Morgunblaðið - 03.11.2016, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Anna Sigríður Einarsdóttir
annaei@mbl.is
Reiði er meðal kennara vegna nýlegs
úrskurðar kjararáðs um launahækk-
anir ráðamanna og hafa ófáir þeirra
tjáð sig um málið á samfélagsmiðlum
og m.a. lýst því yfir að „niðurlæg-
ingin við að skoða launaseðilinn“
hreki þá að leita á önnur mið, líkt og
Jóhannes Gunnar Bjarnason, grunn-
skólakennari við Brekkuskóla á Ak-
ureyri, orðaði það.
Gerum bara eins og
flugumferðarstjórar
Þá hefur Facebook-færslu Guð-
bjargar Pálsdóttur, grunnskóla-
kennara í Reykjavík, frá því í gær
verið deilt tæplega 500 sinnum, en
Guðbjörg lýsti því yfir að hún hefði
sagt upp eftir að hafa fengið frétt-
irnar af úrskurði kjararáðs.
Uppsögn er hugmynd sem virðist
njóta stuðnings fjölda kennara um
þessar mundir. Mbl.is hefur fregnir
af óformlegum skoðanakönnunum
meðal kennara á Facebook þar sem
spurt er hvernig þeir vilja sjá kenn-
arastéttina taka á málum. Mikill
meirihluti virðist vera þeirrar skoð-
unar að fjöldauppsagnir eða „veik-
indi“ séu réttu viðbrögðin. Verkfalls-
aðgerðir njóta hins vegar minni
stuðnings. Í einum þræðinum segir:
„Gerum bara eins og flugumferðar-
stjórar. Veikindi, veikindi, veik-
indi …“
Þá hafa líka komið fram hugmynd-
ir hjá kennurum um að leggja niður
störf og þramma niður á Austurvöll
þegar þingsetning fer fram.
Dapur grunnskólakennari
Berglind Kristinsdóttir, grunn-
skólakennari í Hveragerði, er ein
þeirra kennara sem tjáð hafa sig um
málið og í aðsendri grein í Kvenna-
blaðinu segir hún líða að því að hún
fái nóg. „Við nefnilega getum ekki
verið langþreytt að eilífu og sú um-
hyggja sem ég ber fyrir nemendum
mínum, sem gerir það að verkum að
ég mæti daglega samningslaus til
vinnu, mun vega minna á vogarskál-
unum þegar fram í sækir,“ segir í
greininni.
Berglind staðfestir í samtali við
mbl.is að sú hugmynd hafi komið upp
í lokuðum Facebook-hópi grunn-
skólakennara að kennarar taki sig
saman um að tilkynna sig veika og
mæta ekki til vinnu. „Það er ekki bú-
ið að negla einhvern dag, en það eru
uppi hugmyndir um þetta,“ segir
hún.
„Ég er grunnskólakennari. Afar
dapur grunnskólakennari. Dapur
vegna þess hvernig komið er fyrir
minni stétt. Samningslaus í heilt ár.
Útborguð laun fyrir nóvember lægri
en launahækkun þingmanna. Allir
flokkar sögðust ætla að hækka laun
kennara kæmust þeir til valda. Ein-
mitt, hve oft hef ég heyrt þetta?“
segir í Facebook-færslu Jóhannesar,
sem hefur starfað við kennslu í 32 ár.
„Þetta er þyngra en tárum taki,“
segir hann í samtali við mbl.is og
kveðst orðinn vondaufur um að
breyting verði á stöðu kennara.
Íhuga uppsagnir eða „veikindi“
Órói meðal kennara vegna úrskurðar kjararáðs Útborguð laun fyrir nóv-
ember lægri en launahækkun þingmanna Kanna hug kennara á Facebook
Morgunblaðið/Þórður
Aðgerðir Grunnskólakennarar
mótmæla á Austurvelli 2014.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Óvenjumiklar annir hafa verið í bál-
stofunni í Fossvogi að undanförnu.
Komið hefur fyrir að ekki hefur verið
hægt að koma
brennslu fyrir í
dagskránni strax
eftir útför í kirkju
og hún þá flutt
fram í næstu
viku. Þórsteinn
Ragnarsson,
framkvæmda-
stjóri Kirkju-
garða Reykjavík-
urprófastsdæma,
telur þó ekki hægt að nota orðið bið-
raðir um stöðuna.
Það hefur smám saman aukist að
fólk kýs bálför frekar en jarðarför,
sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu
þar sem eina bálstofan er.
Þórsteinn segir að bálstofan sé
starfrækt tvo til þrjá daga í viku,
þriðjudaga og miðvikudaga og jafn-
vel fimmtudaga, og reynt að beina
bálförum á þann tíma. Hægt sé að
hafa fimm til sex brennslur á dag.
Undanfarnar vikur hafi verið fleiri
bálfarir en því nemur og því séu
dæmi um að þeir sem jarðsungnir
eru á miðvikudögum og fimmtu-
dögum fari ekki beint í bálstöð held-
ur færist fram í næstu viku. Það átti
til dæmis við í síðustu viku þegar
fjórar kistur biðu yfir helgi. Tekur
hann fram að þeir sem jarðsungnir
eru á föstudögum bíði yfirleitt fram
yfir helgi og stundum eftir útfarir á
fimmtudögum. Hann getur þess
jafnframt að algengara sé að
brennslan bíði vegna þess að ekki
liggi öll tilskilin leyfi fyrir.
Aukning fyrirsjáanleg
Unnt er að sinna þörfunum með
því að fjölga brennsludögum og segir
Þórsteinn að það sé gert.
Á sjöunda hundrað bálfarir verða
hér í ár, að mati Þórsteins. Til sam-
anburðar má geta þess að fyrir ára-
tug voru 350 líkbrennslur sem svara
til 18% útfara. Nú er hlutfallið komið
yfir 30%. Aukningin er aðallega á
höfuðborgarsvæðinu þar sem eina
bálstofan er og var hlutfallið á því
svæði orðið 43% á síðasta ári. Þór-
steinn á von á frekari aukningu og
bendir á að í Danmörku og Svíþjóð
sé hlutfallið yfir 70% í löndunum í
heild og vel yfir 90% í borgum.
Kirkjugarðasamband Íslands
undirbýr kynningu og aðgerðir til að
bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni
að líkbrennslu og gera hana að raun-
verulegum valkosti. Þórsteinn segir
að bæta þurfi flutninga. Fólk veigri
sér við að senda lík með flutningabíl-
um. Til athugunar er að útbúa sér-
stök flutningshylki til að aðgreina
kisturnar frá öðrum flutningi. Einn-
ig komi til greina að niðurgreiða
flutningskostnað úr sameiginlegum
sjóðum kirkjugarðanna.
Segir Þórsteinn að núverandi bál-
stofa dugi einhver ár enn. Ljóst sé þó
að byggja þurfi nýja bálstofu á
næstu tveimur áratugum. Það sé
hinsvegar mikið verkefni og kosti
með öllum búnaði um tvo milljarða
króna. Hugmyndin er að byggja
hana í Gufuneskirkjugarði.
Bíða brennslu eftir útför í kirkju
Morgunblaðið/Þórður
Bið Duftkerin bíða oft á bálstofunni.
Stöðug aukning bálfara Ekki alltaf hægt að brenna strax Hlutfall bálfara yfir 30%
Þórsteinn
Ragnarsson
Flugmenn á vegum Icelandair voru við æfingar
á vél félagsins, Grábrók, á Akureyrarflugvelli í
gær. Að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýs-
ingafulltrúa flugfélagsins, var um að ræða lend-
ingaþjálfun nýrra flugmanna þar sem verið var
að æfa snertilendingar. „Starfsemi Icelandair
hefur vaxið á undanförnum árum og flug-
mönnum fjölgað sem þurfa sína þjálfun,“ segir
Guðjón. Að sögn hans er mikið lagt upp úr þjálf-
un hjá flugfélaginu, ekki síst í ljósi þess að ný-
ráðnir flugmenn eru í sumum tilvikum með færri
flugtíma en áður var þegar þeir eru ráðnir.
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Með reykinn í eftirdragi
Flugmenn Icelandair æfðu snertilendingar á Akureyrarflugvelli í gær
Í fjárhagsáætlun
Reykjanesbæjar
fyrir árin 2017-
2022 kemur fram
að útsvar sveitar-
félagsins fyrir
árið 2017 verði
eins og verið hef-
ur síðastliðinn
tvö ár eða
15,05%, sem er
hærra en annars
staðar. Kjartan Már Kjartansson,
bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir
að útsvarið verði í þessari prósentu-
tölu í eitt ár í viðbót en lækki svo í
hámarksútsvar sem er 14,52% 1.
janúar 2018.
„Við erum með sérstakt leyfi
núna frá innanríkisráðherra um
ýmis atriði vegna fjárhagsvanda
sveitarfélagsins og eitt af því er
leyfi til að hafa útsvarið hærra en
gengur og gerist í öðrum sveitar-
félögum. Svo mun útsvarið lækka
eftir eitt ár og verða í hæsta þrepi
sem leyfilegt er samkvæmt almenn-
um lögum,“ segir Kjartan Már.
Íbúar fleiri nú
en síðastliðin ár
Fjárhagsáætlunin gildir í 6 ár eða
frá 2016-2022. Gert er ráð fyrir að
fjölgun íbúa í sveitarfélaginu verði
1,6% árlega frá árinu 2017. Að sögn
Kjartans Más er íbúafjölgunin meiri
núna en verið hefur undanfarin ár
og megi gera ráð fyrir svipaðri
stöðu næsta ár. Aukninguna megi
tengja við framkvæmdir og stækk-
un Keflavíkurflugvallar.
.„Við útreikninga um íbúafjölgun
næstu árin tókum við meðaltal
fjölgunar íbúa síðastliðin 20 ár og
hefur hún verið 1,6%, stundum ver-
ið minni og stundum meiri. Við er-
um að horfa til framtíðar þannig að
við gerum ráð fyrir að fjölgunin
verði svipuð og hún hefur verið þó
að hún sé meiri núna. Við verðum
að gefa okkur einhverja forsendu
til útreikninga,“ segir Kjartan Már.
Óbreytt
útsvar í
eitt ár enn
Áfram 15,05 % út-
svar í Reykjanesbæ
Kjartan Már
Kjartansson
Morgunblaðið/SBS
Íbúar Fjölgað hefur í Reykjanesbæ.