Morgunblaðið - 25.10.2016, Page 29

Morgunblaðið - 25.10.2016, Page 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2016 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Hafnaðu ekki heimboði nema þú hafir til þess góðar og gildar ástæður. Vertu óhrædd(ur) við að sýna öðrum að þér þyki vænt um þá. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er sjálfsagt að styrkja þá sem minna mega sæín. Gættu þess þó að taka tillit til þinna nánustu. Reyndu að halda þér utan við og halda friðinn við báða deilu- aðila. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Vatnsberinn hefur næga orku og hefur fullan hug á því að bæta skipulag sitt, bæði heima fyrir og í vinnunni. Sum verða sterkari, önnur veikari. Batnandi fólki er best að lifa. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þér má líða vel í skininu frá velvild og aðdáun annarra. Ef aðrir eru hluti af áætlunum þínum, vertu þá viss um að þeir viti hvað þeir eigi að gera. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Fjölskyldan er mjög skilningsrík í dag. Ef þú ert ekki viss, skaltu ekki komast að samkomulagi um eitthvað. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Góðvild eða greiði yfirmanns veldur innbyrðis deilum á vinnustað. Nú verðurðu að gera upp við þig hver staðan er heima- fyrir og hverju þú vilt bindast. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það vefst fyrir þér að ganga frá máli sem þér hefur verið falið að leiða til lykta. Mundu að hver er sinnar gæfu smiður. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það eina sem hindrar þig í því að öðlast það sem þú þráir er eitthvað ann- að sem þú vilt líka. Hinir hæfileikaríku, áköfu og skrýtnu í vinahópnum þínum hafa góð áhrif á þig núna. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú hefur safnað að þér upplýs- ingum og getur nú farið að vinna úr þeim. Gættu þess að sýna öðrum sanngirni þegar þú klífur metorðastigann. 22. des. - 19. janúar Steingeit Nýtt verkefni er að hefjast. Síg- andi lukka er best og því eru allar sviptingar til lítils, þegar upp er staðið. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Svo virðist sem fólk reyni vísvit- andi að reita þig til reiði í dag. Hugsaðu þig vel um áður en þú hellir þér út í samræður við annað fólk. 19. feb. - 20. mars Fiskar Stundum hentar að fara út í öfgar, stundum að taka það rólega. Um leið vilja þeir fá upplýsingar um líðan þína og ákvarð- anir – líka þær sem snúa ekki að þeim. Víkverji brá sér í Kolaportið umhelgina og aðstoðaði dóttur sína við að setja upp sölubás. Þetta var skemmtileg iðja og um leið fróðleg. Við vorum ekki fyrr komin á svæðið en sölukonur af næstu básum voru mættar til að gramsa í pokum og töskum, greinilega í leit að söluvæn- legri vöru þessara nýju keppinauta á markaðnum. Eftir skamma stund var dóttir Víkverja búin að selja slatta, og ekki búið að opna Kolaport- ið enn! x x x Víkverji reyndi eftir megni að að-stoða og toga verðtilboðin aðeins upp en án þess þó að fæla áhugasama kaupendur frá. Eftir á að hyggja má vel vera að þessi „forsala“ hafi mis- heppnast, því á næstu básum mátti síðar um daginn sjá sumar af þessum vörum á uppsprengdu verði, m.a. tvær ullarhúfur sem Víkverji seldi á 500 kr. stykkið. Þarna voru þær komnar á 1.000 kall og hafa eflaust í lok dags endað á kolli kuldalegra ferðamanna sem flúið höfðu inn í Kolaportið frá slagviðrinu. Jæja, þá hafa bara allir grætt, hugsaði Vík- verji með sér. x x x Víkverji hafði ekki komið í Kola-portið um nokkurn tíma og fannst breytingar á húsakynnum vera til mikilla bóta. Nú er húsnæðið orðið allt bjartara og andrúmsloftið léttara. Það tók þó smá tíma að finna nammikonuna en það þurfti bara að finna lyktina. Hún er líka alltaf svo hress að maður verður bara að kaupa sér smá nammi til að seðja mestu sykurþörfina. x x x Mannmergðin var mikil þennandag og ferðamenn áberandi meðal viðskiptavina, sem og útlend- ingar sem áreiðanlega eru búsettir hér á landi. Viku fyrir kosningar voru Píratar eini stjórnmálaflokkurinn þarna með kynningarbás og það seg- ir kannski smá sögu um hvað gömlu flokkarnir eru komnir langt frá gras- rótinni, eða þá að þeir telji sig ekki þurfa á atkvæðum Kolaportsgesta að halda. Það kemur væntanlega í ljós á laugardaginn. Víkverji tók þó á sig krók framhjá Píratabásnum en það er önnur saga. víkverji@mbl.is Víkverji Ég vil lofa Drottin meðan lifi, lof- syngja Guði mínum, meðan ég er til. (Sálm. 146:2) www.danco.is Heildsöludreifing Fyrirtæki og verslanir Heildarlausnir í umbúðum Pappír v Borðar v Pokar v Bönd Skreytingarefni v Teyjur v Kort Pakkaskraut v Sellófan Ég hitti karlinn á Laugaveginumvið stjórnarráðið í morgun – hann hallaði undir flatt og skaut vinstri vanganum upp í útsynning- inn þegar ég spurði hann um nýj- ustu tíðindi í pólitíkinni: Þótt þær séu samkynja samt ég varð þess áskynja að langar vinstri græningja að ganga í sæng með pírata. Ólafur Stefánsson brá sér til sól- arlanda og segir svo frá í spjalli: „Ungt fólk var á heimleið eftir viku í sólinni. „Þið eruð að fara heim til að kjósa,“ sagði ég. „Já, það þarf að bjarga þjóðinni frá Pírötum,“ sögðu þau og mér kom í hug Tyrkjaránið og skansinn í Vest- mannaeyjum og víðar: Þegar ræningjar rústa og herja rupla með engri kurt þá er skylda skansinn að verja og skipa þeim öllum burt. „Enn yrkir Ólafur“ skrifar Sig- rún Haraldsdóttir í Leirinn eftir að hann hafði sent henni vísu frá sól- arlöndum: Þegar líða fer á fríið, í funaglóðinni, Birgitta í barberíið, býður þjóðinni. Þetta kveikti í vísnasmiðum. Ár- mann Þorgrímsson byrjaði: Hann er mjög vel hagorður og hefur vald á málinu, en af hverju skyldi Ólafur yrkja gegn um Sigrúnu? Jón Arnljótsson bætti við: Sigrún, hún er sómakona, sem á enginn friðill. Ætli hún sé ekki svona einhverskonar miðill. Gústi Mar bættist í hópinn: Er á milli ótta og vonar sem orð fá varla skipt. Ætli hún riti einhverskonar ósjálfráða skrift? Arnar Sigbjörnsson segir frá reynslu sinni „í kjörklefanum“: „Úff, þetta er langur listi af listum“, kvað Olgeir og hristi hausinn en flautaði falskur og tautaði eitthvað um uglu á kvisti. Páll Imsland heilsaði Leirleiði eftir messu, – sagði ekki burðugt tillag sitt til hinnar pólitísku um- ræðu: Hann var kjaftfor og kræfur um of. Kunn voru greppsins heitrof. Þeir kölluðu’ hann: Óli tík. Hann kom nærri pólitík. Ef það skyldi þekkjast sem lof. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Úr pólitíkinni og vísur frá sólarlöndum Í klípu „AMMA MÍN ÁTTI HANN. AFI VANN VIÐ ÚTSTILLINGAR.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞAÐ ER MÆLT MEÐ HANDLEIÐSLU FORELDRA. VILTU HRINGJA Í MÖMMU ÞÍNA?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að sýna þitt raunverulega eðli. ANDVARP ÉG GET ÞETTA EKKI LENGUR. EN ÉG GET ÞETTA... ÉG FANN NÝJA MENN TIL AÐ FARA Í VÍKING AÐ SUMRI... ÉG VEIT ÞAÐ EKKI, ÞEIR VIRÐAST EKKI MJÖG HARÐIR AF SÉR! EKKI LÁTA BLEKKJAST... ...ÞEIR ERU GRUNNSKÓLA- KENNARAR!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.