Morgunblaðið - 03.11.2016, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 03.11.2016, Qupperneq 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2016 ✝ GuðmundurViggósson fæddist 22. desem- ber 1943 á Ísa- firði. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Ísafold 22. október 2016. Foreldrar Guð- mundar voru hjón- in Viggó Guð- jónsson, f. 10. desember 1902, d. 24. október 1976, og Jóna Þór- dís Einarsdóttir, f. 5. janúar 1912, d. 16. júlí 1989. Systkini Guðmundar eru: a) Sveinbjörg Guðmundsdóttir, f. 8. júlí 1931, d. 24. júní 2013, b) Guðjón Lúð- vík Viggósson, f. 2. júlí 1938, c) Guðrún Sigurborg Viggósdótt- ir, f. 15. september 1948, d) Sælaug Vigdís Viggósdóttir, f. 15. október 1953. Eiginkona Guðmundar er Alda Garðarsdóttir frá Hríshóli í Reykhólasveit, f. 26. nóv- f. 11. maí 1997. 3. Sæmundur Guðjón Guðmundsson, f. 2. júlí 1980, maki Íris Hrund Sigurð- ardóttir, f. 23. október 1990, sonur þeirra er Sigurður Hrafn Sæmundsson, f. 22. jan- úar 2016, og dóttir Írisar er Þórdís Helgadóttir, f. 7. júlí 2011. 4. Hafdís Erla Guð- mundsdóttir, f. 9. september 1984, sonur hennar er Daníel Helgi Hafdísarson, f. 19. júní 2005. Guðmundur fæddist og ólst upp á Hrannargötu 10, Ísa- firði. Sem strákur var hann virkur í fótboltafélaginu Herði og í skátastarfi. Guðmundur lauk skólagöngu sinni í Hér- aðsskólanum í Reykjanesi. Guðmundur byrjaði ungur að vinna í Félagsbakaríinu á Ísa- firði. Hann starfaði lengst af í Lakkrísgerðinni Kólus. Guðmundur og Alda giftu sig 27. nóvember 1971 og bjuggu lengst af á Breiðvangi í Hafnarfirði. Þau nutu þess að vera í sumarbústaðnum sín- um og nutu einnig samveru með fjölskyldu og vinum. Útför Guðmundar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 3. nóvember 2016, klukkan 13. ember 1949, for- eldrar Öldu eru Garðar Halldórs- son, f. 8. sept- ember 1924, og Kristín Sveins- dóttir, f. 9. apríl 1921, d. 18. sept- ember 2006. Börn þeirra eru: 1. Helga Björk Guð- mundsdóttir, f. 23. ágúst 1969, maki Einar Már Jóhannesson, f. 20. desember 1964, börn þeirra eru Alda Hrund Einarsdóttir, f. 9. júní 2004, og Jóhannes Geir Einarsson, f. 22. júlí 2006. 2. Kristín Þorbjörg Guðmunds- dóttir, f. 24. júlí 1973, maki Sigurður Björgvin Sigurðsson, f. 9. apríl 1974, sonur þeirra er Guðmundur Atli Sigurðsson, f. 8. október 2005, og dætur Sig- urðar eru Sara Mjöll Sigurð- ardóttir, f. 25. október 1995, og Katrín Íris Sigurðardóttir, Elsku pabbi. Það er svo erfitt að sleppa þér og leyfa þér að fara. Það er svo sárt að geta ekki tekið utan um þig, sagt við þig „sæll, pabbi minn, þetta er Stína,“ og heyra þig segja „sæl Stína mín“. Ég hef verið svo lánsöm að hafa nánast á hverjum degi undanfarin tvö ár getað hitt þig í vinnunni á Ísafold. Mér þykir svo vænt um þessar síðustu stundir okkar þótt oft hafi þær verið erfiðar. Það hefur verið erfitt að upplifa veikindin þín. Þegar ég hugsa um þig þá kemur upp í hugann: pabbi minn er sterkastur og bestur. Þú varst alltaf tilbúinn að gera allt fyrir alla. Mikill fjölskyldu- maður og þú hugsaðir vel um alla í kringum þig. Ég á góðar minningar um allskyns ferðalög um landið, útilegur, og bústaðaferðir. Þér fannst svo gaman að koma til Ísafjarðar og sýna okkur Hrannagötuna. Og ekki má gleyma bílasölurúntinum. Sorgin er sár og söknuðurinn mikill en samt finn ég fyrir þakklæti. Ég er þakklát fyrir hvíldina sem þú færð. Ég veit að núna líður þér betur á nýj- um stað. Takk fyrir allt, Guð geymi þig, elsku pabbi minn. Þín Kristín Þorbjörg (Stína). Elskulegur bróðir minn, Guðmundur, er látinn allt of snemma, sjötíu og tveggja ára. Er það ekki aldurinn sem við ætlum flest að nota til að njóta lífsins? Njóta barnabarna og þess að vera laus við brauð- stritið. Gera allt það sem hug- urinn girnist og tími gafst ekki til áður, þriðja aldursskeiðið? Nei, heilsan var tekin frá þér, elsku bróðir, allt of snemma, við það varð mikil breyting. Þú varðst ekki sami bróðirinn, eiginmaðurinn né pabbinn. Ekki var síðan á þig bætandi að þú komst blindur til baka úr aðgerðinni í Svíþjóð skömmu fyrir jól 2012. Þú varst samt heppinn, að eiga að góða fjölskyldu sem hefur stutt þig einstaklega vel í gegnum veikindin og fyrir það er ég óendanlega þakklát. Þegar ég flutti frá Ísafirði suður og byrjaði að búa þá héldum við Mummi mikið sam- an en hann og Alda voru þá far- in að búa saman í Hafnarfirð- inum. Héldum fyrstu jólin okkar saman og á jóladag var haldið í hefðina úr Hrannargöt- unni. Það var alltaf gaman að fá Mumma í heimsókn en hann „droppaði“ oft inn á leið sinni heim frá vinnu. Oft kom hann líka til að sýna okkur „nýja“ bílinn en hann var með bíla- dellu á hæsta stigi, alltaf að skipta um bíla. Enda fór hann margar hringferðirnar um landið og snöggur oft að því. Að sjálfsögðu var leitað ráða hjá Mumma ef einhver ætlaði að kaupa sér bíl, jafnvel langt út fyrir fjölskylduna því Mummi þekkti alla bílasalana. Ekki veit ég hvað bílarnir hans urðu margir en um þá var haldið gott bókhald og þeir myndaðir í bak og fyrir og skellt í albúm! Líka var alltaf gaman að heimsækja þau hjónin á fallega heimilið þeirra. Þar byrjuðu líka alltaf jólin á afmælisdegi Mumma, 22. desember, með fjölmennu jólaboði. Þá „lék hann á als oddi“ í fjölskylduboðunum með sinni góðlátlegu glettni og léttu lund. Þannig vil ég minnast elskulegs bróður míns. Eins og áður sagði, síðustu árin voru Mumma erfið þar sem hann glímdi við heilsu- brest. Nú er því lokið og hann hefur haldið á vit forfeðra sinna. Einlæg ósk mín er að hann geti tekið gleði sína og létta lund á ný, frjáls frá höft- um heilsubrests og á vit nýrra ævintýra. Elsku bróðir, þín er sárt saknað, en þú skilur eftir þig fjársjóð sem er börnin þín fjög- ur og barnabörnin, söknuður þeirra og eiginkonu þinnar er samt mestur. Elsku Alda, við Jói vottum þér og fjölskyldunni allri inni- lega samúð. Guðrún S. Viggósdóttir. Í dag kveðjum við móður- bróður okkar með söknuði. Við minnumst hans með hlýju og mörgum skemmtilegum minn- ingum. Það var alltaf gaman að hitta Mumma. Hann kom oft í heimsókn til okkar og oft með lakkrís og annað góðgæti úr vinnunni sinni. Það þótti sko flott að eiga frænda sem vann í lakkrísgerð og fengu vinirnir einnig að njóta góðs af því. Allt- af hafði Mummi skemmtilegar sögur að segja og oftar en ekki um sjálfan sig. Mikið var hlegið og rifjum við reglulega upp sögurnar enda Mummi maður með góðan húmor sem hafði gaman af sjálfum sér. Hann var alltaf í góðu skapi og alltaf tilbúinn að aðstoða og leiðbeina. Hann var aldrei ráða- laus og hafði skoðanir á öllu og oftast hafði hann rétt fyrir sér. Alltaf var hann í tímaþröng án þess að vera stressaður um of enda mikil ábyrgð á hans herðum, heil lakkrísverksmiðja og öll stórfjölskyldan. Hann var mjög ábyrgur að eðlisfari og umhyggjusamur í garð allra. Það eru sérstaklega þrjár sögur sem eru okkur minnis- stæðar. Ein er um það þegar Mummi og frú ákváðu að fara hringinn í kringum landið með tvö lítil börn. Mummi sem kunni alls ekki að slaka á brun- aði eftir malarvegum hringinn um landið á einungis þremur dögum. Það þótti einstaklega stuttur tími þar sem flestir fóru þetta á viku enda vegir slæmir í þá daga. Einnig minnumst við sögu af honum uppi á Baulu og í jólaboði með fjölskyldunni þar sem rjómasprauta kom við sögu. Var það ein af okkar skemmtilegustu stundum sam- an og ekki annað hægt en að skellihlæja að þegar þetta er skrifað. Við erum þakklátar fyrir þann tíma sem við fengum með Mumma og enn þakklátari að hann er kominn á góðan stað í dag þar sem síðustu ár voru honum erfið vegna veikinda. Hvíl þú í friði, kæri Mummi. Elsku Alda, Helga, Stína, Sæmi, Hafdís og fjölskyldur, innilegar samúðarkveðjur til ykkur allra. Vigdís og Rósa. „Meira Óli, minna Mummi!“ Þessi fyrirmæli bárust úr skutnum á árabát Viggós Guð- jónssonar þar sem ég og sonur hans Guðmundur vorum háset- ar. Viggó reri á vorin og lagði kola- og rauðmaganet í utan- verðum Skutulsfirði. Hásetarn- ir áttu ýmist að róa áfram eða stinga við meðan Viggó lagði eða dró netin. Þetta er með fyrstu minningum um æskuvin minn Guðmund Sigurð Viggós- son, eða Gumma Viggós eins og hann var jafnan kallaður. Leið- ir okkar lágu víða saman enda bjuggum við í sinn hvorum enda sama húss við Hrannar- götu 10 á Ísafirði. Hrannargatan var á þessum árum leikvöllur fjölda barna bæði úr þeirri götu og ná- grannagötunum. Þar voru leiknir boltaleikir, farið í hverfu og fallin spýtan og meira að segja saltaður fótboltavöllur sem lá þvert yfir götuna um sund sem rústir brunna Templ- arahússins mynduðu og jafnan voru kallaðar bíórústir. Á þess- um slóðum urðum við Gummi óaðskiljanlegir leikbræður sem síðar dró okkur upp á alvöru fótboltavöll Ísfirðinga við Eyr- argötu. Þar urðum við samherj- ar í fjórða og þriðja flokki knattspyrnufélagsins Harðar og fórum saman á vegum þess félags í knattspyrnuferð til Akraness. Víðar lágu leiðir okk- ar saman. Við stunduðum skíði í Stórurð og á Seljalandsdal, gengum saman í Skátafélagið Einherja. Fórum í eftirminni- legar útilegur í Valhöll í Tungu- dal og í Harðarskálann á Selja- landsdal og hlustuðum á báðum stöðum á þá eldri segja mergj- aðar draugasögur fyrir svefn- inn. Leið okkar beggja lá síðan suður í höfuðborgarvist. Við vorum þá sameiginlegir kost- gangarar í Eskihlíð og skemmt- um okkur oft saman í borginni við sundin blá. Hjá Gumma varð dvölin varanleg því hann starfaði eftir þetta drjúgan hluta starfsævi sinnar hjá Lakkrísgerðinni Kólusi en ég hafði þriggja vetra dvöl í Versl- unarskólanum. Guðmundur varði þó meira en áratug við eigin rekstur sem hann stofnaði í Hafnarfirði og síðar í Kópa- vogi bæði við fata- og mottu- hreinsun. Honum gekk einstak- lega vel að afla viðskipta því honum var í blóð borið að vera þjónustulipur og naut auk þess dyggs stuðnings konu sinnar við þennan rekstur. Guðmund- ur kvæntist Öldu Garðarsdótt- ur frá Hríshóli í Reykhólasveit. Þau höfðu komið sér upp in- dælu heimili á fallegum stað í Hafnarfirði og eignuðust fjögur mannvænleg börn. Ég heim- sótti þau jafnan þegar leið mín lá suður og þau okkur sömu- leiðis á Ísafjörð. Auk þess nut- um við hjónin gistivináttu þeirra hjóna í fallegum sum- arbústað þeirra við Laugarvatn sem bar nafn fæðingarbæjar Öldu, Hríshóll. Allar þessar minningar hrannast upp nú þegar þessi æskuvinur minn hefur kvatt þetta líf. Því miður varð hann fyrir alvarlegu heilsufarsáfalli um aldur fram og var síðustu árin sviptur starfsorku og þeirri lífshamingju sem hann og Alda hefðu getað notið sam- an með börnunum. En minn- ingin um góðan dreng lifir. Kæra Alda. Við Salbjörg sendum þér, börnum ykkar barnabörnum og venslafólki innilegar samúðarkveðjur. Kæri vinur, Gummi Viggós. Svífðu á vængjum morgunroð- ans meira að starfa Guðs um geim. Ólafur Bjarni Halldórsson. Guðmundur Viggósson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HEIÐRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR, Svansvík, Súðavíkurhreppi, er lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði 25. október, verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 5. nóvember klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlegast bent á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða Ísafirði. . Jóhanna R. Kristjánsdóttir, Pétur S. Kristjánsson, Rakel Þórisdóttir, Þorgerður H. Kristjánsdóttir, Hermann S. Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar, KARL SIGURJÓNSSON vélfræðingur, Furugrund 36, Akranesi, andaðist á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi 29. október. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 8. nóvember klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Heil- brigðisstofnun Vesturlands Akranesi og Krabbameinsfélag Akraness og nágrennis. Sérstakar þakkir til starfsfólks Lyflækningadeildar HVE fyrir góða umönnun. . Guðrún Alfreðsdóttir, Kári Rafn, Kristín Sandra. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSMUNDA ÓLAFÍA ÓLAFSDÓTTIR (Ása), áður til heimilis að Hæðargarði 35, sem andaðist á dvalar- og hjúkrunar- heimilinu Grund 18. október, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 4. nóvember klukkan 13. . Erna Eiríksdóttir, Bragi G. Kristjánsson, Áshildur, Kristján, Styrmir, Guðbjörg og langömmubörn. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna fráfalls okkar elskulegu MARGRÉTAR HÖLLU JÓNSDÓTTUR, Maddýjar, og virðingu henni sýnda. Láttu hug þinn aldrei eldast eða hjartað - vinur aftansólar sértu, sonur morgunroðans vertu. (Steph. G. Steph.) . Hörður Skarphéðinsson, Ásthildur Jónsdóttir, Hans Roland Löf, Margrét Halla Hansdóttir Löf, Svanhildur Jónsdóttir, Páll Grétarsson, Sindri Már Pálsson, Erna Ágústsdóttir, Anna Þórdís Sindradóttir, Grétar Már Pálsson, Elísabet Pálmadóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVEINBJÖRN HJÁLMARSSON, Kirkjubæjarbraut 2, Vestmannaeyjum, lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja fimmtudaginn 27. október 2016. Útför hans fer fram laugardaginn 5. nóvember frá Landakirkju í Vestmannaeyjum og hefst athöfnin klukkan 13. . Erna Margrét Jóhannesdóttir, Guðrún Sveinbjörnsdóttir, Gunnlaugur Claessen, Guðbjörg Sveinbjörnsdóttir, Sigurður Vignisson, Egill Sveinbjörnsson, Guðný Þórisdóttir, Ásdís Ingunn Sveinbjörnsdóttir, Kristján Þ. Jakobsson, afabörn og langafabörn. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.