Morgunblaðið - 29.11.2016, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 29.11.2016, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Freyja Gylfa Pels Karl og Ester, eigendur Pelsins. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Ester Ólafsdóttir og Karl Steingrímsson opnuðu litla búð við Njálsgötu 14 árið 1976 eða fyrir nákvæmlega 40 árum. Búðin fékk nafnið Pelsinn og er enn rekin í dag af þeim hjónum og hefur alltaf verið staðsett í miðbæ Reykjavíkur. Nú er verslunin komin í nýtt og glæsilegt húsnæði við Tryggvagötu. „Við stoppuðum stutt við á Njálsgötunni og vorum þar í rúm fjögur ár þegar við færðum okkur yfir í Kirkjuhvol á móts við Dómkirkjuna. Þaðan fórum við svo fyrir að verða fjórum árum yfir á Tryggvagötu í nýtt húsnæði.“ Margt breyst á 40 árum Verslunarrekstur í miðbænum hefur tekið miklum breytingum á þeim 40 árum sem hjónin Ester og Karl hafa rekið verslun sína og bendir Ester sérstaklega á þróunina sem fylgir fjölgun ferðamanna. „Bara uppbyggingin hérna við Tryggva- götuna er ótrúleg en það eru veitingastaður og verslanir á hverju horni. Miðbærinn allur hefur tekið stakkaskiptum á mjög skömmum tíma. Mér finnst ég sjá mun á honum á hverju ári,“ segir Ester og bætir því við að ferðamenn sæki ekki bara í veitingastaði heim heldur einnig verslanir bæjarins. „Ferðamenn sækja mikið í Pelsinn og þeir koma ekki bara til að skoða.“ Fjölgun ferðamanna er ekki eina breyt- ingin sem Ester hefur orðið vör við á síðustu 40 árum því hún segir yngra fólk sækja verslunina í auknum mæli. „Auðvitað hefur mjög margt breyst á þessum 40 árum sem við höfum rekið Pels- inn en það er eftirtektarvert hvað yngra fólk er farið að versla meira en áður. Viðskipta- vinir okkar voru gjarnan fólk sem komið var yfir það sem kalla mætti stærsta hjallann í að koma sér upp heimili. Það er því ánægju- leg breyting að sjá fólk á öllum aldri koma hingað inn,“ segir hún. Vildu selja fallegar flíkur Hjónin hafa starfað hlið við hlið í 40 ár og segir Ester samstarfið alltaf hafa verið gott. „Okkur leiðist aldrei og ég er ekki enn bú- in að fá nóg af honum,“ segir hún sposk á svip en þau opnuðu Pelsinn með það í huga að bjóða viðskiptavinum sínum upp á fal- legar flíkur úr góðu og klassísku sniði. „Feldskerum hefur fjölgað í dag og versl- unum sem selja skinnvörur en um tíma vor- um við ein á markaðnum. Upphaflegt mark- mið okkar hefur þrátt fyrir það ekkert breyst, þ.e. að selja fallegar flíkur. Flíkur sem eru góð fjárfesting en ég á 30 gamlan jakka sem ég nota enn,“ segir Ester. Það sem einkennir Pelsinn er eigendurnir, þau vinna saman, eru alltaf til taks og þrátt fyrir að loka versluninni á hverju sumri í tvo til þrjá mánuði er alltaf hægt að taka upp tólið og hringja í annaðhvort Karl eða Ester. Verslunin er m.ö.o. alltaf opin. Fagna 40 árum saman í Pelsinum  Eigendur og viðskiptavinir Pelsins fögnuðu fertugsafmæli verslunarinnar um helgina  Reksturinn hófst árið 1976 á Njálsgötu  Hefur alltaf verið í miðbænum en er nú rekinn við Tryggvagötu Verslun Pelsinn er nú til húsa í nýju húsnæði við Tryggvagötu sem Ester Ólafsdóttir og Karl Steingrímsson komu sjálf að uppbyggingu á. FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2016 Vertu upplýstur! blattafram.is Á HVERJUM DEGI STUÐLUM VIÐ MÖRG AÐ KYNFERÐISOFBELDI MEÐ ÞVÍ AÐ LÍTA Í HINA ÁTTINA. Í HVAÐA ÁTT HORFIRU? Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Tvær í einni Kr. 8.900 Str. M-XXXL Litir: Vínrautt, svart, blátt Jólagjöfin hennar Tryggvagötu 18 - Sími 552 0160 - Opið alla virka daga kl. 13.00-18.00 SMÁRALIND www.skornirthinir.is Margar gerðir af Heelys rúlluskóm Verð 12.995 Ný sending með ljósum Rangur myndatexti Rangur texti birtist með meðfylgj- andi mynd af Gunnari Eyjólfssyni í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um liðna helgi. Myndin er af Gunnari í hlutverki Prosperó í Ofviðrinu eftir Shakespeare, í sýningu Þjóðleik- hússins. Beðist er velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.