Morgunblaðið - 29.11.2016, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2016
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF.
KLETTHÁLSI 3
110 REYKJAVÍK
SÍMI: 540 4900
NETFANG: info@arctictrucks.is
www.arctictrucks.com
VÖNDUÐ JEPPADEKK
FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR
VÖNDUÐ OG HLJÓÐLÁT
DEKK UNDIR FLESTAR
GERÐIR JEPPA OG
JEPPLINGA.
STÆRÐIR FRÁ 29-44 TOMMU.
ÖLL ALMENN
DEKKJAÞJÓNUSTA
TÍMABÓKANIR
Í SÍMA 540 4900
Ljósmynd/Logi Hilmarsson
Gestgjafar Dominique og Jean stofnuðu Höfn árið 2007 og hafa tekið á móti fjölda lista- og fræðimanna síðan.
Hildur Loftsdóttir
hildurl@mbl.is
Margir muna eftir Dom-inique Poulain, frönskuleikbrúðukonunni semsetti svip sinn á listalíf
Reykjavíkur á níunda áratugnum.
„Ég var grímu- og leikbrúðu-
gerðarkona og vann fyrir bíómyndir,
sjónvarp, auglýsingar og leikhús. Í
Frakklandi hafði ég mikið unnið í
leikbrúðuleikhúsum og árið 1981 var
mér boðið að taka þátt í þriggja mán-
aða námskeiði fyrir upprennandi leik-
brúðugerðarfólk í Charleville-
Mézieres, þar sem alþjóðleg leik-
brúðuhátíð er haldin. Þar kynntist ég
Messíönu Tómasdóttur, sem hafði
áhrif á að ég ákvað að fara í þrjá mán-
uði til Íslands – sem urðu tíu ár. Ég
bjó á Íslandi 1982-1992,“ segir Dom-
inique sem í dag hefur á heimili sínu í
Marseille listamannaíbúðina Höfn,
sem margir íslenskir listamenn
þekkja til og hafa dvalið í.
Hugmyndin mótast
Eftir Íslandsdvölina flutti Dom-
inique aftur til Frakklands með son
sinn Loga sem fæddist á Íslandi, og í
Marseille fann hún ástina í Jean,
besta vini sínum frá mennta-
skólaárunum.
„Við Jean stofnuðum Höfn árið
2007 eftir að hafa mótað hugmyndina
í nokkur ár. Á árunum 1992-2007
hafði ég bara efni á að fara þrisvar til
Íslands, en aftur á móti bauð ég
mörgum íslenskum vinum mínum
heim til okkar í Marseille, og þeir
höfðu mjög gaman af því,“ segir
Dominique
„Annað sem hafði áhrif á að við
komum á fót listamannabústaðnum
Höfn var að húsið okkar er mjög
stórt. Það er gamall bóndabær
byggður árið 1902, kannski ekki mjög
fallegt en sjarmerandi hús. Þegar
dóttir Jeans og Logi flugu úr hreiðr-
inu fannst okkur það of stórt og fór-
um að taka að okkur að hýsa lista-
menn sem voru að vinna í Marseille
til skamms tíma.“
Skrifað á marga vegu
Núna er í Höfn lítil íbúð með
öllu; svefnherbergi, baðherbergi, eld-
húsi og vinnuhorni, umkringd litlum
fallegum garði.
„Þetta er allt saman alveg prí-
vat, þótt íbúðin sé áföst okkar húsi.
Fólkið sem dvelur þar getur verið al-
veg út af fyrir sig, en ég er alltaf
tilbúin að aðstoða og hjálpa við hvað
sem er. Í Höfn dvelja alls konar lista-
menn, árið um kring.
Ég talaði fyrst um við Jean að
við skyldum bjóða rithöfundum,
skáldum og þýðendum að dvelja
þarna. Hugmyndin var bókmennta-
tengd frá mínu sjónarhorni, líka af
því að það er engin vinnustofa í íbúð-
inni, eins og t.d. fyrir myndhöggvara.
En svo vildum við víkka skilgrein-
inguna út og bjóða líka tónlistarfólki,
tölvufræðingum og fræðimönnum
hvers konar. Öllu fólki sem er að
„skrifa“ á sinn hátt; fólki sem þarf
Listamenn eiga athvarf
í Höfn Dominique
Dominique Poulain bjó
um áratugaskeið á Ís-
landi og hefur síðan hald-
ið tengslum við land og
þjóð sem hún lítur á sem
sína. Síðustu ár hefur
hún auðgað líf margs ís-
lensks listamannsins sem
hefur dvalið hjá henni í
öruggri Höfn í Marseille.
Hvaða tækifæri fá innflytjendur til
náms og starfa og hvernig nýtist fjöl-
breyttur og dýrmætur mannauður
þeirra samfélaginu? Þessum spurn-
ingum verður m.a. velt upp á
málþingi Rauða krossins um mann-
auð innflytjenda kl. 13-17 í dag,
þriðjudaginn 29. nóvember, í fund-
arsal Arion banka, Borgartúni 19.
Sveinn Kristinsson, formaður Rauða
krossins, setur málþingið, og Eliza
Reid, forsetafrú, flytur opnunarerindi.
Yfirskrift erindis Davors Puruðiã,
lögfræðings, er Mat á menntun - störf
við hæfi. Hafa innflytjendur sömu
tækifæri, hverjar eru helstu hindr-
anir? og Amal Tamimi, stjórnmála-
fræðingur og framkvæmdastjóri
Jafnréttishúss, flytur erindið Að lifa
og starfa á íslensku. Tækifæri inn-
flytjenda með litla formlega mennt-
un.
Eftir hádegishlé fjallar Sóley Jóns-
dóttir, ráðgjafi við móttöku flótta-
fólks í Noregi, um fyrirkomulag Norð-
manna við mat á menntun erlendis
frá, og Þórarinn Ævarsson, fram-
kvæmdastjóri IKEA, er með erindi um
starfsfólk af fjölþjóðlegum uppruna
og samfélagslega og siðferðilega
ábyrgð atvinnurekenda.
Að lokum verða umræður í hópum
um hvernig við getum gert betur.
Málþingið, sem fer fram á íslensku
og verður túlkað á ensku, er öllum op-
ið og enginn aðgangseyrir.
Málþing Rauða krossins um mannauð innflytjenda
Hvaða tækifæri fá innflytjendur?
Morgunblaðið/RAX
Fjölgar hratt Fjöldi nemenda af erlendum uppruna er í skólum landsins.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Þótt bækur séu í lykilhlutverki á
bókasöfnum landsins, er þangað
margt fleira að sækja og þar má
margt læra. Heilabrot er til dæmis
fastur liður á þriðjudögum hjá Bóka-
safni Kópavogs, aðalsafninu við
Hamraborg, og er þá nemendum
grunnskóla boðið upp á ókeypis
heimanámsaðstoð undir leiðsögn
kennara. Nemendur þurfa ekki að
skrá sig og þeim er í lófa lagið að
mæta, því engin er mætingarskyldan.
Þá er ýmislegt á prjónunum hjá
Hannyrðaklúbbnum Kaðlín sem kem-
ur saman á 2. hæð safnsins á kl. 14 til
16 á hverjum miðvikudegi og prjónar
af fingrum fram. Klúbbfélagar gætu
svo dokað við í hálftíma á morgun
eftir að prjónaskapnum lýkur og hlýtt
á nemendur Tónlistarskóla Kópavogs,
sem hyggjast gleðja safngesti á að-
ventunni með klassískri jólatónlist,
en þeir hefja leikinn á morgun kl.
16.30. Það er margt síðra en að
bregða sér á bókasafn í svartasta
skammdeginu.
Vefsíðan www.bokasafn-
kopavogs.is/
Tónlist Nemendur Tónlistarskóla
Kópavogs gleðja gesti á aðventunni.
Nám, prjón
og tónlist