Fréttablaðið - 03.11.2016, Blaðsíða 68
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
„Þetta eru nú kannski ekkert stærri
fréttir en þær að Guðjón Valur sé
valinn í landsliðið. Hann sagði í
viðtali að hann vonaðist til þess að
hann væri ekki valinn vegna þess
að hann heiti Guðjón Valur heldur
vegna þess að hann geti eitthvað í
handbolta. Ég tek undir þetta,“ segir
Kristján Freyr Halldórsson, nýráð-
inn rokkstjóri tónlistarhátíðarinnar
Aldrei fór ég suður sem fer fram á
Ísafirði um páskana ár hvert.
Ástæða þess að Kristján Freyr
kýs að gera lítið úr fréttagildi ráðn-
ingarinnar er í raun sú að hann
hefur verið í innsta hring Aldrei fór
ég suður allt frá því að hátíðin var
fyrst haldin árið 2004, en sjálfur er
hann borinn og barnfæddur Hnífs-
dælingur. „Hingað til hef ég tekið
þátt í undirbúningi hátíðarinnar
í bakherbergjum, en ákvað nú að
taka þeirri áskorun að stýra henni,“
segir Kristján Freyr, sem starfar sem
hugmynda- og textasmiður hjá H:N
Markaðssamskiptum og tónlistar-
maður með hljómsveitunum Prins
Póló, Dr. Gunna og fleirum.
Hann segir aðstandendur Aldr-
ei fór ég suður hafa unnið að því
hörðum höndum að betrumbæta
vinnubrögð og skipulag á undir-
búningi undanfarin ár og hátíðin
hafi vaxið og dafnað í samræmi
við það, sem sést meðal annars á
því að nú þegar hafa nokkur atriði
verið bókuð á næstu hátíð. Krist-
ján vill þó ekki greina frá því að svo
stöddu hvaða hljómsveitir og tón-
leikafólk er um að ræða. „Við erum
alltaf að stækka hópinn og þetta
er ekki lengur fjögurra eða fimm
manna vinaklíka sem sér um allan
undirbúning. Við tókum þann pól
í hæðina að reyna að dreifa ánægj-
unni svo enginn myndi brenna út
og það er ástæða þess að ég, Birna
Jónasdóttir [fráfarandi rokkstjóri],
Mugison og fleiri höfum verið í
Forréttindi að fá að
dvelja fyrir vestan
Tónlistarmaðurinn Kristján Freyr Halldórsson hefur verið í innsta
hring tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður á Ísafirði frá upphafi.
Kristján sest nú í fyrsta sinn í stól sjálfs rokkstjóra hátíðarinnar.
Kristján Freyr býr og starfar í Reykjavík en kemur til með að dvelja meira fyrir vestan næstu mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
þessu svona lengi. Við höfum fengið
svo margar góðar hendur og heila til
liðs við okkur. Velvildin sem hátíðin
nýtur hjá bæjarbúum og yfirvöldum
fyrir vestan er líka alveg ótrúleg og
þar eru allir ávallt til í að leggja hönd
á plóginn.“
Kristján Freyr býr og starfar í
Reykjavík og segist aðspurður líta
á það sem forréttindi, sem brott-
fluttur einstaklingur, að fá að dvelja
meira fyrir vestan við ýmiss konar
undirbúning fram að næstu hátíð
og ekki síst á meðan sjálf hátíðin
stendur yfir. „Þetta gerir maður
ekki nema maður búi að skilnings-
ríkri fjölskyldu og vinnuveitendum.
Ég býst við að verða það mikið
fyrir vestan að ég þarf eiginlega að
athuga hvort gamla unglingaher-
bergið mitt sé ekki laust.“
kjartang@frettabladid.is
Hvaða tónlistarFólk
eða Hljómsveitir myndi
kristján Freyr bóka á
aldrei Fór ég suður eF
Hann Fengi Frítt spil?
1. Björk
„Þegar Rassi Prump og
Mugison héldu fyrstu hátíðina
árið 2004 hittu þeir Björk af
tilviljun og spurðu kurteislega
hvort hún vildi koma fram.
Hún sagðist vera til í að skoða
það. Við erum
enn að bíða.“
2. Sloan
„Ég er svo hrifinn af þessari
hljómsveit frá Halifax í Kanada
að ég hef tvisvar sent þeim
póst og beðið þá um að koma
vestur. Ef þeir væru til myndi
ég glaður kaupa handa þeim
flugmiða og fá þá til að spila
nokkur lög.“
3. Nick Cave
„Tónleikarnir hans á All
Tomorrow’s Parties á
Ásbrú fyrir
þremur árum
eru pottþétt
á topp 5 yfir
mínar bestu
tónleika-
upplif-
anir.“
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
VIKAN 26.10.16 - 01.11.16
1 2
5 6
7 8
109
43
Avocado
Hildur Rut Ingimarsdóttir
Tvísaga
Ásdís Halla Bragadóttir
Petsamo
Arnaldur Indriðason
Elsku Drauma mín
Vigdís Grímsdóttir
Hjónin við hliðina
Shari Lapena
Þín eigin hrollvekja
Ævar Þór Benediktsson
Nóttin sem öllu breytti
Sóley Eiríksdóttir/Helga Guðrún Johnson
Óminni
Sverrir Berg
Harry Potter og bölvun barnsins
J.K. Rowling
Svartalogn
Kristín Marja Baldursdóttir
3 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U D A G U r54 L í F I ð ∙ F r É T T A b L A ð I ð
0
3
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:5
8
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
6
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
2
B
-A
A
2
0
1
B
2
B
-A
8
E
4
1
B
2
B
-A
7
A
8
1
B
2
B
-A
6
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
7
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K