Morgunblaðið - 28.09.2016, Síða 13

Morgunblaðið - 28.09.2016, Síða 13
landi fyrir heimsstyrjöldina síðari,“ segir hann og víkur talinu að sak- borningi, aðdraganda málaferlanna og eftirmálum. Tákn karlmennskunnar „Guðmundur æfði með Glímu- félaginu Ármanni og var í flokki pilta sem þreyttu kapp í Konungsglímunni á Þingvöllum til heiðurs Friðriki VIII Danakonungi. Hann þótti snjallasti glímumaður landsins í sínum þyngd- ar- og stærðarflokki og var í hópi pilta sem sýndu glímu á Ólympíu- leikunum í London 1908. Hann ferð- aðist um landið á vegum Ungmenna- félags Íslands og kenndi íþróttir áður en hann lærði íþróttaþjálfun og sjúkraþjálfun á Englandi. Árið 1914 settist hann að í Winnipeg í Kanada, lærði grísk-rómverska glímu og ís- knattleik, lék með Winnipeg Falcons og þjálfaði síðan liðið. Hann hélt með kanadískum sjálfboðaliðum á víg- stöðvarnar í Evrópu 1916 þar sem hann var hjúkrunarmaður í fremstu víglínu til stríðsloka. Árið 1920, sama ár og hann fluttist aftur til Íslands, unnu Fálkarnir til gullverðlauna á Ól- ympíuleikunum í Antwerpen,“ segir Þorvaldur og heldur áfram: „Í Reykjavík starfaði Guðmund- ur sem glímukennari, þjálfari í frjáls- um íþróttum og nuddari íþrótta- manna. Ennfremur veitti hann forstöðu útibúi Kleppsspítala sem kallað var Litli-Kleppur, var at- kvæðamaður í Ungmennafélagi Reykjavíkur og mikill bindindis- og hugsjónamaður, sem sinnti því hlut- verki fyrir góðtemplara að upplýsa lögregluna um ólöglega sölu áfengis.“ Þorvaldur segir að Guðmundur hafi verið þjóðþekkur maður og tákn karlmennskunnar á sinni tíð, af- skaplega vinsæll og vel liðinn. Engu að síður hafi hann átt sér óvildar- menn. Sprúttsalar landsins voru ekki í aðdáendahópnum. „Þeir klekktu á honum með því að kæra hann fyrir illa meðferð á sjúklingum, en hann var sýknaður af þeirri ákæru, og mök við karla. Ákæran var tekin til rannsóknar í janúar 1924. Fjórtán manns voru kallaðir til yfirheyrslu. Sumir kváðu ásakanirnar tilhæfulausar, aðrir stað- festu kynferðislegar þreifingar og mök. Guðmundur var í einangrunar- vist í fangelsi meðan yfirheyrslur stóðu yfir. Í fyrstu neitaði hann sak- argiftum og allt benti til að málið yrði látið niður falla. Eftir viku í einangr- un bugaðist hann og játaði að hafa átt mök við nokkra menn sem slíkt höfðu á hann borið. Athæfi sem hann taldi þó hvorki syndsamlegt né refsivert,“ segir Þorvaldur. Náðaður fyrir orð lækna Guðmundur sat inni í fjóra mán- uði en var þá náðaður fyrir orð tveggja lækna, Guðmundar Thorodd- sen og Guðmundar Björnssonar, landlæknis, sem töldu hegningarlögin gjörsamlega úrelt. Þorvaldur kemur nánar að þeirra þætti í erindinu. „Opinberlega stóðu þeir þó ekki við bakið á Guðmundi. Vörn þeirra kemur aðeins fram í einkabréfum milli embættismanna. Þeim þótti við- fangsefnið vera vísindanna en ekki dómstólanna. Sú skoðun var meira og minna ríkjandi á heimsvísu áratugum saman, eða allt fram á áttunda ára- tuginn að samkynhneigð var tekin af alþjóðlegu sjúkdómaskránni.“ Saga samkynhneigðra á Íslandi er um margt merkileg og ekki síst í ljósi málaferlanna á hendur Guð- mundi Sigurjónssyni, glímukappa, sem þó er öllu þekktari fyrir þátt sinn í íþróttasögu Íslands. „Um ævi hans er lítið vitað í fimm ár eftir að dómur féll annað en það að hann missti starf sitt, hraktist úr íþróttahreyfingunni en bjó þó allan þann tíma í Reykjavík. Minningar um þetta mál voru að mestu fyrndar þegar hann sótti um uppreisn æru 1935 og hlaut hana með konungsbréfi Kristjáns. Guðmundur lét tímann vinna með sér gegn nið- urlægingunni, tók aftur til starfa hjá íþróttahreyfingunni og átti að mörgu leyti farsælan feril, “ segir Þorvaldur að lokum. Fálkarnir fræknu Ísknattleiksliðið Winnipeg Falcons árið 1920, sama ár og Fálkarnir unnu gullverðlaun á Ól- ympíuleikunum í Antwerpen. Guðmundur Sigurjónsson, þjálfari liðsins, er lengst til vinstri. Þorvaldur flytur erindi sitt á fundi Félags íslenskra fræða kl. 20 í kvöld, miðvikudag 28. sept- ember, í safnaðarheimili Neskirkju við Hagatorg. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2016 Síðumúli 20, 108 Reykjavík • Sími 551 8258 • storkurinn.is Ný verslun á nýjum stað Full búð af nýju spennandi garni Opið: Mán.-F ös. 11-18 Lau. 11 -15 1883 Guðmundur fæddist á Litluströnd í Mývatnssveit, næstyngstur tíu systkina. Benedikt, bróðir hans, er sagður fyrirmynd Fjalla-Bensa í Að- ventu Gunnars Gunnarssonar. 1905 fluttist Guðmundur til Reykjavíkur og hóf æfingar með Glímufélag- inu Ármanni. 1907 var Guðmundur í flokki pilta sem þreyttu kapp í Konungsglímunni á Þingvöllum. 1908 var hann í hópi sem sýndi glímu á Ólympíuleikunum í London. 1913-1924 Guðmundur nam íþróttaþjálfun og sjúkraþjálfun á Englandi, settist síðan að í Winnipeg í Kanada, þar sem hann lærði grísk-rómverska glímu og ísknattleik. Hann lék með og þjálfaði Winnipeg Falcons áður en hann hélt með kanadískum sjálfboðaliðum á vígstöðvarnar í Evrópu 1916. Í lok ársins 1920 fluttist hann aftur til Íslands, kenndi glímu, var þjálfari í frjálsum íþróttum og nuddari íþróttamanna. 1924 Guðmundur kærður fyrir illa meðferð sjúklinga og mök við karla. Hann var sýknaður af fyrri ákærunni, en sakfelldur af þeirri síðari og sat inni í fjóra mánuði. 1930 tók hann aftur til starfa í íþróttahreyfingunni. 1935 fékk Guðmundur uppreisn æru með konungsbréfi. 1942 hóf hann að kenna glímu hjá Íþróttafélagi Reykjavíkur. 1948 fylgdi Guðmundur liði Íslendinga á Ólympíuleikana í London sem nuddari. Hans síðasta verk í ellinni var að semja kennslubók í glímu. 1967 Guðmundur lést 14. janúar. Glæstur íþróttaferill GUÐMUNDUR SIGURJÓNSSON (1883 - 1967)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.