Morgunblaðið - 25.10.2016, Síða 14

Morgunblaðið - 25.10.2016, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2016 SVIÐSLJÓS Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Landbúnaðarframleiðsla þarf að aukast um 60% fram til ársins 2050 til að fæða alla jarðarbúa samkvæmt spám FAO, matvæla- og landbún- aðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Íslendingum mun fjölga á næstu ár- um og ferðamönnum einnig og þótt magnið sem hægt er að framleiða hér muni aldrei telja mikið í heildar- neyslu heimsins getur Ísland orðið sjálfu sér nægt með mat að miklum hluta. Á Íslandi er nóg af vatni og ræktanlegu landi, sem eru grunn- stoðir matvælaframleiðslu. Hér birt- ist síðasta umfjöllunin um tækifæri í landbúnaði tengd fleiri ferðamönn- um. Ræktað land á Íslandi er 116.000 hektarar samkvæmt upplýsingum frá Bændasamtökum Íslands en mögu- legt ræktarland er um 600.000 hekt- arar. Jónatan Hermannson, lektor við auðlindadeild Landbúnaðarhá- skóla Íslands, segir þetta ríflega áætlað en engu að síður megi auka ræktun verulega, a.m.k tvöfalda það ræktarland sem nú er. „Hér er hægt að rækta margt en samt ekki þannig að við verðum samkeppnishæf til út- flutnings. Við munum þó geta full- nægt öllum innanlandsþörfum fyrir fóðurkorn og hluta af matkorni. Það fer vitaskuld eftir veðurfari, það er uppsveifla í því núna fyrir okkur en ég veit ekki hver framtíðin verður,“ segir Jónatan. Vantar landbúnaðarstefnur Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, segir sóknarfæri í að framleiða meiri mat- væli hér á landi. „Það ætti að huga að því að framleiða meira af vörum hér heima, við þurfum að gera meira í loftslagsmálum og þá þurfum við að spyrja okkur hvort við eigum að flytja allan þennan mat á milli landa. Í framtíðinni munum við að öllum lík- indum auka hér matvælaframleiðslu en við verðum að gæta þess að það sé gert með sjálfbærni að leiðarljósi,“ segir Sindri. Framleiðsla á innlendu kjúkl- ingakjöti gæti aukist enn frekar að sögn Ingimundar Bergmann, for- manns Félags kjúklingabænda. „Við myndum helst vilja metta íslenskan markað en við gætum hæglega verið sjálfbær með kjúkling. Kjúklinga- bændur eru að vinna jafnt og þétt í því að bæta aðstöðuna og auka fram- leiðsluna en umhverfið er svolítið ótryggt. Við upplifðum það þegar okkur var kynntur tollasamningurinn haustið 2015 að það er hægt að kippa grundvellinum undan þessu allt í einu. Það er mjög óþægileg tilfinning og það gildir ekki bara um okkur heldur alla kjötframleiðslu. Mér finnst vanta að það sé meiri fyrir- sjáanleiki í umhverfinu og framtíð- arsýn, það vantar landbúnaðar- stefnu,“ segir Ingimundur. Katrín María Andrésdóttir, framkvæmdastjóri Sambands garð- yrkjubænda, segir mikil tækifæri fel- ast í því að framleiða og selja meira. „Það má vinna alls konar fleiri afurðir úr flestu því sem nú er ræktað hér- lendis og sem betur fer eru ýmis þró- unarverkefni í gangi í þeim efnum. Til viðbótar við það þarf að stuðla að fjöl- breyttari notkun landsmanna og ferðafólks á garðyrkjuvörum allt árið. Garðyrkjubændur hafa enn sem komið er lítið horft til markaða á borð við fæðubótarefni eða snyrtivörur,“ segir Katrín. Margir leita til Matís Hjá Matís eru ýmis verkefni í gangi tengd landbúnaði, þá helst það sem tengist vörum beint frá býli, smá- framleiðslu og þróun á matarminja- gripum. Hjá Matís er m.a. boðið upp á matarsmiðju, fræðslu og ráðgjöf fyrir þá sem eru að þróa nýjar vörur og að setja af stað framleiðslu. Guðjón Þor- kelsson, ráðgjafi hjá Matís og deildar- forseti matvæla- og næring- arfræðideildar Háskóla Íslands, segir flest þessara verkefna snúa að lamba-, nauta- og svínakjöti, og að- eins að mjólkurvörum. „Við höfum líka verið að hjálpa bændum við að koma framleiðslunni nær sér og skapa meiri virðisauka heima í héraði. Besta dæmið um það er sláturhús á Seglbúðum við Kirkju- bæjarklaustur, en þar er verið að spá í að bændur slátri heima í héraði og sinni markaðnum heima fyrir bæði fyrir sjálfa sig og ferðamenn,“ segir Guðjón og bætir við að það hafi aukist síðustu ár að leitað sé til Matís til að- stoðar við að koma verkefnum af stað. „Við höfum rannsakað ákveðna eiginleika í matvælaframleiðslu, t.d. hvort svæðin hafi mikið að segja í sambandi við innihald og gæði á matnum. Á rannsókn sem við gerðum á lambakjöti gátum við séð að mis- munandi beit hafði ákveðin áhrif á kjötið og það er hægt að nota slíkar upplýsingar til að selja kjötið. Nú stendur yfir verkefni sem tengist kjötgæðum í sauðfjárrækt, en við er- um að spá í hvort við getum kynbætt betur fyrir kjötgæðum.“ Matís býður brátt upp á nám- skeið á netinu fyrir þá sem hafa áhuga á að fara út í smáframleiðslu og vinnslu á lambakjöti. Guðjón segir að mörg tækifæri séu í nýsköpun í sambandi við mat, þá aðallega í kringum matarsóun. „Það eru tækifæri í að nýta betur þau hrá- efni sem við erum að framleiða. Út frá kröfum um umhverfismál ættum við að líta okkur nær og nýta betur það sem við erum með en á Vestur- löndum er langmest sóun í stórmörk- uðum og þegar maturinn er kominn heim.“ Sóknarfæri í að framleiða meira  Ótryggt umhverfi í kjötframleiðslu  Landbúnaðar- stefnu vantar  Mörg tækifæri í matarnýsköpun Mannfjöldi og ferðamenn á Íslandi til 2065 500 450 400 350 300 250 200 150 100 50 0 6 5 4 3 2 1 0 Þú su nd ir 18 50 18 60 18 70 18 80 18 90 19 00 19 10 19 20 19 30 19 40 19 50 19 60 19 70 19 80 19 90 20 00 20 10 20 20 20 30 20 40 20 50 20 60 20 70 M illj ón ir Heimild: Greiningardeild Arion banka *Spá Hagstofunnar ** Sviðsmynd Mannfjöldi Fjöldi ferðamanna Tækifæri í landbúnaði www.kvarnir.is 20 ÁRA 1996 2016 Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhellu 9 | 221 Hafnarfirði sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is 70 kr. stk. Nýt t Kvarnatengi fyrir zetur og sakkaborð Stærðir eru: 12 S, 15 S, 18 S, 20 S, 25 S og 12 B, 15 B, 18 B, 20 B, 25 B Vesturhrauni 3, 210 Garðabæ | Sími 480 0000 | sala@aflvelar.is | aflvelar.is Vagnar og kerrur frá OPIÐ mánudaga til föstudags 8:00-17:00 Hafið samband í síma 480 0000

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.