Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2015, Blaðsíða 13
Vikublað 22.–24. september 2015 Fréttir 13
H
ar
ðp
ar
ke
tÞýsk gæði!
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
Fá hundruð milljóna króna vegna
umsýslu eigna Fyrir gamla straum
n Tveir fyrrverandi starfsmenn ALMC fengu tæplega 400 milljónir í þóknun vegna ráðgjafastarfa 2013 og 2014 n Arðgreiðslur nema yfir 200 milljónum
árinu 2013 færðu þeir sig um set
um síðastliðinn áramót og tóku til
starfa hjá Íslenskum verðbréfum í
kjölfar þess að félag í meirihluta-
eigu Straums eignaðist nærri 60%
hlut í ÍV.
Á árinu 2013 námu tekjur Act-
ima Partners vegna seldrar þjón-
ustu félagsins tæplega 165 millj-
ónum króna. Að teknu tilliti
til rekstrargjalda, sem voru að
stærstum hluta launagreiðslur til
eigenda félagsins, þá nam hagn-
aður Actima Partners 140 milljón-
um króna. Fengu Gísli og Brynj-
ar ríflega 86 milljóna króna arð í
sinn hlut eftir greiðslu tekjuskatts.
Á síðasta ári var afkoma félags-
ins hins vegar enn betri. Ekki eru
gefnar upplýsingar um tekjur af
seldri þjónustu vegna ráðgjafa-
starfa fyrir árið 2014 en hagnað-
ur Actima Partners nam nærri 200
milljónum króna. Arðgreiðsla til
eigenda, eftir að hafa staðið skil á
greiðslu tekjuskatts að fjárhæð um
72 milljónir króna, var ríflega 118
milljónir króna.
Vogunarsjóðir eigendur
Hluthafar eignaumsýslufélagsins
ALMC eru að langstærstum hluta
ýmsir erlendir fjárfestingarsjóðir,
meðal annars bandaríski vogunar-
sjóðurinn Davidson Kempner,
sem er jafnframt stærsti einstaki
kröfuhafi föllnu bankanna. Á síð-
ustu árum hafa starfsmenn og ráð-
gjafar félagsins unnið að því að
hámarka virði eigna og umbreyta
þeim yfir í reiðufé og úthlutunar
til eigenda ALMC. Samhliða þessu
hefur starfsmönnum ALMC fækk-
að ört á umliðnum árum og voru
þeir aðeins fimm talsins í lok síð-
asta árs.
Í árslok 2014 námu heildar-
eignir félagsins 917 milljónum
evra, jafnvirði um 132 milljarðar
króna, og þar af um 60% í reiðufé,
að stærstum hluta erlendur gjald-
eyrir. Bókfært verðmæti eigna sem
eru skilgreindar til sölu nam hins
vegar um 300 milljónum evra, en
þar er einkum um að ræða ýmsar
erlendar eignir. Krónueign ALMC
nam um 15 milljörðum króna í
árslok 2014, eða ríflega 10% af
heildareignum félagsins.
Í stjórnum félaga ALMC
Gísli Valur og Brynjar Þór hafa
sem fyrr segir verið stjórnar-
menn og stjórnendur í mörgum
af þeim félögum sem eru í eigu
ALMC. Þannig hefur Brynjar með-
al annars átt sæti í stjórn íslenska
hugbúnaðarfyrirtækisins LS Reta-
il en tilkynnt var um sölu fyrirtæk-
isins til bandaríska fjárfestingar-
sjóðsins Anchorage Capital í
júlí síðastliðnum. Þá var Brynj-
ar sömuleiðis stjórnarmaður og
framkvæmdastjóri í CB Holding,
íslensku félagi sem yfirtók West
Ham árið 2009, en eins og sagt var
frá í DV í síðustu viku seldi félagið
nýlega þann hlut sem það átti eftir
í enska knattspyrnufélaginu.
Gísli Valur er meðal annars
stjórnarformaður LS Retail
Holding, sem hefur haldið utan
um eign ALMC í hugbúnaðarfyr-
irtækinu, auk þess að vera vara-
maður í stjórn M-Holding sem var
sett í slitameðferð fyrir skemmstu.
Á meðal eigna M-Holding voru
dönsku verslanirnar Magasin du
Nord og Illum en í kjölfar fjár-
málahrunsins voru eignir félags-
ins yfirteknar af Straumi-Burðar-
áss, síðar ALMC. n
Óvíst um milljarða bónusgreiðslur til starfsmanna ALMC
Eigandi Actima Partners Gísli Valur
Guðjónsson vildi ekkert tjá sig um ráð-
gjafastörf Actima Partners fyrir önnur félög.
Eigandi Actima Partners
Brynjar Þór Hreinsson.
Tveimur mánuðum síðar
greindi DV hins vegar frá því að
alls óvíst væri um fyrirhugaðar
bónusgreiðslur til starfsmanna
ALMC þar sem félagið þyrfti að
óbreyttu að greiða yfir 50 millj-
arða króna stöðugleikaskatt til
ríkissjóðs. Samkvæmt frum-
varpi fjármálaráðherra
um stöðugleikaskatt,
sem var samþykkt
á Alþingi hinn 3.
júlí síðastliðinn,
var ákveðið að
fella ALMC
undir stöð-
ugleikaskatt-
inn vegna
áætlunar
stjórnvalda um
losun hafta sem
þýðir að félagið
þarf að reiða af hendi
39% skatt af heildareign-
um í lok þessa árs.
Stjórnendur ALMC gagnrýndu
mjög að stöðugleikaskatturinn
væri látinn ná til félagsins enda
telja þeir að starfsemi þess hafi
hingað til haft umtalsverð jákvæð
áhrif á greiðslujöfnuð þjóðarbús-
ins. Hyggst ALMC höfða mál á
hendur ríkinu, gerist þess þörf,
til að verja hagsmuni sína. Til-
raunir ráðgjafa stjórnvalda til að
ná samkomulagi við ALMC um
að félagið inni af hendi svokallað
stöðugleikaframlag – og þannig
komast hjá því að greiða stöð-
ugleikaskattinn – hafa engan ár-
angur borið fram til þessa.
Auk Jakobs áttu jafnframt
stjórnarmenn ALMC von á bón-
usgreiðslum frá félaginu, sam-
kvæmt heimildum DV. Þeir eru
Óttar Pálsson, eigandi
og hæstaréttarlög-
maður hjá Logos,
Christopher
Perrin, stjórn-
arformað-
ur ALMC, og
Andrew Bern-
hardt, en hann
var einnig
áður fram-
kvæmdastjóri
ALMC. Aðrir Ís-
lendingar sem eru
hluti af kaupauka-
kerfi ALMC eru með-
al annars Birna Hlín Káradótt-
ir, yfirlögfræðingur sameinaðs
félags MP banka og Straums, og
Magnús Ingi Einarsson, fram-
kvæmdastjóri fjármála hjá MP
Straumi. Þau höfðu á undan-
förnum árum einnig unnið fyrir
ALMC samhliða störfum sínum
fyrir Straum fjárfestingabanka.
DV hefur ekki staðfestar upplýs-
ingar um hvort Brynjar Þór og
Gísli Valur séu jafnframt hluti af
kaupaukakerfi ALMC.
Gamli Straumur
Eftir að bankinn
lauk nauðasamn-
ingum sumarið 2010
varð til eignaum-
sýslufélagið ALMC.