Morgunblaðið - 03.11.2016, Síða 18

Morgunblaðið - 03.11.2016, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2016 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ ReksturReykja-vík- urborgar hefur verið í molum und- anfarin misseri. Nú boðar meiri- hlutinn í borgarstjórn fullur bjartsýni viðsnúning í fjár- málum borgarinnar. Í inn- gangi greinargerðar með frumvarpi að fjárhagsáætl- uninni segir Dagur B. Egg- ertsson borgarstjóri að um- skipti hafi orðið í rekstrinum. „Þröngri stöðu og halla hefur verið snúið í afgang, án þess að hækka skatta,“ segir borg- arstjórinn. Bjartsýni hefur áður gætt í áætlanagerð meirihlutans í borginni, en fyrir einhverra hluta sakir lítur fortíðin ekki jafnvel út og framtíðin þegar hann á í hlut. Út um fram- rúðuna sjást blómlegir akrar, en í baksýnisspeglinum sviðin jörð. Það er þó ánægjulegt að menn skuli slá sér á brjóst fyr- ir að hafa ekki hækkað skatta þegar útsvar er í hámarki og ekki hægt að hækka það meir. Reykjavík er stærsta sveitar- félag landsins. Ætla mætti að það nyti góðs af hagkvæmni stærðarinnar, en sú hefur ekki verið raunin. Borgin tekur hærri hlut af tekjum borg- arbúa en áður og kostnaður af rekstri borgarinnar á íbúa hækkar ár frá ári. Í því góðæri, sem ríkt hefur að undanförnu, mætti ætla að hefðu átt að leynast tækifæri til að rétta hag borgarinnar af, en þau hafa ekki ver- ið nýtt. Brýn verk- efni hafa verið lát- in sitja á hakanum. Gott dæmi um það eru götur borg- arinnar, sem hafa undafarin ár komið illa undan vetri og litið út eins og gatasigti. Þeg- ar nú er ekið um götur borg- arinnar sést að ekki hefur náðst að bæta upp í götin síð- an í vetur sem leið. Það boðar ekki gott og er helsta von borgarbúa fyrst borgar- yfirvöld sinna ekki skyldum sínum að vetur verði áfram mildur ef það mætti verða til að hlífa malbikinu. Áfram situr borgin í skulda- súpu. Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokks segir í til- kynningu um fjárhagsáætl- unina að áfram verði skuldir borgarinnar um 300 millj- arðar króna og áætlanir bendi til að samstæða Reykjavík- urborgar verði áfram yfir lög- legu hámarki skuldahlutafalls sem kveðið er á um í sveitarstjórnarlögum. Þá hafi skuldahlutfallið aðeins lækkað vegna þess að tekjur hafi hækkað, en ekki að dregið hafi úr skuldum. Lausagangurinn í borginni fer ekki framhjá neinum. Það á kannski sinn þátt í því að í kjörklefanum um helgina kunnu kjósendur ekki við að kalla yfir þjóðina sams konar stjórnarmynstur og boðið er upp á í Reykjavík. Framtíðin er alltaf glæsilegri en for- tíðin hjá meirihlut- anum í borginni } Fjármál Reykjavíkur Eins og framkemur í Morgunblaðinu í dag eru horfur á að bílafloti lands- manna yngist á ný á þessu ári eftir að hafa elst í tæpan áratug. Þetta er ánægjuefni og enn eitt merk- ið um þá auknu velmegun sem landsmenn finna fyrir. Annað sem er til marks um þá vel- megun er að launavísitalan hefur um það bil tvöfaldast síðastliðinn áratug, sem er verulega umfram verðbólgu. Fall bankanna er í flestu tilliti að baki og þó eru aðeins átta ár frá þeim miklu atburð- um og afleiðingar fjár- málaáfallsins sem átti sér stað víðar um heim á sama tíma eru enn tilfinnanlegar í ýmsum löndum, ekki síst á evrusvæðinu. Íslenska krónan hefur átt verulegan þátt í skjótum bata hér á landi og mun halda áfram að stuðla að lífs- kjarabata lands- manna. En það þarf fleira til eins og landsmenn vita og ekki síst þess vegna tóku þeir þá ákvörðun um liðna helgi að hafna vinstristjórn og sam- starfi kollsteypuflokka. Skýr vilji var til að halda áfram á þeirri farsælu braut sem mörkuð var á liðnu kjör- tímabili. Þess vegna er eðli- legt að formaður Sjálfstæð- isflokksins hafi nú fengið umboð til að mynda nýja stjórn í góðu framhaldi af þeirri síðustu og nýaf- stöðnum kosningunum. Taki forystumenn stjórnmála- flokkanna tillit til vilja kjós- enda um áframhaldandi stöðugleika er full ástæða til bjartsýni um horfur til næstu ára. Allar forsendur eru fyrir áframhaldandi stöðugleika og vexti} Jákvæð þróun og góðar horfur eitthvað athugavert við mig en ekki úrið. Fljótlega fann ég það út að koffein, sem er í flestu kaffi, svörtu tei og ýmsum gos- og orku- drykkjum, hafði slæm áhrif á hjartað mitt. Það var því ekki um annað að ræða en að hætta kaffidrykkju. Fram að þessu hafði ég drukkið mikið kaffi. Ég fór að drekka ávaxtate í öllum litum. Mig langaði þó meira í kaffi. Svo ramb- aði ég á koffeinlaust kaffi, bæði skyndikaffi og til uppáhellingar, og tók gleði mín á ný. Stundum liggur leið mín á kaffihús. Of mörg þeirra íslensku eru bara koffeinhús. Þegar ég spyr um koffeinlaust kaffi er svarið of oft: „Nei, því miður er það ekki til.“ Þegar ég spyr hvað ég eigi þá að drekka er svarið gjarnan: „Við eigum ávaxtate!“ Á þessu eru þó gleðilegar undantekningar og þau kaffihús njóta að sjálf- sögðu viðskipta minna. Á kaffihúsum í útlönd- um og í flugvélum er koffeinlaust kaffi yfirleitt alltaf í boði. Ég fór nýlega á kótilettukvöld Samhjálpar, sem haldið var í Súlnasal Hótels Sögu. Mér til mikillar gleði sá ég að í skál á borðinu voru bréf með koffeinlausu skyndikaffi, sykri, sætuefnum og ýmsu öðru. Þeir í Bændahöllinni eru til fyrirmyndar og hugsa fyrir þörfum allra gesta, meira að segja þeirra koffeinlausu, hugsaði ég. Að lokum: Ágætu koffeinhúsaeigendur, ég myndi alveg sætta mig við að fá bolla af koffeinlausu skyndikaffi, ef þið treystið ykkur ekki til að eiga til koffeinlausar baunir handa okkur sem þolum illa koffein. En mig langar ekki í ávaxtate. gudni@mbl.is É g skellti í mig einum tvöföldum espresso. Síðasti dropinn var varla kominn inn fyrir varirnar þegar vanlíðan gagntók mig. Hjartað fór úr takti og ólmaðist af öllum krafti. Það sló út um mig köldum svita og ég missti þrek. Þetta gerðist auðvitað á versta tíma – í kaffihléi á vinnufundi á ritstjórn Morgunblaðsins. Þegar fundinum lauk var líðanin svipuð og ég fór á Læknavaktina. Þar var tekið hjarta- línurit sem leit út eins og ruglingslegt pár Læknirinn tók ekki annað í mál en að senda mig á bráðamóttökuna – með sjúkrabíl! Þar var ég aftur tengdur við hjartalínurita og sagt að bíða átekta. Mér rann í brjóst og þegar ég rankaði aftur við mér var hjartað búið að finna taktinn sinn og líðanin orðin eðlileg. Hjarta- sérfræðingur var búinn að lesa úr párinu og greina ruglið. Það er kallað gáttatif. Kvilli sem hrjáir ótrúlega marga Ís- lendinga. Í mínu tilviki er kvillinn vægur, en hvimleiður. Mér var ráðlagt að taka inn hjartamagnyl og að panta tíma hjá hjartalækni. Nokkru áður en þetta gerðist hafði ég eignast forláta úr og hjartsláttarnema til að fylgjast með hjartslættinum í ræktinni. Stundum sýndi úrið tómt rugl. Ég fór með græj- urnar í umboðið og sagði að þetta hlyti að vera eitthvað bilað. Eftir tveggja daga prófanir hringdu þeir af verk- stæðinu og sögðust ekki finna neitt að úrinu eða hjartslátt- arnemanum. Ég varð að sætta mig við það að líklega var Guðni Einarsson Pistill Kaffihús eða bara koffeinhús? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Norðurlandaráð sem fund-ar nú í Kaupmannahöfner ekki sérstaklega póli-tískur vettvangur að mati Brynjars Níelssonar, þing- manns Sjálfstæðisflokks , en hann er einn fulltrúa Íslands á þingi ráðsins í ár. „Það er ofboðslega lítill munur á hægrimönnum hérna í Skandinav- íu og sósíaldemókrötum. Ég get því ekki sagt að það sé mikið um deilu- mál á þessu þingi,“ segir Brynjar en hann situr í norrænu þekkingar- og menningarnefndinni á þinginu og segir rifist um sárafátt þar. „Auðvitað er rætt um margt áhugavert og mikilvægt en þetta er svona samnorrænt og menn eru mikið sammála.“ Innflytjendamálin erfið Deilt hefur verið um innflytj- endamál í stjórnmálum flestra Norðurlandanna í kjölfar straums flóttafólks til Evrópu í kjölfar átaka í Sýrlandi og Norður-Írak. Síðasta vetur var m.a. tekið upp vegabréfa- eftirlit á landamærum Svíþjóðar og Danmerkur. Það gæti því hitnað í kolunum í umræðu um innflytjendamál að mati Brynjars en Morgunblaðið ræddi við Brynjar í gærdag áður en umræð- urnar hófust. „Innflytjendamál hafa verið til umræðu í stjórnmálum flestra land- anna á Norðurlöndum og er víða hitamál. Það væri því helst í þessum málaflokki sem einhver ágreiningur gæti komið upp hér á þinginu.“ Spurður í hverju hugsanlegur ágreiningur gæti legið í málefnum innflytjenda segir Brynjar erfitt að segja til um það hvar átakalínurnar geti legið. „Ég býst allt eins við því að hér verði sátt eins og uppþot. Þetta er eldfimur málaflokkur og Svíarnir eru dálitið í því að spila sig betri en við hin, þ.e. að tala um sig sem opn- ari og frjálslyndari. Þeir búa hins vegar við ákveðinn vanda eins og hin löndin á Norðurlöndum og ég hugsa að hér reyni menn að leita leiða til að leysa þau vandamál sem fylgja þess- um málaflokki.“ Samvinna við Rússland Ráðherrar Norðurlanda hafa ýtt ýmsum verkefnum úr vör í tengslum við þing Norðurlandaráðs en norrænu menningarmálaráðherr- arnir hafa ákveðið að verja einni milljón danskra króna, til að byrja með, til þess að styðja við lifandi tón- listarflutning á tímabilinu 2017-2019. Þetta er gert í samstarfi við Nor- ræna menningarsjóðinn og er mark- miðið að fjölga tónleikasviðum fyrir norræna listamenn á Norð- urlöndum. Þá hafa umhverfisráðherrar Norðurlanda samþykkt samstarfs- áætlun sem hefur það markmið að bæta ástand umhverfis og takast á við loftslagsbreytingar í Norð- vestur-Rússlandi. Kimmo Tiilikai- nen, landbúnaðar- og umhverf- isráðherra Finnlands og formaður norrænu ráðherranefndarinnar um umhverfismál á árinu 2016, segir velferð Norðurlanda og Norðvestur- Rússlands velta á góðu ástandi um- hverfisins. „Norðurlöndin og Rússland eru viljug til samstarfs til að leysa þau umhverfisvandamál sem blasa við í dag. Það þjónar þannig gagn- kvæmum hagsmunum svæðanna að eiga áfram raunsætt og hagnýtt samstarf um umhverfis- og lofts- lagsmál verði áfram eins skilvirkt og kostur er. Við fögnum því nánari stað- og svæðisbundnum tengslum með aðkomu nýrra samstarfsaðila til viðbótar við þá sem fyrir eru, innan sem utan hins opinbera geira,“ sagði Tiilikainen við fréttamenn í Kaupmannahöfn. Samnorræn og sam- mála í Norðurlandaráði Morgunblaðið/Brynjar Gauti Stjórnmál Lítið um átakamál á þingi Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn þar sem norrænir þingmenn mæta til að ræða málin sín á milli. Meginstefnumið þings Norður- landaráðs er að skapa gott um- hverfi fyrir þá sem vilja búa og starfa á Norðurlöndum. Í ráðinu sitja 87 kjörnir fulltrúar. Dan- mörk, Finnland, Noregur og Sví- þjóð eiga 20 fulltrúa hvert land, þar af eru tveir af fulltrúum Danmerkur frá Færeyjum og tveir frá Grænlandi, en tveir af fulltrúum Finnlands eru frá Álandseyjum. Ísland á sjö full- trúa og var stofnaðili að ráðinu ásamt Danmörku, Noregi og Svíþjóð en ráðið var stofnað ár- ið 1952. Finnland gerðist meðlimur árið 1955, Færeyjar og Álands- eyjar 1970 og síðast kom Grænland inn árið 1984. Fulltrúar eru þingmenn á þjóðþing- um landanna og eru þeir valdir af þjóðþingum sínum. Ísland með frá upphafi NORÐURLANDARÁÐ Brynjar Níelsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.