Morgunblaðið - 25.10.2016, Síða 11

Morgunblaðið - 25.10.2016, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2016 Ingvar Emilsson haf- fræðingur andaðist á sjúkrahúsi í Mexíkó hinn 21. október eftir erfiða baráttu við lungnabólgu. Ingvar fæddist á Eskifirði 1926. Hann kvæntist Ástríði Guð- mundsdóttur sem lést 2015. Þau eignuðust þrjú börn, þau Krist- ján, Tryggva og Elínu Margréti. Ingvar stundaði nám í haffræði og veð- urfræði í Noregi árin 1946 til 1953. Fjölskyldan flutti til Brasilíu 1953 þar sem Ingvar veitti forstöðu nýstofnaðri hafrann- sóknastofnun háskólans í Sao Paulo næstu tíu ár, en þá fékk hann starf hjá UNESCO, stofun Sameinuðu þjóðanna, og fluttu þau Ingvar, Ást- ríður og Elín til Kúbu en Kristján og Tryggvi fluttu til Íslands til að stunda nám. Árið 1970 fluttu þau frá Kúbu til Mexíkó- borgar, en þar bjuggu þau alla tíð síðan. Ingvar fór á eftirlaun frá Sameinuðu þjóð- unum 1988, en fljót- lega gerðist hann for- stöðumaður hafrannsóknaskipa há- skólans í Mexíkó (UNAM), en það starf stundaði hann til dauðadags. Minningarathöfn og bálför var í Mexíkóborg hinn 23. október sl. Jarðarför verður á Íslandi síðar, en hann verður jarðaður við hlið Ástríðar eiginkonu sinnar í Hóla- vallakirkjugarði í Reykjavík. Andlát Ingvar Emilsson Reynir Ragnarsson endurskoðandi lést á líknardeild Landspítal- ans í Kópavogi laugar- daginn 22. október, á 69. aldursári. Reynir fæddist 6. desember árið 1947. Hann var framarlega í íþróttahreyfingunni og var formaður ÍBR, Íþróttabandalags Reykjavíkur, árum saman. Reynir útskrifaðist úr Verzlunarskóla Ís- lands árið 1967, fór svo í viðskiptafræði og varð löggilt- ur endurskoðandi árið 1975. Hann rak sína eigin endurskoðunarskrif- stofu sem nefnist Þrep. Hann lauk MBA-prófi frá Háskóla Íslands ár- ið 2003. Reynir var virkur í Rot- ary-hreyfingunni árum saman. Hann vann mikið fyrir ÍR og var í stjórn þess félags áður en hann kom inn í framkvæmdastjórn ÍBR árið 1988 og var kjör- inn formaður þar árið 1994 og sinnti því starfi til ársins 2009. Hann leiddi íþróttabandalagið á breytingatímum þess. Hann var fulltrúi ÍBR í mörgum nefndum á vegum félagsins. Með- al annars sat hann í stjórn Íslenskrar get- spár og var í rekstr- arnefnd Laugardals- vallar, byggingarnefnd Skautahallarinnar í Laugardal og ýmsum nefndum Íþrótta- og Ólympíusambands Ís- lands. Reynir var mikill áhugamaður um ferðalög, útivist og siglingar. Átti hann seglskútu og sigldi um Eystrasaltið og þaðan til Íslands. Hann skilur eftir sig eiginkonu, Halldóru Gísladóttur, börn og barnabörn. Reynir Ragnarsson Vertu upplýstur! blattafram.is VANDINN LIGGUR OFT HJÁ OKKUR SJÁLFUM. SAMÞYKKIR ÞÚ KYNFERÐISOFBELDI? 10% af seld um set tum, renna til krab ba- meinsf élagsin s Bleikt októbertilboð Reykjavíkurvegi 64, Hfj, s. 555 1515, enjo.is Komið í verslun okkar og sjáið úrvalið Opið kl. 11-18 alla virka daga Innifalið í pakka: Andlitshanski, 2 augnpúðar og krókur, lítið þvottanet. Verð 6.900 5.900 Tilboð www.fr.is FRÍTT VERÐMAT ENGAR SKULDBINDINGAR HRINGDU NÚNA 820 8081 sylvia@fr.is Sylvía G. Walthersdóttir Löggiltur fasteignasali Salvör Davíðsdóttir Nemi til lögg.fasteignasala Brynjólfur Þorkellsson Sölufulltrúi Sjöfn Ólafsdóttir Skrifstofa Síðumúla 20, 108 Reykjavík • Sími 551 8258 • storkurinn.is Opið: Mán.-F ös. 11-18 Lau. 11 -15 Námskeið í prjóni og hekli sjá nánar á storkurinn.is Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Str. S-XXL Kr. 6.900 Buxnaleggings Pleður (Coated) Nýlistasafn en ekki gallerí Í umfjöllun um sýningar á verkum Þorvaldar Þorsteinssonar í Ant- werpen í Belgíu í blaðinu á dög- unum var ranglega hermt að einn sýningarstaðanna, M HKA, væri gallerí. Hið rétta er að M HKA er ný- listasafn. Beðist er velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTT Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók ekki saman fjöldatölur yfir þá sem komu saman á samstöðufundi í tilefni kvennafrídagsins í gær. Að sögn Arnars Rúnars Mar- teinssonar, aðalvarðstjóra hjá lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu, var ákveðið að hætta því eftir að lögreglan var sökuð um að draga taum einhverra hagsmunaafla. „Ákveðið var að gefa þetta ekkert upp vegna þeirra leiðinda sem hafa verið í kringum þessar talningar okkar og höfum ekki gert síðan seinni hlutann í apríl í tengslum við Panamamótmælin,“ segir Arnar og bætir við: „Þetta hefur verið að valda leiðindum. Þeir sem eru að halda fundina vilja hafa fleiri en upp er gefið en hinir segja að lög- reglan sé að blása þetta upp,“ segir Arnar. vidar@mbl.is Lögreglan gefur ekki upp fjöldatölur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.