Morgunblaðið - 03.11.2016, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2016
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Nýliðinn októbermánuður mun fara
í veðurmetabækurnar fyrir margra
hluta sakir. Hann var sérlega hlýr
og víða á landinu sá hlýjasti síðan
mælingar hófust. Hann var jafn-
framt mjög votviðrasamur, „en
rigningar þóttu ganga úr hófi sums
staðar á Suður- og Vesturlandi,“
segir Trausti Jónsson veðurfræð-
ingur í yfirliti sínu yfir mánuðinn.
Þá bar það til tíðinda að í Stykk-
ishólmi mældist hæsti meðalhiti
sem mælst hefur þar í október.
Samfelldar veðurmælingar hófust
þar árið 1846, á fyrstum staða á Ís-
landi, og liggja að baki 171 október-
mælingar, hvorki meira né minna.
Lítið bólar enn á vetrinum, ein-
hverjir svalari dagar, en líka hlý-
indi áfram sagði Trausti er blaðið
ræddi við hann í gær.
Mánuðurinn var alveg frostlaus
víða við strendur landsins og telst
það óvenjulegt. Á fyrri tíð er aðeins
vitað um eitt ár þar sem ekkert
hafði frosið í Reykjavík fyrir 1. nóv-
ember. Það var 1939, þá kom fyrsta
frost 10. nóvember, segir Trausti.
Meðalhiti í Reykjavík mældist 7,8
stig, 3,4 stigum ofan meðallags árin
1961 til 1990, en 3 yfir meðallagi
síðustu tíu októbermánuði. Þetta er
næsthlýjasti október sem vitað er
um í Reykjavík, lítillega hlýrra var
1915, en munurinn í raun ómark-
tækur. Á Akureyri var meðalhitinn
7,5 stig, 4,5 stigum ofan meðallags
1961 til 1990 og 4,2 stigum ofan
meðallags síðustu tíu ár. Þetta er
einnig næsthlýjasti október á Ak-
ureyri, heldur hlýrra var í október
1946. Í Stykkishólmi var meðalhit-
inn 7,9 stig, sá hæsti nokkru sinni í
október.
Meðalhiti mánaðarins var hæstur
á Seyðisfirði og í Neskaupstað, 8,9
stig. Þetta er hæsti staðfesti mán-
aðarmeðalhiti í október á íslenskum
veðurstöðvum. Mest frost í byggð
mældist -6,4 stig á Grímsstöðum á
Fjöllum hinn 29. Sama dag mældist
þar einnig mest frost á mannaðri
stöð, -6,2 stig. Sjaldgæft er að
lægsta lágmark októbermánaðar sé
svo hátt, og þarf að fara allt aftur
til gisinna athugana snemma á 20.
öld til að finna hærri tölur, síðast í
hinum ofurhlýja októbermánuði
1915, segir í yfirliti Trausta.
Nýtt landsmet á Nesjavöllum?
Úrkoman í Reykjavík í október
mældist 206,9 millimetrar, það
langmesta sem vitað er um í októ-
ber og ríflega tvöföld meðalúrkoma,
næstmest mældist 1936, 180,8 mm.
Á Akureyri mældist úrkoma nú
19,6 mm, þriðjungur meðalúrkomu
og minnsta úrkoma í október síðan
1993, en þá mældist úrkoma í októ-
ber aðeins 4,0 mm á Akureyri.
Úrkoma í mánuðinum mældist
945,4 mm á Nesjavöllum í Grafningi
(óstaðfest).
Ef rétt reynist er þetta mesta úr-
koma sem nokkru sinni hefur
mælst á veðurstöð í október hér á
landi og sú næstmesta sem mælst
hefur í einum mánuði. Í nóvember
2002 mældust 971,5 mm á Kolla-
leiru við Reyðarfjörð, segir í yfirliti
Trausta.
Morgunblaðið/Eggert
Rigning og rok Aldrei hefur rignt jafn mikið í Reykjavík í október. Regnhlífar hafa komið að góðum notum.
Hæsti meðalhiti í 170
ára sögu mælinga
Október sló víða hita- og úrkomumet Hlýindi áfram
Sólin sást lítt
» Sólskinsstundir í Reykjavík
mældust 40,3 í október. Sól-
skinsstundir hafa ekki mælst
svo fáar í október síðan 1969.
» Alautt var á athugunartíma
allan mánuðinn bæði í Reykja-
vík og á Akureyri. Það gerist
afar sjaldan.
» Eindregin sunnanátt ríkti
nær allan mánuðinn.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Óneitanlega veittum við því athygli
að þetta var bara unnið í dagvinnu.
Erlendis vinna menn nótt sem nýtan
dag við svona framkvæmdir,“ segir
Ingvar Tryggvason, formaður ör-
yggisnefndar Félags íslenskra at-
vinnuflugmanna (FÍA) um fram-
kvæmdir ISAVIA á Keflavíkur-
flugvelli. Þar hefur m.a. verið unnið
að endurbótum á norður-suður flug-
braut, annarri tveggja flugbrauta
vallarins. Þeim stóð til að ljúka fyrir
um hálfum mánuði en að auki hefur
það verið gagnrýnt að ekki hafi verið
áætlað að flýta verkinu meira en
gert var.
Endurbætur á norður-suður flug-
brautinni hafa leitt til þess að hún
hefur verið ónothæf að hluta. Geta
stærstu vélar flugfélaganna ekki
notað brautina vegna lágmarks
hemlunarvegalendar í reglugerðum
og hafa ekki getað gert það síðan um
mánaðamótin maí og júní þegar end-
urbætur hófust. Minni vélar hafa
hins vegar getað nýtt sér flugbraut-
ina að hluta þó að í stöku tilvikum
hafi þurft að takmarka farm þeirra
véla sem lentu á flugbrautinni.
Umfram álag hefur verið á aust-
ur-vestur flugbrautinni meðan á
framkvæmdunum hefur staðið.
Flugmenn sem Morgunblaðið
ræddi við hjá Icelandair og WOWair
höfðu það á orði að í nokkrum til-
vikum hefðu þeir þurft að lenda í
nokkuð stífum hliðarvindi í haust á
austur-vestur flugbrautinni fyrir
þessar sakir. „Við erum sífellt að
glíma við það á Keflavíkurflugvelli
að lenda flugvélum við ýtrustu mörk
er varða hliðarvind,“ segir Ingvar og
bætir við. „Það hefði komið sér illa í
sumar ef það hefðu komið stífar
norðan- eða sunnanáttir, en sú varð
ekki raunin,“ segir Ingvar.
Verkinu lýkur brátt
Samkvæmt áætlunum átti verkinu
að ljúka fyrir um hálfum mánuði að
sögn Höskuldar Tryggvasonar,
verkefnastjóra hjá Íslenskum aðal-
verktökum sem sér um verkið. Hins
vegar hafi vætusamt veður komið í
veg fyrir að hægt væri að klára
merkingar á vellinum. Hann á von á
því að það muni klárast á morgun og
að í framhaldinu verði brautin klár
til notkunar.
Seinkun veldur glímu við hliðarvind
Tafir á framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli valda erfiðleikum í aðflugi
„Erlendis vinna menn nótt sem nýtan dag við svona framkvæmdir“
Morgunblaðið/ÞÖK
Keflavíkurflugvöllur Miklar framkvæmdir hafa verið á flugvellinum til þess
að auka afköst hans. Endurbótum á suður-norður flugbraut er nær lokið.
Í skriflegu svari ISAVIA segir
m.a. að sérfræðingar hafi verið
fengnir til þess að rýna í fasa-
skiptingu verksins og að áætl-
un sem taldist raunsæ hefði
staðist ef ekki hefði komið til
vætukafla í haust.
Þá hafi uppbygging á braut-
inni ekki verið eins og gert
hefði verið ráð fyrir og henni
ekki nægilega vel viðhaldið
áratugina sem varnarliðið var
á Keflavíkurflugvelli. „Mjög
gott samstarf hefur verið við
verktaka í framkvæmdinni og
góður drifkraftur í þeim. Ekki
verður séð að hægt hefði verið
að stytta framkvæmdatíma
verulega og tryggja öryggi á
sama tíma,“ segir m.a. í
svarinu.
Töf vegna
vætukafla
MJÖG GOTT SAMSTARF