Morgunblaðið - 29.11.2016, Síða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2016
Ástralsk-norskt tríó, The Dark,
treður upp á djasskvöldi Kex Hos-
tels við Skúlagötu í kvöld. Hefur
það leik klukkan 20.30.
Meðlimir eru Ástralinn Daniel
Rorke á saxófóna og Norðmenn-
irnir Aksel Jensen á kontrabassa og
Ole Mofjell á trommur. Tríóið hefur
nýlega gefið út sinn fyrsta geisla-
disk og sækir áhrif til norrænnar
tónlistar, framsækins New York-
spuna og heimstónlistar.
Ástralsk-norskt
djasstríó leikur
Tríó Félagarnir í tríóinu The Dark.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég kynntist þessari músík í gegn-
um einn af kennurum mínum í New
York,“ segir bassaleikarinn Sigmar
Þór Matthíasson um tónlist bras-
ilíska tónskáldsins Hermeto Pas-
coal. Sigmar Þór lauk BFA-gráðu í
tónlist frá The New School for Jazz
and Contemporary Music í New
York sl. vor, en á námstíma sínum
tók hann þátt í samspili undir
stjórn bandaríska gítarleikarans
Richard Boukas þar sem brasilísk
tónlist var tekin fyrir. „Ég heill-
aðist svo mikið af músíkinni og sér-
staklega af verkum Hermeto að
mig langaði að kynna þetta fyrir Ís-
lendingum, en eftir því sem ég
kemst næst hefur hann lítið sem
ekkert verið leikinn hérlendis,“ seg-
ir Sigmar Þór sem leikur tónlist
eftir Hermeto Pascoal og aðra
fylgdarmenn hans á tónleikum Múl-
ans á Björtuloftum annað kvöld,
miðvikudag, kl. 21.
Hljóðadagbók frá
sextugsafmælisári sínu
Yfirskrift tónleikanna er Viva
Hermeto! sem helgast, að sögn Sig-
mars Þórs, af því að Pascoal fagn-
aði fyrr á árinu áttræðisafmæli
sínu. „Tónlistinni má lýsa sem nú-
tímalegum brasilískum djassi sem
blandar saman akústískum sóló-
hljóðfærum og rafmagnaðri hryn-
sveit. Á tónleikunum má heyra
ýmsar gerðir brasilískra stíla, m.a.
samba, choro, baião, maracatu,
marcha og frevo,“ segir Sigmar
Þór, en allar útsetningar gerði fyrr-
nefndur Boukas.
„Meðal þess sem við leikum eru
fimm verk úr lagaflokknum Cal-
endário do Som [Hljóðadagbók]
sem Hermeto samdi á sextíu ára
afmælisári sínu. Í tilefni afmælisins
samdi hann eitt lag á dag í heilt
ár,“ segir Sigmar Þór og bendir á
að auðveldlega megi í lögunum
fimm heyra ólíka stemningu tón-
skáldsins eftir dögum.
Með Sigmari Þór, sem spilar á
rafbassa, koma fram Sigurður
Flosason og Ólafur Jónsson á saxó-
fóna og klarínett, Ásgeir Ásgeirs-
son á gítar, Kjartan Valdemarsson
á píanó, Einar Scheving á trommur
og Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir á
básúnu og slagverk.
„Maður reynir alltaf að fá þá öfl-
ugustu sem manni dettur í hug,“
segir Sigmar Þór þegar hann er
spurður um vel skipaða hljómsveit
sína. „Þetta lá beint við. Það er erf-
iðast að fá blástursleikarana, því
þeir eru að spila á fleiri en eitt
hljóðfæri og skipta um hljóðfæri
milli laga. Ég var svo lánsamur að
fá Sigrúnu Kristbjörgu með mér í
verkefnið, því hún lærði úti í Bras-
ilíu og þekkir þessa tónlist alveg út
og inn. Hún er algjör reynslubolti í
þessari tónlist. Það á reyndar líka
við um Ásgeir.“
Gott mótvægi við jólatónlistina
Sem fyrr segir lauk Sigmar Þór
námi frá Bandaríkjunum sl. vor eft-
ir þriggja ára dvöl í landinu. „Þegar
ég útskrifaðist frá FÍH var ég stað-
ráðinn í að sækja mér framhalds-
menntunar erlendis. Ég hefði alveg
getað hugsað mér að fara til Evr-
ópu, en einhvern veginn æxlaðist
það þannig að ég prófaði að senda
umsókn í The New School, en Ari
Bragi Kárason trompettleikari lauk
þaðan námi 2012 og lét vel af skól-
anum. Ég gerði mér engar sér-
stakar vonir um að komast inn, en
greip gæsina þegar tækifæri gafst,“
segir Sigmar Þór og bendur á að
skólinn standi framarlega þegar
komi að framúrstefnulegri músík,
djassi og samtímatónlist.
„Kennarar skólans standa fram-
arlega á því sviði. Það er mikill
kostur að bæði kennurum og nem-
endum eru ekki settar mjög þröng-
ar skorður hvað varðar tónlist og
tónlistarsköpun,“ segir Sigmar Þór
sem seinni hluta námsins lagði
aukna áherslu á að nema tónsmíðar
samhliða kontrabassanáminu, en af-
rakstur þess mátti heyra á tón-
leikum hans á sumardagskrá Múl-
ans í sumar.
„Maður þarf alltaf að vera með
mörg járn í eldinum, þannig að
þetta er spurning um að finna sér
tíma til að semja,“ segir Sigmar
Þór þegar hann er inntur eftir því
hvort hann sé með nýja tónlist í
smíðum.
Spurður hvort fjörug brasilísk
rythma- og djasstónlist eigi vel við
á aðventunni svarar Sigmar Þór því
játandi. „Þessi tónlist myndar ljóm-
andi gott mótvægi við alla jóla-
tónlistina sem einkennir árstím-
ann,“ segir Sigmar Þór og hvetur
tónlistarunnendur til að mæta í
Hörpu og njóta eldheitra bras-
ilískra tóna.
Tónleikarnir hefjast kl. 21 og
fara fram á Björtuloftum, 5. hæð
Hörpu. Almennt miðaverð er 2.000
krónur, en 1.000 kr. fyrir nemendur
og eldri borgara. Miðar eru seldir í
miðasölu Hörpu, á harpa.is og tix.is.
„Með mörg járn í eldinum“
Tónleikar til heiðurs Hermeto Pascoal á Múlanum annað kvöld kl. 21
Sjö manna hljómsveit leikur fjöruga brasilíska tónlist á aðventunni
Morgunblaðið/Ófeigur
Hljómsveitin Frá vinstri: Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Sigurður Flosason, Sigmar Þór
Matthíasson, Ólafur Jónsson, Kjartan Vademarsson og Einar Scheving.
Stuttu eftir að John Lydon, fyrrver-
andi söngvari bresku pönksveit-
arinnar Sex Pistols, opnaði Pönk-
safn Íslands með pompi og prakt
stóð Joe Corré, sonur Malcolms
McLaren, stofnanda og umboðs-
manns Sex Pistols, fyrir brennu í
London um helgina þar sem hann
brenndi, að hans sögn, pönkminja-
gripi að verðmæti fimm milljónir
punda, um 700 milljónir króna.
Pönkminjasafn sitt brenndi Corré á
pramma á Thames-fljóti í viðurvist
fjölmiðlamanna og móður sinnar,
tískuhönnuðarins Vivienne
Westwood, en sjálfur framleiðir
hann undirfatnað undir heitinu
Agent Provocateur.
Með brunanum vildi Corré mót-
mæla því að pönkið væri orðið að
hverri annarri markaðsvöru, „til að
selja manni eitthvað sem mann
vantar ekki neitt,“ sagði hann við
viðstadda og bætti við að pönkið
hefði flutt öflug skilaboð, tekist á
við hræsni og hvatt menn til að
komast sjálfir að sannleikanum.
Corré mótmælir því að í London sé
nú undir yfirskriftinni „Punk Lond-
on“ haldið upp á að fjórir áratugir
séu síðan bandaríska hljómsveitin
Ramones lék í borginni og hratt
það pönkbylgjunni þar af stað. Með-
al þess sem Corré brenndi voru föt
af John Lydon og allskyns aðrir
hlutir tengdir sögu Sex Pistols.
AFP
Mótmæli Brenndir voru pönkgripir og brúður í líki stjórnmálamanna.
Brenndi verðmæta
minjagripi um pönkið
BAD SANTA 2 6, 8, 10
FANTASTIC BEASTS 3D 6, 9
HACKSAW RIDGE 8, 10.45
TRÖLL 2D ÍSL.TAL 6
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ