Morgunblaðið - 28.09.2016, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2016
SMYRJA
SÍMJÚK Á BRAUÐIÐ
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
endur og seljendur. Neytendur
senda svo bónda fyrirspurn um þá
vöru sem þeir hafa hug á að kaupa.
Hér er um að ræða bæði einfalt ferli
og þægilegt.“
Markaðstorg líkt og Kjötborðið
eru þekkt víða um heim og þá sér-
staklega í Bandaríkjunum að sögn
Vignis, en þau veita bændum aukinn
möguleika að sérhæfa sig og verð-
leggja sína sérhæfingu.
„Auk þess að gefa bændum aukna
möguleika fá neytendur möguleika á
að sérhæfa sín innkaup enda upplýs-
ingar um vöruna miklu betri en al-
mennt gengur og gerist í stórmörk-
uðum. Neytandinn er líka upplýstur
um uppruna vörunnar og er þannig í
betri aðstöðu að dæma hana.“
Nýr vettvangur fyrir bændur
Gunnar Einarsson, bóndi á Daða-
stöðum í Núpasveit í Öxarfirði, segir
sjálfsagt að prófa nýjungar sem
þessa enda gangi núverandi kerfi
ekki upp.
„Ég fagna því að menn reyni að
prófa eitthvað nýtt því það gengur
ekki að verð á kindakjöti sé komið
niður fyrir það sem bændur fá í lönd-
unum í kringum okkur því ekki er
ódýrara að framleiða það hér.“
Sjálfur ætlar Gunnar að selja
nokkra tugi skrokka af forystufé en
hann segir kerfið í dag ekki taka tillit
til sérstöðu þeirrar vöru og vonar að
með markaðstorgi á borð við Kjot-
bordid.is geti hann verðlagt vöruna í
samræmi við sérstöðu hennar.
„Kjöt af forystufé er öðruvísi, það
er líkara villibráð enda minni fita á
því. Það bragðast því á annan hátt en
hefðbundið lambakjöt og ef það er
eldað rétt er þetta mjög gott kjöt.
Við fáum hins vegar minni styrki af
þessu kjöti því það fellur ekki að al-
mennum stöðlum. Það er því for-
vitnilegt að sjá hvort markaður er
fyrir þetta kjöt og hvort hann er til í
að greiða meira fyrir gæðin.“
Markaðstorg á netinu
fyrir landbúnaðarvörur
Morgunblaðið/Rósa Braga
Landbúnaður Markaðstorg tengir neytendur og bændur betur saman.
Tækifæri fyrir bændur að sérhæfa sig og veita neytendum betri upplýsingar
Lambakjöt
» Kjotbordid.is auðveldar
kaup beint frá býli.
» Bændur geta verðlagt vöru
sína eftir gæðum og sérstöðu.
» Milliliðum fækkar í við-
skiptum.
BAKSVIÐ
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
„Með því að kaupa beint af framleið-
anda veit kaupandinn nákvæmlega
hvaðan kjötið kemur og er upplýst-
ari en áður,“ segir Vignir Már Lýðs-
son, framkvæmdastjóri Kjötborðs-
ins, en fyrirtækið hefur starfsemi á
morgun, fimmtudag, og er eins kon-
ar markaðstorg fyrir íslenskar land-
búnaðarvörur.
„Kjotbordid.is er markaðssvæði
þar sem neytendur eru í beinum
samskiptum við framleiðanda vör-
unnar. Hér er um að ræða fyrsta
markaðstorgið á netinu fyrir ís-
lenska framleiðendur og neytendur
að koma saman til að kaupa landbún-
aðarvörur beint frá býli.“
Sérhæfa sig í kjöti
Til að byrja með verður eingöngu
hægt að kaupa lambakjöt en Vignir
segir aðrar kjötvörur koma í kjöl-
farið.
„Þetta er bara byrjunin en við
stefnum á að bjóða neytendum upp á
að kaupa nautakjöt, hreindýrakjöt,
folaldakjöt og villibráð í gegnum
markaðstorgið. Ferlið er mjög ein-
falt því í raun skrá sig inn bæði kaup-
Hrein raunávöxtun af þeim eign-
um sem tilheyra samtryggingar-
deildum sjóðanna reyndist 8% og
hefur hún ekki reynst meiri frá
árinu 2006, þegar hún var 10,2%.
Árleg vegin meðalraunávöxtun
þeirra síðastliðin 25 ár er um 4,6%.
Hrein raunávöxtun séreignadeilda
á árinu 2015 var 7,8%.
Verðbréfaeignir sjóðanna sem
eru með ábyrgð ríkis og sveitar-
félaga voru um 38% af heildareign-
um þeirra og lækkaði hlutfallið
nokkuð. Eignir í erlendri mynt
námu um 23% af heildareignum.
Um 35% eignanna eru bundin í
hlutabréfum, skráðum og óskráð-
um, og jókst hlutfall þeirra í safni
sjóðanna um þrjú prósentustig milli
ára.
Tryggingafræðileg staða þeirra
sjóða sem njóta ekki ábyrgðar
launagreiðenda var að jafnaði já-
kvæð um 3% í árslok 2015. Ekki er
sömu sögu að segja um sjóðina sem
njóta ábyrgðar ríkis og sveitarfél-
aga. Er heildarstaða þeirra með
áföllnum skuldbindingum og fram-
tíðarskuldbindingum -38%.
Eignir íslenskra lífeyrissjóða jukust
um 344 milljarða króna á síðasta
ári og stóðu þær í 3.276 milljörðum
króna um síðustu áramót. Þetta
kemur fram í nýrri samantekt Fjár-
málaeftirlitsins á stöðu íslenskra
lífeyrissjóða í árslok 2015. Þar
kemur fram að fjárfestingartekjur
sjóðanna námu 302 milljörðum
króna og tekjur af iðgjöldum 163
milljörðum, en þá námu lífeyris-
greiðslur út úr sjóðunum tæpum
112 milljörðum króna.
Lífeyrissjóðir uxu um 344 milljarða
Rekstur lífeyrissjóðanna kostaði um 8,2 milljarða 2015
Morgunblaðið/Golli
Uppgjör Rekstur sjóðanna gekk vel.
● Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands
lækkaði um 1,3% í viðskiptum gær-
dagsins og nemur lækkun hennar frá
áramótum því ríflega 9,1%. Heildar-
vísitalan hefur lækkað nokkru minna,
eða um 6,1% frá áramótum.
Heildarviðskipti á aðalmarkaði í gær
námu ríflega 2,4 milljörðum króna og
voru mest viðskipti með bréf Icelandair
Group, fyrir 631 milljón króna. Lækkuðu
bréf félagsins um tæp 1,6% í gær.
Næstmest voru viðskiptin með Marel,
eða 422 milljónir króna, og lækkuðu
bréf þess um rúm 1,4%. Þá lækkuðu
bréf HB Granda um 2,7% í tæplega 90
milljóna króna viðskiptum.
Úrvalsvísitalan gaf enn
frekar eftir í gærdag
28. september 2016
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 113.74 114.28 114.01
Sterlingspund 147.42 148.14 147.78
Kanadadalur 86.0 86.5 86.25
Dönsk króna 17.164 17.264 17.214
Norsk króna 14.036 14.118 14.077
Sænsk króna 13.292 13.37 13.331
Svissn. franki 117.38 118.04 117.71
Japanskt jen 1.1325 1.1391 1.1358
SDR 159.17 160.11 159.64
Evra 127.87 128.59 128.23
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 159.0504
Hrávöruverð
Gull 1335.85 ($/únsa)
Ál 1620.0 ($/tonn) LME
Hráolía 46.05 ($/fatið) Brent
Húsasmiðjan
mun opna nýja
1.100 fermetra
verslun á Ísafirði
næsta vor sem
mun sameina
starfsemi Húsa-
smiðjunnar á Ísa-
firði á einn stað. Í
dag eru verslunin
og timbursalan
aðskilin, en Húsasmiðjan hefur rekið
verslun á Ísafirði frá árinu 2001. Þá
bætist Blómaval við í nýju bygging-
unni. Undirritaður hefur verið
samningur við Vestfirska verktaka
um byggingu verslunarinnar. Árni
Stefánsson, forstjóri, segir það
stefnu Húsasmiðjunnar að veita
góða þjónustu á landsbyggðinni þar
sem rekstrargrundvöllur er til slíks.
Byggja nýja
verslun
Árni Stefánsson
Húsasmiðjan eyk-
ur við sig á Ísafirði
● Dótturfélag Ný-
herja í Svíþjóð,
Applicon AB, hefur
gert samning um
sölu og innleiðingu
á kjarnabankakerf-
um fyrir SBAB
Bank, sem er
sænskur banki
sem sérhæfir sig í
lánveitingum og
sparnaðarlausnum til einstaklinga, fast-
eignafyrirtækja og húsnæðissamtaka.
Hann er í eigu sænska ríkisins og með
Aaa lánshæfiseinkunn frá Moody’s.
Bankinn er með um 303 milljarða
sænskra króna í útlánum, jafngildi um
4.050 milljarða íslenskra króna.
Dótturfélag Nýherja sem-
ur við húsnæðisbanka
Finnur Oddsson
STUTT