Morgunblaðið - 29.11.2016, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 29.11.2016, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2016 Tillaga hönnunarstofu breska stjörnuarkitektsins Normans Fost- er bar sigur úr býtum í samkeppni um stækkun Prado-listasafnins í Madríd. Spænski arkitektinn Car- los Rubio er meðhöfundur tillög- unnar sem hafði betur en fjórar aðrar tillögur sem voru valdar til nánari skoðunar. Voru þar á meðal tillögur eftir aðra stjörnuarkitekta, David Chipperfield og Rem Koolha- as sem báðir hafa komið að hönnun virtra safna og menningastofnana á undanförnum árum. Museu del Prado er eitt stærsta og þekktasta listasafn Vesturlanda og eitt helsta aðdráttarafl gesta sem sækja Madríd heim. Meðal ger- sema safnins eru verk eftir Velas- quez, Goya og Bosch en stór hluti safneignarinnar er þó alla jafna í geymslu og með stækkuninni á að bæta úr því. Arkitektunum var falið að breyta sögufrægri byggingu við hlið Prado-safnsins, því sem eftir stend- ur af Buen Retiro-höll Filipusar IV frá 17. öld, í nýja álmu við safnið og tvöfalda þar með sýningarýmið. Samkvæmt tillögu Fosters og fé- laga verður nýr og bjartur forsalur reistur með suðurhlið bygging- arinnar, sem verður lagfærð og varðveitt, og þá verður sett nýtt þak á bygginguna, sem verður hækkuð um eina hæð. Breyting Tölvugerð mynd sem sýnir útfærslu Normans Foster og félaga. Foster og félagar teikna nýtt Prado Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is „Jú, það má segja að það sé smá Kol- rassa krókríðandi þarna. Þegar við í hljómsveitinni komum aftur saman í Hörpu í fyrra, í tilefni 100 ára kosn- ingaafmælis íslenskra kvenna, kveikti það að vissu leyti aftur í mér hvað varðar til dæmis þennan opna söngstíl og ég er viss um að Kolrassa hefur haft svolítið áhrif í lagasmíð- unum enda auðvitað alltaf partur af mér,“ segir Elíza Newman aðspurð hvort gáskinn á nýrri plötu hennar, Straumhvörf, minni ekki eilítið á hljómssveitina sem hún sló fyrst í gegn með. Straumhvörf er fjórða sólóbreið- skífa Elízu og jafnframt tíunda breiðskífan sem hún gefur út en Kol- rassa krókríðandi gaf út fimm plötur eftir að hafa slegið í gegn í Músíktil- raunum fyrir um aldarfjórðung. Elíza hefur verið viðloðandi alls kyns fjölbreytt verkefni í tónlist, bæði erlendis og hér heima en lög af nýju plötunni, svo sem „Af sem áður var“ og „Fagurgalinn“ hafa notið mikilla vinsælda og spilunar í út- varpi. Endurspeglar breytingar „Þetta er mjög fjölbreytt tónlist. Gæti flokkast undir einhvers konar indírokk-popptónlist en samt líka söngvaskáldastíl. Ég fer um víðan völl og brýt líka fullt af reglum, svo sem að henda inn blokkflautu í rokk- lag, fer úr hröðu tempói í rólegt og formið er ekkert heilagt.“ Elíza semur öll lög og texta en hennar helsta einkenni í textagerð, einlægni og allt um lykjandi húmor er allsráðandi en hún segist líka reyna svolítið að garga á sjálfa sig og aðra. Textarnir eru á íslensku en eftir að hafa í mörg ár samið texta á ensku fór Elíza aftur að semja á móðurmálinu árið 2012, þá fyrst plötu með afar viðeigandi titil þá; Heimþrá, en ári síðar fluttist hún al- farið heim þar sem Ísland var farið að toga í hana eins og titill þeirrar plötu vitnaði um. „Það tók svolítinn tíma að venjast því þarna árið 2012 að byrja aftur að semja texta á íslensku en nú fæðast öll lögin fyrst á íslensku en ekki ensku. Mér finnst það hafa áhrif á söngstílinn að syngja á íslensku, það er eins og hann verði opnari og kannski glæfralegri, ekki alveg eins penn.“ Af hverju heitir platan Straum- hvörf? „Það endurspeglar hvar ég er stödd. Ég bý við sjóinn og það hafa verið breytingar hjá mér,“ segir Elíza en hún býr í Höfnum á Reykja- nesskaga ásamt eiginmanni sínum, Gísla Kjaran Kristjánssyni upp- tökustjóra, sem vann einnig með henni plötuna. Elíza er tónlistar- og umsjónarkennari í Reykjanesbæ og segist, eins og fleiri kennarar, jafn- vel vera að búa sig undir verkfall og fylgist vissulega grannt með fram- gangi þeirra mála. „Ég er alin upp í Keflavík en hef ekki búið á Reykjanesi í 20 ár og það er mjög notalegt að vera komin hingað. Ég held að nálægðin við náttúruna og allt þetta rými hafi gert mér gott þótt það hafi tekið mig smátíma að ná mér niður eftir langa veru í stórborg. Mér leið fyrst eins og ég væri í endalausri sumarbú- staðarferð og þurfi að láta rokið berja vitleysuna úr mér og beita mig aga.“ Fær í að vekja lög til lífsins Gísli og Elíza kynntust úti í Lond- on þar sem þau unnu bæði við tónlist en Gísli hefur starfað mikið í London og Noregi, sem upptökustjóri og lagahöfundur. „Það er hentugt að þekkjast vel og geta með engum fyrirvara henst upp á loft í upptökur þegar laus stund gefst. Gísli er ótrúlega fær í að vekja lög til lífsins og þægilegt að ég geti komið fram með ómótaðar hug- myndir og hann skilur hvað ég er að fara.“ Elíza segist ætla að hafa aðvent- una á fremur huggulegum og róleg- um nótum í tónleikahaldi með litlum tónleikum hér og þar, þar á meðal órafmagnaða tónleika í kirkjunni í Höfnum sunnudaginn 11. desember. „Eftir áramót verður svo sett saman band og farinn fjörugur hljómsveit- arrúntur til að vekja fólk til lífsins eftir hátíðirnar. Ég prófaði að spila lögin í tónlistarþættinum Stúdíó A á RÚV og það er ótrúlega gaman að flytja þessi lög.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Glæfralegri Elíza Newman segir það hafa áhrif á söngstílinn að syngja á íslensku, hann verði opnari og gáskafyllri. Gáski Kolrössu á ferðinni  Straumhvörf heitir ný plata Elízu Newman  Nær 25 ár frá því Elíza sló fyrst í gegn með Kolrössu krókríðandi  Tónlist sem brýtur reglur JÓLAGJÖFIN í ár? við kynnum arc-tic Retro með keðju Fyrir DÖMUR og HERRA VERÐ AÐEINS: 34.900,- Í kjölfar mikilla vinsælda Davids Walliams sem barnabókahöfundar eru breskir útgefendur í auknum mæli farnir að leita til uppistandara með skrif í huga. Húmor Walliams hefur slegið í gegn hjá ungum les- endum, en alls hafa bækur hans selst í 14 milljónum eintaka víðs veg- ar um heiminn, en bækur hans hafa verið þýddar á 50 ólík tungumál. Frá þessu greinir The Guardian. David Fickling, ritstjóri barna- bóka hjá David Fickling Books, telur að ekki eigi að koma á óvart að grín- leikurum á borð við Walliams þyki gaman að skrifa fyrir börn. „Er hægt að ímynda sér eitthvað betra en að tala til hjarta ungra barna með sögu sem þau muna til æviloka. Það er fáum gefið að skrifa góðar sögur og jafnvel ennþá færri gefið að vera góðir uppistandarar.“ Fickling nefnir Lissu Evans, höf- und Wed Wabbit sem væntanleg er í næsta mánuði, sem gott dæmi um höfund sem búi yfir hæfileikum til að skrifa jafnt fyrir uppistand og unga lesendur. Áður en Evans sneri sér að barnabókum hafði hún skrifað handrit að grínþáttum fyrir BBC. „Alla útgefendur dreymir um að komast yfir góðar sögur sem tala til lesenda,“ segir Fickling og bendir á að þekkt nafn tryggi þó ekki góðar bækur. „Sumir gamanþáttahöf- undar, eins og David Walliams, skrifa frábæran texta fyrir unga les- endur – en ég veit að gæði texta hans skýrast að stórum hluta af því hversu hart hann leggur að sér við skrif sín,“ segir Fickling og bendir á að líkja megi góðum rithöfundi við söngvara: „Annaðhvort getur þú sungið eða ekki!“ Vinsæll Bækur Davids Walliams hafa selst í milljónum eintaka. Uppistand- arar skrifa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.