Morgunblaðið - 03.11.2016, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 3. N Ó V E M B E R 2 0 1 6
Stofnað 1913 258. tölublað 104. árgangur
BÓKAÐU FRAM
Í TÍMANN
ALLTAF ÓDÝRARA Á NETINU FLUGFELAG.IS
FRÁ REYKJAVÍK
VERÐ FRÁ
7.500kr.
SÖLVASAGA
UNGLINGS
VERÐLAUNUÐ TENGJA HVERFI OG FÓLK
STEFNA AÐ
MEIRI ÁHÆTTU-
DREIFINGU
FRIÐARBRÚ 12 VIÐSKIPTAMOGGINNNORÐURLANDARÁÐ 31
Afkoma rjúpna
var mjög misjöfn
í fyrra eftir
landshlutum.
Verst var hún á
Austurlandi þar
sem hver kven-
fugl kom upp að-
eins 2,7 ungum.
Best var af-
koman á Norð-
austurlandi þar
sem voru 6,9 ungar á hvern kven-
fugl. Að meðaltali kom hver kven-
fugl á landinu upp 5 ungum. Þegar
rjúpunni gekk vel á árum áður kom
hver kvenfugl upp í kringum 8 ung-
um á sumri. Rjúpnastofninn er nú í
lágmarki eða á niðurleið. »14
Afkoma rjúpna var
mjög misjöfn í fyrra
Karri Stofninn er
nú í niðursveiflu.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Allt stefnir í að nýtt met verði slegið í
sölu nýrra fólksbíla á þessu ári að
sögn Jóns Trausta Ólafssonar, for-
stjóra Öskju og formanns Bílgreina-
sambandsins.
Segir hann að í því ljósi megi gera
ráð fyrir því að meðalaldur bílaflotans
muni lækka milli ára en hann reyndist
12,7 ár undir lok síðasta árs og hafði
þá staðið í stað frá fyrra ári. Lægst
fór meðalaldurinn árið 2007 þegar
hann reyndist 9,1 ár. Frá þeim tíma
hefur hann þokast upp á við. Gangi
það eftir verður
það í fyrsta sinn
frá árinu 2007 sem
meðalaldur flot-
ans lækkar milli
ára.
Segir Jón
Trausti að sölu-
aukningin það
sem af er ári bendi
til að nýskráning-
ar fólksbifreiða
verði vel yfir 18.000 á þessu ári en
fyrra met var 17.632 bifreiðar.
„Munurinn á markaðnum þá og nú
er sá að í ár kaupa bílaleigurnar tæp-
lega 8.000 bíla en árið 2005 keyptu
þær aðeins 295 slíka. Því er ljóst að al-
menningur á enn langt í land með að
kaupa jafn marga bíla og fyrir rúmum
áratug.“
Samhliða auknum umsvifum á
markaði með nýja bíla hefur mikið líf
færst yfir sölu notaðra bíla. Þannig
hafa eigendaskipti á notuðum bílum
aukist um 15% milli ára á fyrstu níu
mánuðum þessa árs. Fram til loka
september skiptu 87.177 fólksbif-
reiðar um eigendur og hafði fjölgað
um tæplega 11.500 frá fyrra ári.
Bílaflotinn tekur að yngjast á ný
Stefnir í að sölumet á nýjum bílum frá 2005 verði slegið 8.000 nýir bílaleigubílar
Jón Trausti
Ólafsson
Flutningar Í nógu er að snúast hjá
skipafélögum vegna bílainnflutnings.MViðskiptaMoggi »1
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís-
lands, veitti í gær Bjarna Benedikts-
syni, formanni Sjálfstæðisflokksins,
umboð til myndunar nýrrar ríkis-
stjórnar Íslands. Að sögn forseta er
„þessi kostur vænlegastur til árang-
urs“ og sjálfur sagðist Bjarni ekki
vera með „neina fyrirframgefna nið-
urstöðu“ og útilokar því enga kosti.
Að loknum fundi með þingflokki
sínum í Valhöll var fyrsta skref
Bjarna að funda með fulltrúum
Framsóknarflokksins og var fundur-
inn haldinn í ráðherrabústaðnum.
„Þetta var góður fundur og fórum
við yfir þau málefni sem blasa við
nýrri ríkisstjórn,“ sagði Lilja Dögg
Alfreðsdóttir, varaformaður Fram-
sóknarflokksins, við Morgunblaðið í
gærkvöldi og bætti við: „Við Fram-
sóknarmenn viljum mynda ríkis-
stjórn út frá málefnum.“
Fundar með VG klukkan 10
Bjarni mun í dag halda áfram að
ræða við fulltrúa stjórnmálaflokka á
þingi og verður fyrsti fundur dagsins
með Vinstri grænum klukkan 10.
„Ég mun hitta hann á fundi, en ég
tel hins vegar að það sé málefnalega
langt á milli flokkanna,“ sagði Katrín
Jakobsdóttir, formaður Vinstri
grænna, og bætti því við að samtal
milli manna væri alltaf þess virði.
Fundir Bjarna með stjórnmála-
flokkunum verða haldnir í röð sem
ákvarðast eftir þingstyrk þeirra í
kjölfar nýafstaðinna kosninga.
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pír-
ata, sagði í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi það hafa verið „frekar
óraunhæft“ hjá formanni Viðreisnar
að sækjast eftir því að leiða myndun
næstu ríkisstjórnar. „Ég held að for-
seti vilji stíga varlega til jarðar og átti
því ekki von á neinu öðru en að Bjarni
fengi umboðið,“ sagði hún.
Viðræður flokka hafnar
Formaður Sjálfstæðisflokksins fékk umboð til myndunar nýrrar ríkisstjórnar
Fyrsti fundur með Framsóknarflokki Dagurinn byrjar með Vinstri grænum
Morgunblaðið/Golli
Viðræður Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, gengur til fundar við fulltrúa Framsóknar.
M„Vænlegastur til árangurs“ »4
Ísland vann mikilvægan eins marks
sigur á Tékkum í fyrsta leik sínum í
undankeppni Evrópumótsins í
handbolta í Laugardalshöll í gær-
kvöldi. Nokkrar breytingar hafa
orðið á íslenska liðinu og þá er Geir
Sveinsson nýlega tekinn við sem
þjálfari liðsins. Úrslitin urðu 25:24 í
háspennuleik og skoraði fyrirliðinn
Guðjón Valur Sigurðsson flest
mörk eða sex talsins. Á laugardag
bíða Úkraínumenn íslensku strák-
anna á útivelli. » Íþróttir
Morgunblaðið/Golli
Átök Aron Pálmarsson stóð í
ströngu í leiknum gegn Tékkum.
Mikilvægur
25:24 sigur í
spennuleik
Háspenna í Höllinni