Morgunblaðið - 29.11.2016, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 9. N Ó V E M B E R 2 0 1 6
Stofnað 1913 280. tölublað 104. árgangur
TÍMAMÓT
HJÁ JÓNI
BENEDIKT
GRÆJUR VIÐ
MARGVÍSLEG
TÆKIFÆRI
NÝ PLATA
ELÍZU
NEWMAN
16 SÍÐNA SÉRBLAÐ STRAUMHVÖRF 30ÍÞRÓTTIR
Sjaldgæf stytta
eftir listamann-
inn Guðmund frá
Miðdal verður
boðin upp í Gall-
eríi Fold í
Reykjavík
þriðjudaginn 6.
desember nk.
Styttan er met-
in á 300-400 þús-
und krónur en að sögn Guðmundar
Einarssonar, sonarsonar Guð-
mundar frá Miðdal, er um að ræða
styttu sem afkomendur listamanns-
ins vissu ekki að væri til.
Guðmundur segir það hafa komið
fjölskyldunni á óvart þegar styttan
kom fram því ekkert hafi fundist í
Listvinahúsinu, þar sem mót Guð-
mundar hafa verið geymd. »6
Sjaldgæf stytta
eftir Guðmund frá
Miðdal á uppboði
Húnar Styttan
fágæta er fundin.
Sjávarútvegur
» Til tals hefur komið að hóp-
ur sérfræðinga frá öllum flokk-
um vinni í sameiningu að kerf-
isbreytingum í sjávarútvegi.
» Evrópumálin yrðu jafnvel af-
greidd af Alþingi.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Enn liggur ekki fyrir hvaða flokkar
munu hefja formlegar stjórnar-
myndunarviðræður, eða hvenær.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins notuðu formenn Sjálf-
stæðisflokks, VG, Viðreisnar og
Bjartrar framtíðar helgina til þess
að ræða óformlega saman, en aldrei
öll fjögur saman.
Framsóknarflokkurinn og Sam-
fylkingin munu hafa verið meira á
hliðarlínunni, en þó einnig átt í sam-
tölum við fulltrúa annarra flokka.
Í gær var helst búist við því að
formlegar viðræður myndu innan
tíðar hefjast á milli Sjálfstæðis-
flokks, Viðreisnar og Bjartrar fram-
tíðar. Það sem sagt var standa í
vegi fyrir því voru efasemdir for-
manna Sjálfstæðisflokks og Bjartr-
ar framtíðar um að það nægði að
hafa eins þingmanns meirihluta í
slíkri ríkisstjórn.
Þá var á það bent að reyna mætti
að fá VG að slíku samningaborði,
því Viðreisn hefur alfarið hafnað því
að vinna með Framsóknarflokkn-
um. Engin staðfesting fékkst á því
að það stæði til, en viðmælendur
vildu ekki heldur útiloka þann
möguleika.
Mjakast örlítið í viðræðum
Andinn milli stjórnmálaflokkanna sagður orðinn afslappaðri Talið ljóst að
menn séu reiðubúnir að slá af ýtrustu kröfum Línur sagðar skýrast í dag
MFormenn halda spilum … »6
Fyrirhugað er að byggja vatnsátöpp-
unarverksmiðju í Borgarfirði eystra.
Stofnað hefur verið fyrirtækið Vatn-
works Iceland ehf. um verkefnið.
Unnið hefur verið að verkefninu
síðastliðna 18 mánuði og eru menn
bjartsýnir á að það gangi upp, segir
Arngrímur Viðar Ásgeirsson, verk-
efnisstjóri og eigandi fyrirtækisins,
ásamt athafnamanninum Pawan Mul-
kikar frá Indlandi. Pawan kom á
Borgarfjörð fyrir þremur árum sem
ferðamaður í 5 daga gönguferð og
hreifst af náttúrunni og samfélaginu.
Síðan hefur hann í
samvinnu við
heimamenn unnið
að framþróun
verkefnisins og
komið reglulega
til Íslands.
Ef áætlanir
ganga eftir gætu í
upphafi orðið til 6-
10 heilsársstörf í
litlu samfélagi
sem Borgarfjarðarhreppur er. Íbúar
eru skráðir 124 en 80-90 manns hafa
þar vetrarsetu. Athafnalífið er ein-
hæft, ferðaþjónusta og útgerð.
Að sögn Arngríms verður líklega
byrjað að byggja 1.000 fermetra hús
þar sem átöppun fer fram. Þar verða
einnig skrifstofa og birgðageymslur.
Vatnið verður flutt til útskipunar á
Reyðarfirði, sem er rúmlega 100 kíló-
metra leið. Flutningaskip geta ekki
lagt að bryggju í Borgarfirði.
Kostnaðaráætlun er ennþá í
vinnslu en ljóst að heildarkostnaður
við verkefnið hleypur á hundruðum
milljóna. sisi@mbl.is »14
Áforma vatnsverksmiðju
Indverskur athafnamaður hreifst af Borgarfirði eystra
Bakkagerði Frá
Borgarfirði eystra.
Vetrarsólin lék við hvurn sinn fingur í Hafnar-
fjarðarhöfninni í gær á meðan fjöldi báta lá við
bryggju á spegilsléttum sjónum og naut sólbaðs-
ins. Það mun þó ganga á með éljum næstu daga
suðvestan til á landinu og hiti verður í kringum
frostmark. Í kvöld verður snjókoma og síðar
slydda eða rigning sunnan- og vestanlands með
hlýindum. Sólin hefur því vonandi ekki sagt sitt
síðasta fyrir mestu vetrarhörkurnar.
Vetrarsól í Hafnarfjarðarhöfn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skattbyrði á Ís-
landi er sú þriðja
mesta í Evrópu
og er einungis í
Danmörku og
Svíþjóð meiri
skattbyrði en hér
á landi. Þetta má
lesa út úr nýjum
tölum frá Hag-
stofu Evrópu,
Eurostat, að
teknu tilliti til fyrirkomulags lífeyr-
isgreiðslna. Sé hlutfallið leiðrétt
samkvæmt því þá nam það 33,1% ár-
ið 2015, samkvæmt útreikningum
Samtaka atvinnulífsins.
„Skattbyrði á Íslandi er mikil
samanborið við aðrar þjóðir þegar
leiðrétt er fyrir því að á Íslandi er
sjóðsöfnunarkerfi en ekki gegnum-
streymiskerfi eins og í flestum lönd-
um í kringum okkur,“ segir Ólafur
Garðar Halldórsson, hagfræðingur
hjá Samtökum atvinnulífsins, í sam-
tali við Morgunblaðið. »16
Skattbyrði
á Íslandi sú
þriðja mesta
Peningar Skattar
eru háir hérlendis.
Tölur Eurostat
Tilkynningar um klamydíusmit eru
hlutfallslega nærri því þrefalt fleiri
hér á landi en að meðaltali í Evr-
ópu. Þetta kemur fram í skýrslu
Efnahags- og framfarastofnunar-
innar, OECD, um heilbrigðisþjón-
ustu og heilsufar í þeim löndum
sem eiga aðild að stofnuninni. Dan-
ir eru eina þjóðin þar sem tilkynn-
ingar um klamydíusmit eru hlut-
fallslega fleiri en hér.
Í skýrslunni segir m.a. að þrír af
hverjum fjórum fullorðnum Íslend-
ingum telji sig vera við mjög góða
eða góða heilsu og er þetta hlutfall
með því hæsta sem mælist meðal
OECD-þjóða.
Þar kemur einnig fram að Ísland
er það land þar sem ungbarnadauði
mælist minnstur, hér er hann 1,7 á
hver 1.000 lifandi fædd börn en
OECD-meðaltalið er 3,8 börn. Mest-
ur er ungbarnadauðinn í Rúmeníu
þar sem hann er 8,4 á hver 1.000
fædd börn. Í skýrslunni segir enn-
fremur að hér á landi séu 90% 1 árs
barna bólusett við barnaveiki, stíf-
krampa og kíghósta. Það sé undir
meðaltalstölum OECD sem eru 96%
barna. annalilja@mbl.is »20
Ísland í öðru sæti á
klamydíulista OECD