Morgunblaðið - 25.10.2016, Page 27

Morgunblaðið - 25.10.2016, Page 27
verslun landsins. Ég byrjaði að af- greiða þar 16 eða 17 ára og fljótlega urðum við, ég og Pétur Sigurðsson, félagi minn, aðalafgreiðslumennirn- irnir í herradeildinni. Þegar Verslun Haraldar Árnasonar hætti stofn- uðum við Pétur herrafataverslun og við létum hana að sjálfsögðu heita Herradeild P&Ó, eftir herradeild- inni í Haraldarbúð.“ Ólafur og Pétur stofnuðu Herra- deild P&Ó í Austurstræti 14 hinn 10.4. 1959. Þeir opnuðu síðan nýja verslun á Laugavegi 95 haustið 1963, stækkuðu verslunina í Austurstræti árið 1964, opnuðu nýja verslun á Laugavegi 66, í árslok 1970, í nýju húsi sem þeir byggðu, ásamt Sveini Valfells og Jóhanna Friðrikssyni, og lögðu þá jafnframt niður verslunina á Laugavegi 95. Haustið 1986 var Herradeild P&Ó seld en þá hafði verslunin verið starfrækt í tæp 30 ár: „Ég held það sé óhætt að segja að Herradeild P&Ó hafi náð því markmiði að verða ein vinsælasta og þekktasta herra- fataverslun landsins um langt árabil enda lögðum við áherslu á vandaðar vörur og faglega þjónustu. Frægasta auglýsing okkar hljóð- aði svona: Allt frá hatti o’ní skó – Herrdeild PÓ. Svo var gott að muna símanúmerið okkar: 12345.“ Fjölskylda Eiginkona Ólafs var Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, f. 29.6. 1924, d. 11.4. 2003, húsfreyja og versl- unarmaður. Hún var dóttir Jóns Símonarsonar, bakarameistara í Reykjavík, og k.h., Hönnu Sigurð- ardóttur húsfreyju. Börn Ólafs og Jóhönnu Guðrúnar: 1) Jón Magni Ólafsson, f. 21.8. 1943, mjólkurfræðingur, lengst af hjá Mjólkurbúi Flóamanna, búsettur á Selfossi en kona hans er Sigríður Magnúsdóttir húsfreyja og eiga þau tvö börn; 2) Ólafur Maríus, f. 31.5. 1946, d. 12.8. 1989, verslunarmaður hjá Herradeild P&Ó en kona hans var Ingibjörg Jóhannesdóttir og eignuðust þau eina dóttur; 3) Gunn- ar, f. 14.6. 1950, húsasmíðameistari á Akranesi en kona hans er Rannveig Sturlaugsdóttir húsfreyja og eiga þau fimm börn; 4) Símon, f. 29.12. 1953, vélstjóri í Hafnarfirði en kona hans er María Júlía Alfreðsdóttir, starfsmaður við ferðaþjónustu og eiga þau tvo syni, og 5) Hanna, f. 17.3. 1962, leikskólakennari í Kópa- vogi en maður hennar er Einar Ol- geir Gíslason, starfsmaður hjá ál- verinu í Straumsvík og eiga þau þrjá syni. Systkini Ólafs: Sólveig, f. 7.7. 1916, d. 19.7. 2000, húsfreyja í Reykjavík; Sigríður, f. 21.6. 1919, d. 16.1. 1978, lengi starfsmaður Sjúkr- samlags Reykjavíkur; Karl Andreas Maríusson, f. 21.4. 1925, d. 21.3. 1962, lengst af héraðslæknir á Eski- firði; Guðný (Stella) f. 14.10. 1926, d. 6.7. 2008, húsfreyja í Reykjavík og í Grikklandi; Baldur, f. 23.3. 1928, d. 28.9. 2016, garðyrkjustjóri í Hvera- gerði. Foreldrar Ólafs voru Karólína Andrea Danielsen frá Eyrarbakka, f. 24.8. 1890, d. 25.7. 1983, húsfreyja og verslunarmaður í Reykjavík, og Maríus Ólafsson frá Eyrarbakka, f. 28.10. 1891, d. 4.3. 1983. Úr frændgarði Ólafs Maríussonar Guðný Jónsdóttir húsfr. á Skúmsstöðum Gísli Einarsson b. á Skúmsstöðum á Eyrarbakka Solveig Daníelsen Gísladóttir húsfr. í Rvík Carl Andreas Danielsen af dönskumættum, flutti til Ástralíu Karólína Andrea Karlsdóttir Daníelsen húsfr. í Rvík Símon Ólafsson vélstjóri í Hafnar- firði Baldur Maríusson garðyrkjustj. í Hveragerði Gunnar Ólafsson húsa- smíða- meistari á Akranesi Jón Símonarson söngvari í hljómsv. Bootlegs Birgir Baldursson trommu- leikari Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsm.á Rás 2 Böðvar Gunnarss. hótelstj. hjá Ion Hotels Katrín Pálsdóttir húsfr. í Skammadal, á Höfðabrekku og í Seglbúðum Jón Jónsson b. á Skammadalshóli í Mýrdal, á Höfðabrekku og í Seglbúðum Sigríður Jónsdóttir húsfr. á Steinsmýri, í Sandprýði og í Rvík Ólafur Ólafsson b. á Steinsmýri og söðlasmiður á Eyrarbakka Maríus Ólafsson kaupmaður og heildsali í Rvík Þuríður Eiríksdóttir húsfr. í Skurðbæ og á Undirhrauni Ólafur Jónsson b. í Skurðbæ Ólafur Maríus- son Myndarleg hjón Ólafur og Jóhanna Guðrún á leiðinni út að borða. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2016 NORSKIR BRJÓSTDROPAR RÓAR HÓSTA, DREGUR ÚR SÁRSAUKA Í HÁLSI OG LOSAR UM Í ENNIS- OG KINNHOLUM. DANSKIR BRJÓSTDROPAR MÝKIR HÁLSINN OG STILLIR ÞRÁLÁTAN HÓSTA. FÁST Í NÆSTA APÓTEKI AUÐUNN JÓNSSON KRAFTLYFTINGAMAÐUR DANSKIR FYRIR STERKA. NORSKIR FYRIR STERKARI! Björn Jóhannesson verkfræð-ingur fæddist á Hofsstöðumí Viðvíkurhreppi í Skagafirði 25.10. 1924. Foreldrar hans voru Jó- hannes Björnsson, bóndi og hrepp- stjóri á Hofsstöðum, og k.h., Krist- rún Jósefsdóttir húsfreyja. Björn var Skagfirðingur og Hún- vetningur. Foreldrar Jóhannesar voru Björn Pétursson, bóndi og hreppstjóri á Hofsstöðum, og k.h., Una Jóhannesdóttir húsfreyja, en foreldrar Kristrúnar voru Jósef Jón Björnsson frá Fremri Torfastöðum í Miðfirði, kennari og síðar skólastjóri á Hólum í Hjaltadal, og k.h., Hólm- fríður Björnsdóttir húsfreyja. Björn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1935, lauk prófi í efnaverkfræði frá Dan- marks Tekniske Höjskole í Kaup- mannahöfn 1940 og doktorsprófi i jarðvegsfræði frá Cornell Univers- ity í Íþöku í New York-ríki í Banda- ríkjunum 1945. Björn var sérfræðingur hjá bún- aðardeild Atvinnudeildar Háskóla Íslands 1945-62 og starfsmaður við Þróunarstofnun Sameinuðu þjóð- anna (UNDP) í New York 1962-75. Þar vann Björn að skipulagningu rannsóknarverkefna í þróunar- löndunum. Björn sinnti ýmsum verkefnum er lutu að nýjungum og framleiðni í landbúnaði. Hann sat í tilraunaráði jarðræktar 1945-62, í nefnd til að at- huga rekstrargrundvöll fyrir áburð- arverksmiðju 1946, gerði frum- áætlun um framleiðslu áburðarkalks fyrir Sementsverksmiðju ríkisins á Akranesi, ásamt Jóni E. Vestdal, 1954, sá um útgáfu handbókar fyrir bændur 1950 og sat sama ár í nefnd til að endurskoða lög er varða til- raunastarfsemi sem gerð var í land- búnaði hér á landi. Björn sat í stjórn Stéttarfélags verkfræðinga 1955 og 1961, var fé- lagi í Vísindafélagi Íslendinga frá 1954, kjörfélagi í American Associa- tion for the Advancement of Science frá 1962 og í Society of Sigma XI í Bandaríkjunum frá 1945. Björn lést 12.12. 1990. Merkir Íslendingar Björn Jóhannesson 95 ára Ólafur Maríusson 85 ára Grétar Sívertsen Hörður Felixson María Kristjánsdóttir Sigurdís Egilsdóttir Þóra Benediktsdóttir Þórgunnur Inga Sigurgeirsdóttir 80 ára Anný Guðsteinsdóttir Guðmundur Vigfússon Kristín S. Högnadóttir Ólöf S. Benediktsdóttir Ragnar Guðmundsson Stefán Ingólfur Kjartansson 75 ára Edda Briem Jónsdóttir Marinó Bóas Karlsson Ragna Guðjohnsen Reynir Helgi Schiöth Örn Sveinsson 70 ára Aðalheiður Benediktsdóttir Bjarney G. Þórarinsdóttir Daníel Sigurðsson Erla Bjarnadóttir Gísli Hjálmarsson Jónas Hermannsson Rósa G. Ingólfsdóttir Sesselja Pálsdóttir 60 ára Ágúst Victorsson Ármann Sverrisson Borghildur G. Hertervig Jónas Kristinn Eggertsson Kristín Magnúsdóttir Vilberg Pálmarsson 50 ára Berghildur Magnúsdóttir Bjarki Árnason Daníel Guðmundsson Dusica Ristic Einar Guðsteinsson Jón Sólmundsson Þórarinn Blöndal 40 ára Aneta Stanislawa Figlarska Arnar Sigmarsson Donbyrd Elvie Guðrún Bacalso Jónas Már Karlsson Justyna Kinga Sankiewicz Ólafur Örn Ásmundsson Sigrún Guðný Pétursdóttir Thelma Hinriksdóttir 30 ára Anna Kristín Guðmundsdóttir Donatas Jonikas Jóhanna Margr Sigurgeirsdóttir Krzysztof Skuza Sudarat Sawatdee Til hamingju með daginn 30 ára Anna ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk prófi í lögfræði frá HR, er með hdl-réttindi og er verkefnastjóri stjórnsýslu- sviðs Kópavogsbæjar. Maki: Daníel Karl Egils- son, f. 1983, kokkur. Foreldrar: Guðmundur Halldór Halldórsson, f. 1965, matreiðslumeistari, og Agnes Elsa Þorleifs- dóttir, f. 1967, grunn- skólakennari. Þau búa í Reykjavík. Anna Kristín Guðmundsdóttir 40 ára Thelma ólst upp á Neskaupstað, býr í Reykjavík og er að ljúka prófi í viðskiptafræði. Maki: Axel Guðni Úlf- arsson, f. 1978, starfs- maður á fjármálasviði Össurar. Börn: Ingibjörg, f. 2001; Úlfar Snær, f. 2009, og Agnar Hörður, f. 2016. Foreldrar: Óla Steina Agnarsdóttir, f. 1954, og Hinrik Halldórsson, f. 1952. Thelma Hinriksdóttir 40 ára Jónas ólst upp á Akureyri, býr í Reykjavík, lauk prófi í framreiðslu og er þjónn á Red Chili. Maki: Íris Dögg Jóhann- esdóttir, f. 1979, dag- móðir. Börn: Birta Ýr, f. 1999; Atli Már, f. 2001, og Rakel Sól, f. 2009. Foreldrar: Vera P. Hraun- fjörð, f. 1950, starfs- maður hjá Íslandspósti, og Karl Sigurðsson, f. 1949, verkamaður. Jónas Már Karlsson Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einnmánuð. Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.