að dauða-
slysi og ótrúlegt að hann hafi ekki
farið verr út úr þessu,“ sagði Egg-
ert.
Dælustöðin er rækilega merkt
metangasi en Eggert segir að
hugsanlega þurfi að gera sérstakar
ráðstafanir til að hindra að þetta
komi aftur fyrir, til dæmis með því
að vara sérstaklega við því að
metanið sé ætlað bílum en ekki gas-
kútum. Engin eldhætta var, þar
sem sprengingin varð einungis
vegna þrýstingsáhrifa.
„Í sjálfu sér er aldrei hætta með
stöðina sjálfa, hún getur ekki
sprungið. Um leið og kúturinn
springur slokknar á dælunni,“ sagði
Eggert enn fremur.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins mun ferðamaðurinn hafa
borið fyrir sig að hann hafi gert
þetta áður heima á Spáni án vand-
kvæða en líklega hefur verið um
aðrar gastegundir að ræða.
Einsdæmi á Íslandi
Vinnueftirlitið mætti á vettvang
til að rannsaka aðdraganda slyss-
ins. Helsta rannsóknarefnið er
hvernig viðkomandi gat tengt stút-
inn á metandælunni við kútinn og
líklega hefur þurft sérstakt milli-
stykki til. Eyjólfur Sæmundsson,
forstjóri Vinnueftirlits ríkisins,
leggur áherslu á að ekkert sé að
óttast fyrri metanbílaeigendur.
„Þetta tilfelli er einsdæmi á Íslandi.
Það er engin hætta þegar verið er
að dæla á venjulega metanbíla.“
Málið er nú í höndum lögregl-
unnar og Vinnueftirlitsins.
„Uppskrift að dauðaslysi“
Gaskútur í húsbíl sprakk á Ártúnshöfða eftir mistök ferðamanns Dældi
metangasi á própangaskút húsbílsins Slapp með minniháttar meiðsli á kálfa
Morgunblaðið/RAX
Þrif Slökkvilið þrífur vettvanginn eftir gassprenginguna. Hluta Bíldshöfða var lokað um stundarsakir og þjónusta á bensínstöðinni lá niðri.
Eggert Þór
Kristófersson
Eyjólfur
Sæmundsson
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auð-
lindamála hefur fellt úr gildi breyt-
ingu á deiliskipulagi sem miðaði að
uppbyggingu í
miðbæ Borgar-
byggðar.
Niðurstaða
nefndarinnar
byggir á því að
byggingarmagn á
tveimur lóðum
hafi verið of mik-
ið miðað við það
sem tilgreint er
að leyfilegt sé í
aðalskipulagi.
Fyrirhugaðar framkvæmdir eru
eitt stærsta uppbyggingarverkefni
sem ráðist hefur verið í Borgar-
byggð. Samkvæmt hinu fellda deili-
skipulagi sem samþykkt hafði verið
af bæjaryfirvöldum átti að rísa þar
íbúðarbyggð, þjónustukjarni og
hótel.
Umræddur byggingarreitur er á
Borgarbraut 55-59 og er jarðvegs-
og sökkulsvinna þegar hafin, auk
uppsetningar veggja í kjallara á lóð-
um nr. 57 og 59.
Engin ákvörðun tekin
Að sögn Gunnars S. Ragnars-
sonar, byggingarfulltrúa í Borgar-
byggð, munu framkvæmdir nú
stöðvast og eftir stendur nokkur
hundruð fermetra hola. „Við hjá
bænum vorum að funda um málið og
það er ekki búið að taka neina
ákvörðun um það hvað verður gert
og hvernig þetta mun þróast,“ segir
Gunnar.
Hann viðurkennir aðspurður að
niðurstaðan sé reiðarslag fyrir
bæinn. „En það verður bara að taka
tillit til þeirra sem eru að kæra og
fara eftir settum lögum og reglum,“
segir Gunnar.
Hann segir að nú verði farið yfir
stöðuna og ákvörðun um næstu
skref sé á borði byggingarfulltrúa og
bæjarfulltrúa. Spurður hvort til
greina komi að hætta alfarið við upp-
bygginguna eða minnka byggingar-
magnið segir Gunnar að ekki sé búið
að fara yfir þá möguleika. „Það er
ekkert búið að ræða þetta nánar,“
segir Gunnar.
Upp-
bygging í
uppnámi
Úrskurðarnefnd
felldi deiliskipulag
Borgarnes Deili-
skipulag var fellt.