Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2015, Page 2
Vikublað 11.–13. ágúst 20152 Fréttir
A
rngrímur Jóhannsson flug-
maður er alvarlega slas-
aður eftir að flugvél hans
brotlenti á sunnanverð-
um Tröllaskaga á sunnu-
dag. Tveir voru í flugvélinni, sem er
eins hreyfils sjóflugvél. Hinn mað-
urinn, Arthur Grant Wagstaff, flug-
maður á sextugsaldri frá Kanada, var
látinn þegar viðbragðsaðilar náðu
á vettvang. Hann var reyndur flug-
maður og höfðu þeir starfað saman
áður þegar flugvélin var flutt hing-
að til lands árið 2008. Þá flugu þeir
henni hingað til lands frá Bandaríkj-
unum og tók ferðalagið átján daga.
Arngrímur, sem hefur verið at-
kvæðamikill í fluggeiranum á Íslandi
og unnið mörg þrekvirkin í háloftun-
um, komst af sjálfsdáðum út úr flug-
vélinni. Samkvæmt heimildum DV
brenndist Arngrímur eftir að eld-
ur kom upp í flakinu. Hann mun þó
ekki vera í lífshættu, en er brenndur
á fótum. Rannsóknarnefnd flugslysa
var að störfum á mánudag fram und-
ir myrkur, en flogið var með rann-
sakendur frá Akureyri að slysstað um
hádegisbilið. Ekkert símasamband
er á slysstað.
Fannst við erfiðar aðstæður
Tvær þyrlur Landhelgisgæslunn-
ar, ein einkaflugvél og rúmlega 200
björgunarsveitarmenn tóku þátt í
umfangsmikilli leit að eins hreyfils
sjóflugvél af gerðinni Beaver með
kallmerkið N610LC á sunnudag.
Leitin hófst um miðjan dag og fannst
vélin í fjallshlíð innarlega í Barkár-
dal um hálf níu leytið um kvöldið.
Var þá búið að þrengja leitarsvæðið
að flugleiðum yfir Tröllaskaga og var
GSM-leitarbúnaður meðal annars
notaður til að finna farsíma áhafnar
flugvélarinnar.
„Kl. 20:29 fann TF-LIF, þyrla
Landhelgisgæslunnar, sjóflugvél-
ina í fjallshlíð innarlega í Barkár-
dal, norður af Hörgárdal. Stýrimað-
ur og læknir þyrlunnar sigu niður
að flaki vélarinnar. Var annar flug-
mannanna látinn en hinn nokkuð
slasaður þegar að var komið. Búið
var um hinn slasaða og hann hífður
upp í þyrluna sem flaug með hann
til Akureyrar. Þaðan var hann fluttur
með sjúkraflugi til Reykjavíkur,“ segir
í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni
um slysið.
Guðmundur Sturluson, bóndi á
Þúfnavöllum í Hörgárdal, kom auga
á flugvélina, þegar hún flaug yfir, og
kom upplýsingum um hana til Land-
helgisgæslunnar. Það hjálpaði við-
bragðsaðilum að finna vélina en
Guðmundur sá vélina þegar hann
sat í dráttarvél og var við sláttustörf
fyrir framan bæinn á sunnudag.
„Mér er litið svona til norðurs,
það er nú minn háttur að horfa mikið
í kringum mig, og ég sé þessa flugvél.
Hún silast svona áfram, flaug ekk-
ert hratt, hér þvert yfir dalinn og í átt
að Barkárdal, mér fannst hún hverfa
þangað,“ sagði Guðmundur í samtali
við Viðskiptablaðið.
Rannsóknarnefnd flugslysa vinn-
ur nú að rannsókn slyssins. Þyrlur
Landhelgisgæslunnar aðstoða rann-
sóknarnefndina og lögreglu við að
komast á staðinn og flytja flak flug-
vélarinnar til byggða.
Rannsókn gæti tekið langan
tíma
Ragnar Guðmundsson, rannsakandi
hjá flugslysasviði rannsóknarnefnd-
ar samgönguslysa, ræddi við DV í
gær eftir að hafa verið á slysstað.
Hann segir að aðstæður hafi verið
erfiðar og að rannsókn slyssins gæti
tekið langan tíma.
„Því flóknari sem rannsóknin
er tekur hún lengri tíma. Vettvang-
ur slyssins er mjög erfiður því slysið
gerist á þannig stað og því má búast
við að rannsókn muni taka langan
tíma,“ segir Ragnar en hann býst við
að rannsóknin gæti tekið eitt til þrjú
ár.
Verið atkvæðamikill á löngum
flugferli
Arngrímur er fæddur á Akureyri 7.
apríl 1940 og hóf flugferil sinn að-
eins 14 ára gamall hjá Svifflugfélagi
Akureyrar. Hann hóf atvinnufer-
il sinn sem flugmaður árið 1966 og
árið 1986 stofnaði hann Flugfélagið
Atlanta.
Flaug með hjálpargögn til Biafra
Það var árið 1966 sem Arngrím-
ur hóf störf sem flugmaður hjá Flug-
félagi Íslands og flaug þá á Douglas
DC-3 Dakota. Þar starfaði Arngrím-
ur næstu tvö árin. Árið 1967 braust út
blóðug borgarastyrjöld í Nígeríu og
þar sem íbúar í suðurhluta landsins
klufu sig frá Nígeríu var stofnað nýtt
land sem fékk nafnið Biafra. Í kjölfar-
ið tóku sjúkdómar að breiðast hratt
út í landinu og hungursneyð leiddi
hundruð þúsunda til dauða.
Vesturlönd brugðust við og hófu
að senda hjálpargögn til Biafra. Arn-
grímur var einn þeirra flugmanna
sem tók þátt í þeim aðgerðum en
hann var þá starfsmaður flugfélags-
ins Flughjálpar. Fyrst starfaði hann
sem radíómaður og síðar sem flug-
maður á Douglas DC-6B-flugvél sem
notuð var til að koma mat og öðrum
nauðsynjum til Biafra.
Komið að stofnun fjölda flugfé-
laga
Arngrímur hefur starfað hjá fjölda
flugfélaga en hann hefur einnig lagt
grunninn að fjölda fyrirtækja sem
eiga sinn sess í flugsögu Íslands. Árið
1964 var hann í hópi fólks sem stofn-
aði flugfélagið Frey, sem stundaði
leiguflug frá Akureyri. Árið 1976 kom
Arngrímur að stofnun flugfélagsins
Arnarflugs. Hann sat í stjórn þess
félags um árabil og var yfirflugstjóri
þess. Arngrímur gerðist svo hluthafi
í flugskólanum Flugtak árið 1984 og
sama ár stofnaði hann, ásamt öðr-
um, flugfélagið Air Arctic. Tveim-
ur árum síðar stofnaði Arngrímur
ásamt Þóru Guðmundsdóttir, þáver-
andi eiginkonu hans, Flugfélagið Atl-
anta. Atlanta var um tíma eitt stærsta
flugfélag sinnar tegundar í heimin-
um og var Arngrímur lengi stjórn-
arformaður félagsins, ásamt því að
starfa við ýmis flugtengd störf inn-
an félagsins. Árið 1996 voru þau hjón
útnefnd menn ársins í viðskiptalíf-
inu samkvæmt vali DV, Stöðvar 2 og
Viðskiptablaðinu.
Flaug með pílagríma til og frá
Sádi-Arabíu
Árið 1974 gerðist Arngrímur yfirflug-
stjóri flugfélagsins Air Viking. Flug-
félagið gerði út þrjár flugvélar af
gerðinni Boeing 720 og tók snemma
að sér að fljúga fyrir önnur flugfé-
lög. Meðal þeirra leiða sem flug-
félagið flaug var til og frá borginni
Jeddah í Sádi-Arabíu. Farþegar voru
að stærstum hluta pílagrímar og því
varð Air Viking fyrsta íslenska flug-
félagið til að ferja pílagríma til og frá
heilögu borginni.
Sneri sér að listflugi á efri árum
Þótt Arngrímur hafi hætt sem at-
vinnuflugmaður árið 2005 sagði
hann þó ekki skilið við fluggeir-
ann. Eftir að hann hætti hefur hann
meðal annars gegnt embætti for-
seta Flugmálafélags Íslands og setið
í stjórn Flugsafns Íslands. Þá hefur
hann lært listflug og smíðað listflug-
vélar. Það er meðal annars fyrir til-
stilli Arngríms að haldið er nú Ís-
landsmót í listflugi ár hvert. n
Sársauki minnkar strax
• Kaldur gelsvampur & gel
• Lækkar hita í brunasárum um 6-7 °C
• Gelsvampur helst vel á, dettur ekki af
• Tea Tree & Lavender
- sótthreinsar, róar & deyfir
• Sterílar umbúðir
Virkar á sviða og sársauka af:
sólbruna - skordýrabiti
brenninettlum - húðflúrum
laser og núningsbruna
Fæst í apótekum.
Celsus ehf. www.celsus.is
AbsorBurn®
Kælir brunasár, hratt og lengi
Öskubusku-
þjófur á ferli
Pétur Markan, sveitarstjóri í
Súðavíkurhreppi, varð fyrir því
óláni að fjölskyldubifreið hans
var tekin ófrjálsri hendi.
BB.is greinir frá því að í
bílnum, sem fannst á Ísafirði
skömmu seinna, voru fallegir
kvenskór. „Það þykir því
líklegra en ekki að þarna hafi
Öskubuska verið á ferð enda
var mikið um dýrðir í Súðavík
um helgina, Bláberjadagar
og afmælishátíð Raggagarðs,“
segir á vef BB, en þar kemur
einnig fram að Pétur hafi
verið ánægður með viðbrögð
lögreglu sem fann bílinn hratt
og vel. Hann hafi þó áhyggjur
af Öskubusku, sem er líklega
komin heim til stjúpsystra
sinna.
Ánægð með
ferðamenn
Áttatíu prósent Íslendinga eru já-
kvæðir gagnvart erlendum ferða-
mönnum á Íslandi, að því er
fram kemur í nýrri könnun MMR
á viðhorfi Íslendinga í garð er-
lendra ferðamanna.
Meðal þess sem fram kom
í könnuninni er að þeir sem
höfðu hærri heimilistekjur
voru frekar jákvæðir gagnvart
erlendum ferðamönnum á
Íslandi en þeir sem höfðu lægri
heimilistekjur. Þá eru þeir sem
styðja Framsóknarflokkinn
síður jákvæðir gagnvart
erlendum ferðamönnum en
stuðningsfólk annarra flokka.
Sögðust 70,7% þeirra sem
studdu Framsóknarflokkinn
vera jákvæð gagnvart erlendum
ferðamönnum á Íslandi, borið
saman við 89,6% þeirra sem
studdu Bjarta framtíð.
Brenndist illa
en ekki í lífshættu
n Einn fórst í flugslysi á Tröllaskaga n Arngrímur Jóhannsson komst lífs af
Johann Skúli Björnsson
johannskuli@dv.is
Arngrímur Jóhannsson
Í Flugsafni Íslands.
Mynd frá slysstað Hér má sjá flugvélina í
fjallshlíðinni í Barkárdal. Mynd LAndheLgiSgæSLAn