Morgunblaðið - 28.09.2016, Page 21

Morgunblaðið - 28.09.2016, Page 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2016 ,,Sérhvert þróun- arskeið þjóðfélagsins þarfnast sinna miklu manna og þegar það finnur þá ekki, finnur það þá upp“. (Helvé- tius, Claude-Adrien, heimspekingur, 1715- 1771). Eftir Wintris- klúðrið og tilheyr- andi ráðherrahróker- ingar vantaði fram- sóknarráðherra í ríkisstjórnina. Í þingmannaliði flokksins fannst enginn mikill maður til að setja í stólinn og því var fundinn upp ráðherra og uppfinningin Lilja Dögg Alfreðsdóttir gerð að utan- ríkisráðherra. (Tók við embætti 7. apíl sl.) Ekki sat konan sú lengi auðum höndum í utanríkisráðu- neyti Íslands. Snaraði sér fljótlega í viðræður við varnarmálaráðu- neyti Bandaríkjanna um varnar- og öryggismál. Útkoman: Samn- ingur, sem ber yfirskriftina: Sam- eiginleg yfirlýsing varnarmála- ráðuneytis Bandaríkjanna og utanríkisráðuneytis Íslands. Samning þennan má lesa í heild sinni á vef utanríkisráðuneytisins. Heilmikið mál, ítarlegur inngang- ur og átta tölusettar greinar, en svo kynlegt sem það er, án undir- skrifta. Þeir sem vilja tala máli stríðs og hermangs eiga auðvitað að gera það tæpitungulaust. Í inn- gangi samningsins stendur: ,,Ut- anríkisráðuneyti Íslands áréttar, sem framlag til sameiginlegra varna Atlantshafsbandalagsins, skuldbindingu sína um rekstur varnaraðstöðu og -búnaðar, meðal annars rekstur íslenska loftvarn- arkerfisins (IADS) , um að veita gistiríkisstuðning vegna annarra aðgerðaþarfa, eins og loftrýmis- gæsluverkefna Atlantshafsbanda- lagsins frá flugbækistöðinni í Keflavík, aukinnar tímabundinnar viðveru á vettvangi eftir þörfum, meðal annars en ekki einvörðungu vegna viðveru kafbátaleitarvéla, og vegna sameiginlegra áætlana- gerða og varnaræfinga fyrir bandalagið.“ M.ö.o. kostnaðinn af þessum umsvifum öllum á íslenska ríkið að greiða. Og það er meira blóð í kúnni. Bandaríkjamönnum gefst kostur á að nota aðstöðuna hérlendis eftir sínum þörfum. Í 2. gr. segir svo: ,,Utanríkisráðuneyti Íslands heim- ilar að varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna og Atlantshafs- bandalagsins nýti sér aðstöðu eftir þörfum og í samræmi við varnar- samninginn frá 1951...“ Svo er að sjá sem Bandaríkjamönnum sé heimilt að gera hvað sem þeim þóknast á Keflavíkurvelli hvenær sem er. Í 3.-8. gr. er boðað aukið sam- ráð og samstarf í varnar- og ör- yggismálum, bæði hernaðarlegt og af öðrum toga. Það hlýtur mörg- um að finnast furðulegt hve þessi gjörningur ráðherrans hefur feng- ið litla opinbera umfjöllun. Alþingi kom lítið sem ekkert að málinu. Sama gildir um utanríkismála- nefnd Alþingis. Og ekki var haft samráð við sjálfstæðismenn, hinn stjórnarflokkinn. Eitthvað hlýtur að vera rotið í lýðræðis- ríkinu Íslandi þegar einn ráðherra getur upp á sitt eindæmi opnað allar gáttir fyrir bandaríska hernum og fótum troðið fullveldi landsins og það án þess að spyrja kóng eða prest. Ósköp er konan eitthvað öryggislaus. Henni nægir ekki að vera í Nató. Heldur ekki aðrar heræfingarnar á umliðnum árum á norðurslóðum. Hvorki her- æfingar Bandaríkjanna og Kanada á hafinu norður af Alaska og Kan- ada á norðvesturleiðinni svo- nefndu, né heldur heræfingar Nató, hernaðararms hinna vest- rænu heimsvelda í Norður-Svíþjóð og flotaæfingar við norður- og vesturströnd Noregs. Ekki nægir henni loftrýmiseftirlitið á vegum Nató, sem reglulega fer fram hér á landi með þrjá flugvelli undir, þar sem æft er aðflug og her- gagnaflutningar. Og ekki stríðs- leikirnir, sem kallast Norður- Víkingur, sem stundaðir hafa ver- ið árum saman og æfður land-, flug- og sjóher. Allt þetta dugir ráðherranum greinilega ekki. Hann vill hafa bandarísku dátana innan seilingar. Það vildu þær líka kynsystur ráðherrans, sumar hverjar, á stríðsárunum og lengi eftir það og fannst draumur að vera með dáta. Í 7. kafla Harðar sögu og Hólmverja (Sv. á Hv.) stendur: „Sveinninn Hörður stóð við stokk og gekk nú hið fyrsta sinni frá stokkinum og til móður sinnar og rasaði að knjám henni. Menið hraut á gólfið fram og brast í sundur í þrjá hluti. Signý reiddist mjög og mælti: „Ill varð þín ganga hin fyrsta...““ Höfundur sögunnar leggur henni Signýju Valbrandsdóttur fleiri orð í munn. Það er von mín að þau eigi ekki eins vel við um gerðir ráðherrans í framtíðinni og þau sem ég vitnaði til um upphaf ráðherradóms hans. Það er draumur að vera með dáta... Eftir Ólaf Þ. Jónsson. » Bandaríkjamönnumgefst kostur á að nota aðstöðuna hérlend- is eftir sínum þörfum. Ólafur Þ. Jónsson Höfundur er skipasmiður. Hrafnh. Skúlad. – Hanna Friðriksd. 250 Friðrik Jónsson – Björn Svavarss. 224 A/V Björn Arnarsson – Guðlaugur Ellertss. 287 Ormarr Snæbjss. – Sturla Snæbjörnss. 255 Elín Guðmanns. - Friðgerður Benedikts. 245 Tómas Sigurjss. - Jóhannes Guðmannss. 241 Minningarmót um Hannes Alfonsson í Gullsmára Spilað var á 11 borðum í Gull- smára mánudaginn 26. september. Úrslit í N/S: Samúel Guðmundss. - Jón Hannesson 217 Ragnar Jónsson - Lúðvík Ólafsson 203 Þórður Jörundss. - Jörundur Þórðars. 203 A/V Vigdís Sigurjónsd. - Sigurður Dagbjarts. 210 Kristín G.Ísfeld - Óttar Guðmss. 209 Sigurður Gíslason - Reynir Bjarnason 190 Þetta var fyrsti spiladagurinn í Minningarmóti Hannesar Alfons- sonar. Hannes var ein af driffjöðrum félagsins og fyrrum formaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.