Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2015, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2015, Side 24
Vikublað 11.–13. ágúst 201520 Menning Espresso t ime bo l la l í nan fæst í s tærr i Hagkaups vers lunum Espresso time bollalínan er björt, litaglöð lína fyrir kaffi elskendur. Bollarnir eru 100ml postulíns- bollar sem eru uppþvottavéla- og örbylgjuvænir. Einfaldir og þægilegir. Kaupauki Gjafapoki fylgir við kaup á tveimur bollum ÚRVAL FÆÐUBÓTAREFNA Glæsibæ & Holtagörðum Netverslun: www.sportlif.is Sterkustu brennslu- töflur í Evrópu Vettvangur til að ræða róttækar hugmyndir Þ arna er fjallað um efni sem maður heyrir oft ekki um annars staðar í samfélags- umræðunni, þetta eru fyr- irlestrar um róttækar hug- myndir og pólitík,“ segir Pontus Järvstad, einn skipuleggjenda Rót- tæka sumarháskólans, sem fer fram nú í vikunni. Boðið verður upp á þrettán mál- stofur á sjö dögum – þar af þrjár á ensku. Engin skráning er nauðsyn- leg, frítt er inn og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir, en skólinn verður til húsa í menningarmiðstöð- inni Múltíkúltí við Barónsstíg. „Allir eru velkomnir. Það eru engar kröfur gerðar á fólk um menntun eða þátttöku í einhverjum aktívisma eða neitt slíkt – þær kröf- ur sem við gerum til þátttakenda er að þeir virði fólkið sem þeir eru með í rýminu,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, sem einnig situr í fram- kvæmdahóp skólans. Á krossgötum mismunandi barátta Róttæki sumarháskólinn hefur verið starfræktur í eina viku á hverju sumri undanfarin fimm ár. Í ár eru umjöll- unarefnin eins fjölbreytt og þau eru mörg: saga íslensku friðarbaráttunn- ar, kúrdíska frelsishreyfingin, bann- saga vímuefna, jaðarsetning heim- ilislausra, transfólk, líkamsvirðing, karlmennska og femínismi, róttæk matvælaframleiðsla, hlýnun jarð- ar og kapítalismi, menningarlegar orsakir loftslagsbreytinga, vöxtur og sjálfbærni höfuðborgarsvæðisins, mongólsk yurt og reynslusaga flótta- manns. „Eitt orð sem mætti kannski nota til að draga saman hvað einkenn- ir umfjöllunarefnin er enska orðið „intersectionality,“ sem væri hægt að þýða sem „krossgötur“ – þar sem mismunandi samfélagsbaráttur mætast,“ segir Pontus. „Mér finnst mikilvægt að þarna fær maður að kynnast alls konar fólki sem maður myndi ekki endilega hitta annars staðar. Fólk kemur úr mismunandi stöðum í róttækri bar- áttu, jafnt úr friðarhreyfingunni sem hinsegin-baráttunni. Róttæki sum- arháskólinn er eiginlega eini skipu- legi vettvangurinn þar sem þetta fólk getur hist og vonandi myndað tengsl til að halda róttæku baráttunni áfram utan veggja skólans.“ Fjölbreytileiki, jafnrétti og réttlæti En hvað er áttt við með róttækni? „Róttækni eru hugmyndir og bar- átta sem berjast gegn ríkjandi hug- myndum um hvernig samfélagið á að líta út. Róttækni er barátta fyr- ir fjölbreytileika, jafnrétti og rétt- læti, Róttækar hugmyndir stangast oft á við ríkjandi hugmyndir í sam- félaginu – stangast á við „normið“. Þessi undirliggjandi norm byggja öll á valdastrúktúrum. Þetta eru til dæmis norm sem segja hvernig best sé að skipuleggja vinnu fólks, norm sem segja að sá sem vinni ákveðna vinnu eigi að fá meiri pening en ann- ar, normið sem segir að ef strákur fari í bæinn eigi hann rétt á því að fá stelpu heim með til að sofa hjá, normið sem gerir það að verkum að hvítir eigi auðveldara með að fá vinnu en aðrir og svo framvegis,“ seg- ir Pontus. Pólitísk róttækni felst þannig oft í þeirri hugmynd að baráttur mis- munandi undirskipaðra hópa séu samtengdar og fléttist óhjákvæmi- lega saman – og til að taka á rót vand- ans þurfi að endurskoða grunnstoðir nútímasamfélagsins. Mikið fylgi Pírata – sem fæðast upp úr farvegi róttækra hugmynda – sýnir að það er mikil óánægja með ýmis grundvallaratriði í íslensku samfélagi og stjórnmálum. En skilar þessi óánægja sér í öflugri róttækri hreyfingu um þessar mundir? „Með Druslugöngunni og #Freethenipple hefur farið af stað rót- tæk hreyfing. Þar er gríðarstór hóp- ur fólks sem hefur greinilega verið að bíða eftir tækifæri til að taka þátt í ein- hverjum aktívisma. Annar aktívismi er frekar lágstemmdur um þess- ar mundir. Fólk er ekki að mæta jafn mikið á slíka fundi og viðburði eins og rétt eftir vetraruppreisnina 2009. Þá skipti eiginlega ekki máli hvert um- fjöllunarefnið var, það mættu alltaf margir á fundi,“ segir Sólveig. „Það er alveg ábyggilega mikil löngun enn- þá hjá fólki en skilaboðin virðast ekki komast áfram. Róttæk barátta virð- ist til dæmis ekki oft komast að í fjöl- miðlum nema það sé eitthvað stórt í gangi – eitthvert dómsmál eða sér- staklega sexí herferð. Málefni hæl- isleitenda fá til að mynda enga athygli nema eitthvað eins og lekamálið eigi sér stað – en þá fer fókusinn samt bara á glæpi ákveðinna einstaklinga, frekar en glæpi kerfisins í held sinni,“ segir hún. Nánari upplýsingar um náms- stofur og stundaskrá Róttæka sum- arháskólans má finna á heimasíðu skólans: sumarhaskolinn.org. n Róttæki sumarháskólinn haldinn í fimmta sinn á Múltíkúltí í vikunni Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is „Róttæk barátta virðist til dæm- is ekki oft komast að í fjölmiðlum nema það sé eitthvað stórt í gangi – eitthvert dómsmál eða sérstaklega sexí herferð. Róttækar hugmyndir og barátta Berglind Rós, Sólveig og Pontus eru meðal skipuleggjenda Róttæka sumarháskólans sem haldinn er í fimmta sinn í vikunni. mynd siGtRyGGuR aRi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.