Morgunblaðið - 29.11.2016, Qupperneq 9
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2016
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
H
ér
er
að
ei
n
s
sý
n
d
u
r
h
lu
ti
af
b
ílu
m
íb
o
ð
i.
Fu
llt
ve
rð
er
ve
rð
hv
er
s
b
íls
m
eð
au
ka
b
ún
að
i.
A
uk
ab
ún
að
ur
á
m
yn
d
um
g
æ
ti
ve
rið
an
na
r
en
ía
ug
lý
st
um
ve
rð
d
æ
m
um
.*
Fi
m
m
ár
a
áb
yr
g
ð
g
ild
ir
ek
ki
m
eð
at
vi
nn
ub
ílu
m
.
KJARAKAUP 8.595.000 kr.
Audi A4 B9 Avant 4x4 Sport 2.0 TDI / Dísil / Sjálfskiptur
Fullt verð: 9.550.000 kr.
955.000 kr.
Afsláttur
HEKLA býður einstök kjör á takmörkuðu magni nýrra
sýningarbíla, reynsluakstursbíla og valdra bíla frá Volkswagen,
Skoda, Mitsubishi og Audi – allir með fimm ára ábyrgð.
Nýttu tækifærið og fáðu þér nýjan gæðabíl fyrir jólin!
Nú er tækifærið
að fá sér nýjan bíl!
KJARAKAUP 4.430.000 kr.
VW Passat Highline 1.4 TSI / Bensín / Sjálfskiptur
Fullt verð: 5.330.000 kr.
900.000 kr.
Afsláttur
KJARAKAUP 4.990.000 kr.
VW Amarok Double Cab 2.0 TDI / Dísil / Beinskiptur*
Fullt verð: 5.840.000 kr.
850.000 kr.
Afsláttur
KJARAKAUP 2.450.000 kr.
Skoda Rapid Spaceback Ambition 1.2 TSI / Bensín / Beinsk.
Fullt verð: 2.890.000 kr.
440.000 kr.
Afsláttur
kr.
Intense / 4x4 / Dísil / Sjálfskiptur
Fullt verð: 4.990.000 kr.
kr.
Afsláttur
KJARAKAUP 4.490.000
MMC ASX
500.000
KJARAKAUP 3.190.000 kr.
VW Cross Polo 1.2 TSI / Bensín / Sjálfskiptur
Fullt verð: 3.580.000 kr.
390.000 kr.
Afsláttur
Jafntefli varð í tólftu og síð-ustu einvígisskák MagnúsarCarlsen og Sergei Karjakin íNew York í gær eftir aðeins
24 leikja dauflega viðureign. Loka-
niðurstaðan er því 6:6 og fleiri skákir
verða ekki tefldar með venjulegum
umhugsunartíma sem á tæknimáli
útleggst 100 30 á fyrstu 40 leikina,
50 30 á næstu 20 leiki og síðan 15 30
til að ljúka skákinni. Einvígið verður
til lykta leitt í skákum með styttri
umhugsunartíma.
Í gær gerði Magnús Carlsen enga
tilraun til þess að nýta sér það hag-
ræði sem felst í því að vera með hvítt
og virtist sáttur með að útkljá ein-
vígið í fjórum at-skákum sem tefldar
verða næsta miðvikudag hinn 30.
nóvember sem er afmælisdagur
hans. Hann verður þá 26 ára gamall.
Úrslitaskákirnar hefjast kl. 19 að ís-
lenskum tíma og tímamörkin eru 25
10 þ.e. hvor skákmaður fær 25 mín-
útur á alla skákina að viðbættum 10
sekúndum sem bætast við tímann
eftir hvern leik. Verði enn jafnt tefla
þeir tvær hraðskákir með tíma-
mörkunum 5 3 og ef ekki hafa feng-
ist úrslit þá tekur við bráðabani en
sá sem dregur hvítt verður að vinna
og hefur betri tíma svo munar mín-
útu, 5 3 á móti 4 3. Margir hafa kosið
að tefla með svörtu undir þeim
kringumstæðum.
Það er því ljóst að úrslitin í heims-
meistaraeinvíginu munu ráðast á
miðvikudaginn en skákunnendur
geta búið sig undir magnaða baráttu
því styttri tímamörkin bjóða yfirleitt
upp fjörugar skákir og mikla
spennu. Magnús sigurstranglegri en
hann hefur orðið heimsmeistari í at-
skák árin 2014 og 2015. Í gær féllu
leikir þannig en skákin stóð í rúm-
lega 30 mínútur:
New York 2016; 12. einvígisskák:
Magnús Carlsen – Sergei Karjak-
in
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rf6
Berlínar-vörnin hefur verið afar
vinsæl með fremstu skákmanna æ
síðan Kramnik beitti henni í einvígi
sínu við Kasparov árið 2000.
4. 0-0 Rxe4 5. He1 Rd6 6. Rxe5
Be7 7. Bf1 Rxe5 8. Hxe5 0-0 9. d4
Bf6 10. He1 He8 11. Bf4 Hxe1 12.
Dxe1 Re8 13. c3 d5 14. Bd3 g6 15.
Ra3 c6 16. Rc2 Rg7 17. Dd2 Bf5 18.
Bxf5 Rxf5 19. Re3 Rxe3 20. Dxe3
De7 21. Dxe7 Bxe7 22. He1
Meinlaus leikur sem inniheldur þó
eina gildru, 22. … Kf8 tapar vegna
23. Bh6+! Ke8 24. Bg5 og biskupinn
fellur.
22. … Bf8 23. Kf1 f6 24. g4 Kf7
Jafntefli.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
AFP
Einvígi Magnús Carlsen og Sergei Karjakin á fundi með fjölmiðlum í New
York í gær áður en lokaumferðin fór fram. Þar varð jafntefli enn og aftur.
Úrslit ráðast
á afmælisdegi
Magnúsar Carlsen
Um árabil hefur starfsfólk Mat-
vælastofnunar talið að eggjafram-
leiðandinn Brúnegg hafi blekkt
neytendur með sölu sinni á vistvæn-
um eggjum. Skilyrði hafi ekki verið
uppfyllt til að geta merkt framleiðsl-
una sem vistvæna.
Þetta kom fram í umfjöllun Kast-
ljóss í gærkvöldi en eggin hafa verið
merkt sem vistvæn landbúnaðar-
afurð og seld á tæplega 40% hærra
verði en venjuleg búhænuegg.
Matvælastofnun hefur ítrekað
gert athugasemdir við aðbúnað á
eggjabúum Brúneggja og lagt dag-
sektir á fyrirtækið sem nema 2,6
milljónum króna.
Samkvæmt umfjöllun Kastljóss
hafa fjölmargar athugasemdir verið
gerðar á
eggjabúum Brún-
eggja frá árinu
2007 og eftir
miklar þving-
unaraðgerðir fór
fyrirtækið loks að
kröfum um dýra-
velferð.
Í umfjölluninni
þvertók framkvæmdastjóri Brún-
eggja, Kristinn Gylfi Jónsson, fyrir
það að neytendur hefðu verið
blekktir. Sagði hann fyrirtækið jafn-
an hafa brugðist við athugasemdum
Matvælastofnunar og gert úrbætur.
Í kjölfar Kastljóssþáttarins upp-
lýsti Melabúðin að brúnegg yrðu
tekin úr sölu, að sinni.
Telja Brúnegg hafa
blekkt neytendur