Morgunblaðið - 03.11.2016, Síða 29

Morgunblaðið - 03.11.2016, Síða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2016 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Nú er ekki rétti tíminn til þess að skipta einhverri eign til helminga. Leyfðu hamingjunni svo að leiða þig áfram. Ekki hlusta á úrtöluraddir varðandi framtíðarplön þín. 20. apríl - 20. maí  Naut Að gera sitt besta veltur á smáatrið- unum í augnablikinu. Njóttu þess að vera í fríi í dag, þú átt það alveg skilið eftir annasamar vikur undanfarið. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Nú er kjörinn tími til þess að fjár- festa í einhverju sem mun fegra heimili þitt. Ekki taka fólki sem gefnu, það þarf að sinna vinum og vandamönnum svo sambandið haldist gott. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Fyrirhöfn þín til að viðhalda stóru tengslaneti þínu ber árangur. Þér verður komið á óvart fljótlega af fjölskyldu- meðlimum, reyndu að láta á engu bera þegar að því kemur. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Hafi fólk áhuga á því sem það er að gera vinnur það miklu betur en ella. Þú vinnur of mikið og það bitnar á fjölskyldunni. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Hafðu auga með peningunum þínum í dag. Fullvissaðu makann um að þetta tuð í þér endurspegli ekki tilfinningar þínar til hans. 23. sept. - 22. okt.  Vog Lífið hefur leikið við þig að undanförnu, ekki vera hissa þótt snurða hlaupi á þráðinn á næstunni. Skrúfaðu undir eins frá þokkanum, af honum hefur þú nóg. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Sum sambönd verða til vegna sameiginlegra áhugamála en önnur virðast ekki eiga sér sérstakan rythma eða ástæður. Þér hærra settir eru í vondu skapi í dag. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú hefur það réttilega á tilfinn- ingunni að draumar þínir séu að rætast. Efst á óskalistanum eru fjölskyldusamkundur og kósíkvöld heima fyrir. 22. des. - 19. janúar Steingeit Verkefnin sem þú hefur valið þér í dag útheimta hörku upp að vissu marki. Mundu að reiðin er eyðandi afl og enginn er þess virði að fuðra upp fyrir. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú þarft að hafa stjórn á þínu liði, fá samstarfsmenn þína til að vinna að einu og sama markmiðinu. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ert upp á þitt besta og getur nán- ast samið um hvað sem er því þú færð fólk svo auðveldlega á þitt band. Haltu dagbók, það auðveldar lífið. Mér barst fyrir nokkru í hend-ur góð bók „Vísnakver Jó- hannesar úr Kötlum“. Hann var góður vinur föður míns og faðir minn sagði mér, að Jóhannes hefði verið svo hagmæltur, að það hefði jafnvel orðið honum til trafala sem skáldi! Hvað um það. Á menntaskólárum mínum var ekki önnur bók kærari okkur Ara Jósefssyni en Sjödægra Jóhann- esar, sem kom út 1955 þegar við settumst í 3. bekk í MA. Oft fór- um við með Ferskeytlur hans: Rennur gegnum hjarta mitt blóðsins heita elfur; upp í strauminn bylta sér kaldir sorgarfiskar. Út um tálknin japla þeir þungum svörtum kvörnum þar til eins og kolabotn undir niðri verður. Sit ég við hið rauða fljót – stari niðrí djúpið þar sem Gleði dóttir mín liggur nár í myrkri. Þótt ég sé hátt á áttræðisaldri tuldra ég þessar vísur oft fyrir munni mér og hugsa að svona geti enginn ort nema fljúgandi hagyrðingur og skáld! Það var því með tilhlökkun að ég opnaði Vísnakver Jóhannesar og þar blöstu við tvær vísur sem hann orti tíu ára (ég hef alltaf gaman af fyrstu vísum skálda okkar!): Rósir spretta og röðull skín, reynir þéttur lifir. Fagra og netta fjólan mín frjóvgast sléttu yfir. Sumartíðin blíð á brá blæinn fríða hefur. Birki og víðir blómgast þá byljastríð ei tefur. Vel og dýrt kveðið af þeim litla! Og þrem árum síðar yrkir hann 13 ára: Eldur, vindur, vatn og jörð vermir, kælir, svalar, mærir. Þetta nefnist höfuðgjörð, harpa ljóðastrengi bærir. Þessa vísu gerði Jóhannes um Svan son sinn þegar hann var lít- ill snáði. Þeir voru þá á Hróðnýj- arstöðum í Laxárdal: Hver á lítinn labbakút sem langar að fara út að skoða bæði hyrndan hrút og horfa á púta-pút. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Vísnakver Jóhannesar úr Kötlum Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að segja fátt en njóta návistarinnar. KYSSTU MIG! OJ! KEMUR EKKI TIL GREINA, FEITABOLLAN ÞÍN! BAMM! ÉGER ÞÓ AÐMINNSTA KOSTIEKKI FLÖT. LÍÐUR ÞÉR EINS OG ÞÚ BERIR ÓBÆRILEGA HLUTI Á HERÐUM ÞÉR? „HVAÐ MEÐ MEXÍKÓ? MIG HEFUR ALLTAF LANGAÐ AÐ FLÝJA TIL MEXÍKÓ.“ „KÆRU VINIR, ÞAR SEM ÞETTA ER ÞRIÐJA GIFTING JÓNS OG ÖNNUR GIFTING BJARGAR SKAL ÉG HAFA ÞETTA MJÖG STUTT.“ ERT ÞÚ LÍKA MEÐ FLÖSU? Víkverji sér alltaf ástæðu til aðsperra eyrun þegar tónlistarhá- tíðin Iceland Airwaves gengur í garð. Á hátíðinni kemur fram urmull hljómsveita. Íslenskar sveitir frá tækifæri til að sýna sig á sviði fyrir framan áhorfendur utan úr heimi og mega jafnvel gera sér vonir um að heilla erlenda tónlistarblaðamenn eða útgefendur. Ef allt fer á besta veg er jafnvel hægt að koma tánni í gættina út í hinn stóra heim. Á há- tíðinni kemur einnig fram fjöldi er- lendra hljómsveita. Margar þessara hljómsveita kunna að vera lítt þekktar, en oft eru þær frábærar, yfirleitt góðar og hafa nánast alltaf eitthvað forvitnilegt fram að færa. Á Airwaves líður Víkverja eins og hann sé kominn í konfektkassa, en hann þekkir ekki molana. x x x Tónlistarhátíðin er haldin á árs-tíma þegar allra veðra er von. Víkverji man eftir að hafa skotist á milli tónleikastaða í brunagaddi á meðan norðurljósin bylgjuðust um himinhvolfið og í roki og rigningu og tíu stiga hita. Alltaf hefur stemn- ingin þó verið til fyrirmyndar. Fyrir nokkrum árum kom með hátíðinni innspýting af ferðamönnum í borg- ina eftir að ferðamannatímanum var lokið, en nú lýkur honum víst aldrei þannig að gestir á Airwaves bætast bara við þá, sem fyrir eru. x x x Víkverja finnst best að skipu-leggja sig ekki um of þegar hann fer á stúfana á Airwaves og frekar en að standa í biðröð fer hann eitthvað annað og lætur koma sér á óvart. x x x Á hátíðinni núna verður gamalt íbland við nýtt og stundum verða menn í óvæntum hlutverkum. John nokkur Lydon mun til dæmis troða upp og lesa ljóð. Lydon er betur þekktur undir nafninu Johnny Rot- ten og hrelldi undir því nafni sóma- kæra borgara á Bretlandi á áttunda áratugnum. Á undan honum stígur annað ljóðskáld á svið, sem ruddi sér til rúms í rokkinu á svipuðum tíma; Bubbi Morthens. Enn ein vísbend- ingin um að ekkert breytist, en þó breytist allt. víkverji@mbl.is Víkverji Varpa áhyggjum þínum á Drottin, hann mun bera umhyggju fyrir þér. (Sl. 55:23) Sameinar það besta í rafsuðu Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.