Morgunblaðið - 03.11.2016, Page 36
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 308. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Bjarni Benediktsson fær umboðið
2. Oftast strikað yfir nafn Birgittu
3. Vonandi laus við þetta „ógeð“
4. DAC-stjórn kæmi ekki á óvart
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Gítarleikarinn Ásgeir Ásgeirsson og
trompetleikarinn Snorri Sigurðsson
leika ameríska djassstandarda ásamt
eigin lagasmíð í tónleikaröðinni Tón-
stöfum í Bókasafni Seltjarnarness í
dag kl. 17.30. Aðgangur er ókeypis.
Morgunblaðið/Eggert
Gítar og trompet
á Tónstöfum í dag
Í tilefni þess að
ritröðin Sýnisbók
íslenskrar alþýðu-
menningar fagn-
aði nýverið útgáfu
sinnar 20. bókar
verður í dag kl. 17
opnuð sýning á
Torginu í Þjóð-
minjasafni Ís-
lands. Þar verða bókarkápur ritraðar-
innar sýndar en þær eru allar hann-
aðar af Öldu Lóu Leifsdóttur bóka-
hönnuði.
Tuttugu bókarkápur
Öldu Lóu til sýnis
Borgarsögusafn Reykjavíkur
stendur fyrir tónlistardagskrá sam-
hliða Airwaves í dag og næstu tvo
daga. Landnámssýningin ómar af
tónlist í dag milli kl. 13 og 18, en með-
al þeirra sem fram koma
er Svavar Knútur. Á
morgun verður tónlist
leikin í Ljós-
myndasafni Reykja-
víkur og á laugardag í
Sjóminjasafninu milli
kl. 13 og 17 báða daga.
Aðgangur er ókeyp-
is.
Tónlistin ómar í
Borgarsögusafni
Á föstudag Norðaustan 5-10 og dálítil él norðan- og austanlands,
en úrkomulítið sunnan- og vestantil. Víða vægt frost norðan- og
austanlands, en hiti að 5 stigum suðvestanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 10-15 á Vestfjörðum og suð-
austanlands. Hægari vindur annars staðar. Skúrir og síðan slyddu-
él norðaustantil, en úrkomulítið suðvestanlands. Hiti 0 til 8 stig.
VEÐUR
Landsliðsmarkvörðurinn Ar-
on Rafn Eðvarðsson þarf að
öllum líkindum að fara í að-
gerð vegna meiðsla á
mjöðm, en það myndi þýða
að hann yrði frá keppni í 3-6
mánuði. „Ég varð að segja
stopp núna þar sem sárs-
aukinn er það mikill,“ segir
Aron Rafn meðal annars í
Morgunblaðinu í dag og að
meiðslin séu farin að há
honum í athöfnum daglegs
lífs. »2
Sársaukinn er
Aroni Rafni ofviða
Nánast allt gekk upp
hjá Ólafíu Þórunni
Haukur Helgi Pálsson, landsliðs-
maður í körfubolta, fékk þungt höf-
uðhögg í leik með liði sínu Rouen í
frönsku B-deildinni fyrir tæpum
tveimur vikum. Hann hefur ekki get-
að spilað eða æft síðan þá, og þarf að
taka lífinu með ró þar til hann hættir
að finna fyrir höfuðverk og öðrum af-
leiðingum heilahristingsins sem
hann fékk. »4
Haukur Helgi er nýjasta
fórnarlamb höfuðhöggs
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Fólk er jafnan forvitið um hvað býr
í helli listamannsins. Í eldri verkum
birtist fortíðin, en nútíðin og það
sem vonandi verður sést í þeim verk-
efnum sem eru ný eða í fæðingu. Á
hverjum tíma eiga listirnar líka að
endurspegla samfélagið í öllum sín-
um fjölbreytileika,“ segir Kristinn
Már Pálmason myndlistarmaður.
Hann er einn alls sautján listamanna
sem eru með vinnustofu í húsinu
Auðbrekku 14 í Kópavogi. Samband
íslenskra myndlistarmanna (SÍM)
tók húsið á leigu nýlega og end-
urleigir til sinna félagsmanna. Á
slíku þykir mikil þörf því brunnið
hefur við að listamenn séu á sífelld-
um hrakhólum með húsnæði og þurfi
oft að flytja aðstöðu sína og verk.
Lofthæð og birta
Á dögunum var opið hús í Auð-
brekkunni þar sem gestir og gang-
andi gátu fengið að kynnast starfinu
þar, skoða vinnustofurnar og rabba
við listamennina sem þarna starfa. Í
þeirra hópi má nefna Þóru Sigurðar-
dóttur, Guðbjörgu Lind Jónsdóttur,
Höddu Fjólu Reykdal, Þorstein
Helgason, Kristínu Geirsdóttur og
Kristin Má. „Ég hef á síðustu þrem-
ur árum þurft að flytja vinnustofuna
fimm sinnum og það segir sig sjálft,
hve slíkt er óþægilegt,“ segir Krist-
inn.
Um vinnustofurnar, sem eru 10-40
fermetrar að flatarmáli, gildir að
mikil lofthæð er myndlistarmönnum
mikilvæg og svo góð birtuskilyrði.
„Svo skiptir félagslegi þátturinn líka
miklu máli. Starf listamannsins er á
stundum einmanalegt og þá er gott
að vera í sambýli við aðra sem sinna
svipuðum viðfangsefnum,“ segir
Kristinn sem einbeitir sér að mál-
verkinu; bæði abstrakt og táknræn-
um myndum sem mælt geta á
tungum allra þjóða. Verkin hefur
hann sýnt víða, m.a. á samsýningu í
Listasafni Reykjanesbæjar, Fram-
tíðarminni, sem lýkur nú um
helgina. „Gerjun og gróska í mynd-
listinni um þessar mundir er afar
mikil,“ segir Kristinn og heldur
áfram:
„Mér finnst eiginlega allt vera í
gangi, fólk nýtir sér frelsið til fulls
og er ekki bundið neinum ákveðnum
stefnum. Sérstaklega finnst mér
gaman núna að sjá hvernig unga
kynslóðin í graffitílistinni kemur
sterk inn. Annars er engin ein
ákveðin regla á þessu og af því
sprettur fjölbreytileikinn.“
Á ýmsan mælikvarða er Auð-
brekkan á miðpunkti höfuðborgar-
svæðisins. Til þessa hafa verslanir
og iðnfyrirtæki verið áberandi á
þeim slóðum, en það virðist nú vera
að breytast. „Þegar maður gengur
hér um hverfið þá sér maður að
ótrúlega víða er komin liststarfsemi
í einhverri mynd. Þá er örstutt héð-
an í menningarhúsin á Borgarholti,
þar sem eru Listasafn Kópavogs og
fleiri stofnanir. Þetta fellur allt vel
að öðru og kúnstin er sannarlega
komin í Kópavoginn,“ segir Kristinn
Már að síðustu.
Kúnstin er komin í Kópavog
Sautján undir
sama þaki við
Auðbrekkuna
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sköpun Listmálarinn Kristinn Már Pálmason við trönurnar í nýrri vinnustofu sinni í Kópavoginum í gær.
Heimsókn Gestir í vinnustofu Þorsteins Helgasonar, arkitekts og myndlist-
armanns, á opnu húsi sem var í Auðbrekkunni fyrir nokkrum dögum.
„Það má segja að það hafi nánast allt
gengið upp hjá mér. Ég hitti 17 flatir
og það var aðeins ein hola sem
reyndist mér erfið þegar ég lenti í
„bönkernum“. Aðstæðurnar voru
mjög flottar og grínin meiriháttar
góð,“ sagði Ólafía Þórunn Krist-
insdóttir sem er efst eftir fyrsta
hring á LET-Evrópumótaröð kvenna á
sterku móti sem hófst í Abu Dhabi í
Sameinuðu arabísku furstadæm-
unum í gær. »1