Morgunblaðið - 29.11.2016, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 29.11.2016, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2016 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Hátt í 20 íslensk sprotafyrirtæki munu taka þátt í ráðstefnunni, en um er að ræða eina stærstu tækni- og sprota- ráðstefnu í Evr- ópu.“ Þetta segir Sal- óme Guðmunds- dóttir, fram- kvæmdastjóri Icelandic Start- ups, í samtali við Morgunblaðið, en í máli sínu vísar hún til ráðstefn- unnar Slush sem fram fer í Helsinki dagana 30. nóv- ember til 1. desember næstkomandi. Salóme segir Icelandic Startups og Íslandsstofu, í samstarfi við Slush og íslenska sendiráðið í Finnlandi, standa fyrir sendiferð frumkvöðla, fjárfesta og fjölmiðla á ráðstefnuna. Tilgangur ferðarinnar er að vekja athygli á fjölbreyttum sprotafyrir- tækjum og umhverfi þeirra hér á landi, en jafnframt „að auka tengsl á milli fjárfesta og þeirra aðila sem fóstra grasrót frumkvöðla á Norður- löndum,“ að því er fram kemur í til- kynningu frá Icelandic Startups. „Ráðstefna sem þessi veitir sprotafyrirtækjum einstakt tæki- færi til að tengjast fjölmiðlum og fjárfestum. Til Helsinki koma fjár- festar hvaðanæva úr heiminum og reyna frumkvöðlarnir því að mæta vel undirbúnir til leiks,“ segir Sal- óme og bendir á að yfir 40 Íslend- ingar muni sækja ráðstefnuna. Aðspurð segir Salóme viðburð sem þennan afar mikilvægan fyrir frumkvöðla. „Ef menn mæta vel undirbúnir og með skýr markmið, þá kemur oft eitthvað gott út úr því. Svona ráðstefna er oft mikill inn- blástur enda mjög gaman að sjá hvað sprotafyrirtæki annars staðar í heiminum eru að gera.“ 15.000 manns mæta á Slush Íslenska leikjafyrirtækið Porce- lain Fortress er eitt af þeim 100 al- þjóðlegu sprotafyrirtækjum sem valin voru til að kynna viðskipta- hugmynd sína á sviði á ráðstefnunni. „Þeir fá þarna einstakt tækifæri til að kynna starfsemi sína fyrir gestum ráðstefnunnar, sem verða um 15.000 talsins,“ segir Salóme. Á meðal þeirra Íslendinga sem taka þátt í dagskrá Slush má nefna Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskr- ar erfðagreiningar, Davíð Helgason, stofnanda fjárfestasjóðsins Nordic Makers, og Sigurð Ásgeir Árnason, stofnanda Drexler. Sprotar fjölmenna á Slush  Ein stærsta tækni- og sprotaráðstefna Evrópu hefst á morgun  Hátt í 20 ís- lensk sprotafyrirtæki munu taka þátt  Mikilvægt að mæta undirbúinn til leiks Morgunblaðið/Ófeigur Frumkvöðlar Frá Slush-ráðstefnu er tók fyrir sýndarveruleika nýverið. Salóme Guðmundsdóttir Gunnar H. Eyjólfsson leikari var jarðsunginn frá Kristskirkju í Landakoti í gær. Séra Hjalti Þor- kelsson jarðsöng. Söngvararnir Alina Dubik og Hallveig Rúnarsdóttir sungu við athöfnina ásamt Kammerkór Neskirkju. Ingvar E. Sig- urðsson leikari las úr Pétri Gaut og Sveinn Ein- arsson flutti minningarorð. Líkmenn voru, talið aftan frá, Jóhannes Hall- dórsson og Bjarni Halldórsson, Bragi Björnsson og Stefán Baldursson, Baltasar Kormákur og Kristbjörg Kjeld og loks Kristján Arason og Kjartan Ólafsson. Morgunblaðið/Árni Sæberg Útför Gunnars H. Eyjólfssonar leikara Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Stjórnandi öryggis- og umhverfis- mála hjá United Silicon vonast til að ljósbogaofn kísilmálmverksmiðjunn- ar í Helguvík verði kominn í fullan rekstur á næstu dögum. Þá verði framleiðslan algerlega lyktarlaus. Mælingar sýna að mengun er langt undir viðmiðunarmörkum og þótt Umhverfisstofnun fylgist vel með þróun mála hefur ekki þótt ástæða til að bregðast sérstaklega við kvört- unum íbúa í nágrenninu. Byrjað var að þurrka ofn verk- smiðjunnar 11. nóvember. Það var gert með timbri. Það skapaði viðar- bruna með tilheyrandi reyk og lykt sem ekki má fara í gegnum hreinsi- virki verksmiðjunnar. Kristleifur Andrésson, stjórnandi öryggis- og umhverfismála, tekur fram að ein- göngu hafi verið notað hreint timbur þannig að reykurinn hafi verið hættulaus. Eftir 50 klukkutíma hitun með timbri var kveikt á ofninum. Byrjað var á lágmarks straumstyrk en auk- ið smám saman við. Kristleifur segir að ofninum sé stýrt með flóknum tölvubúnaði sem þurfi að stilla. Á ýmsu hafi gengið með það og enn sé ekki kominn fullur straumstyrkur á ofninn. Þegar ofninn kemst í fullan rekstur verði framleiðslan algerlega lyktarlaus. Kristleifur leggur áherslu á að þrátt fyrir byrjunarörð- ugleika við uppkeyrslu ofnsins hafi engin skaðleg efni sloppið út í and- rúmsloftið. Það sýni mengunarmæl- ingar. Enn kvartað Umhverfisstofnun hefur fylgst með þróuninni í Helguvík vegna kvartana sem borist hafa, sérstak- lega fyrir viku. Sigríður Kristjáns- dóttir teymisstjóri segir að talið hafi verið fyrir helgi að brunalyktin frá verksmiðjunni væri að minnka. Þá var það samdóma álit Umhverfis- stofnunar og sóttvarnalæknis að ekki væri ástæða til að grípa til sér- stakra aðgerða núna en áfram yrði fylgst með. Sigríður tekur fram að aftur hafi farið að berast kvartanir um helgina og verið sé að kanna þær. Fulltrúar frá Umhverfisstofnun munu funda með bæjarráði Reykja- nesbæjar um málið næstkomandi fimmtudag. Sérfræðingar frá framleiðendum búnaðar og starfsmenn sambæri- legrar verksmiðju í Evrópu vinna með starfsmönnum United Silicon að gangsetningu verksmiðjunnar og þjálfun starfsmanna. Kristleifur seg- ir að ekkert í þessu ferli hafi komið þeim á óvart. Það séu svo margir þættir sem þurfi að stilla saman. Kristleifur tekur fram að heilsufar starfsmanna sé mjög gott. Enginn hafi kvartað undan óþægindum vegna mengunar. Ofninn að komast í fullan rekstur  Framleiðsla í kísilmálmverksmiðju United Silicon á að verða lyktarlaus þegar ofninn nær fullum hita  Mælingar sýna að þrátt fyrir byrjunarörðugleika er mengun í Helguvík undir viðmiðunarmörkum Kísilmálmur Verksmiðja United Silicon meðan á byggingu stóð. Utanríkisráðu- neytið ætlar að greiða íslenskum fjölmiðli 10 millj- ónir króna til að fjalla um þróun- armál í eitt ár. Á vef Ríkiskaupa er auglýst eftir um- sækjendum, en ekki er um formlegt útboð að ræða. Tilgangurinn er sagður sá að auka umfjöllun frjálsra fjölmiðla um þró- unarmál. Í lýsingu verkefnisins kemur fram að stjórnvald sem fari með opinbera þróunarsamvinnu hafi ríkar skyldur um upplýsingagjöf um málaflokkinn. Þessar skyldur taki einkum til þess að upplýsa hvernig skattfé sé varið og hvaða árangur hafi náðst. Verkefnið er sagt til reynslu í eitt ár með áskilnaði um framlengingu tvisvar til eins árs í senn. Þeir sem bjóða vilja í verkefnið þurfa að vera fréttamiðlar á íslenskum fjölmiðla- markaði og reka vefmiðil með að lág- marki 120 þúsund flettingar á viku. Þá eru einnig kröfur um fjölda frétta, en birta þarf að lágmarki 60 fréttir um þróunarmál mánaðarlega og fjórar fréttaskýringar á mánuði. Greiða fjöl- miðlum fyrir umfjöllun Jafnaðarmenn og Sjálfstæðis- flokkurinn stofn- uðu til meiri- hlutasamstarfs í bæjarstjórn Fjallabyggðar í gærkvöldi. Mál- efnasamning- urinn milli flokkanna tveggja var sam- þykktur af Jafnaðarmannafélagi Fjallabyggðar og fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins í Fjallabyggð. Steinunn María Sveinsdóttir, oddviti Jafnaðarmanna, verður áfram formaður bæjarráðs og Helga Helgadóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, verður forseti bæjarstjórnar. Þá verður Gunnar I. Birgisson áfram bæjarstjóri Fjallabyggðar. Meirihluti Jafn- aðarmanna og Fjallabyggðarlist- ans féll á dögunum þegar Kristinn Kristjánsson, fulltrúi F-listans, gekk úr samstarfinu. Jafn- aðarmenn báru við trúnaðarbresti á meðan Kristinn segir vegið að æru sinni og að hann muni tjá sig betur um málið síðar. laufey@mbl.is Jafnaðarmenn og Sjálfstæðisflokkur saman í Fjallabyggð Gunnar I. Birgisson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.