Morgunblaðið - 28.09.2016, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 28.09.2016, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 272. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Húsbíll sprakk í Ártúni 2. Tvö börn á næturvaktinni 3. Hefur ekki sængað hjá … 4. Trump sýndi mikla vanþekkingu »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Heidrik á Heygum fagnar útgáfu á plötu sinni Funeral með tónleikum á Húrra í kvöld kl. 20. Samkvæmt upp- lýsingum frá skipuleggjendum inni- heldur platan tíu lög sem Heidrik samdi „þegar erfiðleikar komu upp í hinu afskekkta og íhaldssama sam- félagi Færeyja“. Lögin eru flutt óraf- mögnuð og knúin fram með píanói, strengjum, úkúlele og rödd Heidriks. Hljómsveit kvöldsins skipa auk Heid- riks þeir Arnar Pétursson á gítar og bassa, Halldór Sveinsson á píanó og fiðlu, Heðin Ziska Davidsen á gítar og bassa og Andri Freyr á trommur. Myrra Rós sér um að hita upp áður en Heidrik stígur á svið. Miðar eru seldir á tix.is og við innganginn. Heidrik með útgáfu- tónleika á Húrra Á fimmtudag Norðanátt, víða 5-10 m/s og skýjað með köflum eða léttskýjað sunnan- og vestantil en norðvestlæg átt 8-13 m/s. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast á Suðausturlandi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægviðri og léttskýjað um allt land en þykknar upp norðantil í kvöld. Hiti 2 til 10 stig, mildast syðst, en víða næturfrost. VEÐUR Óvissa ríkir hjá Eiði Smára Kylfingsins Arnolds Palmer hefur ver- ið minnst með ýmsum hætti hvort sem er í heimspressunni eða á sam- félagsmiðlum, en tilkynnt var um andlát hans aðfaranótt mánudagsins. Palmer naut mikillar virðingar hjá kylfingum um allan heim, en áhrif hans á íþróttina voru mikil eins og fram kemur í grein Morg- unblaðsins um Arnold Palmer í dag. »4 Vinsældir Palmers áþreifanlegar Hún býr yfir miklum hæfileikum. Hún er ótrúlega góð „maður á mann“ í sóknarleiknum og hefur verið að spila vel núna í byrjun tímabilsins, eftir að hafa verið í veseni vegna meiðsla á síðustu leiktíð og á undir- búningstímabilinu,“ segir Sólveig Lára Kjærnested um Esther Viktoríu Ragnarsdóttur, samherja sinn í liði Stjörnunnar. »3 Hún býr yfir ótrúlegum hæfileikum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Bleika slaufan, átaksverkefni Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameinum í konum, er tileinkuð brjóstakrabba- meini í ár. Verk- efnið hefst með formlegum hætti á morgun og stendur yfir út október en Bleika slaufan verður einungis seld fyrstu tvær vik- urnar. Söfnunarféð rennur óskert til endurnýjunar tækjabúnaðar til leitar að brjóstakrabbameini. Endurnýja þarf fjögur tæki og kostar hvert þeirra að minnsta kosti 30 milljónir króna. Einnig er fyrirhugað að taka í notkun nýtt boðunarkerfi til að fjölga konum í reglulegri skoðun. Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein í íslenskum konum en um 90% kvenna sem greinast með meinið geta vænst þess að lifa lengur en fimm ár. Með skipulagðri leit, þar sem tekin er röntgenmynd af brjóst- um, má finna brjóstakrabbamein á byrjunarstigi. Sýnt hefur verið fram á að hægt er að lækka dánartíðnina vegna sjúkdómsins um allt að 40% með slíkri leit. „Einföld skoðun eins og brjóstamyndataka, sem tekur fimm til tíu mínútur, getur þannig bjargað lífi kvenna sem fá brjósta- krabbamein,“ segir Lára G. Sigurðardóttir, læknir og fræðslu- stjóri hjá Krabbameinsfélaginu. Hvetja konur til þess að mæta Lára segir að um 68% kvenna á aldrinum 40-69 ára hafi mætt reglu- lega í leit að brjóstakrabbameini í fyrra og stefnan sé að ná tölunni upp í að minnsta kosti 80%. Um 87% kvenna í leitinni hafi verið ánægð með komuna, en framtaksleysi og tímaskortur séu helstu ástæður þess að konur mæti ekki reglulega í skoð- un. „Siglufjarðarkonur eru dugleg- astar með um 86% mætingu og kon- ur í Ólafsvík og á Húsavík eru skammt á eftir með 85% mætingu, en konur á höfuðborgarsvæðinu eru með slakari mætingu, sérstaklega konur í póstnúmeri 111, sem eru með 55% mætingu, og í póstnúmeri 101 og 116 með undir 60% mætingu,“ segir hún. Því sé ástæða til að ýta við þeim og öðrum sem ekki hafi mætt í reglubundna leit. Hún hvetur konur til þess að horfa á stuttmyndir um brjóstakrabbamein og kennslumynd- band í brjóstaskoðun á bleikaslauf- an.is. Að sögn Láru er auðveldara að ná mjög góðum árangri á þessu sviði með því að nýta þá heilsuvernd sem er í boði. „Skipulög leit að brjósta- krabbameini er ein besta heilsuvernd sem okkur býðst,“ segir hún. „Því fyrr sem kona greinist með brjósta- krabbamein, þeim mun meiri líkur eru á lækningu.“ Einföld skoðun bjargar lífi  Bleika slaufan tileinkuð brjósta- krabbameini Brjóstakrabbameinsleit Endurnýja þarf fjögur tæki og kostar hvert þeirra að minnsta kosti 30 milljónir króna. Átaksverkefnið Bleika slaufan fer nú af stað í tíunda sinn. Þegar hafa safnast um 10 milljónir króna til verkefnisins, meðal annars vegna framlags velunnara, áheita í Reykjavíkurmaraþoninu og styrks vegna sölu á bleiku heyrúlluplasti til bænda. Bleika slaufan verður til sölu um allt land, í verslunum, apótekum og víðar næstu tvær vikunnar. Nánari upplýsingar um sölustaði, fræðslu og fleira er að finna á vefsíðu verkefnisins (bleika- slaufan.is). Um 10 milljónir hafa safnast ÁTAKSVERKEFNIÐ BLEIKA SLAUFAN Í TÍUNDA SINN Lára G. Sigurðardóttir  Tríó Agnars Más Magnússonar leik- ur á fyrstu tónleikum haustdagskrá Jazzklúbbsins Múlans á Björtuloft- um, 5. hæð Hörpu, í kvöld kl. 21. Á efnisskránni eru ný og eldri frum- samin verk eftir Agnar, m.a. af nýút- komnum geisladiski hans, Svif. Með- limir tríósins auk Agnars eru Scott McLemore trommuleikari og Valdi- mar Kolbeinn Sigurjónsson bassa- leikari. Fram til 7. desember verður boðið upp á alls 11 tónleika hjá Múl- anum. Meðal þeirra sem fram koma þetta haustið eru Tómas R. Einarsson, Sigurður Flosason, Einar Scheving, Haukur Gröndal, Jóel Páls- son, Peter Tinn- ing og Chuck Israels. Tríó Agnars Más á opnunartónleikum „Ég var kominn út og í raun- inni bara að bíða eftir að tímabilið hæfist,“ segir Eið- ur Smári Guðjohnsen í við- tali við Morgunblaðið. Eiður Smári varð fyrir meiðslum og nú er ljóst að hann spilar ekki í indversku ofurdeild- inni í knattspyrnu sem hefst í næsta mánuði, en hann hafði samið við ind- verska liðið Pune City um að leika með því í rúma tvo mánuði. »1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.