Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2015, Blaðsíða 12
Vikublað 22.–24. september 201512 Fréttir
BLEKHYLKI
TÓNERAR
PRENTARAR
RITFÖNG
GÓÐ VERÐ
GÓÐ ÞJÓNUSTA
SKÚTUVOGI 11
SÍMI: 553 4000
Fá hundruð milljóna króna vegna
umsýslu eigna Fyrir gamla straum
n Tveir fyrrverandi starfsmenn ALMC fengu tæplega 400 milljónir í þóknun vegna ráðgjafastarfa 2013 og 2014 n Arðgreiðslur nema yfir 200 milljónum
T
veir fyrrverandi starfs-
menn ALMC, áður
Straumur-Burðarás fjár-
festingabanki, hafa fengið
greitt nærri 400 milljónir
króna í þóknanir vegna ráðgjafa-
starfa sinna fyrir eignaumsýslufé-
lagið á aðeins tveimur árum. Þeir
Gísli Valur Guðjónsson og Brynj-
ar Þór Hreinsson, sem starfa í dag
sem forstöðumenn sérhæfðra fjár-
festinga hjá Íslenskum verðbréfum
(ÍV), hafa þannig á árunum 2013
og 2014 greitt sér yfir 200 milljónir
króna í arð úr samlagsfélaginu Act-
ima Partners sem er í eigu þeirra.
Á undanförnum árum hafa
Gísli Valur og Brynjar Þór setið
í stjórnum fjölmargra dótturfé-
laga ALMC en eignaumsýslufélag-
ið varð til í kjölfar þess að gamli
Straumur, sem fór í greiðsluþrot í
mars árið 2009, lauk nauðasamn-
ingum sumarið 2010. Félagið Act-
ima Partners, sem er með ráðgjaf-
arsamning við ALMC, var stofnað
á seinni hluta ársins 2012 en fram
að því höfðu þeir Gísli Valur og
Brynjar Þór verið fastráðnir starfs-
menn í eignaumsýslu ALMC.
Í samtali við DV vildi Gísli Val-
ur, framkvæmdastjóri og annar af
hluthöfum félagsins, ekkert tjá sig
um ráðgjafastörf eða samninga
Actima Partners við önnur félög.
340 milljóna hagnaður
Þær gríðarlega háu þóknanir sem
þeir hafa fengið vegna ráðgjafa-
starfa sinna fyrir að halda utan
um ýmsar eignir ALMC hafa kom-
ið á sama tíma og Gísli Valur og
Brynjar Þór hafa verið starfsmenn
Straums fjárfestingabanka og síðar
Íslenskra verðbréfa. Eftir að hafa
starfað í eignastýringu Straums frá
Á
undanförnum árum hef-
ur kastljós fjölmiðla eink-
um beinst að slitastjórnum
föllnu bankanna í tengsl-
um við háar þóknunargreiðslur
sem þær hafa fengið vegna starfa
sinna. Þannig greindi DV með-
al annars frá því í liðinnu viku
að tímagjald slitastjórnar Glitn-
is hefði í byrjun þessa árs ver-
ið hækkað í 57 þúsund krónur –
og hefur tímagjaldið hækkað um
250% frá upphafi slitameðferðar
2009.
Því fer hins vegar fjarri, eins
og ráðgjafavinna Gísla Vals og
Brynjars Þórs fyrir ALMC sýnir,
að slíkar þóknunargreiðslur ein-
skorðist aðeins við slitastjórnir
gömlu bankanna. Í mörgum til-
fellum hafa ýmsir starfsmenn og
ráðgjafar föllnu bankanna borið
mun meira úr býtum. Í forsíð-
ufrétt DV hinn 19. maí síðast-
liðinn upplýsti DV um að ALMC
hefði sett til hliðar 23 milljón-
ir evra, jafnvirði um 3,4 millj-
arða íslenskra króna, sem félagið
áformaði að greiða í bónusa til
núverandi og fyrrverandi lykil-
starfsmanna og stjórnarmanna.
Að meðaltali geta greiðslurnar
numið yfir 100 milljónum króna
á starfsmann en þeir sem myndu
fá hæstu greiðslurnar geta átt
von á því að fá hundruð milljóna
í sinn hlut. Í þeim hópi er meðal
annars Jakob Ásmundsson, fyrr-
verandi forstjóri Straums fjár-
festingabanka, en hann gegndi
áður starfi fjármálastjóra ALMC.
Samkvæmt heimildum DV er
fjöldi þeirra starfsmanna sem
ráðgert er að fái slíkar kaupauka-
greiðslur frá ALMC á bilinu 20
til 30. Meirihluti þeirra eru er-
lendir aðilar en einnig er um að
ræða Íslendinga sem hafa starfað
fyrir bæði ALMC og Straum fjár-
festingabanka á undanförnum
árum.
Óvíst um milljarða bónusgreiðslur til starfsmanna ALMC
Óttar Pálsson
Daniel Svanström
Christopher Perrins
Jakob Ásmundsson Birna Hlín Káradóttir Magnús Ingi Einarsson
Andrew Bernhardt Oscar Crohn
Hörður Ægisson
hordur@dv.is