Morgunblaðið - 28.09.2016, Page 14

Morgunblaðið - 28.09.2016, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2016 hafðu það notalegt handklæðaofnum Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidjan.is - sími 577 5177 Eigum úrval af BAKSVIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl.is Eitt af markmiðum samgönguáætl- unar fyrir árin 2015-2026 er að samgöngukerfið verði lagað að hröðum vexti ferðaþjónustu, meðal annars vegna markmiða um dreif- ingu ferðamanna um landið. Einnig verði aðgengi fólks að þjónustu og vörum aukið og hreyfanleiki bættur. „Búsetugæði verði aukin með því að bæta samgöngur innan skilgreindra vinnusóknarsvæða og stækka þau þar sem hægt er. Upp- bygging og rekstur samgangna stuðli að eflingu atvinnulífs innan og milli landshluta. Gáttir landsins verði skilgreindar og styrktar,“ segir í kafla um stefnumótun. Til að ná þessum markmiðum á m.a. að ljúka við endurbyggingu allra helstu stofnleiða á landi og tengingu þeirra með bundnu slit- lagi og viðunandi burðarþoli við þéttbýli með fleiri en 100 íbúa. Einnig verði hugað sérstaklega að þörfum ferðaþjónustunnar við upp- byggingu og rekstur samgöngu- kerfisins og vega að fjölsóttum ferðamannastöðum. Þá er ætlunin að skilgreina flutn- ingaleiðir á landi „með áherslu á nægjanlegt burðarþol allt árið, næga breidd og bundið slitlag. Fyrir þennan hluta grunnkerfisins verði sett markmið um hraða upp- byggingu vega til að þjóna atvinnu- lífinu með viðunandi hætti auk þess að stuðla að auknu umferðar- öryggi“. Einnig á að fara í gagngera endurskoðun á lagaumhverfi og innviðum með tilliti til sjálfkeyr- andi ökutækja, svo nokkuð sé nefnt. Í kafla um stefnu og markmið samgönguáætlunar 2015-2026 kem- ur m.a. fram að samgönguáætlun mótist af þeim takmörkuðu fjár- munum sem ríkissjóður hefur haft úr að spila frá því að fjármála- kreppan skall á haustið 2008. Hraður vöxtur ferðaþjónustunn- ar gerir auknar kröfur til uppbygg- ingar og þjónustu í samgöngumál- um. Einnig þarf að tryggja skil- virkar samgöngur við umheiminn fyrir vöru- og fólksflutninga. Ef mannfjöldaspá Hagstofu Ís- lands gengur eftir mun landsmönn- um fjölga um 28-42 þúsund á tíma- bilinu 2015-2026. „Samgöngukerfið þarf því að vera í stakk búið til að uppfylla ferðaþörf 340-350 þúsund íbúa árið 2026 auk þess sem 3-5 milljónir ferðamanna munu hafa áhrif á þjónustu- og framkvæmda- þörf í samgöngukerfinu.“ Fjórðungi af þörfinni mætt Fram kemur að þrátt fyrir að auknu fé verði veitt til samgangna sé ljóst að uppbyggingu vegakerfis- ins verði hvergi nærri lokið að loknu þessu áætlunartímabili. „Áætlað er að stofnkostnaður til að færa allt vegakerfið að stöðlum og ná öllum settum framkvæmda- markmiðum Vegagerðar nemi tæp- lega 400 milljörðum kr., en sam- kvæmt áætluninni er gert ráð fyrir um 100 milljörðum kr. til fram- kvæmda. Séu viðhald og þjónusta, hafnir, sjóvarnir og öryggisaðgerð- ir taldar með væri kostnaður nokk- ur hundruð milljörðum króna hærri yfir áætlunartímabilið.“ Fyrir utan framkvæmdir við Keflavíkurflugvöll er einnig fjallað um stofnkostnað m.a. við flugstöðv- ar á millilandaflugvöllum í Reykja- vík, á Akureyri og Egilsstöðum auk endurbóta á flughlöðum sömu valla. Þá segir að mikilvægt sé að huga að innviðum og aðstæðum til að taka á móti ferðamönnum við hafnir. Tekið er fram að sífellt fleiri ferðamenn komi með Nor- rænu, auk þess sem gefa þurfi gaum að þeim fjölmörgu og gríðar- stóru skemmtiferðaskipum sem leggja að víða um landið. Bæta þarf samgöngukerfið  Laga þarf samgöngukerfið að hröðum vexti ferðaþjónustunnar  Endurbætur á vegakerfinu kosta 400 milljarða  Þingsályktunartillaga um samgönguáætlun fyrir árin 2015-2026 lögð fram Morgunblaðið/Eggert Vegakerfið Stofnkostnaður við að færa allt vegakerfið að stöðlum og ná öllum framkvæmdamarkmiðum Vega- gerðarinnar er nær 400 milljarðar króna. Samgönguáætlunin gerir ráð fyrir 100 milljörðum til framkvæmda. Samgönguáætlun » Innanríkisráðherra hefur lagt fram stjórnartillögu til þingsályktunar um sam- gönguáætlun fyrir árin 2015- 2026. » Þar er mótuð stefna í samgöngumálum og tilgreind helstu markmið. » Grunnnet samgöngu- kerfisins sem nær til alls landsins og á að tryggja landsmönnum greiðar sam- göngur er skilgreint. » Þar er einnig áætlun um fjáröflun til samgöngumála og yfirlit um útgjöld. „Skilgreint grunnnet samgangna á Íslandi telur tæp- lega 5.000 km af vegakerfi, 36 hafnir og 13 flug- velli,“ að því er segir um grunnnet samgangna hér á landi í þingsályktunartillögu um samgönguáætlun 2015-2026. „Innviðir samgangna eru umfangsmeiri og er þjóð- vegakerfi Íslands tæplega 13.000 km að lengd. Stofnvegir eru rúmlega 5.000 km, tengivegir tæp- lega 3.400 km, héraðsvegir tæplega 2.700 km og landvegir tæplega 2.000 km. Bundið slitlag er á rúm- lega 5.500 km og lengdist það um 45 km árið 2014 og 51 km árið 2015. Af 1.182 brúm í þjóðvegakerfinu eru 683 einbreiðar, þar af eru 39 af 226 brúm á hringveginum einbreiðar.“ Meirihluti brúa er einbreiður GRUNNNET SAMGANGNA Á ÍSLANDI Einbreið brú. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Í tillögu að nýrri samgönguáætlun segir að gert sé ráð fyrir því að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram á sama stað í Vatnsmýrinni. Er það svo þrátt fyrir að búið sé að loka einni af þremur flugbrautum flugvallarins í takti við dóm Hæstaréttar og áform borgarinnar um að flugvöllurinn muni víkja. Segir að óskað hafi verið eftir viðræðum við Reykjavíkurborg miðað við þær forsendur að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram á núverandi stað þar til skýrt sam- komulag liggi fyrir um annað sem samræmist vilja Alþingis. „Án Reykjavíkurflugvallar hefur ekki fundist lausn sem gerir kleift að uppfylla ferðatímamarkmið sam- gönguáætlunar. Af gefnum ástæð- um hefur ekki verið ráðist í nauð- synlegar endurbætur, svo sem byggingu nýrrar flugstöðvar, nýrra lendingarljósa eða annars,“ segir í tillögunum. Leita á leiða til að efla innan- landsflug sem öruggan og um- hverfisvænan ferðamáta „sem tryggi aðgengi að nauðsynlegri grunnþjónustu og skili umtals- verðum þjóðhagslegum ábata“. Betri dreifing ferðamanna Þá segir að bæta eigi aðstöðu á Keflavíkurflugvelli til að mæta mikilli fjölgun farþega og aðstaða á öðrum alþjóðlegum flugvöllum verði einnig bætt. Sökum gríðar- legrar fjölgunar ferðamanna þurfi að stuðla að dreifingu þeirra víðar um landið. Það megi gera með auknu millilandaflugi til fleiri staða en Keflavíkur og góðri kynn- ingu á innanlandsflugi sem val- kosti. Gert ráð fyrir flug- velli í Vatnsmýri  Önnur lausn hefur ekki fundist Morgunblaðið/Árni Sæberg Reykjavík Vilji er til þess að flug- völlurinn verði áfram í Vatnsmýri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.