Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2015, Blaðsíða 4
4 Fréttir Vikublað 22.–24. september 2015
Trúlofunarhringar
- okkar hönnun og smíði
jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind
Full búð af
nýjum vörum!
Lúxushótel í uppnám
vegna viðskiptabanns
Fjárfestar sem koma að hótelinu við Hörpu eru ósáttir við bann Reykjavíkurborgar á vörur frá Ísrael
F
járfestar tengdir bandaríska
fasteignafélaginu Carpenter
& Co. hafa tilkynnt borgaryfir
völdum að aðkoma þeirra að
fjármögnun 17 milljarða króna
lúxushótelsins við Hörpu sé í upp
námi vegna ákvörðunar Reykjavíkur
borgar um að sniðganga vörur frá Ísr
ael. Samkvæmt heimildum DV höfðu
þeir samband við skrifstofu borgar
stjóra í síðustu viku til að lýsa óánægju
sinni með viðskiptabannið. Dagur B.
Eggertsson vildi ekki veita viðtal vegna
málsins þegar eftir því var leitað.
Richard L. Friedman, forstjóri
Carpenter & Co., segir fyrirtækið ekki
skipta sér af íslenskum stjórnmálum
eða stefnumótun borgaryfirvalda.
Pólitíkin hjá öðrum
Friedman, sem leiðir hótelverkefnið
við Hörpu og er gyðingur, segir í yfir
lýsingu sem hann sendi DV í gær að
hann hafi heyrt af ákvörðun meirihluta
borgarstjórnar um viðskiptabann gegn
Ísrael. Ákvörðunin var tekin í byrjun
síðustu viku þegar meirihlutinn sam
þykkti tillögu Bjarkar Vilhelmsdóttur,
fyrrverandi borgarfulltrúa, um að
Reykjavíkurborg sniðgangi vörur frá
Ísrael í innkaupum sínum.
„Verkefninu okkar og mér sjálfum
hefur verið tekið mjög vel af Íslandi,
íbúum þess og borgaryfirvöldum. Við
erum því mjög áhugasöm fyrir hótel
verkefninu og því sem það mun gera
fyrir íslenska ferðaþjónustu, hagkerfi
og borgina. Við ætlum að láta aðra sjá
um innlend og alþjóðleg stjórnmál
og stefnumótun. Ég hef sjálfur mikið
álit á umburðarlyndi Íslands og þeirri
virðingu sem þjóðin sýnir öllu fólki,“
segir Friedman.
Viðskiptabannið hefur haft víð
tækar afleiðingar. Dæmi eru um að
vörur íslenskra fyrirtækja hafi verið
teknar úr hillum verslana í Bandaríkj
unum og erlendir ferðmenn afbókað
ferðir með íslenskum flugfélögum. Ut
anríkisráðuneytið ítrekaði í lok síðustu
viku að ákvörðun borgarstjórnarinnar
sé ekki í samræmi við utanríkisstefnu
Íslands eða til marks um tengsl lands
ins og Ísraels. Dagur hefur viðurkennt
að viðskiptabannið hafi verið mistök
og tilkynnti um síðustu helgi að tillaga
Bjarkar yrði dregin til baka. Ekki náð
ist í hann við vinnslu fréttarinnar þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir. Pétur Ólafsson,
aðstoðarmaður borgarstjóra, sagði í
samtali við DV hafa heyrt af því „í fram
hjáhlaupi“ að aðilar tengdir hótelverk
efninu hefðu lýst óánægju sinni með
viðskiptabannið. Hann hafi þó ekki
rætt málið nánar við borgarstjóra.
Skrifuðu undir í ágúst
Heildarfjárfesting fimm stjörnu hót
elsins, sem verður rekið af alþjóðlegu
hótelkeðjunni Marriott, er um 130
milljónir dala eða tæpir 17 milljarðar
króna. Hótelið verður 250 herbergja
og á að opna árið 2019. Arion banki
kom að lánsfjármögnun verkefnisins
og átti frumkvæði að því að kynna það
fyrir Carpenter og Co. og íslenska fjár
festinum Eggerti Dagbjartssyni sem
er minnihlutaeigandi í því.
DV hefur áður greint frá því að
bygging lúxushótels við Hörpu á sér
nokkuð langa sögu sem rekja má aft
ur til áranna rétt fyrir hrun. Sítus, félag
í eigu ríkisins og Reykjavíkurborgar
sem átti lóðina við tónlistar húsið,
bauð byggingarreit undir hótel til sölu
í júlí 2011 í útboði sem var framkvæmt
af Ríkiskaupum. Sviss neska fjár fest
inga fé lagið World Leisure In vest ment
(WLI) átti þá hæsta boð og í kjölfarið
fóru tæp tvö ár í samn ingaviðræður
milli þess og Sítus. Áform WLI fóru
út um þúfur og stjórn Sítus seldi Auro
Investments ehf. lóðina á 1,8 millj
arða króna í lok sumars 2013. Um
ári síðar ákváðu kjölfestufjárfestarnir
sem voru á bakvið Auro að segja skil
ið við verkefnið. Í apríl 2015 var til
kynnt um aðkomu Carpenter & Co.
og samningur um kaup á byggingar
reitnum undirritaður í ágúst.
Í þessu samhengi er vert að ryf
ja upp ummæli Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar, forsætisráðherra
síðastliðnn laugardag. Í samtali við
RÚV lýsti hann ótta sínum varð
andi að stór verkefni kynnu að vera
í hættu vegna málsins. Hann fór ekki
nánar út í hvaða verkefni það kynnu
að vera. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Mynd SiGtryGGur Ari
Hótelin græddu
551 milljón
Íslandshótel, sem á og rekur
Grand Hótel, Fosshótelin, Hót
el Reykjavík Centrum og Best
Western Hótel Reykjavík, hagn
aðist um 551 milljón króna á síð
asta ári. Hagnaðurinn jókst um
172 milljónir milli ára og tekjur
samstæðunnar um 700 milljón
ir króna. Samkvæmt nýbirtum
ársreikningi fyrirtækisins námu
rekstrartekjur þess tæpum 5,2
milljörðum. Eignir hótelanna
námu 12,3 milljörðum en skuld
irnar 10,5 milljörðum. Eigið fé
félagsins var því jákvætt um 1,8
milljarða króna.
Við undirritun Skrifað var undir samninga um kaup Carpenter & Co. á hótelreitnum við Hörpu í ágúst síðastliðnum. Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri og Richard L. Friedman, sem hér standa hlið við hlið á miðri myndinni, voru báðir viðstaddir undirritunina.
Féll átta
metra og lést
Ísraelski ferðamaðurinn sem lést
við Svínafellsjökul á sunnudag
féll um átta metra fram af kletti
og hafnaði í grjóturð. Slysið varð
um miðjan dag en maðurinn var
65 ára gamall. Hann var á göngu
utan í Hafrafelli, skammt frá bíla
stæði við jökulinn. Hann rann
til og hrasaði með fyrrgreindum
afleiðingum. Lík ferðamannsins
verður krufið, svo hægt verði að
skera endanlega úr um dánaror
sökina, að því er mbl.is hefur eftir
Þorgrími Ólafi Sigurðssyni, að
stoðaryfirlögregluþjóni hjá lög
reglunni á Suðurlandi. Ekki hefur
verið greint frá nafni mannsins.