Morgunblaðið - 03.11.2016, Blaðsíða 21
UMRÆÐAN 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2016
Jæja, þá höfum við
kjósendur sagt okkar
skoðun á flokkum og
fólki, og útkoman mis-
jöfn, eins og verða vill,
enda ekki við öðru að
búast. Bjarna, Benedikt
frænda hans og Katrínu
skal óskað til hamingju
með persónulegan sig-
ur. Sjálfstæð-
isflokknum óska ég
sömuleiðis til hamingju
með sigurinn. Þetta gátuð þið. Fyrir
blessaðan Framsóknarflokkinn hefði
það samt verið betra, ef þeir Sigmund-
ur Davíð og Sigurður Ingi hefðu getað
slíðrað sverðin og gengið samtaka í
takt til kosninganna. Þá hefði stjórnin
lifað kosningarnar vel af, því að það
sýndi sig þó, þrátt fyrir fall hennar, að
kjósendur vildu að flokkarnir ynnu
saman að kosningum loknum að þeim
góðu málum, sem þeir voru komnir vel
á veg með. Nú vantar bara þriðja hjól-
ið undir vagninn til þess
að það geti tekist og þá
er það spurningin, hver
það ætti helst að vera.
Ég leyfi mér því að segja
að ríkisstjórnin hafi í
sjálfu sér unnið vissan
varnarsigur þrátt fyrir
fallið. Framsóknarflokk-
urinn ætti að læra eitt-
hvað á þessu, sem ég
vona, að hann geri.
Hins vegar kom í ljós
hvaða álit kjósendur
höfðu á vinstra liðinu.
Þrátt fyrir gott gengi
VG, sem ég vil meina að helgist af per-
sónufylgi formannsins, þá er það ekki
nóg til þess að geta leitt neina rík-
isstjórn af viti. Mér hugnast heldur
ekki fjögurra eða fimm flokka rík-
isstjórn, enda hefur það sýnt sig, að
slík stjórn sé ekki til heilla. Þessir
flokkar hafa líka sannað, svo um mun-
ar, að þeir eru ekki vandanum vaxnir
að stjórna svo vel fari. Það kom í ljós í
síðustu vinstri stjórn. Samfylkingin er
þess heldur ekki umkomin eftir útreið-
ina, sem hún fékk í þessum kosn-
ingum, að hún sé stjórntæk eða til eins
eða neins fallin í þeim efnum. Að hún
skyldi hafa misst báða þingmenn sína í
borginni skrifa ég alfarið á reikning
Dags og Hjálmars. Það er ekki hægt
annað, eins og þeir hafa stjórnað borg-
armálefnunum, og hægt að tína til
margar ástæður þar. Hrokinn, frekjan
og yfirgangurinn, sem þetta Samfylk-
ingarlið hérna í borginni hefur sýnt
okkur borgarbúum hefur líka orðið til
þess, að allir eru búnir að fá sig full-
sadda upp í kok og vel það af þessu
fólki. Því vil ég segja við forystu
flokksins: Þegar þið farið að meta afar
veika stöðu flokksins í þessum kosn-
ingum, þá ættuð þið að athuga, að
fyrrverandi varaformaður flokksins,
núverandi borgarstjóri, og hans nótar
eiga stærstan þátt í hruni flokksins
hérna í borginni. Segi og skrifa, eins og
þeir hafa hagað sér gagnvart okkur
borgarbúum. Það þýðir ekkert fyrir
ykkur að bjóða okkur borgarbúum upp
á þessa jólasveina í næstu borg-
arstjórnarkosningum, því að þá jarðið
þið flokkinn alveg!
Hins vegar má til sanns vegar færa,
að gömlu kratarnir, eins og Stefán Jó-
hann, Jóhanna Egilsdóttir og foreldrar
mínir, hafi haft lög að mæla, þegar þeir
sögðu, að svona sameiningarbrölt á
vinstra vængnum gengi aldrei upp til
lengdar, og ekki kosningabandalög af
neinu tagi heldur. Það hefur sagan
sýnt og margsannað, svo ekki verður
um villst. Slíkt hlýtur að mistakast fyrr
eða síðar. Fólk verður að fara að læra
eitthvað af sögulegum staðreyndum,
áður en það fer að ana af stað út í ein-
hverja vitleysu, sem reynist eintómt
feigðarflan. Það verður líka að hafa
skýra og skilmerkilega stefnu, sem fer
ekki á milli mála. Það ættu Píratarnir
að læra af þessum kosningum, enda
getur sá flokkur aldrei komist til
neinna áhrifa í stjórnmálum, sem hefur
ekki skýra og ljósa stefnu og markmið,
en er ekki að finna hjá þeim, og verða
þeir því að heita hentistefnuflokkur,
sem við kjósendur hljótum að hafna.
Að öðrum kosti veit ég ekki, hvernig á
að útskýra tilveru Píratanna í íslensk-
um stjórnmálum, eða hvernig er hægt
að lýsa þeim fyrir útlendingum.
Það má samt segja með sanni, að
þetta voru ótímabærar og allsendis
óþarfar kosningar, og nú er að sjá,
hvers konar ríkisstjórn við fáum út úr
þeim, auk þess sem olnbogarýmið
verður ekki mikið í Alþingishúsinu eft-
ir þetta. Óskandi væri þó, að stjórn-
arflokkarnir bæru gæfu til þess að
halda áfram samstarfi sínu með til-
komu þriðja flokks, enda finnst mér ég
geta lesið það út úr kosningunum, að
það sé almennur vilji okkar kjósenda
þrátt fyrir allt og allt. Minnist þess
bara, að vandi fylgir vegsemd hverri,
en ég óska öllum velgengni og alls
góðs í vandasömum störfum fyrir þing
og þjóð.
Þröngt mega sáttir (sem ósáttir) sitja á þingi
Eftir Guðbjörgu
Snót Jónsdóttur » Það má samt segjameð sanni, að þetta
voru ótímabærar og
allsendis óþarfar kosn-
ingar.
Guðbjörg Snót
Jónsdóttir
Höfundur er guðfræðingur
og fræðimaður.
Helgi Hrafn Gunn-
arsson fór mikinn á
Alþingi hinn 5.10.
2016, um þá sem
herða vilja lög um
hælisleitendur og
kom inná – að sjálf-
sögðu – þekking-
arleysi þeirra sem
herða vilja þessi lög.
Hvað ætli hann hafi
fyrir sér um þekking-
arleysi mitt og það hversu illa upp-
lýst ég sé? Ég tala bara fyrir mig.
Ætli hann hafi leitað sér upplýsinga
eða lifað meðal Albana? Ég spyr,
vegna þess að Albanir eru stærsti
hópur hælisleitenda. Við fyllum hús
og skemmur af karlmönnum frá
Albaníu og Makedóníu, en það er
ekkert stríð í þessum löndum. Hafi
Helgi Hrafn ekki reynslu né þekk-
ingu á Albönum skal hann leita sér
upplýsinga áður en hann sakar aðra
um þekkingarleysi, sem og Eygló
Harðardóttir, Unnur Brá og Ólöf
Norðdal. Jú, þeir koma hingað í
hópum því að hér er veittur ríkis-
borgararéttur, bara si svona, þann-
ig gjörningur spyrst út. Hvar er
eiginlega ábyrgð þingsins? Taka
þessir hælisleitendur ekki upp
pláss, fé og getu okkar til þess að
taka á móti stríðshrjáðu fólki, hví
tökum við á móti efnahagshælisleit-
endum? Við erum örþjóð og fáar
vinnandi hendur og fátækum Ís-
lendingum fjölgar. Af hverju haldið
þið á Alþingi að aðrar þjóðir hafi
lokað aðallega á Albani? Ég og aðr-
ir Evrópubúar, sem hafa lifað meðal
þeirra, vitum af hverju, en þið,
svona vel upplýstir og menntaðir
þingmenn, hljótið að vita það í
gegnum allar ykkar upplýsingar og
menntun. Nema þið viljið gera Ís-
land að Kósóvó, sem var önnur
stærsta landbúnaðarslétta Serbíu,
en í dag er hún einn ruslahaugur,
en auðvitað vitið þið spekingarnir á
þingi að Albanir hafa aldrei átt Kó-
sóvó, og auðvitað vitið þið það að
Albanir – í hópum – eiga það til að
ógna öðrum og þeir bera ekki mikla
virðingu fyrir öðru fólki. Af hverju
eru allir þessir karlmenn að koma,
– þurfið þið á þinginu ekki að
spyrja ykkur að því? Auðvitað ekki,
þið eruð svo mikið upplýst, – viljið
þið þá ekki upplýsa mig um hvort
um sé að ræða fjölgun nauðgana í
Reykjavík frá maí til október, þið
hljótið að geta það. Það er bara
ekki nóg að fjandskapast út í
Þjóðhátíð í Eyjum, eða má kannski
ekki ræða þessi mál? Nei, þing-
menn, þið ein eigið ekki Ísland, ég á
það líka og vil fara varlega. Reynsla
mín hefur kennt mér það. Ég er
gömul og slepp ef til
vill við ófarirnar, sem
þið þingmenn eruð að
bjóða upp á í framtíð-
inni og jafnvel nú þeg-
ar. Það þarf að senda
alla þessa karlmenn
með Frontex-flugvélum
til síns heimalands, og
það ekki seinna en í
gær. Hverslags þing-
menn vilja þjóð sinni að
þurfa að halda þessu
uppi? Nær væri að kon-
ur á Alþingi hættu
þessum frekju- og hormónaköstum,
sem þær bjóða þjóðinni upp á dag-
lega, og fari að sinna málum sem
skipta þjóðina miklu, það er að
segja sé einhver vilji til að vera og
kallast þjóð, það eru nefnilega ekki
allir heimsborgarar, ha ha. Og
Katrín Jakobsdóttir, hvar ætlar þú
að fá fé til að taka á móti 500 flótta-
mönnum á ári, eins og þú talar um í
kosningaræðu ? Ójá, við eigum svo
marga föðurlandsvini á þingi.
Guð blessi Ísland.
Umræður á Alþingi
Eftir Stefaníu
Jónasdóttur
Stefanía Jónasdóttir
» Við erum örþjóð og
fáar vinnandi hend-
ur og fátækum Íslend-
ingum fjölgar.
Höfundur býr á Sauðárkróki.
Hafnargötu 61 | 230 Reykjanesbær | Sími: 421 7104
Haustdagar
3.-7. nóvember
Byr
jar
í da
g
20% afsláttur
af öllum fatnaði og skóm
Kíktu til okkar
Breiðumörk 1c, 810 Hveragerði / www.hotelork.is / booking@hotelork.is / sími: +354 483 4700 / fax: +354 483 4775
Fallegt umhverfi og fjölmargir möguleikar til afþreyingar
tryggja betri fundarhlé.
Fundarfriður á Hótel Örk
Á Hótel Örk er öll aðstaða til fundahalda til fyrirmyndar. Starfsfólk okkar býr
yfir mikilli reynslu og metnaði til að aðstoða stóra og litla hópa, fyrirtæki og
félagasamtök við skipulagningu og undirbúning á fundum og ráðstefnum.