Morgunblaðið - 25.10.2016, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 25.10.2016, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2016 Hraunbergi 4, 111 Reykjavík, sími 530 9500 • Frí heimsending lyfja • Góð kjör fyrir eldri borgara og öryrkja • Gerðu verðsamanburð • Lyfjaskömmtun á góðu verði góð þjónusta ogPersónuleg Opið alla virka daga kl. 8:30-18:00 Heilbrigð skynsemi Heilsugæsla efra Breiðholts Gerðuberg Lyf á lægra verði Kvennafrídagurinn 2016 Kristín Edda Frímannsdóttir Viðar Guðjónsson Bergþóra Jónsdóttir Spurningunni „Á systir mín að fá minni vasapening?“ var varpað á skilti Gísla Hrafns og við hlið hennar stóð systir hans, Sigrún Ýr, með skilti sem á stóð: „NeiHei!“ „Við erum hér til að mótmæla launamismun kynjanna, þetta er bara asnalegt eins og þetta er,“ sagði Gísli Hrafn í samtali við blaðamann mbl.is sem forvitnaðist um skilti sem þau systkini báru á samstöðufundi á Austurvelli í gær, í tilefni kvennafrídagsins. Þetta er í fimmta skipti sem kon- ur leggja niður störf og efnt er til samstöðufundar í tilefni af ójafnri stöðu kvenna. Á fjölmennum samstöðufundi var lesin upp yfirlýsing þar sem á það var bent að konur hefðu að meðaltali 70,3% af atvinnutekjum karla. Af því tilefni lögðu konur niður störf klukkan 14.38, á mínútunni sem konur hætta að með- altali að fá greidd laun í samfélaginu samanborið við karla. Árið 2005 lögðu konur niður störf klukkan 14.08. Árið 2010 gengu þær út klukkan 14.25. Var á það bent í gær að með sama hraða yrði launajafnrétti náð eftir 52 ár. Krafa þeirra sem á samstöðufundinn mættu var hins vegar skýr um að launamunur yrði jafnaður tafarlaust. Fjölmörg fyrirtæki hvöttu starfsfólk sitt til þess að leggja niður störf í gær. Stoðtækjaframleiðandinn Össur var eitt þeirra, þar sem send var tilkynning til starfsmanna og eindregið mælt með því að konur fyrirtækisins mættu á Austurvöll. Þá lokaði t.a.m. Hafnarfjarðarbær skólum, leikskólum og frístundaheimilum frá kl. 14.30 í gær og hvatti foreldra til þess að sækja börn sín fyrir þann tíma. Morgunblaðið/Golli Kvennafrídagurinn á Austurvelli Ungir sem aldnir komu á Austurvöll á samstöðufund í tilefni Kvennafrídagsins sem haldinn var í gær. Þess var krafist að launamunur yrði strax jafnaður. Morgunblaðið/Árni Sæberg Systkini Þau Gísli Hrafn og Sigrún Ýr voru á Austurvelli til þess að hvetja til jafnréttis kynjanna. Báru þau skilti til að undirstrika afstöðu sína. Með sama hraða jafnast mun- urinn ekki fyrr en eftir 52 ár Morgunblaðið/Golli Fjölmennt Þúsundir voru á Austurvelli í gær. Engar fjöldatölur fengust þó hjá lögreglunni í þetta sinn. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Akureyri Fjölmennur samstöðufundur var haldinn á Ráðhústorginu á Akureyri í gær líkt og víðar á landinu. Morgunblaðið/Golli 14.38 Þúsundir kvenna lögðu niður störf um allt land klukkan 14.38.  Lögðu niður störf klukkan 14.38 í tilefni kvennafrídagsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.