Fréttablaðið - 03.11.2016, Blaðsíða 3
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 6 0 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r F i M M t u d a g u r 3 . n ó v e M b e r 2 0 1 6
Fréttablaðið í dag
skoðun Hafsteinn Þór Hauks-
son skrifar um stjórnarmynd-
anir. 21
sport Strákarnir fóru vel af stað
í undankeppni EM 2018. 34
tÍMaMót Ólafur Arnalds er
þrítugur. 36
lÍFið Kristján Freyr Halldórsson
er nýr rokkstjóri Aldrei fór ég
suður. 54
plús 2 sérblöð l Fólk l lÍFið
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
FRÁBÆR JÓLAGJÖF
Laugavegi 178 - Sími 568 9955
ENJOY HITAFAT HELDUR HEITU/KÖLDU
Í ALLT AÐ 4.KLST. 3.TEGUNDIR & LITIR
VERÐ FRÁ KR.12.500 M/AFSL.
Í FRÉTTABLAÐINU Í DAG
4BLS
BÆKLINGUR
Reykjavík • Hallarmúla 2 | Akureyri • Undirhlíð 2
stjórnMál Talsmenn flokkanna á
Alþingi setja flestir fyrirvara við að
þingið hnekki ákvörðun kjara ráðs
um launahækkanir þingmanna og
ráðherra. Guðni Th. Jóhannesson,
forseti Íslands, sagðist í gær ekki
vilja þá launahækkun og að hann
vænti þess að Alþingi myndi „vinda
ofan af ákvörðuninni“.
„Það kemur vel til greina,“ svaraði
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, aðspurður á blaða-
mannafundi í gær hvort Alþingi ætti
með einhverjum hætti að grípa inn í
og breyta ákvörðun kjararáðs.
Hann sló hins vegar varnagla.
„Grípi þingið inn í þetta mál, sem
ég skal alls ekki útiloka og getur
verið nauðsynlegt í ljósi aðstæðna,
þá finnst mér mikilvægt að við
svörum um leið þeirri spurningu
hvort áfram eigi að standa í lögum
að þingmenn eigi að njóta sambæri-
legra kjara og aðrir sem gegna við-
líka ábyrgð,“ sagði Bjarni.
Svandís Svavarsdóttir alþingis-
maður segir liðsmenn Vinstri
grænna telja hækkunina fráleita.
„Alþingi getur gert það sem það
vill, mér finnst mikilvægt að við
förum yfir þetta því það þurfa að
gilda skýrar og almennilegar reglur,“
svarar Svandís.
Birgitta Jónsdóttir Pírati segir að
alþingismenn eigi ekki að hlutast til
um sín laun en þegar upp komi slíkt
tilfelli með 44 prósenta hækkun
þurfi eitthvað að gera.
„Nú er bara að sjá hvort ekki sé
hægt að sammælast um það að
þessu máli verði snúið við og lög
um kjararáð löguð,“ segir Birgitta í
samtali við Fréttablaðið.
– gar, sg / sjá síðu 6
Vilja endurskoðun samfara inngripi
Forseti Íslands kveðst vænta þess að Alþingi beiti sér vegna ákvörðunar kjararáðs um að hækka laun æðstu embættismanna. Þing-
menn vilja skoða inngrip en vilja þá skoða fyrirkomulag vegna launamála sinna í leiðinni. Þingmaður VG segir hækkunina fráleita.
Nú er bara að sjá
hvort ekki sé hægt
að sammælast um það að
þessu máli verði snúið við og
lög um kjararáð löguð.
Birgitta Jónsdóttir, Pírati
„Þetta er mjög mikil hækkun og hún þarfnast ítarlegra útskýringa og það er ekkert víst að hún gangi upp,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, þegar hann ræddi við
fréttamenn um nýjan úrskurð kjararáðs. Hann setur þó fyrirvara við þær hugmyndir að Alþingi breyti úrskurðinum, sem hefur vakið hörð viðbrögð í vikunni. Fréttablaðið/Eyþór
stjórnMál Bjarni Benediktsson
mun byrja daginn á að ræða við
Katrínu Jakobsdóttur, formann
Vinstri grænna, um myndun ríkis-
stjórnar. Hann ætlar síðan að ræða
við formenn allra flokka á Alþingi
og mun röðin fara eftir þingstyrk
flokkanna. Það þýðir að eftir Katr-
ínu í röðinni verður Birgitta Jóns-
dóttir.
Bjarni byrjaði þó á að ræða við
Sigurð Inga Jóhannsson, formann
Framsóknarflokksins, í gær. Þeir
Bjarni og Sigurður Ingi hafa setið
saman í stjórn í tæp fjögur ár.
„Það er dálítið flókið með þessi
úrslit en ég tel að aðstæður í land-
inu, verkefnin fram undan og þessi
niðurstaða kosninganna eigi að
gera það að verkum að það takist
að mynda sterka ríkisstjórn,“ sagði
Bjarni við fréttamenn á tröppum
Bessastaða í gær. – jhh / sjá síðu 2
Fyrsti fundur
með Katrínu
0
3
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:5
8
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
8
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
2
B
-9
6
6
0
1
B
2
B
-9
5
2
4
1
B
2
B
-9
3
E
8
1
B
2
B
-9
2
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
7
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K