Morgunblaðið - 28.09.2016, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2016
Anna Margrét Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BúnaðarsambandsHúnaþings og Stranda, var stödd í fjárhúsum á bænum sínum,Sölvabakka, þegar blaðamaður náði tali af henni. Hún er fædd
þar og uppalin og er af þriðju kynslóð ábúenda þar. „Afi og amma
keyptu jörðina fyrir 92 árum og það er því stutt í að sama fjölskyldan
hafi verið hérna í 100 ár. Við erum með sauðfjárbúskap hérna og nokk-
ur hross.“
Sölvabakki er í Refasveit sem er norðan við Blönduós, en Anna Mar-
grét er bæjarfulltrúi þar. „Við erum í bænum að sinna þessum hefð-
bundnu verkefnum, atvinnumálum og fleiru. Við erum að vinna í því
ásamt fleiri sveitarfélögum hér í kring að fá stóriðju hingað á svæðið.
Að öðru leyti erum við ekki í neinum stórframkvæmdum, en við byggð-
um flotta sundlaug fyrir nokkrum árum.“
Anna Margrét er enn fremur fjallskilastjóri og hefur því staðið í stór-
ræðum að undanförnu, en þegar er búið að halda bæði fyrri og seinni
réttir í sveitinni. „Við erum ekki búin að fara alveg yfir hvernig heimtur
eru, en mér sýnist þær verði góðar og lömbin eru væn. Það á samt eitt-
hvað eftir að fara að leita að eftirlegukindum.“
Eiginmaður Önnu Margrétar er Sævar Sigurðsson, bóndi og véla-
verktaki frá Reykjavík, og dætur þeirra eru Anna Karlotta 10 ára og
Kristín Erla 8 ára.
„Ég ætla að vera í vinnunni á afmælinu að skoða falleg lömb hjá sveit-
ungum mínum og elda eitthvað gott handa fjölskyldunni um kvöldið.“
Fjölskyldan Anna Margrét, Sævar, Anna Karlotta og Kristín Erla
stödd á Kirkjuskarði í Laxárdal í Austur-Húnavatnssýslu.
Lömbin eru væn segir
fjallskilastjórinn
Anna Margrét Jónsdóttir er fertug í dag
S
veinn Þór Elinbergsson
fæddist í Ólafsvík 28.9.
1956 og ólst þar upp. Hann
var í Barnaskólanum í
Ólafsvík, stundaði nám við
MÍ, lauk stúdentsprófi frá KÍ 1977 og
prófi sem grunnskólakennari frá KHÍ
1981. Hann stundaði síðan nám í
breytingastjórnun við HA og fram-
haldsnám í stjórnun menntastofnana
frá HÍ.
Sveinn Þór var grunnskólakennari,
aðstoðarskólastjóri og skólastjóri við
Grunnskólann í Ólafsvík, skólastjóri
Grunnskóla Snæfellsbæjar, aðstoð-
arskólastjóri Smáraskóla í Kópavogi
og er nú forstöðumaður Félags- og
skólaþjónustu Snæfellinga.
Sveinn Þór var bæjarfulltrúi í bæj-
arstjórn Ólafsvíkurkaupstaðar og
Snæfellsbæjar, var varaþingmaður
Alþýðuflokksins; félagi í Rótarýklúbbi
Ólafsvíkur og hefur átt sæti í ýmsum
nefndum, m.a. afmælisnefnd Ólafsvík-
Sveinn Þór Elinbergsson forstöðumaður – 60 ára
Eiginkonan og börnin Talið frá vinstri: Sigrún Erla, Sigurbjörg, Inga Jóhanna, Elinbergur og Gestheiður Guðrún.
Næst á dagskrá eru
golfið og tónlistin
Með afa á veröndinni Afmælisbarnið og barnabarnið, Kristinn Freyr.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Kópavogur Sesselía
María Jóhannsdóttir
fæddist 28. september
2015 kl. 05.06 og er því
eins árs í dag. Hún var 50
cm að lengd og 3.568 g að
þyngd. Foreldrar hennar
eru Ingibjörg Guðrún Úlf-
arsdóttir og Jóhann Már
Sigurbjörnsson.
Nýir borgarar
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is