Morgunblaðið - 25.10.2016, Side 10

Morgunblaðið - 25.10.2016, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2016 Isavia ohf. vinnur nú að gerð deili- skipulags fyrir vestur- og aust- ursvæði Keflavíkurflugvallar. Af því tilefni hefur fyrirtækið boðað til samráðsfundar sem fram fer í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ í dag kl. 13-16. Á fundinum verða drög að deili- skipulagstillögu kynnt og tillögum að efnislegum breytingum safnað saman í vinnuhópum. Forkynning stendur yfir til 15. nóvember 2016 og getur almenn- ingur komið með tillögur á þeim tíma. Að lokinni forkynningu verður tillagan lögð fram í skipulagsnefnd til afgreiðslu. Þegar skipulagsnefnd hefur samþykkt að auglýsa tillögu að deiliskipulagi verður það gert í samræmi við 41. grein skipulagslaga og gefst þá tækifæri til að gera formlegar athugasemdir við tillög- una innan athugasemdafrests. Helstu markmið og viðfangsefni deiliskipulagsins eru m.a. að gera heildstæðan deiliskipulagsuppdrátt fyrir svæðið og kalla fram góðar heildarlausnir m.t.t. þarfa flug- tengdrar starfsemi og að skilgreina og útfæra byggðarmynstur svæð- isins, þ.m.t. stærðir bygginga, hæðir og yfirbragð. sisi@mbl.is Tölvuteikning/Nordic-Office of Keflavíkurflugvöllur Mikil uppbygging er fyrirhuguð á næstu árum. Kynna nýtt skipu- lag á flugvellinum V – listi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs: 1. Lilja Rafney Magnúsdóttir, kt. 240657-7919, alþingismaður, Hjallavegi 31, Suðureyri. 2. Bjarni Jónsson, kt. 060666-3939, forstöðumaður, Raftahlíð 70, Sauðárkróki. 3. Dagný Rósa Úlfarsdóttir, kt. 210176-3149, grunnskólakennari, Ytra-Hóli, Skagabyggð. 4. Rúnar Gíslason, kt. 170496-3029, leiðbeinandi, Brákarbraut 4, Borgarnesi. 5. Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir, kt. 260986-3259, líffræðingur og kennari, Kleppjárnsreykjum, Reykholti. 6. Reynir Þór Eyvindsson, kt. 190363-4149, verkfræðingur, Skógarflöt 25, Akranesi. 7. Hjördís Pálsdóttir, kt. 080686-2699, safnstjóri, Bókhlöðustíg 1, Stykkishólmi. 8. Þröstur Þór Ólafsson, kt. 221265-5139, iðnkennari, Steinsstaðaflöt 21, Akranesi. 9. Berghildur Pálmadóttir, kt. 110186-2829, ráðgjafi, Fagurhólstúni 1, Grundarfirði. 10. Halla Sigríður Steinólfsdóttir, kt. 110564-2609, bóndi, Ytri-Fagradal 2, Dalabyggð. 11. Bjarki Hjörleifsson, kt. 220389-2439, vert, Ásklifi 11, Stykkishólmi. 12. Dagrún Ósk Jónsdóttir, kt. 131293-2329, yfirnáttúrubarn, Kirkjubóli 1, Hólmavík. 13. Ingi Hans Jónsson, kt. 240255-7749, sagnaþulur, Sæbóli 13, Grundarfirði. 14. Lárus Ástmar Hannesson, kt. 150766-4199, kennari, Nestúni 4, Stykkishólmi. 15. Guðný Hildur Magnúsdóttir, kt. 130669-3019, félagsráðgjafi, Hreggnasa, Bolungarvík. 16. Guðbrandur Brynjúlfsson, kt. 300448-8019, bóndi, Brúarlandi 2, Borgarbyggð. Reykjavík, 24. október 2016. Landskjörstjórn. Auglýsing frá landskjörstjórn um framboð við alþingiskosningar 29. október 2016. Með vísan til 44. gr. laga um kosningar til Alþingis er framboðslisti Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðvesturkjördæmi birtur á ný þar sem nafn frambjóðanda hafði misritast. „Krafturinn var ótrúlegur og há- vaðinn mikill,“ segir Aldís Haf- steinsdóttir, bæjarstjóri í Hvera- gerði, en í eftirmiðdaginn í gær sprakk leiðsla í gufuveitukerfinu þar í bæ. Lögnin er við götuna Breiðumörk, skammt frá af- greiðslustöð N1 þar sem ekið er inn í bæinn. Gufumökkur frá lögninni gekk yfir svæðið og það kraumaði í holunni sem myndaðist. Í fyrstu var jafnvel talið að þarna hefði mynd- ast hver, enda dæmi um slíkt í Hveragerði. Starfsmenn Veitna gera við skemmdir en röskun gæti orðið, t.d. hjá fyrirtækjum sem nýta gufuafl við framleiðslu sína. sbs@mbl.is Ljósmynd/Sigþór Sigurðsson Afl Gufumökkur steig til himins og í öllu kraumaði svo mannfjölda dreif að. Gufuleiðsla í Hvera- gerði sprakk í gær Öryggis- og varnarmál, m.a. sam- skiptin við Rússa og staða mála í Úkraínu og Sýrlandi í því sambandi, voru í deiglunni á fundi sem Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráð- herra átti í gær með formönnum utanríkismálanefnda þjóðþinga Norðurlandaríkjanna og Eystra- saltsríkjanna. Þeir eru nú staddir hérlendis í boði Alþingis. Samstarf er með þjóðunum átta og er víða horft til þess, segir í frétt frá utan- ríkisráðuneytinu. Á fundinum gerði utanríkisráð- herra að umtalsefni að 30 ár eru liðin frá leiðtogafundinum í Höfða – og mikilvægi þess að eiga hreinskiptin samtöl. Slíkt skilaði jafnan árangri. Þá skýrði Lilja einnig frá nýskipuðu þjóðaröryggisráði og nýrri þjóðar- öryggisstefnu. Málefni norðurslóða og loftslagsmál voru einnig til um- ræðu, sem og afleiðingar væntan- legrar útgöngu Breta úr ESB. sbs@mbl.is Ræddu öryggismál, Úkraínu og Sýrland  Utanríkismálin rædd í Reykjavík Fundur Ráðherra og formenn utan- ríkismálanefnda Norðurlandaríkja. Þorsteinn Ásgrímsson Melén thorsteinn@mbl.is Gunnar Sigurðsson, fyrrverandi for- stjóri Baugs, sagði í vitnaleiðslum í héraðsdómi í gær í Aurum-málinu að miðað við samningaviðræður hefði hann talið að fyrirtækið Damas frá Dubai hefði verið búið að samþykkja verðmat á Aurum upp á um 100 milljón punda. Kaupverð er eitt af lykilatriðum dómsmálsins. Saksóknari telur að verðið hafi verið ofmetið og hefur látið að því liggja að það hafi komið frá Baugi, sem á þessum tíma var stærsti hlut- hafinn í Aurum. Með því hafi skapast grundvöllur undir hærri lánveitingu frá Glitni banka þar sem 2,2 millj- arðar runnu til seljanda umfram skuldir sem gera átti upp og einn milljarður til Jóns Ásgeirs Jó- hannessonar, sem er einn hinna ákærðu í málinu. Ákærðu hafa aftur á móti sagt verðmat eðlilegt. Það var félagið Fons sem var að selja bréfin í Aurum, en Pálmi Har- aldsson, eigandi Fons, og Jón Ás- geir, stjórnarformaður og einn eig- enda Baugs, voru viðskiptafélagar. Selja átti Damas bréfin, en Glitnir lánaði á móti félaginu FS38, dóttur- félagi Fons, sex milljarða til að kaupa bréf Fons. Átti svo að selja þau áfram til Damas, sem hætti við kaupin og hefur komið fram að stjórnendur þess hafi talið verið of hátt. Verjendur ákærðu og stjórn- endur í Baugi hafa bent á að á þeim tíma sem Damas hopaði hafi banka- kreppan við að skella á. Að halda að sér höndum þá hafi verið eðlilegt. Saksóknari hefur ítrekað spurt ákærðu og vitni í málinu um tölvu- póst sem sendur var af Jóni Ásgeiri vegna þessa máls. Þar kemur fram að með viðskiptunum verði gerð upp „öll mál vegna PH og Stím og allar skuldbindingar PH við Glitni þá komnar í lag“. Gunnar var einn þeirra sem fengu viðkomandi póst, en hann segist ekki vita hvað átt væri við. PH er Pálmi Haraldsson. Hækkaði um tvo milljarða Þá gat Gunnar heldur ekki svarað fyrir tvö bréf sem hann fékk frá Jóni Ásgeiri snemma í maí. Á þeim tíma hækkar lánsfjárhæðin úr fjórum milljörðum upp í sex milljarða. Gunnar sendi tillögur um málið áfram 6. maí til Lárusar Welding, bankastjóra Glitnis. Sagði það hafa verið vegna fundar með Jóni Ásgeiri og Pálma þar sem hann hefði tekið niður punkta og verið beðinn um að senda áfram. Sagðist Gunnar ekki þekkja nákvæmlega til upphæða sem þar komu fram né tilurðar til- lagna sem þarna voru settar fram. Segja verðmat hafa verið eðlilegt  Vitnaleiðslur í Aurum-málinu halda áfram í héraðsdómi  Tekist á um kaup- verð  Eðlilegt að kaupandi héldi að sér höndum  Getur ekki svarað fyrir bréf Morgunblaðið/Árni Sæberg Bollaleggingar Verjendur og ákærðu bera saman bækur sínar í dómsal.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.