Morgunblaðið - 25.10.2016, Síða 15

Morgunblaðið - 25.10.2016, Síða 15
Morgunblaðið/Styrmir Kári 15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2016  Gunnar Bragi Sveinsson, landbúnaðar- og sjávarútvegs- ráðherra, vill sjá innlendar landbúnaðarvörur seldar sem hágæðavörur í fallegum umbúðum og á hærra verði en þær eru seldar á í dag. „Við eigum að borga meira fyrir þessa gæðavöru. Það er óeðlilegt að við borgum það sama fyrir lambalæri ofan í fimm manna fjölskyldu og eina pitsu fyrir einstakling. Það er eitthvað skrítið við það,“ segir hann. „Ef gæðin, hreinleikinn og hollustan eru tekin saman, þá eru neytendur yfirleitt tilbúnir til að borga aðeins meira fyrir það en á móti þurfum við að upplýsa neytandann um hver varan er, hvað hann borgar fyrir. Í ráðuneytinu er t.d verið að innleiða reglugerð um merkingar á matvörum svo upprunaland komi skýrt fram. Við erum líka að skoða hvernig við getum sett fram þá kröfu að lyfjaleifar komi fram á umbúðunum. Neytandinn á skilið að vita og um leið búum við til mismunandi markaði fyrir vörurnar.“ Gunnar Bragi segist vera óhemju bjartsýnn fyrir hönd landbúnaðarins. „Eft- irspurn eftir matvælum eykst á sama tíma og það eru færri sem framleiða í heiminum. Við höfum hér mikið landrými, hreint loft og vatn. Helst markmiðið núna er að búa til langtímasýn fyrir atvinnugreinina. Að sumu leyti má segja að menn hafi kannski ekki verið nógu opnir fyrir þróuninni og tilbúnir að liðka til og að leyfa þessari grein að sprikla meira. Bændasamtökin hafa síðastliðin ár verið á undan ríkisvaldinu að sjá þessa sýn en svo er það í þessari grein, eins og öllum öðrum, að það er mikil íhaldssemi og hún getur verið viss hindr- un en líka ákveðið tækifæri því það er ákveðin rómantík að selja íhaldssemina og sérviskuna. Þetta er lína sem þarf að finna og ef það finnst miðpunktur sem allir geta unnið út frá þá kvíði ég ekki framtíð landbúnaðar að nokkru leyti.“ Sérstaðan er sölupunkturinn Spurður hverjar séu helstu hindranirnar fyrir framþróun og vexti í landbún- aði að hans mati svarar Gunnar Bragi: „Það er erfitt fyrir ungt fólk í dag að taka við búum. Það er erfitt að afsetja vörurnar eins og fyrirkomulagið er, það eru milliliðirnir sem ráða verðinu til bændanna, sláturleyfishafarnir og versl- unin. Þetta er ákveðin hindrun í að auka framleiðsluna, ég held að lausnin á þessu sé enn og aftur hvernig við seljum og markaðssetjum vöruna. Það eru allskonar hindranir en það er hægt að yfirstíga þær flestar því Ísland er í ein- stakri stöðu með sína framleiðslu. Síðan eru allskonar ógnanir, eins og það að við megum ekki verja okkar ein- staka landbúnað. Það eru gerðar kröfur um að hér eigi að flytja inn hrátt kjöt og allskonar afurðir sem geta eyðilagt þann greinarmun sem við getum gert í dag á okkar framleiðslu og annarri, það tel ég mikla ógnun. Í svona litlu landi með svona litla framleiðslu er það sérstaðan sem er sölupunkturinn. Það er klárlega ógnun í dag ef krafan um að hér sé enginn stuðningur nær fram að ganga, en ég fullyrði að allur annar landbúnaður í heiminum er studdur með einhverjum hætti. Óvissan í umhverfi landbúnaðarins er klárlega ógn og við þurfum að skapa þessari atvinnugrein langtímasýn svo menn viti að hverju þeir ganga.“ Þarf að skapa langtímasýn fyrir landbúnaðinn Gunnar Bragi Sveinsson Upplýsingar og aðgöngumiðar á ambiente.messefrankfurt.com Sími: +45 39 40 11 22 dimex@dimex.dk Samvinna milli hugmynda og framkvæmdar, hönnunar og handverka, heildarmynda og markaðar. Á heimsins mikilvægustu vörusýningu neysluvara. 10.– 14.2. 2017 the show „Framtíðin liggur í þessu, það er ekki spurning,“ segir Kristján Oddsson um lífrænar landbún- aðarvörur. Hann rekur lífrænt kúabú á Neðra Hálsi í Kjós og er eigandi Bio-Bú sem framleiðir líf- rænar mjólkurvörur. „Menn eiga eftir að átta sig á því hvað þetta er í raun og veru skyn- samlegt, horft til bæði nátt- úruverndar og hollustu fæðunnar. Hér á landi notum við minna af lyfj- um og varnarefnum í ræktun en víðast hvar annars staðar og vegna þess þurfum við minna til að verða lífrænir og menn ættu að horfa til þess. Danir ætla að verða undan okkur, þeir eru búnir að ásetja sér að gera allan danskan landbúnað lífrænan fyrir ákveðinn tíma en það bólar ekkert á slíkri stefnu hér.“ Um 30 lífræn bú eru nú á Íslandi í hinum ýmsu greinum, flest í sauð- fjárrækt og garðyrkju, en ekki nema þrjú bú eru í mjólkurfram- leiðslu. „Það er eitthvað sem stend- ur í mönnum varðandi mjólkina. Ég hugsa að það sé áburðarþátturinn en aðgengi að nothæfum áburði hefur verið lélegt. Menn mikla kannski fyrir sér að fara út í líf- rænan búskap því hann er aðeins öðruvísi, það þarf að huga betur að ræktun og öðru svo dæmið gangi upp og svo eru menn alltaf hræddir um heyleysi sem er skiljanlegt.“ Kristján segir að alltaf sé verið að kalla meira og meira eftir líf- rænum vörum og það sé skortur á lífrænni mjólk í landinu. „Það er stöðug aukning, við sem erum í þessu nú þegar höfum orðið að auka okkar framleiðslu til að geta svarað markaðinum og það er alltaf tómur kælirinn hjá Bio-Bú,“ segir Kristján sem spáir því að lífrænum búum muni fjölga hratt í nánustu framtíð. Skortur á líf- rænni mjólk Morgunblaðið/Rósa Braga Bíó-Bú Eftirspurn eftir lífrænum mjólkurvörum hefur aukist mikið.  Um þrjátíu bú framleiða lífrænt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.