Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2015, Síða 10
10 Fréttir Vikublað 22.–24. september 2015
Í viðræðum vegna risamyndar í Hollywood
n Baltasar Kormákur getur valið úr safaríkum tilboðum vegna góðs gengis Everest n Variety
B
altasar Kormákur seg-
ist geta valið úr nokkrum
safaríkum tilboðum í
kjölfar velgengni nýju-
stu myndar sinnar, Ev-
erest. „Ég er með nokkur tilboð
sem eru mjög spennandi. Ég finn
það strax að menn eru spennt-
ir að fá mig. Nú er bara spurn-
ing hver fær næstu mynd,“ segir
Baltasar. Ein þeirra er „100 millj-
ón dollara mynd“ eins og leik-
stjórinn orðar það og eru samn-
ingaviðræður vegna hennar þegar
komnar í gang. Ef samningar nást
verður það langdýrasta mynd sem
Baltasar hefur gert hingað til en
Everest kostaði 55 milljónir dala,
eða yfir sjö milljarða króna.
Óvíst með næsta verkefni
Gagnrýnandi hins virta kvik-
myndarits The Hollywood Report-
er sagði að með Everest væri
Baltasar að sýna og sanna að
hann væri kominn á næsta stig á
ferli sínum. Miðað við viðbrögð-
in við myndinni hingað til og hinn
aukna áhuga á Baltasar sem leik-
stjóra virðist það hafa gengið eft-
ir. Baltasar segir óvíst hvert verði
hans næsta verkefni en hann er
þegar búinn að skuldbinda sig til
að leikstýra víkingamynd, sem
verður meðal annars tekin upp
á Íslandi, og Cascade með Ósk-
arsverðlaunaleikkonunni Cate
Blanchett í aðalhlutverki. Kvik-
myndaverið Universal mun fram-
leiða víkingamyndina, rétt eins og
Everest, en framleiðandi Cascade
er kvikmyndaverið 20th Century
Fox.
Launin hækka hressilega
„Fólkið sem fjármagnar er spennt-
ara núna að ýta þessum verkefn-
um áfram. Það treystir meira á mig
og þá þarf ég ekki að treysta eins
mikið á að fá einhverja stjörnu
sem gerir þetta. Svo hækka laun-
in mín hressilega við þetta fyrir
næstu mynd, svona eins og geng-
ur í þessum bransa,“ segir hann.
Samningar leikstjórans, sem hann
hefur þegar undirritað, eru háðir
gengi Everest og verða hagstæðari
ef henni gengur vel.
Á toppnum í 13 löndum
Everest hefur svo sannarlega geng-
ið vel. Hún kleif upp á toppinn í
þrettán löndum um síðustu helgi
og námu tekjurnar um 26 milljón-
um dala, eða rúmum þremur millj-
örðum króna. Myndin náði með-
al annars efsta sætinu á Íslandi,
í Mexíkó, Ástralíu, Suður-Afríku,
Indlandi, Rúmeníu og í Argentínu.
Einnig setti hún met í Bandaríkjun-
um hvað aðsókn í september varð-
ar yfir þær myndir sem eru sýndar
í kvikmyndahúsum sem bjóða upp
á IMAX-sýningarkerfið. Þar námu
tekjurnar rúmum sjö milljónum
dala en myndin fer í almennar sýn-
ingar „heima“ í Norður-Ameríku
um næstu helgi.
Everest skilar hagnaði
Everest er því þegar búin að slá í
gegn. Hún er orðin „success“ eins
og Baltasar orðar það réttilega og
segir hann þegar komið á hreint að
myndin komi út í töluverðum hagn-
aði, bara vegna hins góða geng-
is utan Bandaríkjanna. Hann er því
ekkert of stressaður yfir því hvort
myndin komist yfir 20 milljóna
dala markið í N-Ameríku um næstu
helgi eða ekki. „Allt yfir 20 er frá-
bært af því að ég er ekki með neinn
Denzel Washington eða svona vin-
sælan gæja í myndinni. Menn gera
ekki meiri væntingar til mynd-
ar sem er ekki með risastóra kvik-
myndastjörnu í aðalhlutverki,“ seg-
ir Baltasar.
Þrjár í röð yfir 20 milljónum?
Fari Everest yfir 20 milljóna dala
markið verður hún þriðja myndin
hans í röð sem nær þeim árangri en
Contraband og 2 Guns náðu 24 og
27 milljónum á sinni fyrstu helgi.
Það yrði mjög góður árangur, sér-
staklega þegar um evrópskan leik-
stjóra er að ræða. „Það eru fáir sem
taka þrjár í röð sem virka. Það er
mjög sjaldgæft,“ segir hann og vís-
ar í umfjöllun kvikmyndaritsins
Variety um 2 Guns. Þar stóð að afar
sjaldgæft væri að evrópskur leik-
stjóri næði toppnum tvisvar í röð í
Hollywood.
Leikstjórinn reiknar þó ekki ekki
með því að ná toppsætinu vestan-
hafs um næstu helgi. Teiknimyndin
Hotel Transylvania 2 mun að öllum
líkindum hrifsa það til sín því henni
er spáð afar góðu gengi. Einnig spil-
ar inn í IMAX-frumsýning Ever-
est um síðustu helgi sem gerir það
að verkum að heilmargir eru þegar
búnir að sjá myndina.
Everest er hans mynd
Stjörnunum Mark Wahlberg og
Denzel Washington var að stóru
leyti þakkað fyrir aðsóknina sem
Contraband og 2 Guns fengu. Að
sögn Baltasars lítur fólk meira á Ev-
erest sem hans mynd en hinar tvær.
„Þessi mynd snýst miklu meira um
leikstjórann heldur en hinar mynd-
irnar. Maður fær meira „kredit“ fyr-
ir þetta af því að þetta er bæði erfið
mynd og það var erfitt að fjármagna
hana,“ segir hann en myndir sem
snúast um bardaga fólks við nátt-
úruöflin hafa hingað til ekki þótt
líklegar til vinsælda vestanhafs.
Fjármögnunin var aftur á móti auð-
veldari utan Bandaríkjanna þar sem
slíkar myndir njóta frekar vinsælda.
Yfir 100 milljónir dala
Contraband og 2 Guns stóðu vel
undir sér og rúmlega það. Contra-
band kostaði 25 milljónir dala í
framleiðslu en þénaði 66,5 millj-
ónir í N-Ameríku og samanlagt 96
Freyr Bjarnason
freyr@dv.is „Svo hækka
launin mín
hressilega
Hitabangsarnir
Aðeins 2 mín í örbylgjuofni
og þeir verða mjúkir, hlýjir og
dásamlegt að kúra með þeim.
Þeir eru fylltir með hirsi og
smá ilm af Lavander.
Allir
þurfa Yoohoo í líf sitt
komnir
aftur