Morgunblaðið - 29.11.2016, Side 13

Morgunblaðið - 29.11.2016, Side 13
Ljósmynd/Matthías Kristiansen Útsýni Fagurt suðurevr- ópskt umhverfi blasir við úr gluggunum í Höfn. bara blað og penna eða tölvu til að vinna sína vinnu. Ljósmyndari sem hefur komið til okkar, segist vera að „skrifa“ borgina þegar hann myndar Marseille. Við köllum Höfn „une es- cale d’écriture(s)“ sem má þýða sem ritviðkomuhöfn.“ Höfn í mörgum skilningi „Mér datt strax í hug að þetta ætti að heita Höfn. Marseille er risa- stór höfn, en við búum í norðurhverfi borgarinnar, sem hefur á sér slæmt orð, en sem við elskum og viljum vernda. Rétt hjá okkur er önnur og minna heillandi iðnaðarhöfn. Höfn er fyrir mér eins og á íslensku og ensku „haven“, staður sem maður er öruggur á, en líka „harbour“ þar sem fólk vinn- ur. Mér fannst því nafnið passa vel til að tengja Marseille og Reykjavík, jafn- vel þótt Frakkar geta ekki borið það fram,“ segir Dominique og hlær. „Þótt nafnið sé íslenskt og félag- ið pinkulítið er það samt alþjóðlegt. Ég hef tekið á móti fólki alls staðar að úr heiminum, eins og sjá má á heimasíðu Hafn- ar. Nú síðustu ár hafa komið margir Íslendingar og sumir oftar en einu sinni.“ Dominique segir mjög misjafnt hversu lengi fólk dvelji hjá þeim, en oftast sé það í einn til tvo mánuði, en það megi ekki vera lengur en í fjóra mánuði. „Það er ekki bannað að vera bara í eina viku, en það er bara rétt svona til að finna lyktina af Marseille og lista- mannaíbúðinni, kynnast okkur og sjá hvort fólk haldi að þetta sé rétti stað- urinn fyrir það til að koma og vinna á.“ Nýir vinir og gönguferðir Mikilvægur þáttur í starfsemi Hafnar er að koma gestunum í sam- band við listamenn og fræðimenn í Marseille. „Jean er kennari í myndlistar- skólanum í Aix-en-Provence, og við þekkjum margt fólk í lista- og fræði- mannageiranum. Ég byrja alltaf á því að kynna gestinum okkar hverfið og sögu þess. Síðan finn ég út hvað hann Góður fé- lagsskapur Ragnar Helgi Ólafsson, fjöl- listamaður, og kisan Pastisse njóta góðs af einu af dá- semdarmat- arboðum Dom- inique. Nánari upplýsingar: www.hofn.free.frÁ góðri stund Hjónin Linda Vilhjálmsdóttir og Mörður Árnason með Jean og Dominique sem sýndu þeim syðsta hluta Marseille-borgar þarf til þess að fá sem mest út úr dvöl sinni í Höfn og í Marseille. Oft held ég matarboð og kynni hann fyrir einum af vinum okkar sem mér finnst hann eiga eitthvað sameiginlegt með. Við bjóðum fólki með okkur á tónleika og alls konar uppákomur, og á hverjum degi er ég með hugmynd að einhverju skemmtilegu að gera.“ Höfn er líka hluti af íbúasam- tökum norðurhluta Marseille, sem nefnist „Hotel Du Nord“ sem er reyndar titill á mjög frægri gamalli bíómynd. „Það er mikil saga í þessu hverfi og samtökin bjóða upp á göngutúra með einstakri leiðsögn íbúanna sem oftar en ekki eru fræðimenn. Gest- irnir okkar hafa haft mjög gaman af því að taka þátt í þeim.“ Ísland er líka landið mitt „Hjá okkur er ekkert opinbert val eins og í frægum og stórum lista- residensíum, og við viljum ekki fá fólk af því að það er frægt eða hefur gefið frá sér visst mikið efni. Ef þú ert ung- ur og upprennandi listamaður, sem hefur jafnvel aldrei gefið neitt út, þýðir það alls ekki að þú komist ekki að hjá okkur í Höfn. Listamennirnir senda okkur upplýsingar um sig og verkefnið sem þeir ætla að vinna að í Höfn, og við veljum eftir því hvort okkur finnist við hafa eitthvað að bjóða þeim sem skiptir þá máli og getur auðgað líf manneskjunnar og listamanninn sem hún geymir,“ segir Dominique, sem óskar þess að fólk gæti fengið styrk frá landinu sínu til að dvelja í Höfn, en hún segir allt of mikla skriffinnsku fylgja því að sækja um styrki frá franska ríkinu. „Þess vegna þarf fólk að borga smá leigu sem er 490 evrur á mánuði, en það er allt innifalið í því, auk þess sem ég þvæ af fólki föt og rúmfatnað og er alltaf boðin og búin að hjálpa.“ Hefur Höfn hjálpað þér að halda íslenskunni þinni svona vel við? „Ísland er alveg jafnmikið landið mitt og Frakkland er. Ég lærði þetta tungumál og hef reynt að geyma eins mikið af því inni í mér og ég hef get- að. Nú koma margir Íslendingar til mín að dvelja í Höfn, sem er auðvitað gott tækifæri til þess að æfa mig. Sonur minn býr á Íslandi og þar á ég líka ömmustrákinn Úlf, svo ég reyni núorðið að fara einu sinni á ári að heimsækja þá,“ segir Dominique að lokum. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2016 Grunnur að góðu lífi 34 ára reynsla í fasteignasölu Þorlákur Ómar Einarsson, löggiltur fasteignasali. Sími 820 2399 thorlakur@stakfell.is Sam Rees, aðjunkt við Listaháskóla Íslands, heldur erindið The crude, the bad and the ugly kl. 12.15 á morgun, miðvikudaginn 30. nóvember, í húsa- kynnum skólans í Þverholti 11. Yf- irskrift erindisins, sem Rees flytur á ensku, mætti þýða sem hinn óheflaði, hinn vondi og hinn ljóti, og er það hluti af Sneiðmynd, fyirlestraröð hönnunar- og arkitektúrdeildar. Í fyrirlestrinum mun Rees lýsa verkferlum, núverandi þráhyggju sinni og áhrifum frá sviði DIY- menningar, teikninga, teiknimynda- sagna og kvikmynda. Hugsanlega mun hann auk þess fjalla um boð (og bönn) við gerð rafskauta úr bréfak- lemmum til að knýja flug „Ronald Macdonalda“, óstarfhæfi íslensks víkinga-kvikmyndahúss í anda 9. ára- tugarins, dulinn öfuguggahátt í Twi- light-þríleiknum, arkitektúr gervi- gæludýra, afríska endurgerð á Spiderman, sérvitringa með vatns- þráhyggju frá miðri 18. öld auk þess að syngja lög um draugalim Kevins Bacon. Fyrirlesturinn er opinn almenningi. Sneiðmynd Sam Rees í Listaháskóla Íslands Fyrirlestraröð Sam Rees kemur víða við í fyrirlestri sínum, t.d. fjallar hann um áhrif frá sviði DIY-menningar, teikninga, teiknimyndasagna og kvikmynda. Hinn óheflaði, vondi og ljóti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.