Fréttablaðið - 03.11.2016, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 03.11.2016, Blaðsíða 18
Brotalamir Clinton Einhver hluti bandarískra kjós- enda virðist hafa bitið það í sig að Hillary Clinton sé svo gjörspillt að hún eigi hvergi annars staðar heima en í fangelsi. Ekki fyrir nokkra muni megi hún verða for- seti Bandaríkjanna. Tölvupóstarnir Meðan Hillary Clinton var utan- ríkisráðherra í ríkisstjórn Baracks Obama notaði hún persónulegan vefþjón sinn til tölvupóstssam- skipta, jafnvel þegar um trúnaðar- mál var að ræða. Bandaríska alríkislögreglan komst um síðir að þeirri niðurstöðu að með þessu hefði hún sýnt af sér gríðarlegt kæruleysi en taldi ekki ástæðu til að lögsækja hana fyrir stórfellt gáleysi, sem varðar við lög. Wall Street Clinton hefur verið gagnrýnd fyrir að hafa of náin tengsl við auð- kýfinga og stórfyrirtæki, sem hafa dælt peningum í kosningasjóði hennar. Meðan Bernie Sanders keppti við hana um útnefningu Demóktrata, sagði hann þetta einn helsta ljóð á ráði hennar og Trump hefur hamrað á þessu hvenær sem færi gefst. Bill Fortíð hennar sem eiginkona Bills Clinton hefur stundum orðið henni til trafala, ekki síst þegar ásakanir um framhjáhald og kyn- ferðisbrot hans eru rifjaðar upp. Alvarlegustu ásakanirnar snúast um að hún hafi beinlínis hótað eða gert lítið úr þeim konum sem hafa sakað Bill Clinton um að hafa brotið gegn sér. Utanríkismálin Clinton hefur verið gagnrýnd fyrir ýmis mistök í utanríkismálum, ýmist fyrir að vera of herská eða fyrir gáleysi sem átti að hafa kostað bandarískan sendiherra og starfsfólk hans lífið í Líbíu. Trump og félagar segja henni engan veginn treystandi en aðrir óttast að hún sendi bandaríska herinn fyrirhyggjulítið út í stríð. Brotalamir Trumps Þrátt fyrir töluverðar vinsældir Donalds Trump telja margir, jafnt innan sem utan Bandaríkjanna, að hann yrði gjörsamlega óhæfur forseti vegna ruddaskapar, reynslu- og þekkingarleysis. Kvenfyrirlitning Ítrekað hefur Trump viðhaft um- mæli um konur sem vakið hafa reiði og hneykslun kvenna jafnt sem karla víða um heim. Hann hefur gert lítið úr konum, sagt þær feitar og subbur, kallað þær svín og hunda. Hann hefur stært sig af því að geta komist upp með að áreita konur kynferðislega. Áður en hann bauð sig fram viður- kenndi hann meira að segja að framkoma hans gagnvart konum myndi gera honum erfitt fyrir færi hann í framboð. Aðrir fordómar Trump hefur ítrekað gert lítið úr ýmsum minnihlutahópum og verið með hótanir í garð þeirra. Þar hafa múslimar orðið einna verst úti. Hann hefur hótað því að banna múslimum að koma til Bandaríkjanna, sagt að þeim sé ekki treystandi. Þá hefur hann hótað því að reka 11 milljónir innflytjenda úr landi og reisa múr á milli Bandaríkjanna og Mexíkó til að halda íbúum Suður-Ameríku sunnan landamæranna. Hann hefur hermt eftir fötluðum og móðgað stríðshetjur, svo fátt eitt sé nefnt. Skattarnir Trump hefur verið gagnrýndur fyrir að birta ekki skattupplýsingar sínar eins og aðrir frambjóðendur hafa jafnan gert. Nýlega stærði hann sig af því að hafa komið sér undan því að greiða skatta með því að fá stórfellt tap dregið frá, eins og tíðkast. Nú síðast fullyrða bandarískir fjölmiðlar að þetta hafi hann gert með svikum, því tapið sem átti að vera frádráttar- bært hafi í raun ekki verið stórt tap, því að baki tapinu voru lán sem hann fékk niðurfelld. Rússar Andstæðingar Trumps hamra mjög á gagnkvæmu skjalli hans og Vladimírs Pútín Rússlandsforseta. Bæði hrifning Trumps af Pútín og meint hrifning Pútíns af Trump geri það að verkum að Trump sé vart treystandi til að fara með bandarísk utanríkismálefni. Bandaríkin Kosningabarátta þeirra Hillary Clinton og Donalds Trump hefur verið ein sú óvenjulegasta í sögu Bandaríkjanna. Eitt það furðulegasta er að málefnin komast varla að. Áherslan er öll á framkomu Trumps og hinar stórkarlalegu yfir- lýsingar hans, ýmist um eigið ágæti, vankanta mótherjans, og svo á mis- jafnlega máttlitlar tilraunir Clinton til að beina athygli kjósenda frá allri þeirri neikvæðu umfjöllun sem hellst hefur yfir hana og ekkert lát virðist á. Clinton hefur oftast haft vinn- inginn í skoðanakönnunum, þótt stundum hafi dregið verulega saman á milli þeirra. Nú á lokasprettinum er munurinn aftur að minnka og er kominn undir tvö prósent. Bæði hafa þau reyndar verið harla óvinsæl meðal almennings allan tímann meðan kosningabaráttan hefur staðið yfir. Þótt Trump eigi sína hörðu stuðningsmenn og Clin- ton sömuleiðis, þá mælast vinsældir þeirra beggja minni en allra fram- bjóðenda flokkanna tveggja síðan 1992, að minnsta kosti. Einungis rúmlega þriðjungur aðspurðra segist mjög eða nokkuð ánægður með Clinton, eða 36 pró- sent, og litlu færri, eða 35 prósent, segjast ánægð með Trump, sam- kvæmt könnun fyrirtækisins Pew Research Center, sem sérhæfir sig í gerð skoðanakannana og lýðfræði- rannsókna. Þá kemur einnig fram hjá Pew að óvenju hátt hlutfall þeirra, sem ætla að kjósa Trump eða Clinton, segjast gera það einkum til þess að koma í veg fyrir að hinn frambjóðandinn komist til valda. Þannig segist 51 prósent þeirra, sem ætla að kjósa Trump, einkum gera það til að koma í veg fyrir að Clinton verði forseti. Og að sama skapi segist 41 prósent þeirra, sem ætla að kjósa Clinton, einkum gera það til að koma í veg fyrir að Trump verði forseti. Einungis 45 prósent þeirra sem ætla að kjósa Trump segjast gera það vegna þess að þeir vilji að hann verði forseti, en 57 prósent þeirra sem ætla að kjósa Hillary segjast gera það vegna þess að þeir vilji að hún verði forseti. gudsteinn@frettabladid.is Nærast bæði á óvinsældum hins Á þriðjudaginn í næstu viku lýkur hinni ógnarlöngu kosningabaráttu í Bandaríkjunum þegar loks verður gengið til kosninga. Á lokasprett- inum hefur dregið mjög saman með þeim Hillary Clinton og Donald Trump. Bæði dragnast þau með haug af óvinsælum farangri. 51% kjósenda Trumps ætlar að kjósa hann til að koma í veg fyrir að Clinton verði forseti. 41% kjósenda Clinton ætlar að kjósa hana til að koma í veg fyrir að Trump verði forseti. Guðsteinn Bjarnason gudsteinn@frettabladid.is Óánægja kjósenda með forsetaefni flokkanna Einungis þriðji hver kjósandi í Bandaríkjunum segist ánægður með forsetaefni flokkanna tveggja að þessu sinni, hvort sem það er Clinton eða Trump sem fyrir valinu verður. Ánægjan hefur ekki mælst jafn lítil í meira en tvo áratugi © GRAPHIC NEWSHeimild: Pew Research Center *Skv. könnun gerðri dagana 23. ágúst til 2. september. Spurður var 1.201 einstaklingur, þar á meðal 947 skráðir kjósendur. Myndir: Associated Press Kjósa Demókrata / líklega Demókrata % mjög/nokkuð ánægð Kjósa Repúblikana / líklega Repúblikana 62 46 56 69 64 64 76 6171 54 36% 35% 69 69 Bill Clinton 1992 1996 2000 2004 2008 2012 2016 George W. Bush Barack Obama Donald Trump Hillary Clinton Ánægjan hefur minnkað um 7% síðan í júní* Kjósendur í Chicago greiða utankjörstaðaratkvæði. NoRdiCphoToS/AFp 3 . n Ó v e m B e r 2 0 1 6 F i m m T U d a G U r16 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð 0 3 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :5 8 F B 0 7 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 8 K _ N Y .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 2 B -9 6 6 0 1 B 2 B -9 5 2 4 1 B 2 B -9 3 E 8 1 B 2 B -9 2 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 7 2 s _ 2 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.