Morgunblaðið - 29.11.2016, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2016
Upplýsingar og pantanir í síma 483 4700
booking@hotelork.is | www.hotelork.is
Gjafabréf áHótel Örk
Notaleg upplifun í sveitasælunni á Hótel Örk er tilvalin jólagjöf
Andrew Roberts, sagnfræðingurog blaðamaður, skrifaði grein
í The Daily Telegraph í gær og
furðaði sig á viðbrögðum leiðtoga
Vesturlanda við fregnum af and-
láti Fidels Castro. Roberts gagn-
rýndi að leiðtogar lýðræðisríkja
skuli ekki geta sagt opinskátt hvað
illir einræðisherrar á borð við
Castro hafi verið;
margfaldir mann-
réttindabrjótar,
kvalarar og harð-
stjórar.
Hann benti á aðundirsátar
harðstjórans hafi, samkvæmt Am-
nesty International, hneppt 8.600
manns í fangelsi af pólitískum
ástæðum, og það aðeins á síðasta
ári.
Þrátt fyrir þetta hafi leiðtogarheimsins logið til um hvers
konar maður þessi harðstjóri hafi
raunverulega verið.
Roberts nefnir sem dæmi umþessa leiðtoga þá Jean-Claude
Juncker, forseta framkvæmda-
stjórnar ESB, Jimmy Carter, fyrr-
verandi forseta Bandaríkjanna,
Francois, Hollande, forseta Frakk-
lands, og síðast en ekki síst for-
sætisráðherra Kanada, Justin Tru-
deau, sem sagði um Castro að
hann hefði um langt skeið verið
„vinur Kanada og fjölskyldu minn-
ar.“
Það er mikið til í því hjá Robertsað það er töluvert áhyggjuefni
þegar leiðtogar á Vesturlöndum
þora ekki að segja sannleikann um
helstu harðstjóra heimsins.
Í Norður-Kóreu hefur verið lýstyfir þriggja daga þjóðarsorg
vegna fráfalls Fidels Castro. Það
kemur ekki á óvart og verður ein-
hverjum leiðtogum Vesturlanda
vonandi umhugsunarefni.
Fidel Castro
Undarleg viðbrögð
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 28.11., kl. 18.00
Reykjavík 1 skýjað
Bolungarvík 2 rigning
Akureyri 3 skýjað
Nuuk -8 skýjað
Þórshöfn 9 rigning
Ósló -3 léttskýjað
Kaupmannahöfn -1 heiðskírt
Stokkhólmur 2 skýjað
Helsinki -4 léttskýjað
Lúxemborg 0 heiðskírt
Brussel 1 heiðskírt
Dublin 7 skýjað
Glasgow 4 alskýjað
London 5 léttskýjað
París 4 heiðskírt
Amsterdam 1 heiðskírt
Hamborg 0 heiðskírt
Berlín 0 léttskýjað
Vín 1 heiðskírt
Moskva -5 snjóél
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 13 léttskýjað
Barcelona 14 léttskýjað
Mallorca 15 skúrir
Róm 13 heiðskírt
Aþena 16 skýjað
Winnipeg 1 snjókoma
Montreal -1 alskýjað
New York 6 léttskýjað
Chicago 8 alskýjað
Orlando 24 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
29. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:42 15:52
ÍSAFJÖRÐUR 11:16 15:27
SIGLUFJÖRÐUR 11:00 15:09
DJÚPIVOGUR 10:18 15:14
Stofnað hefur verið ungmennaráð
Menntamálastofnunar og er það
skipað táningum á aldrinum 14 til 18
ára, alls staðar að af landinu. Ráðinu
er ætlað að vera stofnuninni innan
handar með ráðgjöf um málefni og
verkefni er varða börn og ungmenni.
Alls skipa 22 ungmenni ráðið, þ.e.
12 stúlkur og 10 drengir, og var hóp-
urinn tilnefndur af samstarfsaðilum
Menntamálastofnunar í kjölfar sam-
ráðsfundar í vor með fulltrúum úr
hinum ýmsu ungmennaráðum.
Fulltrúar í ungmennaráði eru:
Anna Mínerva Kristinsdóttir; Ást-
þór Jón Tryggvason; Berglín Sólbrá
Bergsdóttir; Bjarki Steinar Við-
arsson; Brynja Rún Guðmunds-
dóttir; Eyrún Magnúsdóttir; Guð-
munda Bergsdóttir; Guðný Rós
Jónsdóttir; Gunnar Ágústsson;
Haukur Orri Kristjánsson; Hulda
Margrét Sveinsdóttir; Inga Huld
Ármann; Ingibjörg Ragnheiður
Linnet; Jón Ragnar Magnússon;
Júlíus Viggó Ólafsson; Jökull Ingi
Þorvaldsson; Kristján Helgason;
Marta Valdís Reykdal; Sara Rós
Hulda Róbertsdóttir; Sigrún Birna
Steinarsdóttir; Sigurður Ingvi
Gunnþórsson og Sindri Smárason.
Ungmenni
skipa ný-
stofnað ráð
Ætlað að aðstoða
Menntamálastofnun
Ísland og Svíþjóð reka lestina á
Norðurlöndum í alþjóðlegum sam-
anburði í almennum lestri, stærð-
fræðikunnáttu og vísindaþekkingu
nemenda, samkvæmt Nordic Stat-
istics 2016.
Í skýrslunni, sem kemur út á veg-
um Norðurlandaráðs, er að finna
margvíslegan fróðleik um stöðu
Norðurlanda í samanburði við ESB,
Bandaríkin og Japan. Einnig er
staða hvers lands skoðuð fyrir sig í
einstaka málaflokkum.
Finnar koma best út þegar kemur
að menntun en Ísland og Svíþjóð
reka lestina, í það minnsta þegar
horft er til fyrrnefndra flokka. Þar
eru bæði lönd töluvert fyrir neðan
meðaltal OECD.
Hlutfall háskólastúdenta á aldrin-
um 20-39 ára hefur hækkað á öllum
Norðurlöndum en hlutfallið er næst-
hæst á Íslandi, örlítið lægra en í
Danmörku.
Ísland vermir hins vegar botninn
með Noregi þegar kemur að fjár-
munum til rannsókna og menntunar,
miðað við hlutfall af þjóðarfram-
leiðslu. Lækkar hlutfall Íslands tölu-
vert frá árunum 2000 og 2005 en þá
var Ísland aðeins á eftir Svíþjóð og
Finnlandi. Miðað er við tölur frá
árinu 2014 og því óvíst hver staða Ís-
lands er í dag í þessum samanburði.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Skýrsla Nordic Statistics 2016 er komin út. Þar má finna ýmsan fróðleik.
Ísland á eftir í mennta-
málum á Norðurlöndum