Morgunblaðið - 28.09.2016, Side 30

Morgunblaðið - 28.09.2016, Side 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2016 Frá morgni líkama og sál fyrir alla fjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds Sími: 411 5000 • www.itr.is Fyrir líkama Laugarnar í Reykjavík Erla María Markúsdóttir erla@mbl.is „Ég vildi sýna skemmtilegri og fallegri hliðar á daglega lífinu frekar en þær sorglegu,“ segir Sunna Gunnlaugsdóttir, djasspíanisti og tónskáld, um nýtt verk sem hún samdi fyrir píanó og strengi og verður frumflutt á hádegistónleikum í Háskóla Íslands í dag. Hvatinn að tónsmíðunum var verkefnið og heimildarmyndin Dagur í lífi þjóðar sem RÚV stendur fyrir í tilefni af hálfrar aldar afmæli stofn- unarinnar. „Tónlistin tekur mið af senunum og reynir að fanga stemninguna í íslenskum hvers- dagsleika,“ segir Sunna. Verkefnið hófst fyrir ári þegar RÚV óskaði eftir myndbrotum þar sem fólk segir í lifandi myndum frá lífi sínu þann dag. Af- raksturinn verður frumsýndur í tengslum við hálfrar aldar afmæli RÚV og á sunnudag verður sýndur sérstakur þáttur um gerð heimildarmynd- arinnar. Þegar Sunna hafði lokið við að semja tón- listina fann hún fyrir löngun til að þróa hana áfram og halda henni á lífi. „Mér fannst þetta svo skemmtilegt og eins og svo oft áður þegar ég hef lokið við verkefni sem krefst mikils undirbúnings fannst mér það vera al- gjör synd að það væri bara strax búið. Mér datt svo í hug hvort það væri ekki sniðugt að flytja þetta á tónleikum og fór að skoða þann mögu- leika.“ Opnar miðjuna á tónverkinu Tónleikanefnd Háskóla Íslands stendur fyrir hádegistónleikaröð og eru tónleikarnir í dag hluti af þeirri dagskrá. „Ég veit að þau sækjast eftir því að fá frumflutning á íslenskri tónlist og fannst þetta því tilvalið tækifæri. Þetta er auk þess eitt- hvað nýtt, tónverk fyrir djasspíanó og strengja- kvartett,“ segir Sunna. Á tónleikunum í dag verða verkin tekin úr sjón- varpsþáttabúningnum og opnuð fyrir lifandi flutn- ing með spunaköflum. „Stefin í þættinum eru stutt og passa við ákveðnar senur þannig að ég tók tón- listina og opnaði miðjuna á verkunum þar sem hægt var að spinna yfir,“ segir Sunna. Með henni á tónleikunum leika Greta Salóme Stefánsdóttir og Hlín Erlendsdóttir á fiðlu, Laufey Pétursdóttir á víólu og Gunnhildur Halla Guðmundsdóttir á selló. Sunna segist njóta sín afar vel í hópi eintómra kvenna. „Þetta er frábært tónlistarfólk og það er sérstaklega gaman fyrir mig að vinna með konum, þar sem ég er oftast í mjög karllægum geira.“ Tónlistinni sem heyra má á tónleikunum í dag lýsir hún sem lagrænni og í ljúfari kantinum. „Þetta er afslappandi tónlist og ég held að þetta verði þægilegir tónleikar og tilvalið að skjótast úr vinnu eða skóla og eiga góða stund í hádeginu.“ Tónleikarnir hefjast kl. 12.30 og verða á Litla torgi á Háskólatorgi. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir. Frumflutningur Hlín Erlendsdóttir, Sunna Gunnlaugs, Gunnhildur Halla Guðmundsdóttir, Greta Salóme Stefánsdóttir og Laufey Pétursdóttir frumflytja verk fyrir djasspíanó og strengjakvartett eftir Sunnu á tónleikum á Háskólatorgi í dag. Verkið var samið í tilefni af heimildarmyndinni Dagur í lífi þjóðar. Lagrænir og ljúfir tónar  Djasspíanistinn Sunna Gunnlaugs frumflytur nýtt verk ásamt strengja- kvartett á Háskólatorgi  Hluti af heimildarmynd í tilefni af 50 ára afmæli RÚV „Vil eg, að kvæðið heiti Lilja“ er yfirskrift tónleika sem haldnir verða í Hannesarholti í kvöld kl. 20. Þar koma fram Lilja María Ás- mundsdóttir og Örnólfur Eldon og flytja tónverkið Alkemíur. „Tónleikarnir eru afrakstur sam- vinnuverkefnis Lilju Maríu og Örn- ólfs Eldon. Tónverkið, Alkemíur, byggir á hugleiðingum um helgi- kvæðið Lilju sem ort var á miðri 14. öld. Þessar hugleiðingar eru eins konar alkemískar tilraunir þar sem efniviðurinn gengur í gegnum ýmis umbreytingarferli,“ segir í til- kynningu frá tónleikahaldara. Verkefnið var styrkt af Tón- skáldasjóði RÚV, Musica Nova og Tónlistarsjóði. Miðar eru seldir við innganginn. Almennt miðaverð 2.000 krónur en 1.000 krónur fyrir eldri borgara og nemendur. Dúó Lilja María Ásmundsdóttir og Örnólfur Eldon leika saman. Flytja hugleið- ingu um Lilju  Tónleikar í Hannesarholti í kvöld Heiða Björk Vil- hjálmsdóttir fræðslufulltrúi tekur á móti gestum og fræðir þá um sýningu Thoru Karls- dottur Kjóla- gjörningur í Listasafninu á Akureyri, Ketil- húsi, á morgun, fimmtudag, kl. 12.15-12.45. „Á sýningunni má sjá afrakstur níu mánaða kjólagjörnings Thoru sem stóð yfir frá mars til desember 2015. Að klæða sig í nýjan kjól á hverjum morgni og klæðast kjól til allra verka í 280 daga; 40 vikur; níu mánuði er áskorun sem þarfnast út- halds og elju,“ segir í tilkynningu. Aðgangur er ókeypis. Leiðsögn um sýningu Thoru Thora Karlsdottir Hljómsveitin Dúndurfréttir leikur í Græna herberginu að Lækjargötu 6a í kvöld kl. 20. Sveitin, sem fagn- aði fyrir skömmu 20 ára afmæli sínu, hefur flutt lög sveita á borð við Pink Floyd, Led Zeppelin, Deep Purple og Uriah Heep. „Hljóm- sveitin hefur síðustu ár haldið stóra tónleika í Eldborgarsal Hörpu þar sem fluttar hafa verið í heild sinni plötur Pink Floyd, Dark Side of the Moon, Wish You Were Here og The Wall,“ segir í tilkynningu og rifjað er upp að síðastnefndu tónleikarnir hafi verið fluttir fjórum sinnum fyrir fullu húsi með sinfón- íuhljómsveit. Sveitina skipa þeir Matthías Matthíasson, Einar Þór Jóhanns- son, Ingimundur Óskarsson, Ólafur Hólm og Pétur Örn Guðmundsson. Einvalalið Dúndurfréttir koma fram. Dúndurfréttir í Græna herberginu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.