Morgunblaðið - 29.11.2016, Síða 26

Morgunblaðið - 29.11.2016, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2016 Já, alveg rétt, ég á afmæli á morgun,“ sagði Andri Ólafsson,aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins, og virtist koma af fjöllum þeg-ar blaðamaður sló á þráðinn til hans í gær. „Ég er í prófum núna og hef lítið haft hugann við afmælið eða einhverjar uppákomur. Mað- ur verður samt að taka sér smá hlé frá lestri til að halda upp á daginn með fjölskyldunni en það verður minna þetta árið en venjulega. Það verður fagnað þegar maður er búinn í prófum.“ Andri er í MBA-námi við Háskóla Íslands og verður næsta próf á morgun. Afmælisveislan verður því líklega í styttri kantinum hjá 36 ára gamla aðstoðar- ritstjóranum í ár. Andri tók við núverandi starfi í ágúst en var þar áður ritstjóri Ís- lands í dag á Stöð 2. Hann er þó alls ekki ókunnugur prentmiðlunum því þar á undan hafði hann lengi verið fréttastjóri á Fréttablaðinu, en hann hóf störf í Skaftahlíðinni árið 2004. „Ég hef starfað á hinum ýmsum miðlum þar og meira að segja áður en þetta hét 365. Það hent- ar mér mjög vel að vera í blaðamennsku, allir dagar eru ólíkir inn- byrðis og maður byrjar með hreint borð á hverjum degi. Ég hef lítinn tíma núna fyrir áhugamál vegna námsins en mér finnst gaman að fara á skíði og reyni að fara eins og oft og ég get í Bláfjöll og norður á Akureyri og þegar einstaklega vel árar til Aust- urríkis. Á sumrin finnst mér gaman að fara út að labba í náttúrunni með göngupoka en upp á síðkastið hafa þetta verið styttri ferðir með konu og dóttur. Við erum samt enn í gönguhóp sem fer árlega í nokk- urra daga ferð.“ Andri er í sambúð með Bryndísi Sigurðardóttur, markaðs- sérfræðingi hjá Símanum. Dóttir þeirra er Margrét, f. 2013. Feðginin Andri ásamt Margréti sem verður fjögurra ára í janúar. Vissi ekki af afmælinu Andri Ólafsson er 36 ára í dag H araldur Flosi Tryggvason fæddist á Sólvangi í Hafnar- firði 29. nóvember 1966. Hann bjó í Álfaskeiðinu fyrstu tvö árin en flutti þá með fjölskyldunni að Íra- fossi við Sog þar sem faðir hans gegndi stöðu stöðvarstjóra í nokkur ár. Haraldur litli ólst þar upp í frelsi sveitarinnar og hefur eiginlega ekki enn jafnað sig á flutningnum á möl- ina árið 1974 þegar fjölskyldan flutti í Hvassaleitið í Reykjavík þar sem Haraldur býr enn með eigin- konu og börnum. Þó svo að drengurinn hafi um margt þótt efnilegur þá var hann með eindæmum ódæll unglingur og Haraldur Flosi Tryggvason lögmaður – 50 ára Um áramót Haraldur og Ágústa ásamt börnum þeirra og Ingu Bragadóttur vinkonu. Er fjölskyldumaður fyrst og fremst Hjónin Haraldur og Ágústa á góðri stund fyrir örfáum árum. Eik Magnúsdóttir, Erna Björg Zeda Topal, Unnar Darri Magnússon og Kristján Valur Árnason.söfnuðu flöskum og seldu happdrættismiða fyrir badmintonfélag og gáfu sölulaun til Rauða krossins að upphæð 3.000 krónur. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.