Morgunblaðið - 29.11.2016, Síða 27

Morgunblaðið - 29.11.2016, Síða 27
reyndist fjölskyldunni erfiður fram- an af. Úr þessu rættist þó nokkuð og tókst á endanum að koma pilt- inum til mennta. Eiga foreldrar hans heiður skilinn fyrir þolinmæði og þrautseigju í uppeldinu. Tuttugu og sjö ára gamall innrit- aðist hann í Lagadeild Háskóla Ís- lands og lauk þaðan embættisprófi á tilsettum tíma. Fékk hann í fram- haldinu styrk til frekara laganáms við Háskólann í Oxford þaðan sem hann útskrifaðist með gráðu í Evr- ópurétti og samanburðarlögfræði. Í framhaldinu bætti hann svo við sig MBA-gráðu frá Oxford Brookes-háskóla. Hefur fengist við margt Haraldur hefur á starfsævinni fengist við fjölmargt. Hann vann sem rótari og hljóðtæknimaður fyrstu árin og reyndi jafnvel fyrir sér sem tenórsaxófónleikari með stórsveitinni Júpíters. Allt endaði það nú þegar laganámið tók við. Síðast tók hann í saxófóninn á aðal- fundi Orkuveitu Reykjavíkur í vor með hljómsveitinni Sjálfsvorkunn sem í eru Jón Gnarr og fleiri. Haraldur hefur jöfnum höndum fengist við stjórnun fyrirtækja og lögfræðistörf í gegnum tíðina. Þá hefur hann gripið í kennslu á báð- um þessum sviðum. Haraldur hefur undanfarin ár starfað sem einn eig- enda LMB lögmanna í Reykjavík. Haraldur hefur sinnt félags- störfum af ýmsum toga í gegnum tíðina. Einna stoltastur er hann af því að hafa um skeið verið í stjórn Nýlistasafnsins án þess að hafa bakgrunn í listum. Auk þess að hafa áhuga á vinnu hefur komið fyrir að hann hafi brugðið sér á hestbak eða jafnvel rennt fyrir fisk. Aðspurður segist Haraldur um- fram allt vera fjölskyldumaður. Hann segir að augljóst sé að hjóna- band hans hafi haft mikil og góð áhrif á hann og að hann mæli ár- angur sinn í lífinu með því hversu mikinn áhuga fjölskyldumeðlimir hafi á samvistum við hann. Vegna stórafmælisins ætlar Har- aldur að taka sér frí í vinnunni í dag, en það er ekki á hverjum degi sem það gerist, og hyggst hann eyða honum með konunni og fjöl- skyldu. Fjölskylda Eiginkona Haraldar er Ágústa Kristín Andersen, f. 25.1. 1971, hjúkrunarfræðingur, dóttir Jór- unnar Andersen, fyrrverandi starfsmanns Dvalarheimilisins í Hveragerði, og er hún bús. þar. Börn: Ívar Elí Sveinsson, stjúp- sonur, f. 1.12. 1992, læknanemi í Reykjavík, sambýliskona hans er Kristín Sigurvinsdóttir laganemi; Matthías Tryggvi Haraldsson, f. 17.2. 1994, nemi í sviðslistum við Listaháskóla Íslands, og Jórunn Elenóra Haraldsdóttir, f. 31.10. 2005. Systkini Haraldar eru Rán Tryggvadóttir, f. 26.5. 1959, lög- fræðingur og doktorsnemi í hugverkarétti, bús. í New York, og Ketilbjörn Rúdolf Tryggvason, f. 27.4. 1962, verkfræðingur, bús. í Þýskalandi. Foreldrar Haraldar eru hjónin Siglinde Sigurbjarnarson, f. 30.1. 1937, bókavörður í Reykjavík, og Tryggvi Sigurbjarnarson, f. 9.7. 1935, verkfræðingur í Reykjavík. Úr frændgarði Haraldar Flosa Tryggvasonar Haraldur Flosi Tryggvason Ketill Helgason bóndi á Álfsstöðum Kristín Hafliðadóttir húsfr. á Álfsstöðum á Skeiðum Sigurbjörn Ketilsson skólastjóri í Njarðvík Hlíf Tryggvadóttir kennari í Njarðvík Tryggvi Sigurbjarnarson verkfræðingur í Reykjavík Tryggvi Matthíasson smiður í Garði Kristín Þórðardóttir húsfreyja í Garði Albin Klein eimreiðarstjóri í Thüringen Anna Klein húsfreyja í Thüringen Rudolf Klein skrifstofumaður í Thüringen Eleonora Klein húsfreyja í Thüringen í Þýskalandi Siglinde Sigurbjarnarson bókavörður í Reykjavík Julius Hubrich bókbindari í Thüringen Elisabeth Hubrich húsfreyja í Thüringen Í Þríhnúkagíg Haraldur og synir. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2016 100 ára Jónína G. Valdimarsdóttir 85 ára Anna J. Ingólfsdóttir Gerður Guðbjörnsdóttir Guðmundur Haraldsson Hallur Kristján Stefánsson Loftur Pálsson Margrét Sveinsdóttir Runólfur J. Sölvason 80 ára Erla Steingrímsdóttir Gylfi Jónsson 75 ára Guðmundur Jakobsson Guðrún Sigríður Þórarinsdóttir Indiana Höskuldsdóttir Jóna Margrét Kristjánsdóttir Margrét Lárusdóttir Mary Louise Wilson Oddur Friðrik Helgason Ólafur Geirsson Yngvi Dalur Hafdal Ingvarsson 70 ára Ann Mari Hansen Áslaug Gísladóttir Jón Ingi Ólafsson Kolbrún Sigurðardóttir Líndís Lilja Sigurðardóttir Páll Kristmundsson Sigurður Gíslason 60 ára Ólöf Sigríður Davíðsdóttir Páll Valdemar Ólafsson Sigrún Þorsteinsdóttir Sigurlaug Björk Guðmundsdóttir Steinunn Helga Björnsdóttir 50 ára Grettir Hreinsson Grímur Sæmundsson Guðrún Þorbjörg Þórðardóttir Haraldur Flosi Tryggvason Jose Rodriguez Sanchez Jóhannes Ólafsson Jón Valgeir Þorsteinsson Katrín Haukdal Magnúsdóttir Malgorzata Krzeminska Margrét Alma Sveinsdóttir María Þórarinsdóttir Rósa María Waagfjörð Rudolf Grétar Björnsson Soffía Helga Kristjánsdóttir Valdimar Sigurðsson Þór Thorarensen 40 ára Andrzej Nowacki Bertel Ingi Arnfinnsson Eiríkur Guðni Ásgeirsson Hildur Arnardóttir Ingvar Sigurður Alfreðsson Jirina Tina Baresová Jóhanna Svava Sigurðardóttir Jóhann Hannesson Karl Gustav Carlsson 30 ára Andrés Jón Esrason Atli Sævarsson Gunnhildur Eik Svavarsdóttir Hafsteinn Reykjalín Stefánsson Hugrún Vignisdóttir Jesus Cedron Vigo Mária Lujza Rigó Rúnar Sigurðsson Til hamingju með daginn 40 ára Karl er fæddur og uppalinn Garðbæingur og býr á Álftanesi. Hann er dúklagningarmaður og veggfóðrari að mennt og starfar sjálfstætt við þá iðn. Sonur: David Isak Filip- ovic Carlsson, f. 2007. Foreldrar: Carl Bjarni Rasmusson, f. 1940, fv. flugvélstjóri , og Edda Klingbeil, f. 1941, hús- móðir. Þau eru bús. í Reykjavík. Karl Gustav Carlsson 40 ára Ingvar er frá Egils- stöðum en býr í Kópavogi. Hann er tölvunarfræð- ingur hjá Vodafone. Maki: Anna Sigrún Ás- mundsdóttir, f. 1978, kennari í Kársnesskóla. Börn: Viktor Örn, f. 2004, Ásmundur Steinar, f. 2010, og Þórunn Arna, f. 2014. Foreldrar: Alfreð Steinar Rafnsson, f. 1944, og Kar- ólína Ingvarsdóttir, f. 1945, bús. á Egilsstöðum. Ingvar Sigurður Alfreðsson 30 ára Hugrún er frá Þor- lákshöfn en er búsett á Selfossi og er sálfræð- ingur hjá Árnesþingi. Maki: Karl Ágúst Hanni- balsson, .f. 1983, íþrótta- fræðingur. Börn: Baltasar, f. 2010, og Dagmar, f. 2014. Foreldrar: Vignir Arn- arson, f. 1962, trygginga- ráðgjafi og bílasali, og Dagný Magnúsdóttir, f. 1965, glerlistakona og kaffihúseigandi. Hugrún Vignisdóttir Sigríður Sigurðardóttir hefur varið doktors- ritgerð sína við Iðn- aðarverkfræði-, vélaverk- fræði og tölvunarfræði- deild Háskóla Íslands. Hún hlaut doktors- nafnbót í iðnaðarverk- fræði fyrir ritgerð sem ber heitið „Modelling and Simulation for Fisheries Management“ eða Grein- ing fiskveiðistjórnunar- kerfa: notkun líkana og hermunar. Markmið rannsóknarinnar var að stuðla að bættri fiskveiðistjórnun. Til- gangurinn var að þróa líkön og herma fiskveiðistjórnunarkerfi með það að markmiði að bera saman ólíkar nálg- anir í stjórnun veiða. Það var gert með því að líta á áhrif þeirra á valdar breyt- ur sem eru ýmist hagrænar, líffræði- legar eða félagslegar. Rannsóknin var þverfagleg og sameinaði líkangerð og hermun, sem á rætur að rekja til verk- fræði, og sjávarútvegsfræði sem byggjast á vistfræði, hagfræði og fé- lagsfræði. Þrjú líkön voru þróuð, blendings (e. hybrid) hermilíkan sem samanstendur af kviku kerfislíkani (e. system dynamics mod- el) og strjálu-atburða hermilíkani (e. discrete- event simulation model) og nýrri tegund líkana sem er í ætt við ein- ingalíkön (e. agent- based models). Einn angi rannsóknarinnar fjallaði um brottkast en þar voru tólf aðferðir til að draga úr brottkasti metnar kerfisbundið með svokallaðri SVÓT greiningu sem felur í sér að greina styrkleika, veikleika, ógnanir og tækifæri. Doktorsverkefnið var samstarfs- verkefni milli Háskóla Íslands og Matís en verkefni Sigríðar voru hluti af tveimur alþjóðlegum rannsóknarverk- efnum sem Matís var þátttakandi í: EcoFishMan og BADMINTON. Hið fyrr- nefnda hafði það meginmarkmið að koma með tillögur að bættu fisk- veiðistjórnunarkerfi í Evrópu og hið síðarnefnda snerist um rannsóknir á brottkasti á afla. Sigríður varði hluta námstímans erlendis, við Kaliforníu- háskóla í Berkeley og Chalmers tækniháskólann í Gautaborg. Sigríður Sigurðardóttir Sigríður Sigurðardóttir fæddist í Reykjavík árið 1983. Foreldrar hennar eru Anna Ólafsdóttir og Sigurður Helgason. Eiginmaður Sigríðar er dr. Egill Maron Þor- bergsson og eiga þau dótturina Önnu Ísafold. Sigríður starfar hjá Arion banka við áhættustýringu. Doktor

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.