Morgunblaðið - 29.11.2016, Side 23

Morgunblaðið - 29.11.2016, Side 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2016 ✝ Ármann ÓlafurSigurðsson fæddist 25. ágúst 1921 í Neskaupstað. Hann lést á Land- spítalanum 21. nóv- ember 2016. Hann var sonur hjónanna Halldóru Sigurðardóttur frá Krossi í Mjóafirði, f. 1886, d. 1921, og Sigurðar Jónssonar, formanns og skipstjóra í Nes- kaupstað, f. 1888, d. 1975. Al- systkini Ármanns voru Jón, f. 1911, d. 1948, Björg, f. 1915, d. 2002, Sigríður, f. 1918, d. 2008, og Sigdór tvíburabróðir hans, f. 1921, d. 2014. Samfeðra voru Sigurbjörg, f. 1926, d. 1948, Rögnvaldur, f. 1928, d. 1984, og Hrafnhildur, f. 1932, d. 2006. Sjómennskan togaði hann til sín ungan að árum, sem síðan leiddi til þess að hann fór í Stýri- mannaskólann í Reykjavík og út- skrifaðist þaðan 1945. Árið 1945 kvæntist hann Guðfinnu Sigríði sem hann var stýrimaður og skipstjóri á bátum og togara. Þau fluttu til Hafnarfjarðar 1955, þar sem hann starfaði hjá Steinull hf. og Rafgeymum hf. Árið 1982 keyptu þau Rafgeyma og stofn- uðu í framhaldinu fyrirtækið Rafgeymasöluna sem Ármann rak til dauðadags og er til húsa á Dalshrauni 17. Ármann var áhugasamur stangveiðimaður, bæði á silung og lax, og gegndi ýmsum trún- aðarstörfum fyrir Stangveiði- félag Hafnarfjarðar, m.a. for- mennsku í nokkur ár. Þegar silungs- og laxveiði sleppti á haustin tók skotveiði, m.a. gæsa- veiði við – friðsæld Hlíðarvatns- ins vék fyrir djúpum skurðum Landeyjanna. Sambýliskona Ármanns frá 1991 var Sigríður Hrólfsdóttir, f. 1955, sem deildi veiðiáhuga hans. Dætur Sigríðar eru þær Sig- urbjörg Jóhanna, f. 1972), gift Einari B. Árnasyni, f. 1974, og Moníka Sóley, f. 1975, gift Sæ- mundi Valdimarssyni, f. 1975, Skarphéðinsdætur. Sigurbjörg á þrjú börn og Móníka tvær dætur og tvo fóstursyni, sem öll kölluðu hann Ármann afa. Ármann verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 29. nóvember 2016, kl. 13. Kristjánsdóttur frá Vopnafirði, f. 1926, d. 1989, og eign- uðust þau fjögur börn: Kristján, f. 1944, kvæntur Aðalheiði Jóhönnu Björns- dóttur, f. 1945, börn þeirra Guðfinna Sigríður, gift Ágústi Svanssyni, Hanna Birna, gift Vilhjálmi Jens Árnasyni, Theodór, kvænt- ur Maríu Pálsdóttur. Sigurbjörg Jóna, f. 1949, gift Gylfa Sigurðs- syni, f. 1947, sonur þeirra Ár- mann, kvæntur Ásu Guðnýju Ás- geirsdóttur. Rán, f. 1951, d. 1992, sonur hennar Geir Gunnarsson. Ægir Vopni, f. 1954, kvæntur Ragnhildi Kristínu Ólafsdóttur, f. 1953, börn þeirra Íris Dögg, gift Pétri Árnasyni, Ólafur Már, kvæntur Hildi Georgsdóttur Langafabörnin eru 12 og eitt langalangafabarn. Ármann og Guðfinna hófu bú- skap í Neskaupstað 1944, þar „Hann pabbi þinn er engum líkur!“ er eitthvað sem ég og við systkinin höfum heyrt ótal sinn- um. Og nú þegar pabbi hefur kvatt erum við enn og aftur minnt á hversu ótrúlegur karl hann var. Ekki aðeins lifði hann lengur en flestir, heldur hélt reisn sinni, krafti og léttu lund fram undir það allra síðasta og dó eins og hann hafði lifað; jákvæð- ur, glaður og sáttur við sitt og sína. Og þrátt fyrir aldurinn og árin níutíu og fimm, fannst okkur flestum eins og hann væri í raun enn of ungur til að kveðja. Slíkur var lífsviljinn, orkan og áhuginn á náttúrunni, ferðalögunum, veið- inni, pólitíkinni, íþróttunum og bara lífinu sjálfu. Allar minningar mínar um pabba eru um mann sem lagði sig fram um að lifa lífinu og var um svo margt lánsamur maður. Líkt og flestir sem fæddust á fyrri hluta síðustu aldar ólst hann upp við daglega lífsbaráttu sem oft var hörð, erfið og óvæg- in. En eins og með svo marga af hans kynslóð, varð sú reynsla ekki aðeins til að herða hann heldur líka milda og minna á hvað mestu skipti. Þannig var forgangsröðun pabba alltaf skýr. Hann hugsaði vel um fólkið sitt og fjölskyldu, sinnti skyldum sínum af samviskusemi og var alltaf til staðar ef einhver þurfti á hjálp hans að halda. Hann var duglegur, ákafur og rammpóli- tískur ýmist sem ungur maður vel til vinstri eða eldri og þrosk- aðri talsvert til hægri. Hann var glaðvær, bjartsýnn og naut þess að eiga góðar stundir í íslenskri náttúru við veiðar, hvort sem það var á fjöllum, í ám eða vötn- um. Hann var hjálpsamur, trygglyndur og baráttuglaður fyrir allt sem honum var kært; fyrirtækið sitt, fjörðinn sinn, íþróttafélagið sitt en þó fyrst og fremst fyrir fólkið sitt. Ég var svo lánsamur að kynn- ast pabba ekki aðeins sem sonur hans, heldur einnig sem sam- starfsmaður þegar ég hóf störf í fyrirtæki hans fyrir um þrjátíu árum. Pabbi hafði þá átt Raf- geymasöluna til margra ára, unn- ið þar áður sem almennur starfs- maður og metnaður hans var mikill fyrir hönd þessa rótgróna hafnfirska fyrirtækis. Ákvörðun um að hefja störf með pabba var ekki endilega einföld. Við áttum gott samband sem feðgar, en vor- um afar ólíkir og hvorugur okkar gat því vitað hvort svo náið sam- starf gengi upp. En auðvitað var pabbi ekki aðeins góður sam- starfsmaður, heldur ljúfur, lausnamiðaður og skemmtilegur félagi. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að byggja upp með honum starfsemi og þjónustu sem ég veit að skipti hann miklu, en ekki síður er ég þakklátur fyrir að hafa í gegnum samstarf okkar fengið tækifæri til að kynnast honum með nýjum hætti og eiga með honum lengri tíma. Nú þegar að leiðarlokum er komið þakka ég fyrir allt sem pabbi var mér, okkur Heiðu, börnunum okkar og fjölskyldunni allri. Sérstakar þakkir færi ég Sigríði fyrir einstaka væntum- þykju, stuðning og umhyggju. Kristján Ármannsson. Það eru ekki margir sem geta státað af því að vera ennþá ótrú- lega orkumiklir, skapandi og skemmtilegir vel á tíræðisaldri. Afi Ármann var einn af þeim. Þegar við horfum til baka eig- um við fjölmargar minningar um mann sem var alltaf að; ýmist á hlaupum við að þjónusta Hafn- firðinga í Rafgeymasölunni; í skutli á Saabnum með fjölskyldu- meðlimi um allan bæ; að skjóta fugla eða veiða fisk hér og þar um landið; að fagna eða syrgja með Haukum vegna íþróttaafreka eða sorga; og svo afi sem fór allt með ömmu Guðfinnu og síðar allt með Sigríði sinni. En fyrst og fremst munum við eftir manni sem var alltaf glaður, jákvæður og ákveðinn í því að gera það besta úr lífinu og því sem það færði honum. Við erum þakklát fyrir að hafa þekkt hann og kynnst þeim krafti sem ein- kenndi hann til síðasta dags. Um leið og við þökkum afa allt, send- um við Sigríði okkar innilegustu kveðjur og vonum að við og fólkið okkar erfi eitthvað af hans ein- stöku eiginleikum. Guðfinna, Hanna Birna og Theódór. Ármann Ólafur Sigurðsson HINSTA KVEÐJA Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Sigurbjörg J. Skarphéð- insdóttir og fjölskylda, Monika S. Skarphéð- insdóttir og fjölskylda. Fyrir fimmtíu og átta árum hitti ég Davíð móðurbróður minn og hans fjöl- skyldu í Múlakampinum í Reykjavík. Þá bjuggu enn margir í bröggum. Húsið sem Davíð bjó í var sko enginn braggi heldur höll þó að það væri í sama hverfi og braggarnir. Ég held að hann hafi byggt það að mestu með eigin höndum. Ég hitti hann og Lúllu konu hans mjög reglulega í Þor- lákshöfn þar sem foreldrar mínir bjuggu þá og síðan í Hafnarfirði og þá var alltaf hlegið og sprellað. Davíð var sérfræðingur í að kæta fólk með gamanmálum og harm- ónikuspili. Oft hitti ég hann á Dalhúsum, sem er jörð sem stórfjölskyldan á. Þegar við dvöldum þar vakti hann okkur gjarnan klukkan 7 að morgni með harmónikuspili og sagði að nú ættu menn að fara að vinna. Hann var vanur að vinna og vildi halda öllum að verki. Síðustu daga okkar áttum við í nálægð við Hrafnistu í Hafnar- firði en þar bjó hann sína síðustu Davíð Rúrik Höjgaard ✝ Davíð RúrikHöjgaard fædd- ist 30. ágúst 1924. Hann lést 12. nóv- ember 2016. Davíð var jarð- sunginn 22. nóv- ember 2016. daga en ég í Boða- hlein stutt frá. Dag einn sl. sumar kom hann á rafmagns- skutlu, kominn í heimsókn til mín í Boðahleinina og átt- um við góða stund saman. En þar kom að hringt var til mín þar sem mér var sagt að hann væri ef til vill að kveðja þessa jarðvist okkar. Við hjónin kvöddum Davíð frænda og það var gott að geta kvatt hann meðan hann bjó heima hjá sér. Það voru þung skref vegna þess að ég skynjaði hvert stefndi. Ég var feginn að geta kvatt hann þarna því hann yfirgaf þessa jarðvist nokkrum klukkustundum síðar. Nú tárin renna tregi í hjarta traustur vinur skipti um bát siglir nú sæinn nýja bjarta sameinast vinir og fagna kát. Kæri frændi, þakka þér öll þessi ár sem ég hef haft þig sem frábæran frænda í mínu lífi. Við hittumst á öðrum lendum og þá verður glatt á hjalla. Við vottum ykkur einlæga samúð, kæru frænkur, Margrét og Ólöf, og ykkar fjölskyldum. Megi minningin lifa um frá- bæran mann. Reynir og Henný. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, SIGRÍÐUR HERMANNSDÓTTIR líffræðingur, Kúrlandi 16, Reykjavík, lést þriðjudaginn 15. nóvember. Útför hennar verður gerð frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 30. nóvember klukkan 13. . Bjarni Guðmundsson, Sigrún Henrietta Kristjánsdóttir, Arndís Bjarnadóttir, Guðmundur Hermann Bjarnason. Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, EINAR MARINÓSSON aðstoðarforstjóri, Klapparbergi 15, Reykjavík, lést á heimili sínu þriðjudaginn 22. nóvember. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 1. desember klukkan 15. . Ólafía Katrín Kristjánsdóttir, Margrét S. Einarsdóttir, Sigríður Björk Einarsdóttir, Sveinn G. Gunnarsson, Margrét Soffía Einarsdóttir, Kristján Andri Einarsson, Katrín Edda Einarsdóttir, Sólon Birkir Sveinsson, Sölvi Freyr Sveinsson og systkini hins látna. Besti vinur minn og eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma, dóttir, systir og mágkona, HELGA JÓNSDÓTTIR, Hjarðarhaga 17, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi 25. nóvember. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 1. desember klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á styrktarsjóð krabbameinssjúkra barna. . Stefán Sigurðsson, Dóra Stefánsdóttir, Anna Olsheimer, Anna Stefánsdóttir, Sveinbjörn Finnsson, Inga Gröndal, Skúli Jónsson, Sigríður Björg Einarsd. og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTA B. ÁGÚSTSDÓTTIR, lést laugardaginn 26. nóvember. . Ásthildur Helgadóttir, Pétur Esrason, Bryndís Helgadóttir, Halldór Vilhjálmsson, barnabörn og barnabarnabörn. Yndisleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, EDDA INGIBJÖRG EGGERTSDÓTTIR, Barðastöðum 11, áður Stigahlíð 91, Reykjavík, lést á Landspítalanum 27. nóvember. . Guðný Edda Gíslad., Guðjón Kr. Guðjónsson, Eggert Árni Gíslason, Petra Bragadóttir, Halldór Páll Gíslason, Anna Helga Höskuldsd., Gunnar Þór Gíslason, Sólveig Ingólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sonur minn, faðir, unnusti, bróðir, mágur og frændi, KRISTBJÖRN ÆGISSON, Austurbrún 2, Reykjavík, lést af slysförum 13. nóvember. Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju miðvikudaginn 30. nóvember klukkan 15. . Jenný Ásgeirsdóttir, Sólrún Líf Kristbjörnsdóttir, Svanbjörg K. Magnúsdóttir, María Gylfadóttir, Þorsteinn Björgvinsson, Jenný, Andri og Bjarki. Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR STEFÁNSSON, sem lést 19. nóvember verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju 2. desember kl. 13. Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Flateyjarkirkju, reikn.nr. 0309-26-012652, kt. 550169-5179. . Hafdís Jónsdóttir, Kristrún Ásbjörg Ingólfsdóttir, Þórarinn Æ. Guðmundsson, Ingibjörg J. Kristinsdóttir, Stefán H. Guðmundsson, Gunnhildur Karlsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.