Morgunblaðið - 25.10.2016, Side 31

Morgunblaðið - 25.10.2016, Side 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2016 júlí 2016 hafi haft mjög sterka skír- skotun til sjálfbærni og ábyrgðar okkar allra á umhverfið okkar. Mörg verkanna urðu tilefni áhugaverðrar umræðu um eðli þróunar og hvernig best sé að henni staðið í sátt og sam- lyndi við náttúruna. Skoffín Ólafar Nordal felur í sér þarfa áminningu um hvernig vanþekking getur magn- að upp ótta gagnvart því sem fram- andi er og átti starfsfólk fastanefnd- arinar mörg áhugaverð samtöl við kollega frá öðrum löndum um þá lær- dóma sem við gætum dregið af því verki í umræðu alþjóðasamfélagsins um málefni flóttamanna. Þá vakti verk Hrafnkels Sigurðssonar, „Revelation III“, sérstaka athygli þar sem SÞ hafa verið að fjalla sér- staklega um plastmengun í höfunum undanfarin misseri. „Í kjölfar sýningarinnar í SÞ benti Aðalræðisskrifstofa Íslands í New York menningarstofnuninni Scand- inavian House á sýninguna og sýndu þeir áhuga á að fá mig til að setja upp sambærilega sýningu þar sem sýn- ingin í SÞ, var ekki opin almenningi. Edward Gallagher, framkvæmdar- stjóri stofnunarinnar, segir sýn- inguna falla vel að áherslum Scand- inavia House um að skapa grundvöll fyrir samræður og hugmyndaskipti milli Norðurlandanna og Bandaríkj- anna um mikilvægustu málefni líð- andi stundar og er hann mjög ánægð- ur með viðbrögð sýningargesta. Sýningin fékk styrk frá Iceland Nat- urally. Sem betur fer hefur áhugi á mál- efnum umhverfis og sjálfbærni aukist mjög mikið undanfarin ár og lista- verk sem fjalla um þessi málefni eiga svo sannarlega erindi við almenning því fólk á oft auðveldara með að skilja þau heldur en ritaðan texta,“ segir Ásthildur. Látum okkur málefnið varða Ásthildur segir að listamennirnir sem hún valdi fyrir sýninguna skapi, allir verk sem benda á þætti sem tengjast málefnum sjálfbærni. „Það er mikilvægt að allir velti fyrir sér hvernig þeir geti látið sig málefnið varða, og listamennirnir benda allir á mismunandi hliðar á því. Verkin fá okkur til að íhuga gagnvirkt samband manna og náttúruskilning okkar á náttúrulegum fyrirbærum á meðan önnur vekja spurningar um gildismat okkar sem þjóðar. Bjarki Bragason og Anna Líndal minna á að samhengi og þekking eru nauðsynleg til að geta unnið gegn uggvænlegum afleið- ingum af ósjálfbærri hegðun manns- ins. Í verki Gjörningaklúbbsins fá áhorfendur tækifæri til að velta fyrir sér að hve miklu leyti maðurinn hefur fjarlægst uppruna sinn og þar með náttúruna. Verkið mitt fjallar um við- leitni Skúla Gunnlaugssonar til að leggja sitt af mörkum til aukins friðar og jafnvægis í heiminum.“ Samtal gesta um sýninguna Ásthildur hélt einnig listasmiðju í Scandinvia House, og gaf þannig áhorfendunum tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. „Þannig stuðlum við líka að því að listin sé virkur þáttur í lífi áhorfenda og opnum leið fyrir hvern og einn til að skoða viðhorf sín gagnvart sjálf- bærni og stöðu náttúrunnar. Í smiðj- unum eru þátttakendur hvattir til að tjá óhindrað skoðanir sínar, þar sem hver og einn tekur afstöðu til mála með því að tengja við eigin reynslu, ímyndunarafl og sköpun. Það var mjög skemmtilegt og forvitnilegt fyr- ir mig að sjá útkomuna, því um leið skapaði listasmiðjan samtal á milli gesta safnsins um sýninguna.“ Í stafi sínu sem lektor við list- kennsludeild Listaháskóla Íslands leggur Ásthildur á sambærilegan hátt áherslu á menntun til sjálfbærni. Síðastliðin fjögur ár hefur hún ásamt þeim listamönnum sem stunda meist- aranám við deildina unnið með Laug- arnesskóla og Grasagarðinum þar sem skapaðar hafa verið aðstæður fyrir nemendur í 5. bekk til að vinna utandyra í heila viku í tengslum við barnamenningarhátíð. „Í vinnusmiðj- unni í Grasagarðinum er markvisst unnið að því að skoða tengsl manna og náttúru og hvað í mannlegri hegð- un megi betur fara í samfélagi okk- ar,“ segir Ásthildur að lokum. Untitled Verk eftir Libiu Castro og Ólaf Ólafsson frá árinu 2000. Tvær sýningar á verkum bandarísku listakon- unnar Joan Jonas verða opnaðar hér á landi á næstu dögum; annað kvöld kl. 20 verður opnuð sýningin Reanimation details í Listasafni Ís- lands og á laugardaginn kl. 15 sýningin Eldur og saga í Listasafninu á Akureyri. Jonas er hingað komin af þessu tilefni og verður við- stödd opnanir beggja sýninga, auk þess sem hún verður með opna fyrirlestra í Listaháskóla Íslands í dag kl. 12.30 og í Listasafninu á Ak- ureyri á sunnudaginn kl. 15. Aðgangur á báða fyrirlestra er ókeypis. Joan Jonas (f. 1936) er frumkvöðull á sviði vídeó- og gjörningalistar og einn þekktasti myndlistarmaður samtímans. Hún starfar enn ötullega að sköpun nýrra verka, nú um fimm- tíu árum eftir að hún hóf að sýna verk sín í heimaborginni New York í Bandaríkjunum. Jonas hefur haft víðtæk áhrif á samferðamenn sína, verk hennar hafa verið sýnd í helstu lista- söfnum heims og hún hlotið fjölda viðurkenn- inga og verðlauna. Hún starfar sem prófessor við MIT; Massachussets Institute of Techno- logy, og hefur kennt þar frá árinu 1998. Joan Jonas var fulltrúi Bandaríkjanna á Fen- eyjatvíæringnum árið 2015. Forleikur að frekari verkum Joan Jonas kom til Íslands á níunda áratug liðinnar aldar og skilaði áhrifunum af þeirri heimsókn í verkinu Volcano Saga, frásagn- armyndbandi þar sem Tilda Swinton fer með hlutverk Guðrúnar Ósvífursdóttur í heitri laug umluktri hrjóstrugu eldfjallalandslagi og sýnt er í Listasafninu á Akureyri. Þessi nána vísun í Laxdælu og drauma Guðrúnar, sem rekur sig eftir verkinu eins og rauður þráður, var for- leikur að frekari verkum Jonas byggðum á ís- lenskum bókmenntum, fornum og nýjum. Verk hennar Reanimation, sem sýnt er í Lista- safni Íslands, er sprottið af lestri hennar á Kristnihaldi undir Jökli eftir Halldór Laxness, örstuttri tilvísun skáldsins í Eyrbyggju, lagðri í munn sögumanni og fjallar um það þegar Þórgunna gengur aftur og finnur mjölið í búrinu til að baka brauð ofan í svanga líkflutn- ingamenn sína. Verkin eru nú í fyrsta sinn sýnd á Íslandi. Sýningarstjórar eru Birta Guðjónsdóttir, deildarstjóri sýningadeildar Listasafns Ís- lands, og Hlynur Hallsson, safnstjóri Lista- safnsins á Akureyri. Úr höggmyndum í vídeó Joan Jonas er meðal þeirra listamanna sem fyrstir tóku vídeóvélina í sína þágu. Hún kynntist hinni nýju tækni í Japan árið 1970 þegar fyrstu handhægu upptökuvélarnar voru nýkomnar á markað. Hún hafði þá stundað höggmyndalist í nokkur ár, danslist hjá dans- höfundunum Trishu Brown og Yvonne Reiner auk gjörninga, sem hún sviðsetti með marg- háttaðri notkun spegla sem brjóta upp einhliða skynheim áhorfandans og beina athygli hans í margar áttir samtímis. Eldur og saga Verkið gerði Jonas undir áhrifum frá Íslandsheimsókn sinni á 9. áratugnum. Reanimation details Verkið er sprottið af lestri Jonas á Kristnihaldi undir jökli eftir Halldór Laxness og tilvísun skáldsins í Eyrbyggju. Vísar bæði í Laxness og Laxdælu  Tvær sýningar á verkum Joan Jonas verða opnaðar í vikunni AUGLÝSING ÁRSINS – ★★★★ – M.G. Fbl. MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Fim 27/10 kl. 20:00 107. s. Lau 5/11 kl. 20:00 113. s. Lau 19/11 kl. 20:00 119.s Fös 28/10 kl. 20:00 108. s. Fös 11/11 kl. 20:00 114. s. Sun 20/11 kl. 20:00 120.s Lau 29/10 kl. 20:00 109. s. Lau 12/11 kl. 20:00 115. s. Fim 24/11 kl. 20:00 121.s Sun 30/10 kl. 20:00 110. s. Sun 13/11 kl. 20:00 116.s Fös 25/11 kl. 20:00 122.s Fim 3/11 kl. 20:00 111. s. Fim 17/11 kl. 20:00 117.s Lau 26/11 kl. 20:00 123.s Fös 4/11 kl. 20:00 112. s. Fös 18/11 kl. 20:00 118.s Gleðisprengjan heldur áfram! Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Lau 29/10 kl. 13:00 9. sýn Lau 5/11 kl. 13:00 11.sýn Sun 13/11 kl. 13:00 14.sýn Sun 30/10 kl. 13:00 10.sýn Sun 6/11 kl. 13:00 12.sýn Sun 20/11 kl. 20:00 15.sýn Mið 2/11 kl. 19:00 aukas. Lau 12/11 kl. 13:00 13.sýn Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar Njála (Stóra sviðið) Mið 26/10 kl. 20:00 Fim 10/11 kl. 20:00 Mið 23/11 kl. 20:00 Sun 6/11 kl. 20:00 Mið 16/11 kl. 20:00 Njáluhátíð í forsal frá kl. 18:45. Kjötsúpa og fyrirlestur. Hannes og Smári (Litla sviðið) Lau 29/10 kl. 20:00 8. sýn Fim 3/11 kl. 20:00 aukas. Sun 30/10 kl. 20:00 9. sýn Lau 5/11 kl. 20:00 10.sýn Samstarfsverkefni við Leikfélag Akureyrar Extravaganza (Nýja svið ) Fim 27/10 kl. 20:00 Fors. Fös 4/11 kl. 20:00 4. sýn Sun 13/11 kl. 20:00 8. sýn Fös 28/10 kl. 20:00 Frums. Lau 5/11 kl. 20:00 5. sýn Mið 16/11 kl. 20:00 9.sýn Lau 29/10 kl. 20:00 2. sýn Sun 6/11 kl. 20:00 6. sýn Sun 30/10 kl. 20:00 3. sýn Fim 10/11 kl. 20:00 7. sýn Nýtt verk eftir Sölku Guðmundsdóttur Brot úr hjónabandi (Litla sviðið) Þri 1/11 kl. 20:00 Fors. Fös 11/11 kl. 20:00 aukas. Fös 25/11 kl. 20:00 11.sýn Mið 2/11 kl. 20:00 Fors. Lau 12/11 kl. 20:00 5.sýn Lau 26/11 kl. 20:00 12.sýn Fim 3/11 kl. 13:00 Fors. Sun 13/11 kl. 20:00 6.sýn Sun 27/11 kl. 20:00 13.sýn Fös 4/11 kl. 20:00 Frums. Fim 17/11 kl. 20:00 7.sýn Lau 3/12 kl. 20:00 14.sýn Sun 6/11 kl. 20:00 2.sýn Fös 18/11 kl. 20:00 8.sýn Sun 4/12 kl. 20:00 aukas. Mið 9/11 kl. 20:00 3.sýn Lau 19/11 kl. 20:00 9.sýn Þri 6/12 kl. 20:00 15.sýn Fim 10/11 kl. 20:00 4.sýn Sun 20/11 kl. 20:00 10.sýn Mið 7/12 kl. 20:00 16. sýn Aðeins þessar sýningar. Örfáir miðar lausir. Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.