Morgunblaðið - 25.10.2016, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 25.10.2016, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 299. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Örnu Ýri líkt við Machado 2. Tók símamyndir af pyntingunum 3. „Mig langar að fara til Íslands“ 4. „Við ætlum allar að ganga út“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Listakonan Karin Sander heldur fyrirlestur í Hafnarhúsinu kl. 20 í kvöld. Karin Sander er listakona sem hefur öðlast heimsathygli fyrir marg- háttaða listsköpun af hugmynda- fræðilegum toga. Morgunblaðið/Golli Karin Sander með fyrirlestur  Kvintett saxó- fónleikarans Sig- urðar Flosasonar kemur fram á KEX í kvöld kl. 20.30. Efnisskráin samanstendur af glænýjum og spriklandi fersk- um lögum Sig- urðar. Hugsanlega fljóta með nokkur eldri af síðustu kvartettplötu hans, The Eleventh Hour. Aðgangur er ókeypis. Kvintett Sigurðar Flosasonar á KEX  Á næstu tónleikum Múlans á Björtuloftum, 5. hæð Hörpu, annað kvöld kemur fram tríóið Matóma. Það skipa Ómar Guðjónsson gítarleikari, Tómas R. Einarsson kontrabassaleikari og Magnús Tryggvason Elías- sen trommuleik- ari. Þeir spila klassísk lög eftir höfunda úr ýms- um stílum djass- ins. Matóma á tónleikum Múlans í Hörpu SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í austan 13-20 m/s með talsverðri rigningu sunnantil í dag, hvassast suðvestan- og vestanlands, en 18-23 m/s um tíma á miðhálendinu sunnan jökla. VEÐUR „Þetta er mikilvægt og gott fyrir félagið. Allir vita að hann er frábær leikmaður og það er klárt mál að hann styrkir liðið. Ekki er síður mikilvægt að fá hann inn í starfið hjá félaginu,“ segir Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, sem hafa gert tveggja ára samning við Björgvin Pál Gústavsson, landsliðsmarkvörðinn í handknattleik. »2 Mikilvægt og gott fyrir félagið Snorri Steinn Guðjónsson hefur ákveðið að hætta að leika með ís- lenska landsliðinu í handknattleik eftir fimmtán ára feril. „Ég hef verið í heilmiklu sambandi við Geira í haust. Ég er ekki að segja að hann hafi skilið þetta 100% en hann þekkir þetta allt út og inn. Hann virti bara ákvörðun mína.“ »1 Hættir eftir 15 ára feril með landsliðinu „Það sem Stjarnan hafði fram yfir önnur félög var að liðið er að fara að spila í Meistaradeildinni á næstu leik- tíð. Stjarnan er líka með mjög flotta leikmenn sem spila mjög skemmti- legan fótbolta sem hentar mér vel,“ segir knattspyrnukonan Guðmunda Brynja Óladóttir, sem hefur ákveðið að yfirgefa Selfoss og samdi við Stjörnuna til þriggja ára. »2-3 Spilar fótbolta sem hentar mér vel ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Samtök íþróttafréttamanna fagna 60 ára afmæli sínu í ár og af því tilefni komu nokkrir núverandi og fyrrver- andi íþróttafréttamenn saman í hús- næði Blaðamannafélagsins um helgina. Þar á meðal var Atli Stein- arsson, fyrrverandi blaðamaður á Morgunblaðinu og formaður sam- takanna fyrstu níu árin. Atli Steinarsson, Frímann Helga- son á Þjóðviljanum, Hallur Sím- onarson á Tímanum og Sigurður Sigurðsson á Ríkisútvarpinu stofn- uðu samtökin í þeim tilgangi að bæta aðstöðu íslenskra íþróttafrétta- manna á vettvangi, kjósa Íþrótta- mann ársins og vinna að framgangi íþróttamála á Íslandi. Norræna sundsambandið ákvað að senda hóp norrænna sundmanna á eigin vegum til Íslands 1955 sem þakklætisvott fyrir það að Íslend- ingar höfðu lengi tekið þátt í mótum erlendis þrátt fyrir mikinn kostnað. Með 18 manna keppnisliðinu var Carl Ettrup, formaður Samtaka íþróttafréttamanna í Danmörku og ritstjóri danska Íþróttablaðsins. „Hann hvatti mig mjög til þess að stofna Samtök íþróttafréttamanna á Íslandi og mæta á þing norrænna íþróttafréttamanna í Sönderborg í Danmörku í september,“ rifjar Atli upp. Hann segist hafa borið hug- myndina undir félaga sína, þeir hafi tekið henni vel og þeir Sigurður hafi farið á þingið. Samtökin hafi síðan verið stofnuð í febrúar árið eftir. „Við vorum teknir inn í norræna og alþjóðasamstarfið og engin slit hafa orðið á því síðan,“ segir hann. Skemmtilegasta flugið Fyrsta norræna þingið á Íslandi var haldið 1962. „Ekki spyrja mig hvernig við fórum að því,“ segir Atli og bætir við að þeir hafi notið mik- illar velvildar vegna þingsins. Þátt- takendum hafi verið ekið í sund á hverjum morgni, matarboð hafi ver- ið fyrir þinggesti á hverju kvöldi í heila viku, Flugfélag Íslands hafi boðið mikinn afslátt af flugferðunum og auk þess boðið öllum í tveggja og hálfs tíma útsýnisflug. „Við flugum lágflug í þristi yfir landið og ég hef aldrei farið í jafn skemmtilega flug- ferð. Mér fannst flugstjórinn vera þrjá til fjóra metra yfir sjónum á leiðinni til Vestmannaeyja en kannski var hann eitthvað ofar. Svona flaug hann yfir landið, skreið yfir fjöllin og við nutum útsýnisins og veitinganna.“ Atli segir að fram að stofnun Sam- takanna hafi aðstaða íþróttafrétta- manna verið afskaplega léleg. „Fyrir okkar tilstilli var sett sex tommu borð aftan við heiðursstúkuna á Melavellinum og þessi fjöl var skrif- borðið okkar í keppni,“ segir hann. „Á landsleik við Dani í fótbolta fengu dönsku blaðamennirnir plássið en við vorum settir út á hlaupabraut. Það var hellirigning og ekki hægt að taka upp blað.“ Fyrstu árin stóðu Samtökin fyrir fundum með íþróttahreyfingunni og ræddu íþróttamál. „Þetta var spor í rétta átt, fundirnir voru góðir og við gátum safnað efni í sarpinn,“ segir Atli. Atli keppti í sundi á Ólympíu- leikunum í London 1948 og starfaði sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1950 til 1975. Hann rifjar upp að til tals hafi komið að gefa út sérstakt íþróttablað á Akranesi en tillagan hafi verið felld: „Rökin voru þau að ekki væri ástæða til þess á meðan Atli Steinarsson væri á Morgun- blaðinu.“ Kjör Íþróttamanns ársins hefur stundum verið gagnrýnt og sumir viljað að kjörin yrðu Íþróttamaður ársins og Íþróttakona ársins. Þessu er Atli mótfallinn. Hann vísar í orð kvenna sem hafa verið útnefndar Íþróttamaður ársins og hafa sagt að það sé miklu meira að vera Íþrótta- maður ársins en Íþróttakona ársins. „Það er bara einn toppur, einn Íþróttamaður ársins, og því verður að gera upp á milli karla og kvenna í sama potti,“ segir Atli. Aðeins einn Íþróttamaður ársins  Atli Steinarsson var formaður Samtaka íþróttafréttamanna fyrstu níu árin  Þurftu að sitja úti á hlaupabraut í grenjandi rigningu á landsleik Ljósmynd/Samtök íþróttafréttamanna-Daníel Rúnarsson Nokkrir formenn Samtaka íþróttafréttamanna í veislunni Frá vinstri: Eiríkur Stefán Ásgeirsson, núverandi formaður, Atli Steinarsson, fyrsti for- maðurinn, Adolf Ingi Erlingsson, Skapti Hallgrímsson, Samúel Örn Erlingsson, Þorsteinn Gunnarsson og Skúli Unnar Sveinsson. Á miðvikudag Spáð er stífri vestan- og suðvestanátt með skúrum um mest allt land, en bjartviðri verður þó fyrir austan. Veður fer kólnandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.