Morgunblaðið - 29.11.2016, Page 29

Morgunblaðið - 29.11.2016, Page 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2016 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þínir nánustu vilja þekkja þinn innri mann. Gefðu þér góðan tíma og gættu þess að sleppa engu úr púsluspilinu. 20. apríl - 20. maí  Naut Þótt að miklu sé að stefna á vinnu- staðnum máttu ekki fórna framanum öllu sem þú átt. Gefðu þér tíma til að gaumgæfa allar hliðar þess. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Ljónið reynir allt hvað það getur að fá sínu framgengt en veit samt sem áður að ekki snýst allt um það sjálft. Hvaða nýjungar leggur þú til? Notaðu tækifærið. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú gætir komið auga á tækifæri til þess að vinna þér inn peninga á óvenjulegan hátt. Vinnufélagarnir eru samstarfsfúsir og þér er hlýtt í brjósti til þeirra á móti. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Dagurinn í dag er kjörinn til viðræðna við þá sem valdið hafa á einhvern hátt. Klár- aðu það sem þú ert með, gerðu það rétt og láttu það spyrjast. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Rótin að vanda dagsins í dag felst í eðlislægri skoðun sem þarf ekki endilega að henta þér. Nýttu hana til hollra hluta, sem bæði gefa þér ánægju og auka á hreysti þína. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það er nauðsynlegt að eiga einhvern til þess að deila með gleði og sorg því það er engum hollt að byrgja allt inni. Dustaðu af henni rykið, rétti tíminn er runninn upp. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Láttu ekki aðra koma þér í vont skap. Leyfðu öðrum að njóta þíns góða skaps og þú munt ekki sjá eftir því, heldur þvert á móti. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þetta er góður dagur til viðgerða á heimilinu og til að ræða heimilisvandamál. Hættu að gera lítið úr sjálfum þér; þú ert ekki verri en hver annar. 22. des. - 19. janúar Steingeit Slakaðu aðeins á, þér hættir til að gera of mikið úr einföldustu hlutum, eins og að mála eða færa húsgögnin. Njóttu þess og efldu styrk þinn fyrir átakameiri tíma. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er ekkert að því að leyfa barninu í sér að njóta sín. Einnig laðarðu að þér manneskjuna sem þú þráir með því að sýna hvað þú getur verið stöðugur og róandi áhrifavaldur. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú stendur frammi fyrir vandamáli sem venjuleg viðbrögð duga skammt til að leysa. Sýndu samstarfsvilja, vertu með opinn huga og leyfðu öðrum að létta undir með þér. Ólafur Stefánsson fylgist vel meðí pólitíkinni og er vel að sér í þýskum skálskap. Hann skrifar í Leirinn: „Þessa dagana, þegar póli- tíkin er undir yfir og allt um kring, fór ég í að snara kvæðiskorni eftir Heinz Erhardt hinn þýska. Þó að ég geti ekki fullyrt að allar þær skoð- anir sem fram koma í kvæðinu eigi sér talsmenn á Alþingi, þá eru flokkarnir a.m.k álíka margir. Segðu ei ljótt um sósíalista, semdu frið við popúlista. Stuðaðu ekki stjórnlynda, né stefnuglaða frjálslynda. Karpaðu ekki við konungholla, eða kreddumenn sem staðir drolla, - en lestu pistil landstjórninni, langan helst, - það gagnast kynni .“ Kerlingin Á Skólavörðuholtinu „var að spekúlera“ á fésbókarsíðu sinni: Því er ég sá þusari, það er vont að skilja, og utangátta einfari án þess helst að vilja? Sá Gamli þóttist vita sínu viti: Um þig veit ég, elskan mín, alveg bara helling. Eðlileg er þusun þín. Þú ert gömul kelling. Kerlingin á Skólavörðuholtinu lét hann ekki eiga neitt hjá sér: Gömul bæði gerumst hró, grimm er okkar hrelling, ólíkt „sumum“ þyki ég þó þrusu sexí kelling:)! Atburðarásin getur verið hröð í stjórnarmyndunarviðræðum. Bragi Bergmann sendi mér limru í síðustu viku: „Guðlaugur Þór Þórðarson sagði á fimmtudaginn að hann vildi sjá Bjarta framtíð, Framsóknar- flokkinn, Viðreisn og Sjálfstæðis- flokkinn reyna að mynda ríkis- stjórn. Og ég sá fyrir mér formenn þessara flokka bera saman bækur sínar; þá Óttar, Sigurð Inga, Bene- dikt og Bjarna. Þá fæddist limra: Nú gilda handtökin hröð, herramenn rýna í blöð. Allt er að ske! A – B – C – D. Er stjórnin í stafrófsröð? Stafrófið eða Stafrófsstjórnin er nafn við hæfi ef formennirnir fjórir ná að setja saman ríkisstjórn!“ Þessi vísa Hermanns Stefáns- sonar á Boðnarmiði þarfnast ekki skýringa: Hinn formyrkvaða föstudag flest er haft til sölu. Satan fær með sér í drag sálirnar allar með tölu. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Pólitískur pistill, af kerlingu og þeim gamla Í klípu „ÉG VIL BARA BENDA YKKUR BÁÐUM Á AÐ ÞAÐ ER ÁSTÆÐULAUST AÐ VERA MEÐ NEINN HETJUSKAP HÉRNA.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „KANNSKI FYRIR BÍL EÐA BÁT, EN ÉG FER SKO EKKI AÐ LÁNA YKKUR TIL AÐ KAUPA MAT.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að gleyma ekki einu sinni í sekúndu að hann elskar þig. ÉG TEL AÐ ÞÚ HAFIR FARIÐ YFIR LÍNUNA MILLI BLUNDS OG HUGSTOLS. ÖFUND- SJÚKUR? ÞETTA ER FRIBBI GAMLI... HVERNIG GÆTI HANN MÖGULEGA SLEGIST? HANN VILL SLÁST Í HÓPINN! HANN ER NOKKUÐ FLINKUR MEÐ STAFINN! LÁN Víkverji má til með að minna ís-lenska ökumenn á þá stað- reynd að akreinarnar á hring- torgum á Íslandi eru yfirleitt tvær. Ekki ein. Heldur tvær. Margir virðast eiga ofboðslega erfitt með að muna þetta; þykir ekkert sjálf- sagðara en að skera línuna þegar og eins og þeim sýnist. Líkt og þeir séu einir í heiminum. Víkverji lenti einmitt á eftir bíl með langa kerru í eftirdragi á hringtorgi á dögunum og var sá bílstjóri greinilega sann- færður um að önnur reinin væri fyrir bílinn, hin fyrir kerruna. Eng- in leið var að komast meðfram hon- um gegnum hringtorgið. Víkverji er raunar steinhættur að taka sénsinn á þessu, bíður bara átekta meðan bíllinn á undan rennir sér í gegn, á einni akrein eða tveimur. Bílstjórinn jafnvel að senda sms eða taka „sjálfu“ á meðan. Er þetta hægt? x x x Skemmtileg saga rifjaðist uppfyrir Víkverja á dögunum. Þegar nokkrir ungir menn komu saman vestur í Ameríku á níunda áratugi síðustu aldar til að stofna málmbandið Skid Row, sem telst til svokallaðra Íslandsvina, var mikill hugur í þeim. Öðrum gítarleik- aranum þótti skírnarnafn sitt, Dave Sabo, ekki duga í samhengi þeirra afreka sem sveitin hugðist vinna á komandi misserum og datt því í hug að taka sér viðurnefnið „The Worm“ eða „Ormurinn“. Til öryggis ákvað hann að bera þessa frábæru hugmynd undir sér eldri og reyndari rokkara, Jon Bon Jovi, en þeir voru kunningjar. „Nei, nei, nei, nei,“ sagði Bon Jovi. „Þú kallar þig ekki „Worm“, þú kallar þig „Snake“! Það er miklu þéttara.“ Þar með var málið dautt og allar götur síðan hefur Dave Sabo, sem er ennþá gítarleikari í Skid Row, verið þekktur undir viðurnefninu „The Snake“, ellegar „Snákurinn“. x x x Víkverji ber lof á Ríkissjónvarpiðfyrir að breyta dagskrá sinni síðustu daga til að minnast Gunn- ars Eyjólfssonar sem féll frá fyrir rúmri viku. Það er vel til fundið þegar merkir listamenn af því tagi eiga í hlut. víkverji@mbl.is Víkverji Treystu Drottni af öllu hjarta en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit. (Orðskv. 3:5)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.