Morgunblaðið - 28.09.2016, Side 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2016
Á fjölmennu málþingi í Hátíðarsal
Háskóla Íslands í tilefni af evrópska
tungumáladeginum sl. mánudag
færðu bræðurnir Guðmundur
Andri og Örnólfur Thorssynir
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur
að gjöf viðamikið safn föður þeirra,
Thors Vilhjálmssonar rithöfundar,
af erlendum bókum. Safnið hefur
að geyma margar af helstu perlum
heimsbókmenntanna, einkum evr-
ópskra samtímabókmennta. „Þessi
rausnarlega bókagjöf eins ástsæl-
asta rithöfundar Íslendinga á síðari
tímum og mikilvirks þýðanda er-
lendra bókmenna á íslensku er
stofnuninni mikils virði, ekki síst
þar sem þýðingum er ætlað sér-
stakt hlutverk í alþjóðlegu tungu-
málamiðstöðinni, sem nú er í undir-
búningi,“ segir í tilkynningu.
Í gjafabréfi bræðranna segir svo:
„Alla sína ævi leitaðist Thor við að
fylgjast grannt með því sem efst
var á baugi í bókmenntum heimsins
hverju sinni. Hann leit á það sem
hluta af rithöfundarstarfinu og
þeirri menningarkynningu sem
hann rækti alla tíð hér á landi.
Hann viðaði að sér bókum, las þær
vandlega, oft með pennann á lofti,
svo að bækurnar bera þess per-
sónuleg merki hver fór um þær
höndum. Hann lagði sig sér-
staklega eftir bókmenntum frá
Frakklandi og Suður-Ameríku,
Ítalíu, Spáni, Bandaríkjunum og
Japan, án þess þó að vanrækja ýmis
önnur lönd eða menningarsvæði.
Það er von okkar að bækur þessar
megi nýtast áhugasömum lesendum
og stúdentum um ókomin ár innan
vébanda þessarar merku stofnunar
og vera lifandi vitnisburður um
mikilvægi þess að fylgjast með
straumum sinnar tíðar af vakandi
forvitni.“
Vigdís Finnbogadóttir, fv. forseti
Íslands, veitti bókagjöfinni viðtöku.
Hún þakkaði bræðrunum rausnar-
lega gjöf og góðan hug þeirra í
garð stofnunarinnar, en Thor
reyndist stofnuninni mikill haukur í
horni og sýndi henni mikla ræktar-
semi. Bækurnar verða aðgengileg-
ar í nýbyggingu stofnunarinnar
sem tekin verður í notkun á næsta
ári.
Rausnarleg gjöf frá sonum Thors
Morgunblaðið/Eggert
Bókagjöf Vigdís Finnbogadóttir og Guðmundur Andri Thorsson.
Kammermúsíkklúbburinn –óskabarn kammertónlist-arflutnings á Íslandi, sómihans, sverð og skjöldur –
hefur starfað óslitið frá 1957 og fagn-
ar því senn sextugu. Fyrsti viðburð-
urinn á þessum vetri fór fram s.l.
sunnudagskvöld við að vanda fyrir-
taks aðsókn, þótt gangi enn hægt eft-
ir hærum að sjá að yngja upp hlust-
endahópinn.
Dettur manni fyrst tvennt í hug til
úrbóta: T.a.m. að flíka fleiri „upp-
runa“-flutningum en áður, enda virð-
ist ekki sízt barokkefnið höfða meira
til yngri hlustenda þegar sá póll er
tekinn í hæðina. Eða að tefla fram
ýmiskonar „cross-over“-túlkun á við
raf- eða djasstengdan spuna. (Í
seinna tilviki má t.d. minna á að
meira en 70 ár eru liðin síðan djass-
istar vestan hafs tóku fyrst að sveifla
gömlum meisturum). Nú eða í þriðja
lagi sönghópsmeðferð – þó fátt sé hér
að vísu um feita drætti, ólíkt stærri
tónmörkuðum ytra.
Loks væri engan veginn óhugsandi
ef KMK stæði fyrir hressum kynn-
ingarnámskeiðum handa jafnt núver-
andi sem verðandi hlustendum, að
fordæmi SÍ.
Haldi menn annars að kammer-
tónlist eigi sér fáa fylgjendur á okkar
tímum, þá stangast það óneitanlega á
við nýju tónleikaröðina í Hörpu, Sí-
gilda sunnudaga – „…regnhlífar-
hugtak yfir klassískar tónleikaraðir
og staka viðburði í Norðurljósum,
Kaldalóni og opnum rýmum á sunnu-
dögum í vetur kl 17:00“ skv. netmidi-
.is er ná yfir alls 33 viðburði (að 6 tón-
leikum KMK meðtöldum), þótt séu
að þessu rituðu aðeins tíundaðir á
gulum prentbleðli staðarins en
hvergi, það ég fann, á vefsíðum
Hörpu.
Allt um það var veruleg ánægja að
tónleikum sunnudagsins. Fyrir hlé
voru þrjár tríósónötur eftir tvo sam-
tímamenn J.S. Bachs eða litlu yngri
er hann þekkti vel og hafði mætur á,
enda fagmenn fram í fingurgóma.
Allar undir fjórþættu formi kirkju-
sónötu (hægt/hratt/hægt/hratt) fyrir
1-2 sólóhljóðfæri á móti fylgibassa
(sembal og selló + fagott).
Þetta voru verulega hlustvænar
tónsmíðar, sérstaklega seinni og mel-
ódískari d-moll sónata Hasses (1699-
1783). Hvað þá sónatan eftir Fasch
(1688-1758) f. 2 óbó og fiðlu, er tæpti
m.a.s. á „galante“ og jafnvel „emp-
findsame“ (tilfinningaþrungnum) tjá-
brigðum með mun aðskildari hlut-
verkum sellós og fagotts, er í verkum
Hasses léku hinsvegar nánast sömu
nótur og því spurning hvort fagottinu
væri þar ekki ofaukið, enda sinfón-
ískt Heckel-nútímahljóðfærið greini-
lega full-hljómsterkt fyrir samleik-
inn, þrátt fyrir dúnmjúkan leik
spilarans.
Og hvað þá um sembalinn! Það eru
engin ný tíðindi hvað barokksam-
leikur sembals heyrist fáránlega illa í
stórum nútímasölum, ekki sízt meðal
nútímablásara og stálstrengdra
strokhljóðfæra. En í alvöru talað:
Hvað mælir þá eiginlega á móti ofur-
lítilli rafuppmögnun? Hitt sýnist
manni aðeins sýndarmennskuleg
látalæti. Eða ætluðust tónskáldin
ekki til að hljómborðið heyrðist?
Að því frátöldu var fjarska fátt út á
flutninginn að setja, er með fyrr-
greindum fyrirvara leiddi hlustendur
inn í furðufjölleitan tónheim fyrri
tíma – að vonum til ágóða fyrir upp-
lýst val á afurðum hinna síðari.
4. strengjakvartett Mendelssohns
frá 1839 (er ásamt síðustu kvartett-
um hans nr. 5 & 6 var tileinkaður
Oscar I Svíakonungi) var í alla staði
hinn ljúfasti áheyrnar í flutningi
ofangreindra strengjaleikara. En
með því að sagður sé lausari undan
áhrifum Beethovens en fyrstu verk
undrabarnsins í þeim geira, þá virtist
sem hefði mátt draga fram ögn
dramatískari andstæður í annars
óaðfinnanlega þýðri túlkun þeirra
fjórmenninga, miðað við hvað flest
flaut áfallalítið áfram.
Ljúfur „4. strengjakvartett Mendelssohns frá 1839 […] var í alla staði hinn ljúfasti áheyrnar,“ segir í rýni.
Jafnvægisvandi barokksins
Norðurljósum í Hörpu
Kammertónleikarbbbnn
J.A. Hasse: Tríósónötur í F* og d**. J.F.
Fasch: Sónata í d*/**. Mendelssohn:
Strengjakvartett nr.4 í e Op.44, 2. Ca-
merarctica (Hildigunnur Halldórsdóttir
& Bryndís Pálsdóttir fiðlur, Svava Bern-
harðsdóttir víóla, Sigurður Halldórsson
selló, Peter Tompkins óbó*, Eydís Lára
Franzdóttir óbó**, Kristín Mjöll Jakobs-
dóttir fagott og Halldór Bjarki Arnarson
semball). Sunnudaginn 25. september
2016 kl. 19:30.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Skipuleggjendur Iceland Airwaves til-
kynntu í gær að tónlistarkonan Björk
kæmi fram á hátíðinni í ár. Tónleikar
hennar fara fram í Eldborgarsal Hörpu
laugardaginn 5. nóvember kl. 17. Al-
menn miðasala hefst mánudaginn 3.
október kl. 10 á harpa.is og tix.is. Ice-
land Airwaves miðahöfum gefst kostur
á að kaupa miða í sérstakri forsölu sem
hefst á morgun, fimmtudag, og fá þeir
sendan kaupahlekk í fyrramálið.
„Björk er án efa þekktasti listamaður
Íslands fyrr og síðar. Plötur hennar
hafa selst í milljónum eintaka út um all-
an heim og fyrir þá síðustu, Vulnicura,
hlaut hún m.a. Brit-verðlaun sem besta
alþjóðlega söngkonan. Hún kemur fram með 27 strengjaleikurum og hent-
ar sviðið í Eldborg alveg sérstaklega vel fyrir tónleika Bjarkar.
Björk hefur komið fram á tvennum tónleikum síðustu daga (hennar
fyrstu þetta árið) í Royal Albert Hall og Hammersmith Apollo í London.
Hún mun ekki koma fram á öðrum tónleikum þetta árið og er því gríð-
arlegur fengur í Björk í Eldborg,“ segir í tilkynningu frá skipuleggjendum
Iceland Airwaves.
Björk leikur á Iceland Airwaves 2016
Tónlistarkona Björk.
AUGLÝSING ÁRSINS – ★★★★ – M.G. Fbl.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Fös 30/9 kl. 20:00 92. sýn Fös 14/10 kl. 20:00 100. s. Fös 28/10 kl. 20:00 108. s.
Lau 1/10 kl. 20:00 93. sýn Lau 15/10 kl. 20:00 101. s. Lau 29/10 kl. 20:00 109. s.
Sun 2/10 kl. 20:00 94. sýn Sun 16/10 kl. 20:00 102. s. Sun 30/10 kl. 20:00 110. s.
Fim 6/10 kl. 20:00 95. sýn Fim 20/10 kl. 20:00 103. s. Fim 3/11 kl. 20:00 111. s.
Fös 7/10 kl. 20:00 96. sýn Fös 21/10 kl. 20:00 104. s. Fös 4/11 kl. 20:00 112. s.
Lau 8/10 kl. 20:00 97. sýn Lau 22/10 kl. 20:00 105. s. Lau 5/11 kl. 20:00 113. s.
Sun 9/10 kl. 20:00 98. sýn Sun 23/10 kl. 20:00 106. s. Fös 11/11 kl. 20:00 114. s.
Fim 13/10 kl. 20:00 99. s. Fim 27/10 kl. 20:00 107. s. Lau 12/11 kl. 20:00 115. s.
Gleðisprengjan heldur áfram!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Lau 1/10 kl. 13:00 3. sýn Lau 8/10 kl. 13:00 5. sýn Lau 15/10 kl. 13:00 Auka.
Sun 2/10 kl. 13:00 4. sýn Sun 9/10 kl. 13:00 6. sýn Sun 16/10 kl. 13:00 7. sýn
Verðlaunasaga Andra Snæs Magnasonar
Sending (Nýja sviðið)
Fös 30/9 kl. 20:00 9. sýn Sun 9/10 kl. 20:00 11.sýn Fim 20/10 kl. 20:00 13. sýn
Lau 1/10 kl. 20:00 10.sýn Fim 13/10 kl. 20:00 12.
sýn
Nýtt verk eftir Bjarna Jónsson
Njála (Stóra sviðið)
Fim 29/9 kl. 20:00 Mið 12/10 kl. 20:00 Mið 26/10 kl. 20:00
Mið 5/10 kl. 20:00 Mið 19/10 kl. 20:00 Sun 6/11 kl. 20:00
Njáluhátíð í forsal frá kl. 18:45. Kjötsúpa fyrirlestur.
Hannes og Smári (Litla sviðið)
Fös 7/10 kl. 20:00 Frums. Lau 15/10 kl. 20:00 4. sýn Sun 23/10 kl. 20:00 7. sýn
Lau 8/10 kl. 20:00 2. sýn Sun 16/10 kl. 20:00 5. sýn Fim 3/11 kl. 20:00 aukas.
Fös 14/10 kl. 20:00 3. sýn Lau 22/10 kl. 20:00 6. sýn
Samstarfsverkefni við Leikfélag Akureyrar
NJÁLA – ★★★★ „Unaðslegt leikhús“ S.J. Fbl
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Djöflaeyjan (Stóra sviðið)
Sun 2/10 kl. 19:30 10.sýn Sun 16/10 kl. 19:30 14.sýn Mið 26/10 kl. 19:30 18.sýn
Fim 6/10 kl. 19:30 11.sýn Mið 19/10 kl. 19:30 15.sýn Sun 30/10 kl. 19:30 17.sýn
Fös 7/10 kl. 19:30 12.sýn Fim 20/10 kl. 19:30 16.sýn
Lau 15/10 kl. 19:30 13.sýn Lau 22/10 kl. 19:30 19.sýn
Kraftmikill söngleikur um skrautlegt mannlíf í braggahverfum Reykjavíkur!
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Fim 29/9 kl. 19:30 6.sýn Fim 13/10 kl. 19:30 11.sýn Sun 23/10 kl. 19:30 16.sýn
Lau 1/10 kl. 19:30 7.sýn Fös 14/10 kl. 19:30 12.sýn Fös 28/10 kl. 19:30 17.sýn
Fös 7/10 kl. 19:30 8.sýn Sun 16/10 kl. 19:30 13.sýn Sun 30/10 kl. 19:30 18.sýn
Lau 8/10 kl. 19:30 9.sýn Fim 20/10 kl. 19:30 14.sýn Lau 5/11 kl. 19:30 19.sýn
Sun 9/10 kl. 19:30 10.sýn Lau 22/10 kl. 19:30 15.sýn Sun 6/11 kl. 19:30 20.sýn
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Horft frá brúnni (Stóra sviðið)
Fim 29/9 kl. 19:30 Aðalæfing Sun 9/10 kl. 19:30 4.sýn Fös 28/10 kl. 19:30 8.sýn
Fös 30/9 kl. 19:30 Frums Fim 13/10 kl. 19:30 5.sýn Sun 6/11 kl. 19:30 9.sýn
Lau 1/10 kl. 19:30 2.sýn Fös 14/10 kl. 19:30 6.sýn Fim 10/11 kl. 19:30 10.sýn
Lau 8/10 kl. 19:30 3.sýn Sun 23/10 kl. 19:30 7.sýn
Eitt magnaðasta leikverk 20. aldarinnar
Íslenski fíllinn (Brúðuloftið)
Lau 1/10 kl. 13:00 Lau 8/10 kl. 13:00 Lau 15/10 kl. 13:00
Lau 1/10 kl. 15:00 Lau 8/10 kl. 15:00 Lau 15/10 kl. 15:00
Sun 2/10 kl. 13:00 Sun 9/10 kl. 13:00
Sun 2/10 kl. 15:00 Sun 9/10 kl. 15:00
Ævintýraför með forvitnum fílsunga - kemur þú með?
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 5/10 kl. 20:00 Mið 12/10 kl. 20:00 Mið 19/10 kl. 20:00
Fös 7/10 kl. 20:00 Fös 14/10 kl. 20:00 Fös 21/10 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Sun 2/10 kl. 21:00
Aðeins þessi eina sýning á árinu - hópurinn snýr aftur á nýju ári
Stertabenda (Kúlan)
Mið 28/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 1/10 kl. 17:00 aukasýn Sun 2/10 kl. 19:30 aukasýn
Meinfyndin og hárbeitt atlaga að íslenskri þjóðarsál